Morgunblaðið - 23.02.2019, Side 34

Morgunblaðið - 23.02.2019, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 Orðið vinátta er mér efst í huga nú þegar ég skrifa þessi kveðjuorð um vin minn Ástþór Ragnarsson. Elanor Roosevelt lýsti vinátt- unni með þessum orðum: „Mjög margt fólk kemur við sögu í lífi þínu. Sumir dveljast þar lengi en aðrir staldra bara stutt við. En einungis þeir sem eru raun- verulegir vinir þínir fara aldrei burt úr hjarta þér.“ Ég skil svo vel hvað hún átti við þegar ég kveð þennan góða mann og kæra vin. Það eru næstum 30 ár liðin síðan við Bói kynntumst og með okkur tókst vinátta sem aldrei bar skugga á. Þegar ég var að gera upp hús á Klapparstíg, Grjótagötu, Laugavegi og loks sumarhúsið okkar á Brekku var hann mér ómetanlegur, með aðstoð sína og svo góð ráð um hvernig best væri að standa að verkinu og ljúka því. Og ég veit að ég var ekki sá eini sem hann veitti svona ráð og svona stuðning því að hann sagði aldrei nei við neinn sem til hans leitaði. Við gerðum líka margt annað saman og minningarnar eru fjölmargar og skemmtilegar. Við ferðuðumst saman víða um lönd og ég fékk í einni þeirra skemmtilegt tækifæri sem mér þótti mjög vænt um að sýna þeim Betu hvar rætur mínar í Englandi liggja. Vikulega spiluðum við brids og stundum lauk þeim kvöldum með því að Bói tjáði sig á sinn einstaka hátt, sló hressilega í borðið ef ekki allt gekk að ósk- um, en Beta náði alltaf strax að létta stemninguna eins og henni einni er lagið. Bói var einstakur maður sem hafði svo mikið að gefa öðrum og var alltaf boðinn og búinn að hjálpa öllum þeim sem voru svo heppnir að þekkja hann. Vertu sæll vinur minn. Paul Newton. Það er erfitt að sjá á bak góðum vini og félaga, en því miður er það raunin þar sem Ástþór Ragnarsson vinur minn Ástþór Ragnarsson ✝ Ástþór Ragn-arsson fæddist 4. maí 1946. Hann lést 9. febrúar 2019. Útför Ástþórs fór fram 22. febr- úar 2019. og félagi til margra ára var kallaður á braut í einni svip- an. Það er sorg- legra en orð fá lýst. „Bói“ var vin- margur og vinur vina sinna. Úr- ræðagóður, vand- virkur, hörkudug- legur og hjálp- legur. Kynni okkar Bóa hófust í Iðnskólanum í Hafn- arfirði fyrir hartnær 20 árum. Fljótlega upp úr því fórum við að spila saman golf, nokkrir vinnufélagar. Þó vettvangur vinnunnar hafi stefnt okkur í ýmsar áttir gegnum tíðina höf- um við þrír haldið hópinn frá upphafi. Þær eru ófáar ánægju- stundirnar sem við Bói og „Steini“ (Þorsteinn Haraldsson) eigum að baki á þeim vettvangi. Og aldrei fallið skuggi á vin- skapinn. Það var einn morgunn í nóvember sl. að við mættum á Korpuvöllinn sem oftar og útlit fyrir sólríkan dag, hitastigið 3-4°. Við Steini mættir á teig í vetrarklæðum og dokuðum við eftir Bóa. Hann kom eins og stormsveipur léttklæddur í stuttbuxum eins og ekkert væri sjálfsagðara. Við lékum níu hol- ur, það snjóaði aðeins um tíma áður en yfir lauk. Engum var kalt í hollinu eftir leik en þetta segir hvern harðjaxl Ástþór hafði að geyma og ekki var djúpt á gáskanum. Heimsóknir í „skúrinn“, þar sem oft var leitað ráða og spjallað, gleymast ei. Uppáhell- ingar hjá Vigdísi í Sigluvoginum oft kærkomnar og verða hafðar í minnum. Elísabet, Erna, Gauti og ykk- ar fjölskyldum vil ég, fyrir hönd okkar