Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 29
Rauðrefurinn er mesti refur heims-
ins, afar kænn í lífsbaráttunni og
kann að bjarga sér við mjög ólíkar
aðstæður. Hann er á meðal út-
breiddustu rándýrategunda heims,
lifir nær hvarvetna á norðurhveli
jarðar, í Evrópu, Asíu, Norður-
Ameríku og Norður-Afríku. Hann er
algengur jafnt á reginöræfum sem í
sveitahéruðum og hefur fjölgað sér í
almenningsgörðum og úthverfum
stórborga. Hann finnst þó ekki á
köldustu svæðum Síberíu, Íslandi og
fleiri eyjum á norðurhjara.
Á þessu er þó að verða breyting.
Hlýnun jarðar hefur orðið til þess að
rauðrefurinn hefur færst norðar og
er farinn að ógna tilvist tófunnar,
eða heimskautarefsins. Nú er svo
komið að tófan er í útrýmingarhættu
í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Talið
er að þar séu nú aðeins um 250 full-
vaxta tófur. Rauðrefurinn er stærst-
ur og sterkastur refa og vitað er að
hann hefur drepið tófur og yrðlinga
þeirra. Á meðal annarra afræningja
tófunnar eru gullernir, jarfar, úlfar
og birnir.
Talið er að í Svíþjóð séu um
150.000 fullvaxta rauðrefir. Blaða-
maður hitti einn þeirra á förnum
vegi nýlega þegar hann var að taka
myndir af fögrum fuglum í skógi í
Norður-Svíþjóð. bogi@mbl.is
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Alæta Sænski rauðrefurinn lifir aðallega á litlum nagdýrum en étur hvað sem að kjafti kemur, svo sem ber, ýmsar nytjaplöntur, skordýr, fugla, spendýr á borð við rádýr og hvers konar hræ.
Feldfagur Rauðrefurinn er með þykkt, loðið skott og hefur verið ræktaður og veiddur víða um heim vegna feldsins.
Rauðrefur
í fuglahjörð
Er stærsti og mesti refurinn
Dómpápar Karlfuglinn er með rósrauða bringu (efri myndin) og kvenfugl-
inn bleikbrúna (neðri). Dómpápi er finka, með stuttan og digran gogg.
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Hágæða
linsur í
áskrift á
góðu verði
Frí heimsending
Hvar kaupir þú
þínar linsur?
www.linsubudin.is