Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla STAN Model 3035 rafmagn L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 595.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 675.000,- Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is Opið virka daga kl. 8-18 Sængurverasett, dúkar, servíettur, viskustykki, dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór, handklæði & þvottapokar. Vörurnar fást í Efnalauginni Björg í Mjódd LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili, sjúkrastofnanir og heimili Út er komin fjórða breið-skífa Steinunnar Eld-flaugar, en hún hóf aðgefa út plötur undir nafninu DJ Flugvél og Geimskip ár- ið 2010 og fyrsta platan hennar hét Rokk og róleg lög. Árið 2013 kom út platan Glamúr í geimnum og titillag hennar skartaði afskaplega flottu myndbandi sem vakti athygli á Steinunni og tónlist hennar. Sú plata var með einhvers konar geimþema í hljóðum og textagerð, en á næstu plötu, Nótt á hafsbotni frá 2015, vor- um við komin niður á hafsbotn og rannsökuðum dularfulla hluti sem þar finnast, með hjálp Steinunnar. Nýjasta platan, Our Atlantis, virðist svo einbeita sér að leyndardómum okkar heims og spurningum og svör- um um hann. Það má segja að textar Our Atl- antis séu heimspekikenningar Stein- unnar Eldflaugar, og eins og við er að búast frá hinum litríka og fjöruga karakter hennar kennir þar ýmissa grasa. Textarnir eru ýmist á ís- lensku og ensku og það virðist engu skipta á hvoru málinu hún tjáir sig, einstök sýn hennar á heiminn kemst til skila. Næstum öll lögin ellefu innihalda setningar sem koma hug- anum á flug og ýta blíðlega en ákveðin við ímyndunarafli hlustand- ans. Í íslensku textunum eru þó hug- myndirnar enn skýrari. Ég ætla að tiltaka þrjú einstaklega góð dæmi um framúrskarandi íslenska texta- gerð. Í „Ryðgaða heiminum“ má finna þetta fallega ljóð: „Gægist undan borði gamli draumurinn. Óskir okkar rætast allt of snemma. Dagurinn úr austri dansar allt of hratt. Kraminn oní kassa brotinn heimur. Ekkert leng- ur eftir sem mig langar í. Aldrei vilj- um við að nóttin endi.“ Í „Draumaskipinu“ mætti næst- um lesa þessa setningu með örlítið pólitískum gleraugum, ef viljinn er fyrir hendi, og líkingamál Stein- unnar kætir mig: „Það gleður mig að veislan gengur vel. Á tímabili var mér ekki um sel. Rostungar í loðfeld villtu sýn, en núna sé ég að allt er grín.“ Í Allt er bara bull er svo eins og heimspeki Steinunnar kristallist einna best, og ef finna þarf nafn á fyrirbærið mætti kalla það „Töfra- tómhyggju“, og held ég barasta að sjálfur Nietzsche væri stoltur af henni: „Ekki reyna að lifa rétt. Réttlætið er gömul lygi. Engin svör að finna, ekki neitt. Allt er bara bull.“ Steinunn er gjörn á að skapa eða kynna töfraveraldir fyrir hlust- endum sínum, en á þessari plötu er það hreinlega okkar eigin heimur, veröldin sem við lifum í, sem er töfraveröldin. Er það afar vel þegið á þessum síðustu og verstu tímum að vera minntur á að töfrandi at- burðir og hlutir eru allt í kringum okkur, bara ef við nennum og erum reiðubúin að taka eftir þeim. Ég vil helst líkja plötunni og boðskap henn- ar við Línu Langsokk, en hún hafði svipuð áhrif á mig þegar ég las hana í fyrsta sinn. Þá fór ég strax út að leika og þefaði upp einhver ævintýri sem voru alltaf til staðar að bíða eft- ir mér. Þannig er hlustandinn strax í öðru lagi hvattur til að hafa fjör heima hjá sér