Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 8 1 4 Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 |www.hyundai.is Nýr og spennandi Hyundai i20. Sýndu skynsemi.Veldu nýjan i20. Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7” snertiskjár nýtir sér fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™. Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20. Verð frá: 2.290.000 kr. Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. Arnar Þór Ingólfsson arnarth@mbl.is Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, steig fast til jarðar á fundi með stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis í gærmorgun, er hann ræddi um þá ákvörðun gjald- eyriseftirlits Seðlabanka Íslands að beita stjórnvaldssektum á hendur Samherja hf. árið 2016, þrátt fyrir að ríkissaksóknari hefði áður komið þeirri afstöðu á framfæri við Seðla- bankann, þegar árið 2014, að ekki væru lagaheimildir til staðar fyrir þeim aðgerðum. „Það er nú einfaldlega þannig að á opinberum stjórnvöldum hvílir frumkvæði og skylda til þess að haga málum þannig að það sé farið eftir lögum. Og þegar æðsti hand- hafi ákæruvalds í landinu hefur sent frá sér texta með þeim hætti sem ég hef sýnt ykkur, þá hefði ég haldið að allir löglærðir einstaklingar, að minnsta kosti, gerðu sér grein fyrir því að það er texti sem þú lætur ekki framhjá þér fara,“ sagði Tryggvi við nefndarmenn og vísaði til þeirra afstöðubréfa sem ríkissak- sóknari sendi frá sér 20. maí 2014. Þar kom skýrt fram það mat að reglur Seðlabanka Íslands hefðu ekki getað talist gild refsiheimild fyrr en eftir gildistöku laga nr. 127/ 2011. Seðlabankinn óskaði eftir því í lok síðasta mánaðar að ríkissjóður myndi endurgreiða allar sektir og sáttagreiðslur sem reiddar hefðu verið af hendi vegna ákvarðana bankans, sem byggðust á reglusetn- ingu Seðlabanka Íslands um gjald- eyrishöft. Gagnrýndi seðlabankastjóra Umboðsmaður Alþingis gagn- rýndi einnig, eins og hann hefur raunar áður gert, ummæli sem Már Guðmundsson seðlabankastjóri hef- ur látið eftir sér hafa um mál Sam- herja þar sem látið er að því liggja að þrátt fyrir að málið hafi verið lát- ið niður falla sé ekki þar með sagt að rannsóknin hafi verið tilhæfu- laus. Umboðsmaður sagði að þrátt fyrir að mál væru felld niður á laga- tæknilegum atriðum þyrftu fulltrú- ar ríkisins „bara að sætta sig við það“ að málið sem farið hefði verið í væri ónýtt. „Þá fer maður ekki fram með full- yrðingar um það að hvað sem því líður sé bara allsendis óvíst hvort viðkomandi hafi verið saklaus,“ sagði Tryggvi. Misboðið fyrir hönd borgara Tryggvi var spurður að því af al- þingismanninum Óla Birni Kára- syni hvort honum væri misboðið vegna framgöngu Seðlabanka Ís- lands í málinu. „Ég er í því hlutverki að reyna að gæta að því að það sé réttilega stað- ið að málum gagnvart borgurunum. Það hvort mér er misboðið í þeim samskiptum sem ég þarf að eiga við stjórnvöld í þessu hlutverki, það læt ég liggja á milli hluta, en það kann að vera að mér sé misboðið fyrir hönd þeirra einstaklinga og fyrir- tækja sem þarna hafa átt í hlut, það er í raun og veru aðalatriðið,“ sagði umboðsmaður Alþingis. SÍ hafi brugðist frumkvæðisskyldu  Umboðsmaður Alþingis kom fyrir þingnefnd í gær og gagnrýndi Seðlabankann  Telur þörf á að skoða upplýsingagjöf starfsmanna SÍ til fréttamanna RÚV  Sagði sér misboðið fyrir hönd einstaklinga Þegar húsleit gjaldeyriseftirlits Seðlabankans hjá Samherja hf. hófst kl. 9 að morgni 27. mars 2012 voru þá þegar frétta- og myndatökumenn frá RÚV úti fyrir skrifstofum fyrirtækisins á Akureyri og í Reykjavík. Umboðsmanni Alþingis hafa nú borist upplýsingar, á síðustu vikum, sem hann telur gefa til- efni til þess að kallað verði eftir því „hver var í raun“ hlutur starfsmanna gjaldeyriseftirlits- ins í að upplýsa starfsmann RÚV um hina fyrirhuguðu hús- leit. Umboðsmaður hefur sent forsætisráðherra bréf þar sem hann spyr hvort þetta verði skoðað. Skoða þurfi meintan leka HÚSLEITIN 27. MARS 2012 Morgunblaðið/Árni Sæberg Umboðsmaður Tryggvi Gunnarsson kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.