Vigdísar, votta okkar dýpstu samúð. Megi minning um góðan dreng lifa. Matthías Nóason. Góður félagi, vinur og sam- starfsmaður, Ástþór Ragnars- son, er skyndilega fallinn frá. Ástþór var litríkur samstarfs- maður, skemmtilegur og gríð- arlega fróður um list og list- hönnun. Hann er örugglega öllum samstarfsmönnum og nemendum í IH mjög eftir- minnilegur. Við unnum saman við kennslu í Iðnskólanum í Hafnarfirði í mörg ár, hann var kraftmikill og gefandi kennari, miðlaði af sinni yfirgripsmiklu þekkingu og náði afar vel til nemenda. Hann var litríkur og skemmtilegur í þess orðs fyllstu merkingu, var alla jafna með hatt og slaufu þegar hann var að kenna, og líka í annan tíma sem var skemmtilegt og ein- kennandi fyrir hann. Svo skemmtilegt að Janus samkenn- ari okkar og ég ákváðum uppúr 2000 að stofna hatta- og slaufu- vinafélag Ástþórs meðal starfs- manna í Iðnskólanum. Var sú hefð við lýði í nokkur ár. Höfðu allir mjög gaman af þessu uppá- tæki og ekki síst Ástþór. Við Ástþór vorum saman með evrópskt Comeníusar-sam- starfsverkefni frá árinu 2003. Var Iðnskólinn þar í samstarfi í þrjú ár við verslunarskóla í Ve- liko Turnovo í Búlgaríu og iðn- skóla í Rendsburg Þýskalandi. Þetta var hönnunar- og mark- aðssetningarverkefni sem var stjórnað af okkur í Iðnskólanum í Hafnarfirði, verkefnið gekk mjög vel, fékk góða umsögn og átti Ástþór mikinn þátt í þeirri velgengni með dugnaði sínum og elju. Ástþór var góður samstarfs- og ferðafélagi. Það var sérlega gott að vinna með honum, gam- an að ferðast með honum og fara á hönnunarsöfn, sem við gerðum talsvert af í þessum ferðum okkar. Ástþór var haf- sjór af fróðleik um iðnhönnun, hina ýmsu hönnuði og stílbrigði og sagði skemmtilega frá og tengdi fróðleik milli tímabila og stíla. Eru þessar ferðir verð- mætar í sjóði minninganna. Ég er þakklátur fyrir að hafa heimsótt Ástþór fyrir skemmstu og áttum við þar gott og gef- andi spjall. Kæri samstarfsmaður, vinur og félagi, blessuð sé minning þín. Guð blessi og styrki fjöl- skyldu Ástþórs á þessum erfiðu tímum. Henrý Þór. Horfinn er af hinu jarðneska sjónarsviði minn ástkæri vinur, Ástþór Ragnarsson (Bói), húsa- smíðameistari og iðnhönnuður, en hann andaðist skyndilega laugardaginn 9. febrúar sl. Okkar góði vinskapur hafði staðið í rúmlega 60 ár og aldrei borið skugga á. Við höfðum verið saman í Langholtsskóla og síðar í Voga- skóla, enda áttum við heima í Vogahverfinu. Þrettán ára gamlir fluttum við með stuttu millibili í Stigahlíðina. Við feng- um þó að halda áfram í fyrra skólaumhverfi, enda þekktum við þar best til. Þessir flutn- ingar tengdu okkur nánar sam- an og vinskapur okkar og allur samgangur jókst jafnt og þétt. Síðan tóku unglingsárin við, oft með tilheyrandi gleði, glaumi og fjöri og við reyndum með öllum ráðum að komast inn á skemmtistaði, eins og Glaumbæ, þó að við hefðum ekki aldur til. Eftir nám í gagnfræðaskóla skildi leiðir hvað skólagöngu varðar. Bói fór í verknám, ég í Verzló. Þetta var nú stuttur formáli um æskuárin góðu. Að loknu iðnnámi hóf Bói síðan störf við smíðar, fyrst á Reykjavíkur- svæðinu og síðan í Ólafsvík og Grundarfirði. Þegar hér var komið sögu hafði Bói kvænst Betu sinni og eignast með henni tvö börn. Árið 1975 lá leið fjöl- skyldunnar til