Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 Lífið getur varla verið betra en nú. Þessa stundina erum við fjöl-skyldan í stuttu fríi hér suður í Sviss þar sem við heimsækjumgóða vini og erum á skíðum. Það er fínt að halda upp á afmæl- ið hér. Við höfum áður farið um þessar slóðir og í fyrra vorum við í nokkra daga við Gardavatnið á Ítalíu. Suður-Evrópa er heillandi svæði,“ segir Ágúst Guðjónsson, bóndi á Læk í Flóa, sem er 46 ára í dag. Ágúst ólst upp á Selfossi en hefur alltaf haft sterk tengsl út í sveit- irnar. „Ég fór á Hvanneyri og lauk þaðan búfræðiprófi og lærði síðan iðnaðartæknifræði. Vann svo í mörg ár hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli og stýrði framleiðslumálum í verksmiðju félagsins þar. Samt bjó alltaf í undirmeðvitundinni að gerast bóndi og þegar auglýst var eftir áhugasömum leigjendum að jörðinni Lækur, sem er í gamla Hraungerðishreppnum, slógum við til, sendum inn umsókn og feng- um jörðina til ábúðar. Og hér erum við í dag, höfum um 50 kýr í fjósi, og nokkur hross og gengur vel,“ segir Ágúst og bætir við að bú- skapurinn sé í senn starf sitt og áhugamál. „Mér finnst fátt skemmtilegra en komast á hestbak; þó ekki sé nema hér um lágsveitir Flóans þar sem ég á frændfólk á mörgum bæjum. Sveitin er lífið,“ segir Ágúst, sem er kvæntur Margréti Drífu Guðmundsdóttur. Þau eiga fimm börn; Ásdísi sem er tvítug, Brynhildi 18 ára, Helenu 16 ára, Katrínu 13 ára og yngstur er Benóný 10 ára. „Fjórar stelpur og einn strákur sem er yngstur; alveg eins og hjá for- eldrum mínum,“ segir Ágúst sem er sonur þeirra Ásdísar Ágústs- dóttir frá Brúnastöðum í Flóa og Guðjóns Axelssonar, Landeyings, sem lengi var lögregluþjónn á Selfossi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bóndinn Fátt er skemmtilegra en að fara á hestbak, segir Ágúst. Sveitin er líf mitt Ágúst Guðjónsson er 46 ára í dag T víburasystkinin Dagný Elíasdóttir og Valdimar Elíasson eru fædd á Hellissandi 23. febrúar 1949. Þau ólust þar upp til unglingsára ásamt fimm systkinum sínum og ástríkum foreldrum í húsinu Sandholti er stóð við Gerðalá. Heim- ilið var yfirleitt nefnt Lá og fjölskyldan kennd við það nafn og talað um, að búa í Lá eða Lánni eins og sagt var stund- um. Systkinahópurinn í Lá bjó við gott atlæti á Hellissandi og ekki spillti fyrir að móðurforeldrar þeirra Valdimar og Svanfríður bjuggu í plássinu svo og amma þeirra í föðurætt Jóhanna Guð- rún Elíasdóttir. Að loknu unglingaprófi hleyptu þau tvíburasystkinin fljótlega heimdrag- anum og fluttu til Reykjavíkur. Dagný gifti sig 1968 Ólafi B. Ólafssyni og fluttist til Hafnarfjarðar þar sem þau hjónin stofnuðu heimili. Eftir nokkurn tíma í Hafnarfirði hóf Dagný störf við Hárgreiðslustofu Vestur- bæjar og settist síðan á skólabekk í Iðnskólanum í Hafnarfirði og lauk hárgreiðslunámi 1974. Dagný varð meistari í sinni grein og rak eigið fyrirtæki, Hárgreiðslu- stofu Dagnýjar á árunum 1976-86. Á árunum 1980-1986 bjuggu þau Dagný og Ólafur á Álftanesi en fluttu þá til Danmerkur, þar sem þau áttu heima í eitt ár. Að lokinni Danmerkurdvöl- inni, árið 1987, flutti Dagný ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og Dagný og Valdimar Elíasarbörn – 70 ára Afmælisbörnin og makar Valdimar og Dagný í miðið ásamt mökum, Fríðu Hjálmarsdóttur og Ólafi B. Ólafssyni. Hafa bæði yndi af söng og eru létt í lund Á jólum 2016 Elías, Dagný Rós Elíasdóttir, Dagný, Ólafur, Ólafur Björn, sonur Ingibjargar Aldísar sem vantar á myndina, og Karen, kona Elíasar. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Loksins fáanlegir aftur á Íslandi www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600 LYFTARARNIR Frábær ending Gott verð Reykjavík Björgvin Þór Björgvinsson fæddist á kvennadeild Landspítala 23. júní 2018 kl. 5.30. Hann vó 4,3 kg og var 54,5 cm á lengd. For- eldrar eru Þórunn Helga Þórðardóttir og Björgvin Grétarsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.