Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Kynntu þér afsláttarþrep
Orkunnar á orkan.is.
Nú eru allar 55
stöðvar Orkunnar
þínar stöðvar.
Veður víða um heim 6.3., kl. 18.00
Reykjavík -1 léttskýjað
Hólar í Dýrafirði -3 skýjað
Akureyri -4 léttskýjað
Egilsstaðir -4 snjókoma
Vatnsskarðshólar 2 skýjað
Nuuk -1 alskýjað
Þórshöfn 4 léttskýjað
Ósló 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 4 rigning
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -4 skýjað
Lúxemborg 9 rigning
Brussel 11 rigning
Dublin 7 skýjað
Glasgow 8 rigning
London 11 skúrir
París 10 rigning
Amsterdam 10 rigning
Hamborg 10 skúrir
Berlín 10 heiðskírt
Vín 12 heiðskírt
Moskva -6 heiðskírt
Algarve 15 rigning
Madríd 10 rigning
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 15 heiðskírt
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg -14 snjókoma
Montreal -10 snjókoma
New York -4 léttskýjað
Chicago -7 heiðskírt
Orlando 11 heiðskírt
7. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:15 19:04
ÍSAFJÖRÐUR 8:24 19:05
SIGLUFJÖRÐUR 8:07 18:48
DJÚPIVOGUR 7:46 18:32
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Austan 10-18 m/s sunnan- og vestan-
lands, hvassast syðst, skýjað með köflum og dálítil
él og hiti 0 til 5 stig, en hægari vindur og víða létt-
skýjað nyrðra og eystra og frost 0 til 8 stig.
Austan 10-18 m/s og dálítil snjókoma allra syðst fram eftir degi. Hiti 0 til 4 stig syðst, en annars
frost 0 til 8 stig og kaldast inn til landsins. Harðnandi frost í kvöld, einkum í innsveitum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið er á vöktum á dýpkunarskip-
inu Dísu við dýpkun Landeyjahafn-
ar. Markmiðið er að Herjólfur geti
flutt sig þangað sem fyrst en hann
hefur siglt til Þorlákshafnar í vetur.
Rekstrarstjóri Herjólfs varar við
bjartsýni um að skipið geti siglt
þangað á næstunni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni þarf að dæla burtu um
20 til 25 þúsund rúmmetrum af efni
úr hafnarmynninu og innsiglingunni.
Vegagerðin telur að það taki nokkra
daga að ljúka því verki og bindur
vonir við Herjólfur geti farið að sigla
í Landeyjahöfn á næstu dögum, ef
veður á annað borð leyfir.
Mars var erfiður í fyrra
Gunnlaugur Grettisson, rekstrar-
stjóri Herjólfs, er ekki bjartsýnn á
að skipið geti siglt mikið til Land-
eyjahafnar í þessum mánuði. Hann
bendir á að spáð sé öldugangi á
föstudag og þá stöðvist dýpkun.
Hann minnir á að Herjólfur hafi siglt
sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn 5.
mars á síðasta ári en hafi ekki getað
notað höfnina sautján daga það sem
eftir lifði mánaðarins. Ekki hafi
náðst að dýpka nóg og einnig hafi
sjólag verið óhagstætt.
Nýtt skip og nýr rekstraraðili taka
við siglingum til Eyja eftir að nýr
Herjólfur kemur til landsins. Var
áformað að skipið hæfi áætlunarsigl-
ingar undir lok mánaðarins en ljóst
er að það dregst eitthvað fram í apríl
vegna tafa við afhendingu skipsins,
jafnvel lengur. Nýja skipið á að
henta betur til siglinga í Landeyja-
höfn en það gamla.
„Mikið yrði ég glaður ef við næð-
um að sigla einhverjar ferðir í Land-
eyjahöfn á lokaspretti okkar í þess-
um rekstri en vara við of mikilli
bjartsýni um það,“ segir Gunnlaugur
og vísar til reynslu síðustu ára.
Dísa annast upphafsdýpkun
Björgun ehf. hefur samning um
dýpkunina og notar við það dýpkun-
arskipið Dísu sem er mun afkasta-
minna skip en belgíska skipið sem
notað hefur verið síðustu ár. Ekki er
talin þörf á að dýpka utan hafnar og
þess vegna er dýpkunarskipið Sóley
ekki í notkun við Landeyjahöfn við
upphafsdýpkun í ár.
Óvíst hvenær höfnin verður opnuð
Morgunblaðið/RAX
Landeyjahöfn Herjólfur siglir sína fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum.