Noregs, þar sem Bói lærði iðnhönnun sem átti af- ar vel við sköpunargáfur hans. Við heimkomu frá Noregi starf- aði Bói bæði við smíðar og iðn- hönnun. Síðasta fasta starf Bóa var við Iðnskólann í Hafnarfirði, eins og hann hét þá, þar sem hann kenndi ýmsar greinar, að- allega í tengslum við iðnhönnun. Naut hann mikilla vinsælda þeirra nemenda sem hann kenndi. Alltaf héldum við góðu og nánu sambandi þó stundum hafi kastast í kekki á milli okkar, kannski aðallega út af stjórn- málum, en við vorum nú eig- inlega hvor á sínum kantinum í þeim efnum. Það var síðan sam- eiginleg ákvörðun okkar fyrir nokkrum árum að hætta öllu pólitísku þrasi og leyfa bara hvor öðrum að hafa sína skoðun í því sambandi. Hjónaband Bóa og Betu í u.þ.b. fimmtíu ár var mjög far- sælt og þeim báðum gæfuríkt. Bói var mikill fagurkeri og unnandi flestra listgreina og var mjög vel inni í listaheiminum, hvort sem um var að ræða myndlist, höggmyndalist eða hönnun og reyndar svo margt fleira. Sjálfur var Bói flinkur teiknari, bæði í leik og starfi. Eitt sem einkenndi Bóa sér- staklega var einstök greiðvikni og hjálpsemi við aðra og var þá ekki alltaf verið að kalla eftir verðskulduðum verklaunum. Ég kveð nú minn einstaka og vel gerða félaga. Mér þótti vænna um hann en flesta aðra og leit á hann í raun sem kær- leiksríkan bróður, sem reyndist mér alltaf afskaplega vel og var annar minna tveggja bestu vina, sem nú hafa báðir kvatt jarð- vistina. Og þó að sorg mín sé mikil og raunar yfirþyrmandi þá er það bara hjóm eitt í sam- anburði við hvað nánasta fjöl- skylda Bóa míns þarf nú að þola. Ég og dóttir mín, Eygerð- ur Inga, vottum Betu, eiginkonu hans, börnum þeirra Gauta og Ernu, barnabörnum og systrum hans okkar dýpstu samúð og vonum að tíminn muni lækna einhver sár. Þinn vinur um aldur og ævi, Hafþór Ingi Jónsson. Kæri vinur. Þín er sárt sakn- að, ekki átti ég von á að þú myndir kveðja svona fljótt. Allt- af gátum við átt gott samtal og leyst sameiginlega hinar ýmsu þrautir bæði í leik og starfi. Eins og verða vill var ekki alltaf tími til að hittast og spjalla en ef langur tími leið komst alltaf á samband aftur. Alltaf varst þú boðinn og búinn að bjóða í mat eða hittast ein- hvers staðar yfir kaffibolla og spjalla um menn og málefni. Spaugilegu hliðar mannlífsins gátu verið umræðuefnið og oft var hlegið. Stundum tókum við okkur til og fórum á námskeið eða í fjallgöngur eða bara eitt- hvað annað og aldrei vantaði kappsemina og áhugann á verk- efnunum. Oft vorum við í því að lána hvor öðrum verkfæri eða hjálpa hvor öðrum við það sem við kunnum. Alltaf varst þú mjög hjálplegur og fórnfús við að leggja þitt af mörkum, sérstak- lega ef þú vissir að einhver þurfti á aðstoð þinni að halda, þú varst tilbúinn að koma og drífa hluti af stað. Oft voru notaðar þrívíðar teikningar til að byrja með, svo var hægt að gera líkan af því sem átti að gera, þar á eftir var kannski fundur um málið og svo þegar hafist var handa var greinilegt að þarna voru líka kraftar miklir og ekkert verið að láta eitthvað stoppa sig. Þegar kom að því að fara í og skipuleggja mánaðarlangt ferðalag um Asíu og Evrópu fyrir um átta árum var engum betur treyst fyrir því en þér og máttum við Ólafur Guðmunds- son vita að án þín hefðum við