Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 26

Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Innihald: • Kólín sem stuðlar að: - eðlilegum fituefnaskiptum - viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar • Mjólkurþistil ogætiþistil sem talin eru stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls • Túrmerik og svartan pipar Heilbrigð melting Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Framfarafélag Skagfirðinga var stofnað á Hólum í Hjaltadal sumarið 1918 en fyrsti almenni málfundur fé- lagsins var haldinn í gamla Barna- skólahúsinu 7. mars 1919, eða fyrir sléttum 100 árum. Meðal frummæl- enda á fundinum var Jónas Krist- jánsson læknir, síðar stofnandi Náttúrulækningafélags Íslands 1937 og Heilsuhælisins í Hveragerði árið 1955. Talið er að á vettvangi Fram- farafélagsins hafi hann fyrst komið á framfæri kenningum sínum um nátt- úrulækningar og bætt heilsufar fólks. Í tilefni dagsins verður flutt erindi um Jónas á Heilsuhælinu í Hvera- gerði í kvöld kl. 20. Dagskráin er öll- um opin en þar mun Jón Ormar Ormsson, fræðimaður og leikari, segja frá Jónasi og Framfarafélag- inu. Jónas var meðal hvatamanna að stofnun Framfarafélagsins en boðað var til fundar á Hólum 7. júní 1918. Að því er fram kemur í Sögu Sauð- árkróks, eftir Kristmund Bjarnason á Sjávarborg, voru fundarboðendur, auk Jónasar, þeir Jón Sigurðsson á Reynistað, Einar Jósefsson á Vatns- leysu, Pétur Jónsson í Eyhildarholti og Ólafur Sigurðsson á Hellulandi. Jónas læknir setti fundinn en til- gangur fundarins var „að stofna til fé- lagsskapar í Skagafjarðarsýslu, sem unnið gæti í sameiningu að áhuga- og framfaramálum Skagfirðinga og æft menn í samvinnustarfsemi“. Jónas var kosinn fyrsti forseti félagsins, sem var starfandi til ársins 1938, en ári áður stofnaði Jónas Náttúrulækn- ingafélag Íslands á Sauðárkróki. Fræðsla um stefnu og strauma Meðal markmiða Framfarafélags- ins var að fræða félagsmenn og Skag- firðinga um „nýjar stefnur og mál- efni, sem eru ofarlega á baugi hjá erlendum þjóðum eða hérlendis og líklegar eru til þjóðarnytja,“ eins og segir í lögum félagsins. Í upphafi voru níu málaflokkar settir á blað í stefnu- skrá félagsins og þar á meðal voru heilbrigðismál, sem voru Jónasi mjög hugleikin. Stefnan í heilbrigðismálum var tví- þætt, í fyrsta lagi að koma upp full- komnu sjúkrahúsi á Sauðárkróki, búnu nýjustu tækjum og búnaði, eins og það var orðað í stefnuskrá. Í öðru lagi vildi félagið að stuðlað yrði að umbótum á húsakynnum almennings, „með því að leitast við að leiðbeina mönnum í hagkvæmri húsagjörð“. Rætt um klæðnað í kulda Þannig kom Jónas hugðarefnum sínum að á vettvangi Framfarafélags- ins en á fundi í mars 1923 flutti hann fyrirlestur þar sem hann fyrst kynnti náttúrulækningastefnu sína sem seinna varð grunnur að stofnun Nátt- úrulækningafélagsins. Jónas hafði þá skömmu áður dvalið um tíma á heilsuhæli í Battle Creek í Bandaríkj- unum sem kennt var við John Harvey Kellogg, bróður WK Kellogg, stofn- anda samnefnds framleiðanda morg- unkorns. En víkjum að málfundi Framfara- félagsins fyrir sléttum 100 árum. Á dagskrá fundarins voru tvö mál, ann- ars vegar klæðnaður manna og hins vegar fóðurmál og sameiginleg kaup á fóðurbæti. Jónas var með framsögu um klæðnaðinn en þorri Íslendinga hafði þá árið áður þraukað af frosta- veturinn mikla 1918. Grípum aðeins niður í fundargerðina frá 7. mars 1919: „Jónas Kristjánsson læknir skýrði mjög ítarlega frá því hverja þýðingu klæðnaðurinn hefði fyrir heilbrigði líkamans, einkum þó í kaldari lönd- um, þar sem útgufunin væri svo miklu meiri en hitaframleiðsla lík- amans. Aðalhlutverk klæðnaðarins væri því það, að halda útgufuninni í jafnvægi og þess vegna væri ekki sama úr hvaða efni hann væri. Bezt væru þau efni til fata sem leiddu illa hita en hefðu þó gisna möskva svo loftið gæti streymt í gegnum þau, og sömuleiðis sogið í sig svita úr hörund- inu. Helzt þyrfti að vera hreint og hlýtt loft milli fatanna og líkamans. Hollast væri fyrir erfiðismenn að sofa eigi í vinnufötum vegna þess að hætt væri við (að) möskvar þeirra væru fullir með svita og önnur óhreinindi sem vörnuðu um of öndun og útgufun líkamans. Af sömu ástæðum skyldi fólk klæðast mismunandi fatnaði eftir árstíðum.