Dæla þarf 20-25 þúsund rúmmetrum úr innsiglingunni til Landeyjahafnar Dýpkunarskipið Dísa
notað við verkið Rekstrarstjóri Herjólfs varar við bjartsýni um að höfnin komist fljótt í gagnið
Landeyjahöfn
» Herjólfur hefur stundum far-
ið fyrstu ferðir í Landeyjahöfn í
mars en stöðugar siglingar
hafa þó yfirleitt ekki getað haf-
ist fyrr en í apríl eða maí.
» 2018 var fyrsta ferð 5. mars
og nokkuð stöðugar siglingar
voru frá 29. mars.
» 2017 hófust siglingar í Land-
eyjar 7. mars og nokkuð stöð-
ugar eftir 13. apríl.
» 2016 hófust siglingar 15.
apríl og 1. maí árið 2015.
Blikkrás á Akureyri hefur efnt til
söngkeppni samhliða heimsóknum
barna á öskudaginn allt frá árinu
1989, eða í 30 ár. Oddur Helgi Hall-
dórsson, blikksmíðameistari í
Blikkrás, sagði að þeim hefði fund-
ist áhugi fyrir öskudeginum alltaf
vera að minnka á Akureyri og
fyrirtækin ekki gert neitt til að við-
halda þessari hefð.
„Við auglýstum í fjölmiðlum og
báðum börn að koma til okkar. Þau
væru velkomin. Mörgum fannst það
furðuleg tiktúra. Skemmst er frá
því að segja að ekki liðu mörg ár
þar til að önnur fyrirtæki fóru að
auglýsa líka og taka betur á móti
börnunum,“ sagði Oddur.
Allir starfsmenn Blikkrásar
leggja niður hefðbundna vinnu frá
7.30 til hádegis á öskudag. Þeir
taka á móti börnunum og skipa
dómnefnd sem dæmir í söngkeppn-
inni. Börnin fá góðgæti, sem und-
anfarin ár hefur verið harðfiskur.
Auk þess hafa þrjú bestu liðin feng-
ið pitsuveislu í boði Blikkrásar. Í til-
efni af 30 ára afmælinu fengu fimm
lið pitsuveislu í gær.
Oddur sagði að ekki væri tekið
tillit til búninga þegar dæmt væri á
milli liða því aðstæður barnanna
gætu verið misjafnar. Ekki hefur
heldur verið gefið upp í hvaða sæt-
um sigurliðin lentu, heldur er til-
kynnt hvaða lið fá pitsuveislu.
Á árum áður komu yfir 600 börn í
Blikkrás á öskudaginn þegar mest
var. Starfsmönnum finnst heldur
hafa dregið úr aðsókninni hin síðari
ár. „Það hefur verið gaman að
fylgjast með krökkunum koma ár
eftir ár, þar til þau urðu fullorðin.
Svo fóru þau að koma aftur með
börnin sín lítil og fara sennilega að
birtast hér bráðlega með ömmu- og
afabörnin,“ sagði Oddur.
Þau sem syngja best fá pitsuveislu
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Öskudagur Magnús Máni Harðarson sló köttinn úr tunnunni og fékk að launum inneign á Glerártorg á Akureyri og
nammi. Oddur Helgi hjá Blikkrás (t.h.) hefur glatt börn á öskudaginn i 30 ár og var umkringur barnaskara í gær.
Blikkrás á
Akureyri heldur
upp á öskudaginn
Inflúensa A var staðfest hjá 21 ein-
staklingi í 9. viku ársins, sem er
fækkun miðað við undanfarandi vik-
ur, samkvæmt frétt hjá Embætti
landlæknis. Þar af greindust 13 með
inflúensu A(H1N1) og átta með
inflúensu A(H3N2). Inflúensa
A(H3N2) virðist algengari hjá eldri
kynslóðinni en inflúensa A(H1N1)
hefur oftar verið staðfest hjá börn-
um og miðaldra fólki. Aðeins tveir
hafa greinst með inflúensu af B-
stofni í vetur. Fjórtán leituðu á
Landspítala með staðfesta inflúensu,
sem er fækkun borið saman við und-
anfarandi viku, þar af voru 10 inni-
liggjandi.
Til heilsugæslunnar og á bráða-
móttöku leituðu 145 með einkenni
inflúensu, sem er fækkun miðað við
vikuna á undan.
Enn er töluvert um staðfesta
RSV-veirusýkingu en hún var stað-
fest hjá níu í síðustu viku.
Morgunblaðið/Sverrir
Inflúensa Færri tilfelli greindust í
9. viku en undanfarandi vikur.
Það dregur
úr flensunni