ekki farið og ferðalagið ekki orðið jafn gott og raun bar vitni. Þetta ferðalag var bara eitt af þeim fjölmörgu sem þú fórst í þar sem ekki var verið að fara í afslöppunarferðir heldur þurfti að skoða svo ótal margt, húsa- gerð, listasögu, menningu, hús- gögn, mat og matarvenjur, því þú hafðir yndi af að smakka á þeim mat sem var í boði á hverjum stað. Ég vil þakka Ástþóri og fjöl- skyldu fyrir áralanga vináttu. Viljum við fjölskyldan votta Elísabetu, Gauta, Ernu og þeirra fjölskyldum innilega samúð. Kolbeinn Guðmundsson. Ef síminn hringdi snemma á sunnudagsmorgni þá kom bara einn til greina en það var hann Ástþór vinur minn, það var nú ekki alltaf í uppáhaldi á heim- ilinu en nú á ég eftir að sakna þess. Oftar en ekki var það ein- hver annar en ég sem svaraði og spurt var um strákinn. Ást- þór átti það nefnilega til að hringja snemma af því að hann var byrjaður að brasa eitthvað og vantaði smá hönd. Eins ef hann náði ekki í mig í farsím- ann, þá hringdi hann í heima- símann og vildi vita hvort drengurinn væri ekki með rass- vasasímann. Verkefnin voru iðu- lega fyrir einhvern annan en hann sjálfan enda bóngóður og lausnamiðaður. Ég kynntist Ástþóri í Iðn- skólanum í Hafnarfirði þar sem hann stýrði, ásamt Þorkeli G. Guðmundssyni, listnámsbraut um árabil. Ástþór lét ekki segja sér hvernig hann ætti að gera hlutina heldur fór sínar eigin leiðir sem voru oftar en ekki hárréttar og ekki að allra skapi. Hann var stundum eins og fíll í postulínsbúð en samt mjög næmur á nánasta umhverfi sitt, á liti, útfærslur og form. Hönn- un og allskonar útfærslur voru honum hugleiknar og áttum við fjölmargar rökræður um hin ýmsu mál sem ekki alltaf leyst- ust og vorum við alls ekki alltaf sammála um alla hluti. Ástþór átti líka sína frasa eins og má bjóða þér „bjóri“ þá voru það gjarnan 500 ml af einhverjum framandi bjór eða einhverri teg- und sem ekki var algeng hér heima. Það var alltaf gott að koma í skúrinn hans eða verkstæðið, skoða nýjustu pælingarnar eða bara hlusta á eitt blúslag. Verk- færi voru í sérstöku uppáhaldi og því skrítnari því merkilegri, tiltekt og skipulag einkenndi hann og rétt niðurröðun verk- færa og „tilbehör“ einkenndi hann sem undirritaður mætti taka til sín. Það besta við að vinna með honum var hversu vel undirbúinn hann ávallt var, teikningar og riss, allt útpælt. Og það gekk undan honum al- gjörlega í samræmi við stærð hans. Á sínum yngri árum byggði hann alls konar hús og gerði einnig upp fullt af eldri húsum, það eru eflaust margir sem eru sammála mér í hversu mikill vinnuþjarkur hann var. Mikill matmaður; þá einna helst sushi og því sterkara því betra. Fiskur var líka í uppá- haldi og kenndi hann mér margt um lauflétta elda- mennsku á allskonar fiskmeti. Ferðalög áttu stóran sess í hans lífi, Japan og japanskt handverk var í miklu uppáhaldi og ferðalög með Óla vini sínum til framandi landa. Skipulag hans kom þar vel fram flug, lestarferðir, rútuferðir, gisting í heimahúsum og framandi matur var honum að skapi. Við skoð- uðum þúsundir mynda af mat, hurðum, byggingum, fólki, hönnun og svona mætti lengi telja. Ferðalögin með Betu áttu líka pláss og heimsóknir til Ernu hvar sem hún var. Hann var traustur vinur sem alltaf var hægt að leita til með hvað