“ Samkvæmt fundargerðinni rakti Jónas hvaða efni teldust henta. Þann- ig taldi hann að bómull, hör og silki væru ekki góður nærfatnaður, og að loðskinn og vatnsdúkar væru óhent- ug fataefni. Hins vegar mælti Jónas með ís- lensku ullinni og hvatti til þess að komið yrði á fót tóvinnu og kembings- vélum í hverri sýslu, til að koma í veg fyrir að íslenska ullin væri flutt úr landi óunnin. Einnig lagði hann til að spunavélar ættu að vera til á hverju heimili. Að lokinni framsögu Jónasar urðu töluverðar umræður og vaknaði áhugi á að koma upp tóvinnu og kembingsvélum í Skagafirði. Stofnaði fleiri félög Jónas var héraðslæknir í Skaga- firði í 27 ár, eða frá 1911 til 1938. Hann stofnaði ekki aðeins Framfara- félagið og Náttúrulækningafélagið heldur einnig skátafélagið Andvara árið 1922 og 1929 var hann frum- kvöðull að stofnun Tóbaksbindind- isfélags, sem er talið vera hið fyrsta hér á landi. Þá eru 100 ár liðin um þessar mundir frá stofnun Heimilisiðn- aðarfélags Sauðárkróks en meðal stofnenda var eiginkona Jónasar, Hansína Benediktsdóttir. Þau hjónin fluttu til Reykjavíkur 1938, Hansína lést 10 árum síðar, en frá stofnun Heilsuhælisins í Hveragerði 1955 dvaldi Jónas þar fimm síðustu æviár- in en hann lést árið 1960. Frumkvöðlastarfs Jónasar í heil- brigðismálum var minnst árið 2007 með því að vígja minnisvarða á lóð Sjúkrahússins á Sauðárkróki, sem hannaðir voru af Guðbrandi Ægi Ás- björnssyni myndlistarmanni. Grunnurinn lagður fyrir 100 árum  100 ár í dag frá fyrsta almenna málfundi Framfarafélags Skagfirðinga  Á þeim vettvangi kynnti Jónas Kristjánsson læknir stefnu sína í náttúrulækningum  Erindi flutt á Heilsuhælinu í kvöld Ljósmynd/Náttúrulækningafélagið Frumkvöðull Jónas Kristjánsson læknir, afi alnafna síns, ritstjóra DV, stofnaði Náttúrulækningafélag Íslands. Ljósmynd/Guðbrandur Ægir Læknir Jónas var héraðslæknir Skagfirðinga frá 1911 til 1938. Jónas Kristjánsson fór snemma að berjast fyrir heilsu og vellíðan fólks hvar sem hann kom og fór. „Hann var sífellt á þönum, út um sveitir yf- ir vötn og vegleysur, úr húsum og í, á spítalann og af, upp spítalatröpp- urnar og niður. Næstum alltaf með töskuna í hendinni. Hljóp við fót á hröðu tölti. Maður sá hann aldrei ganga.“ Þannig er Jónasi lýst af Birni Jónssyni lækni, sem gaf út æsku- minningar sínar árið 1989, Glampar á götu – Brellur og bernskuminn- ingar Bjössa bomm. Björn lýsti einnig vaxtarlagi og skapgerð Jónasar: „Meðalmaður á hæð en allvænn um herðar. Hann var hvatur í hreyfingum og ör í skapi. Yfirleitt fremur alvörugefinn. Honum lá heldur lágt rómur og röddin dálítið rám. Hann var fáorð- ur en skýr í máli þó að hann talaði ekki með miklum áherslum. Hann hikaði aldrei við að segja álit sitt hvort sem fólki líkaði betur eða verr, en án allrar illskeytni.“ Áherslur Jónasar í ráðleggingum um mataræði sköruðust mikið við áherslur í fæði Íslendinga á þessum árum. Gefum Bjössa bomm orðið: „Jónas predikaði allt um hægðir og harðlífiseitrun, grænmetisát, bran og þorskalýsi (sem hafði raun- ar verið troðið ofan í mig frá blautu barnsbeini fyrir atbeina hans). Hætta við kjötát og jafnvel fisk!? Og öllu fremur allt slátur og blóð- mör. Þetta gat alls ekki staðist. Og hægðir þrisvar á dag!“ Einum skjólstæðinga Jónasar þótti nóg um ráðlegginar hans um hægðir og orti: Jónas læknir ætti í eigin barm að líta. Ætli hann mundi una því alltaf að vera að skíta? Predikaði allt um hægðir, harðlífiseitrun og grænmetisát BJÖSSI BOMM UM STARFSBRÓÐUR SINN, JÓNAS LÆKNI Ljósmynd/Guðbrandur Ægir Minning Minnisvarði við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki um Jónas Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.