Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Alls seldist 131.091 lítri af bjór í Vín-
búðunum síðastliðinn föstudag, 1.
mars. Þann dag var því fagnað að
þrjátíu ár voru liðin frá því bann við
sölu á bjór var afnumið hér á landi
og var því mörgum gleði í huga.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
rúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoð-
arforstjóra ÁTVR, var umræddur
dagur stærsti dagur ársins það sem
af er ári í bjórsölu. Að hennar sögn
hefur meðalsala á föstudegi til þessa
á árinu verið 98.688 lítrar af bjór.
Það þýðir að salan á bjórdaginn var
32,83% hærri í lítrum talið en á með-
al-föstudegi.
Á þeim föstudegi sem næst kemst
bjórdeginum í sölu, 25. janúar, seld-
ust um 20 þúsund lítrum minna af
bjór en á afmælisdaginn.
Stæsta vikan
Síðasta vika var jafnframt sú
stærsta í sölu á bjór það sem af er
ári. Alls seldust 326.898 lítrar af bjór
í Vínbúðunum dagana 25. febrúar til
3. mars. Að sögn Sigrúnar var einnig
meiri sala á miðvikudegi og fimmtu-
degi í umræddri viku en alla jafna,
þó það hafi ekki munað miklu.
Forvitnilegt er að bera saman söl-
una í Vínbúðunum á bjórdaginn 2019
við söluna í ÁTVR á bjórdaginn
1989. Þá var losað um áratuga
spennu þjóðarinnar og margir höfðu
beðið þess dags með eftirvæntingu
um nokkurra mánaða skeið. Sam-
kvæmt fréttum fjölmiðla seldust um
135 þúsund lítrar af bjór frá ÁTVR
1. mars árið 1989, fyrsta bjórdaginn
í 76 ár.
Ekki sambærilegar tölur
Þó það sé meiri sala en í ár eru töl-
urnar ekki sambærilegar. Á þeim
tíma þegar bjórinn var leyfður var
öll sala í gegnum ÁTVR, einnig kút-
ar og flöskur sem seldar voru til
veitingahúsa. Í dag versla veitinga-
hús beint við heildsala. Á bjórdaginn
1989 seldust um 110 þúsund lítrar í
dósum og er hægt að leggja þá tölu
að jöfnu við söluna í ár. Það er því
ljóst að talsvert meira seldist á bjór-
daginn 2019 en árið 1989.
Bjórinn rann í stríðum
straumum 1. mars
Yfir 130 þúsund lítrar af bjór seldust í Vínbúðunum
Morgunblaðið/Eggert
Skálað í bjór Víða var skálað í bjór síðasta föstudag þegar 30 ár voru liðin
frá því að sala á áfengum bjór var heimiluð á ný hér á landi eftir langt hlé.
Guðrún Erlingdóttir
ge@mbl.is
Kröfur sem hópur umsækjenda um
alþjóðlega vernd setti fram í mót-
mælum við Útlendingastofnun í gær
sneru m.a. annars að því að flótta-
fólk fengi sama aðgang að heilbrigð-
iskerfinu og aðrir íbúar landsins að
því er fram kom á mbl.is í gær.
Þorsteinn Gunnarsson, sviðstjóri
á verndarsviði Útlendingastofnunar,
segir að umsækjendur um al-
þjóðavernd fái alla almenna heil-
brigðisþjónustu. Útlendingastofnun
sé með þjónustusamning við Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins og um-
sækjendur um alþjóðavernd fái
strætómiða til þess að komast á milli
staða.
„Umsækjendur um alþjóðavernd
geta sjálfir pantað tíma hjá lækni á
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
þar sem Útlendingastofnun er með
samning eða óskað eftir aðstoð við
það. Læknir metur hvort hann telji
nauðsynlegt að senda einstakling til
sérfræðings hvort heldur um sé að
ræða andleg eða líkamleg veikindi,“
segir Þorsteinn sem bendir á að um-
sækjendur um alþjóðavernd séu
ekki sjúkratryggðir á Íslandi og því
greiði Útlendingastofnun fyrir alla
heilbrigðisþjónustu. Hann segir
börn undir 18 ára fá sömu þjónustu
og önnur börn og mæðravernd
standi umsækjendum um al-
þjóðavernd til boða eins og öðrum
landsmönnum. Við slys eða alvarleg
veikindi eigi umsækjendur um al-
þjóðavernd rétt á sjúkrabíl eða geti
leitað á bráðamóttöku eins og aðrir.
Þorsteinn segir að bið eftir sér-
fræðiþjónustu geti í sumum tilfellum
verið löng og skipti þá engu hverra
þjóðar einstaklingar séu.
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Umsækjendur um alþjóðavernd stóðu fyrir mótmælum í fyrradag.
Almenn heilbrigðis-
þjónusta í boði
Fá strætómiða vegna læknisferða