Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 44
Gloss YSL Volupté Tint-in-Oil. annars staðar. Þegar ég spurði Ísak um fimm mest notuðu förðunarvör- urnar í augnablikinu nefnir hann YSL Volupté Tint-in-Oil og YSL Touche Éclat All-In-One Glow- farðann. Sömuleiðis segist hann mikið nota lausa púðrið frá Laura Mercier og svo eitt vinsælasta raka- kremið á markaðnum en það er Skin Food frá Weleda og að lokum nefnir hann Hocus Focus Instant Visual Flaw-Softening Illuminator frá Soap & Glory. Þetta notar Ísak fyrir rauða dregilinn Mörg verkefni Ísaks felast í að farða fyrirsætur og söng- og leik- konur fyrir hina ýmsu viðburði og því verð ég að forvitnast um hvaða farða hann noti fyrir slík tilefni? „Ég fer svolítið á milli nokkurra en nota engan farða með púð- uráferð því hann endurkastar oft frá sér flassi myndavél- anna og virkar því allt of ljós, ég hef alveg lært af þeim mistökum. Yfirleitt nota ég YSL All-In-One Glow-farðann eða Lum- inous Silk-farðann frá Gi- orgio Armani og svo nota ég Traceless Fo- undation Stick frá Tom Ford sem hylj- ara. Þetta fer þó eftir húðgerð hvers og eins en ég notast einnig við matta farðagrunna og svo góð púður eins og lausa púðrið frá Laura Mercier eða Prep & Touche Éclat All-In-One Glow. „Ég er alveg sérstaklega erfiður með farða og í rauninni skiptir mig mestu máli hvernig farði helst á en ekki hvernig hann lítur út um leið og þú ert búin að setja hann á. Þessi farði gefur mikinn raka en hreyfist ekki mikið á húðinni og helst vel.“ Ísak segir einnig að fólk ætti að fylgjast með augnskuggapallett- unum frá YSL því merkið sé fram- úrskarandi þegar komi að litum og tónum sem erfitt geti verið að finna Prime-púðrið frá MAC. Ég gef allt- af kúnnunum mínum Face Blotting Paper frá Muji ef þeir vilja rétt að- eins fara yfir andlitið áður en mætt er á rauða dregilinn,“ segir Ísak. En hver ætli sé uppáhalds- maskarinn hans? „Upp á síðkastið hef ég verið mjög hrifinn af Glamo- lash Mascara XXL frá Rodial og The Shock-maskaranum frá YSL en fyrir fíngerð augnhár og fyrir þá sem vilja ná vel í rætur augnhár- anna er Extended Play Gigablack frá MAC mjög góður. Ég fíla líka Volum’ Express The Colossal- maskarann frá Maybelline á neðri augnahárin þegar ég er að farða kúnna fyrir rauða dregilinn þar sem hann er vatnsheldur og smitast ekki á húð. Það skiptir ótrúlega miklu máli að velja vatnshelda maskara á neðri augnhárin því margir eiga það til að smitast á augnsvæðið undir augunum og stórslys getur átt sér stað. Ömurlegt að sjá myndir af rauða dreglinum og það eru svartar klessur undir augunum. Ljósin eru Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Það er sérlega gaman að fylgjast með Ísaki Frey Helgasyni á sam- félagsmiðlum (@isakhelgason) þar sem hann ferðast á milli heimshluta og farðar þekktar fyrirsætur, leik- og söngkonur. Ég var forvitin að vita hvaða förðunarvörur hann not- ar helst í verkefnum sínum, hvað ætti helst að vera í snyrtiveskinu og svo auðvitað vildi ég vita meira um námskeiðið sem hann heldur hér á landi 23. febrúar næstkomandi og kennir allt varðandi tækni og förð- un fyrir rauða dregilinn. Með þráhyggju vegna nokkurra vara frá Yves Saint Laurent Ísak hefur úr fjölmörgum merkj- um og vörum að velja svo fyrsta spurning mín er einfaldlega sú hvort honum finnist eitthvert ákveðið förðunarmerki standa upp úr í augnablikinu? „Ég nota mikið vörur frá Yves Saint Laurent og er með ákveðna þráhyggju vegna nokkurra þeirra. Fyrst og fremst verð ég að nefna YSL Volupté Tint- In-Oil en þetta er varaolía með lit sem ég prófaði fyrir um 2 árum og þetta er algjörlega minn heilagi andi hvað varðar förðunarkittið mitt. Bæði finnst mér þetta gefa varalitum ákveðið líf, sérstaklega appelsínuguli tónninn því hann ýtir undir alla undirtóna og skerpir á þeim, auk þess sem varirnar fá meiri raka án þess að líta út fyrir að vera of glossaðar. Ég nota þetta líka mjög mikið á kinnar og kring- um augu svo þetta er eins og ég segi alveg mitt helsta vopn í kitt- inu,“ segir Ísak og nefnir einnig nýja farðann frá YSL sem nefnist Þetta notar Ísak til að farða stjörnurnar Ef þig langar að verða sérfræðingur í förðun eða langar að líta út eins og stjörnurnar á rauða dregl- inum er Ísak Freyr Gíslason maðurinn að leita til. Hann er á því að það sér gott fyrir sjálfsvirðinguna að vera vel farðaður. Maskari YSL The Shock, Rodial Glamolash Mascara XXL, MAC Extended Play Giga- black og May- belline Vol- um’ Express The Colossal. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10,1 kg Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf AFP Hittir í mark Leikkonan Cate Blanchett er alltaf flott. Stórstjarna Ísak segir að hann hafi aldrei verið jafn stressaður eins og þeg- ar hann farðaði Katy Perry en hún hafi verið sú allra yndislegasta. Förðunarmeistari Ísak Freyr ferðast á milli heimshluta og farðar þekktar fyr- irsætur, leik- og söngkonur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.