sem var, aldrei stóð á svari „ég er til“. Nú er því miður komið að leiðarlokum, mér finnst við samt eiga eftir að gera svo mik- ið saman, kæri vinur. Ég gaf þér köttinn í sjötíu ára afmælisgjöf, þú tekur hann með þér! Bless kæri vinur og sjáumst síðar. Elsku Beta, Erna, Gauti og börn, innilegar samúðarkveðjur til ykkar frá okkur Hlín. Missir ykkar er mikill. Hrafnkell Marinósson. Ástþór var traustur vinur. Við kynntumst er við kenndum saman við Iðnskólann í Hafn- arfirði. Við ræddum málin og pældum í listsýningu nemenda hvert vor, í þónokkur ár. Hann hafði næmt auga listamannsins. Skarpsýnn, glöggur og áræðinn. Við lukum kennslu og hófum þá fyrir alvöru að tengjast og tala saman. Höfðum svipaða sýn á tilveruna. Hann var réttsýnn og hjálp- samur. Ávallt reiðubúinn til að rétta fram hönd öðrum til að- stoðar. Hann var tryggur vinur og hann passaði upp á að halda mér við efnið. Að hittast og taka stöðuna. Lífsstöðuna. Honum var umhugað um fólk og far- sæld þess. Skipti engu þó höf skildu okkur að um tíma, alltaf var hann í sambandi við mig og áhugasamur um mín verkefni. Maður er manns gaman. Hann var Ástþór og reyndist mér vel. Ég mun sakna vinar í stað. Nærvera hans hverfur þó ei úr huga. Það eitt er harla gott. Megi kær vinur hvíla í friði. Þórhallur Hólmgeirsson. Við Ástþór Ragnarsson, eða Bói einsog við frændsystkinin kölluðum hann alltaf, unnum saman í byggingarvinnu í Ólafs- vík sumarið 1973, ég sem hand- langari, hann smiður. Gott ef hann útvegaði mér ekki starfið. Ég hafði auðvitað oft áður hitt Bóa í fjölskylduboðum, en það var þetta sumar í Ólafsvík sem við kynntumst fyrir alvöru. Síð- an hafa leiðir okkar legið meira og minna saman. Við vorum báðir við nám í Ósló á áttunda áratugnum og héldum þá góðu sambandi. Eftir að heim kom að afloknu námi hélst okkar góða samband og vinátta. Bói var mjög góður smiður, mjög verklaginn og frábærlega hjálpsamur. Þegar ég stóð í verklegum framkvæmdum á mínu heimili eða annars staðar þá leitaði ég til Bóa til að fá góð ráð og hjálp. Og þegar ég nú lít í kringum mig á mínu heimili þá sé ég svo glöggt að þau eru ófá handtökin sem hann á þar. Ég minnist þess þegar fyrsta barnið okkar hjóna fæddist í Noregi og efnin voru fremur rýr, að þá hjálpaði Bói mér að smíða vöggu fyrir frumburðinn. Önnur minning frá Noregi er um litla fjölskyldu með ungbarn að flytja búslóðina sína upp á fimmtu hæð í lyftulausu húsi í Osló og enginn til að aðstoða; þá birtist Bói allt í einu til að bera með okkur búslóðina upp alla stigana. Bói var mikill listamaður og hönnuður, skapandi og hug- myndaríkur. Eftir hann liggja margir nytjahlutir og listaverk. Ég heyrði Bóa aldrei tala illa um nokkurn mann. Hann var mjög frændrækinn. Ekki síst þótti honum litla fólkið í stór- fjölskyldunni mikilvægt. Bói var góður vinur. Mér þótti vænt um hann og ég sakna hans. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Ástþór Gíslason. Kær vinur okkar og félagi, hann Bói, hefur kvatt okkur. Blessuð sé minning hans. Við söknum hans innilega Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Innilegar samúðarkveðjur, elsku Beta, Gauti Þór, Erna og fjölskyldur. Kveðja, Ingimar Þór og Þorgerður (Gerða). Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.