Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú virðist viðra vel til breytinga og því skaltu velta fyrir þér þeim tækifærum sem þér bjóðast. Leitaðu ráða þér eldri og reyndari manna og þá áttu auðveldara með að taka af skarið. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur verið lúsiðinn að undanförnu svo nú er komið að því að þú njótir ávaxta erfiðis þíns og lyftir þér aðeins upp. Eitthvað tengt fjölskyldunni kemur þægilega á óvart. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vinnan eða heilsan stendur í vegi fyrir fyrirætlunum ykkar í dag. Hafðu sér- stakar gætur á fjármálunum. Fjölskyldu- leyndarmál kunna að kvisast út í dag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta verður góður dagur í vinnunni og þú kemur miklu í verk. Gættu þess bara að fara ekki yfir strikið. Sýndu samstarfsvilja, vertu með opinn huga og leyfðu öðrum að létta undir með þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert nú ekki heppilegasti maðurinn til þess að bjarga heiminum á meðan þú getur ekki einu sinni skipulagt þitt eigið líf. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert á ferð og flugi, tilbúinn að kynn- ast nýjum stöðum og nýju fólki. Það krefst hugrekkis að steyta hnefann og segja að nú sé nóg komið og þú eigir betra skilið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þig langar að standa í sviðsljósinu. Vertu fyrri til að rétta fram sáttahönd ef ágreiningur kemur upp, því sjaldan veldur einn þá tveir deila. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt ný reynsla sé mjög jákvæð, vertu viss um að fá líka tíma til að hvíla þig. Það tekur á taugarnar þegar þeir sem manni eru kærir sýna þrjósku og afneita stað- reyndum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Velgengnin veltur á getu þinni til að brosa framan í erfiðleikana. Haltu áfram að sýna gagnrýninni manneskju umburðarlyndi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er nauðsynlegt þegar fjármálin eru skoðuð að reyna ekki að blekkja sjálfan sig með einhverjum hundakúnstum. Hlýddu á ráð góðs vinar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Peningar eru nauðsynlegir en þeir eru ekki allt. Um þessar mundir er létt að missa stjórn á sér út af smávægilegum hlut- um. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gefðu þér tíma til að taka til í kringum þig bæði á heimilinu og í vinnunni. Nú er skynsamlegast að hugsa mjög vel um sjálfan sig. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Þessi maður aumur er. Í hann skírnarvatnið fer Blóð úr þessu beni rann. Í búri súrmat geymir hann. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Er sá maður svekktur mjög og sár. Sár með skírnarvatni, eða fat. Sár hjá barni boðar oftast tár. Í búri sár með ýmiskonar mat. Sigmar Ingason á þessa lausn: Á kinn bar seggur kalsár stór Í kirkjunum stendur sár í kór Oft vill blóðið seytla úr sárum Sáir voru í búrum fyrr á árum Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Kerald, fontur, aumur, und opna mínar brár. Morgunn gefur gull í mund. „Gummi“, þetta’ er sár. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Sár var slösuð Ásta og aum. Hún eygði vatn í skírnarsá og þvoði holsár. Gaf því gaum sér gæfist mat úr sá að ná. Helgi Seljan á þessa lausn: Enn skal baksað og bisað við blessaðan vísnanna góða sið. Lausnin nú er svo kvitt og klár, kannast margur við orðið sár. En sjálf lausnin er hér: Sár er margur maður hér, messuvín í sáinn fer. Blóð úr sári berst með sann, í búri súrmat finna kann Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Margur sár í sinni er. Sár er skírnarfonturinn. Blóð úr sári blæddi hér. Í búri sár er auðfundinn. Þá er limra: Að vera í húsnæðishraki með heilmiklar skuldir á baki, svekktur og sár og sárvanta tár, er þyngra en tárum taki. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Vindur blæs af ýmsri átt, á vill sitthvað bjáta, þó sé fátt um fínan drátt, fæddist þessi gáta: Rúmgott fordyri ranna. Reisulegt stórhýsi er. Hneigist til heldri manna. Hár þarna unir sér. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svíðandi sár eru betri en dulin Í klípu „einu sinni horfÐumst viÐ djúpt í augu. Nú hvessum viÐ augun.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „miÐAÐ viÐ hvernig mér hefur gengiÐ UNDANFARIÐ MYNDI ÉG SEGJA AÐ MÖGULEIKAR ÞÍNIR SÉU 50-50.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... jafntefli. … OG ÞESS VEGNA Á EKKI AÐ SNÚA PÖNNUKÖKUNUM OF KRÖFTUGLEGA OG HVERS VEGNA SEGIR ÞÚ MÉR ÞETTA? GLEYMDU ÞESSU ÞAÐ ER ENGINN GALLALAUS!ÞIÐ ERUÐ GAGNSLAUST, OFBELDISHNEIGT, RUPLANDI, SJÁLFSELSKT INNRÁSARHYSKI! Hjónabands- rÁÐgjöf Hlynur Bæringsson og Jón ArnórStefánsson kvöddu íslenska landsliðið í körfubolta með stæl í landsleiknum gegn Portúgal í Laugardalshöll á fimmtudagskvöld. Það var við hæfi að Hlynur skyldi vera með flest fráköst í liðinu og Jón Arnór stigahæstur. Þessir menn eru ef til vill ekki lengur á hátindi ferils síns, en þeir sýndu og sönnuðu í fyrrakvöld að þeir eiga nóg eftir til að geta lagt sitt af mörkum á hvaða sviði sem er. x x x Útsjónarsemi Hlyns í körfuboltaer með ólíkindum. Hann á í fullu tré við sér stærri menn, oft mun stærri, og nær fráköstum þar sem hann ætti ekki að eiga möguleika. Þá gefur hann allt í leikinn og gerir margt sem getur skipt gríðarlegu máli þótt það sé ekki mælt í tölum. Slíkir leikmenn hafa stundum verið kallaðir ruslakarlar, en það er með fullri virðingu og má nefna leikmenn á borð við Dennis Rodman, sem sóp- aði til sín titlum í NBA með Detroit og Chicago. x x x Ekki þarf að fjölyrða um hæfileikaJóns Arnórs. Sú var tíðin að hann var slík kjölfesta í landsliðinu að þegar hann var inn á lyftist leikur þess upp á annað stig. Það fengu Ís- lendingar að sjá svo um munaði á EM í Berlín. x x x Nú má segja að Martin Her-mannsson sé orðinn sambæri- legur leikmaður. Að öðrum ólöst- uðum var magnað að sjá til hans á móti Portúgal. Öryggi hans með boltann er aðdáunarvert og augljóst að andstæðingurinn var lafhræddur við hann og lagði höfuðáherslu á að stöðva hann án þess að eiga mögu- leika á því. Skemmtilegustu tilþrif Martins komu þegar hann vann bolt- ann af andstæðingnum og rauk í hraðaupphlaup með því að skalla boltann fyrir sig áður en hann gaf glæsilega stoðsendingu á Kristófer Acox, sem lagði boltann í körfuna. Reyndar lék liðið allt frábærlega gegn Portúgal. Svona stemmt er það hverjum sem er erfiður andstæð- ingur. vikverji@mbl.is Víkverji Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að ei- lífu. (Sálm: 86.12)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.