í laginu „Have fun at home“, en það lag var fyrst gefið út í formi tölvuleiks sem maður átti að spila heima hjá sér, og þegar maður kláraði leikinn spilaðist lagið, sem einhvers konar sönnun á að maður hefði verið að skemmta sér vel heima hjá sér. Í anda boðskapar plötunnar fékk ég mér hana á kassettu og ferjaði gamalt kassettutæki inn í eldhús og eldaði þar ljúffengan karrírétt í fyrsta sinn sem ég hlustaði. Í fyrstu hlustun er maður að kynnast lögum, töktum, hljóðum og laglínum, en eina lagið sem ég hafði heyrt áður var tölvuleikjalagið. Þetta er mjög hlaðin plata, og tekur smá tíma að ná áttum og koma auga á og flokka öll hljóðin svo úr verði lögin sjálf. Þetta er þó alls ekkert vesen heldur virkilega skemmtilegt og krefjandi verkefni. Það er mun oftar að tónlistarmenn séu svo mikið að passa sig að hafa hluti „áferðar- fallega“ og „smekklega“ að þeir sleppi öllu sem er ögrandi og út fyr- ir kassa, en það eru einmitt þær hugmyndir sem Steinunn vill helst af öllu nota, og því þarf maður bara að smjatta smá á þessu áður en allt fellur saman og myndar heilsteypt verk. Því já, þetta er mögulega eitt heilsteyptasta verk sem ég hef hlustað á frá íslenskum listamanni. Ég er mjög mikill HAM-aðdáandi og miða tónlist og plötur gjarnan við þá merku sveit og nú verð ég bara að grípa til þeirrar samlíkingar og fullyrða að þetta hljóti að vera plata ársins, og aðeins mögulega ef HAM gefur út plötu á árinu væri hún betri. Ég myndi gefa fleiri stjörnur en fimm ef þær væru í boði því þessi plata er troðfullt hús af töfratómhyggju með vænum skammti af fjöri og ævintýrum sem bíða eftir að þú uppgötvir þau, bara ef þú nennir. Rúmlega fimm Gagnrýnandi myndi gefa plötu DJ Flugvélar og Geimskips fleiri stjörnur en fimm, væri það hægt. Geimpopp DJ Flugvél og Geimskip – Our Atlantis bbbbb Steinunn Eldflaug Harðardóttir sendir frá sér fjórðu breiðskífu sína og inni- heldur hún ellefu lög. Hollenska útgáfu- fyrirtækið Geertruida gefur út og kemur verkið út á kassettu og hljómplötu. Steinunn semur öll lög og texta og tek- ur upp tónlist og hljóðblandar. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Troðfullt hús af töfratómhyggju Þriggja metra hátt málverk bresku listakonunnar Jenny Saville, Junct- ure, af baki nakinnar konu, var slegið hæstbjóðanda á uppboði hjá Christie’s-uppboðshúsinu í fyrra- kvöld fyrir 4,8 milljónir punda, um 770 milljónir króna. Er það hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir þennan vinsæla málara en hún málaði það árið 1994 er hún var 24 ára gömul. Erlendir menningarblaðamenn benda á að mun fleiri verk hafi ver- ið eftir konur á þessu uppboði á samtímamyndverkum en á sam- bærilegum uppboðum á síðustu ár- um, tuttugu prósent verkanna voru eftir konur en ekki nema tíunda hvert verk fyrir ári. Aðeins tvö af þeim tíu verkum sem dýrust voru voru gerð af konum; auk málverks Saville var það abstrakt verk eftir Agnesi Martin sem var selt fyrir 2,8 milljónir punda. Dýrasta verk kvöldsins var eftir karl, málverkið Apex frá 1986 eftir Jean-Michel Basquiat var slegið hæstbjóðanda fyrir 8,2 milljónir punda með gjöldum, 1,3 milljarða króna. Portrett af dreng eftir Luci- an Freud var slegið hæstbjóðanda fyrir 4,9 milljónir punda. Christie’s. Bakhluti Málverk Jenny Saville, Juncture, er hið dýrasta eftir listakonuna. Hlutfall verka eftir konur þokast upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.