Morgunblaðið - 23.02.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.02.2019, Qupperneq 22
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Frá því að gjaldeyriseftirliti var komið á laggirnar innan Seðlabanka Íslands um mitt ár 2009 hafa 557 mál verið skráð í skjalavistunarkerfi bankans er varða rannsókn á meint- um brotum gegn lögum um gjald- eyrishöft. Af þessum málum hefur Seðlabankinn kært 113 mál í samtals 24 kærum, vegna þess sem kallað er „meiri háttar brot“ gegn lögum og reglum um gjaldeyrismál. Seðla- bankinn hefur hætt rannsókn í 315 málum eða fellt þau niður. Þetta kemur fram í skriflegu svari Katr- ínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar alþingismanns. Í svarinu kemur einnig fram að bankinn hafi tekið ákvörðun í 10 mál- um fyrir brot á lögum og reglum um gjaldeyrismál og að þar af hafi sjö málum lokið með stjórnvaldssekt. Þá hafi Seðlabankinn á grundvelli heim- ilda þar um lokið samtals 31 máli með sátt við þá aðila sem rannsóknir bankans beindust gegn. 114,2 milljónir felldar niður Í fyrirspurn Birgis fólst beiðni um að fá sundurliðaðar upplýsingar um sektarfjárhæðir eða þær fjárhæðir sem um var að ræða í þeim málum sem lokið var með sátt. Í svari ráðherra kemur fram að heildarfjárhæð sektargreiðslna sam- kvæmt stjórnvaldsákvörðunum og sáttum hafi numið í heild 204,3 millj- ónum króna. Af því hafi 115,8 millj- ónir komið til vegna stjórnvalds- ákvarðana og 88,5 á grundvelli sátta. Athygli vekur að fjárhæðir einstakra mála hafa verið mjög misjafnar að umfangi. Hæsta stjórnvaldsákvörð- unin hljóðaði upp á 75 milljónir en lægsta fjárhæðin í sáttarmálum nam 15 þúsund krónum. Flest málin voru útkljáð árið 2014 eða 11 talsins. Námu fjárhæðir í þeim málum ríflega 37,4 milljónum króna. Árið 2015 voru málin átta talsins og fjárhæðirnar 22,5 milljónir tæpar. Umfangsmestu málin voru útkljáð á vettvangi gjaldeyriseftirlitsins árið 2016. Þau voru sex talsins og fjár- hæðirnar sem um var að tefla 120,9 milljónir króna. Á árinu 2017 var málið aðeins eitt og sátt gerð í því máli upp á 22,5 milljónir króna. Árið 2018 var ein sátt gerð upp á 185 þús- und krónur. Afturreka í þremur málum Í þremur tilvikum hefur Seðla- bankinn verið gerður afturreka með sektarákvarðanir sínar. Það hefur gerst með dómsniðurstöðu Hæsta- réttar í dómum nr. 463, 638 og 639 ár- ið 2017. Í fyrstnefnda málinu var bankinn gerður afturreka með 15 milljóna stjórnvaldssekt gegn Sam- herja hf. Í síðarnefndu málunum tveimur voru felldar niður sektar- ákvarðanir að fjárhæð 99,2 milljónir króna gagnvart félaginu Rask ehf. en félagið er í eigu bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona, sem oftast eru kenndir við félagið Bakkavör. Dómsniðurstöðurnar þrjár valda því að 56% þeirrar fjárhæðar sem bank- inn hafði krafið einstaklinga og fyr- irtæki um, sem hann taldi að gerst hefðu brotleg við gjaldeyrislög, hafa verið endurgreidd. Afrakstur gjaldeyriseftirlits Seðlabankans í formi sekta síðasta áratuginn nemur því ríflega 90,1 milljón króna. Milljarða kostnaður Í fyrirspurn Birgis til forsætisráð- herra var grennslast eftir kostnaði við rekstur gjaldeyriseftirlitsins frá þeim tíma er því var komið á lagg- irnar um mitt ár 2009. Í svari ráðherra kemur fram að fram til ársins 2013 hafi kostnaði við rekstur Seðlabankans ekki verið skipt niður á einstök svið hans. Því ná tölurnar í svari ráðherra aðeins yfir sex ára tímabil, þ.e. frá 2013 til 2018. Í því kemur fram að heildarkostnað- ur við eftirlitið hafi numið 1.547 millj- ónum króna. Mestur var kostnaður- inn 332,2 milljónir árið 2017 en að meðaltali hefur hann numið 257,9 milljónum á ári. Sé meðaltalskostn- aðurinn yfirfærður á þann áratug sem eftirlitið hefur starfað má gera ráð fyrir að kostnaður við eftirlitið stappi nærri 3 milljörðum króna. Í tölum ráðherra er hins vegar ekki að finna málskostnað bankans, sem til hefur fallið vegna starfsemi eftirlitsins. Það skýrist af því að sá kostnaður fellur í bókhaldi bankans undir svið lögfræðiráðgjafar og er ekki sundurgreinanlegur milli sviða. Ríflega helmingur sekt- anna verið felldur niður 3 19 9 21 21 9 20 16 24 15 Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands Rannsóknir 2010-2018 Sektir 2012-2018 Heildarfjárhæð álagðra sekta Niðurfelldar sektir *Lögfræðikostnaður undanskilinn, kostnaður við gjaldeyriseftirlit var ekki sérgreindur fram til 2013 í bókhaldi Seðlabankans 1.547 milljónir kr. var rekstrarkostnaður við gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands 2013-2018* Fjöldi stöðugilda 2010-2019 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Rannsökuð mál Rannsókn felld niður eða hætt Kærð mál 537 315 113 204.335.000 kr. 114.200.000 kr. 75.000.000 kr. er hæsta álagða sektin 15.000 kr. er lægsta álagða sektin á tímabilinu  Kostnaður við gjaldeyriseftirlit Seðlabankans nam 1,5 milljörðum á sex ára tímabili 22 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 23. febrúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.4 119.96 119.68 Sterlingspund 156.03 156.79 156.41 Kanadadalur 90.44 90.96 90.7 Dönsk króna 18.133 18.239 18.186 Norsk króna 13.835 13.917 13.876 Sænsk króna 12.761 12.835 12.798 Svissn. franki 119.15 119.81 119.48 Japanskt jen 1.0778 1.0842 1.081 SDR 166.12 167.12 166.62 Evra 135.32 136.08 135.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.3836 Hrávöruverð Gull 1335.05 ($/únsa) Ál 1857.5 ($/tonn) LME Hráolía 67.05 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Stjórn Iceland Seafood International hefur ákveðið að hefja sameiningu á tveimur dótturfélögum sínum á Spáni, Iceland Seafood Spain og Icelandic Ibérica. Félagið Icelandic Ibérica varð hluti af ISI-samsteypunni í september á síðasta ári, í kjölfar kaupa ISI á Solo Seafood sem þá var aðaleigandi Ice- landic Ibérica. Markmið samrunans er í tilkynningu sagt vera að styrkja enn frekar mark- aðsstöðu félagsins í Suður-Evrópu, þar sem fyrirtækin séu leiðandi í léttsölt- uðum og söltuðum þorski. Samanlögð velta félaganna tveggja er þá sögð vera um 180 milljónir evra. Þessi tvö fyrir- tæki verða stærsta einstaka eining inn- an ISI-samsteypunnar að samruna loknum. Félögin eru með starfsemi víðs vegar á Spáni og á Ítalíu en þau fram- leiða og selja afurðir undir vinsælum og þekktum vörumerkjum í Suður-Evrópu. Magnús B. Jónsson, núverandi for- stjóri Iceland Seafood Spain, tekur við sameinuðu félagi. Sameinar tvö dóttur- félög sín á Spáni STUTT Ný útlán viðskiptabankanna, að frádregnum uppgreiðslum, með veði í hús- næði reyndust 11,3 ma. í janúar. Þetta kemur fram í tölum frá Seðlabanka Íslands. Í gögnunum kemur fram að af þessari fjárhæð hafi óverðtryggð útlán numið tæplega 10,1 ma., króna en að tæplega 1,2 ma. hafi verið veitt- ir í formi verðtryggðra lána. Verðtryggð lán með breytilega vexti drógust saman um tæpar 310 milljónir króna en ný verðtryggð útlán með föstum vöxtum námu tæpum 1,5 milljörðum króna. Staðan á lánamarkaði hefur snúist við frá því í janúar 2018. Þá lánuðu bankarnir 5,3 ma. í formi verð- tryggðra húsnæðislána og 3,9 ma. í formi óvertryggðra lána. Langmest í óverðtryggðu Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 VELKOMIN Í URÐARAPÓTEK Ætlar þú að gleðja þinn elskhuga á konudaginn? Mikið úrval af fallegri gjafavöru ...dekurvörur og fallegar vörur fyrir heimilið Bjóðum upp á innpökkun KRINGLAN saltverslun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.