Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 6
FRÉTTASKÝRING
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er særandi að vita til þess að
störf okkar séu ekki metin að meiri
verðleikum en þetta. Að okkar
mati eru þessi vinnubrögð borg-
arinnar algjörlega óásættanleg og
það er ljóst að velferð barnanna er
ekki höfð að leiðarljósi í þessum
fyrirhuguðu breytingum,“ segir
Friðbjörg Gísladóttir, leikskóla-
kennari á Hólaborg í Breiðholti, í
samtali við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til tillögu
sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar, sem samþykkt
var á fundi sviðsins 28. febrúar sl.,
þess efnis að sameina yfirstjórn
tveggja leikskóla, Suðurborgar og
Hólaborgar, í Suðurhólum í Breið-
holti, en 43 metrar eru á milli leik-
skólanna tveggja. Með sameiningu
yfirstjórnar er átt við að ráðinn
verði einn leikskólastjóri sem stýra
myndi báðum leikskólum. Þá er
einnig gert ráð fyrir að til viðbótar
komi 25% stöðuhlutfall sem nýtist
stjórnendum til að ná betur utan
um stjórn leikskólanna tveggja.
Friðbjörg segir hvorki starfs-
fólki né foreldrum hafa verið kynnt
þessi tillaga áður en hún var sam-
þykkt. Þess í stað var sendur út
tölvupóstur sem tilkynnti ákvörð-
unina. Þessi vinnubrögð eru að
mati starfsfólks leikskólanna óá-
sættanleg með öllu.
Þá er vert að geta þess að búið
var að boða foreldraráð og stjórn-
endur leikskólanna tveggja á fund
13. febrúar sl. Aftur á móti var
hætt við þann fund án nokkurra
skýringa.
Verða börnin send heim?
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu í janúar síðastliðnum að til
skoðunar væri að sameina Suður-
borg og Hólaborg og mynda þann-
ig nýjan leikskóla 10 deilda með
um 160 börn og með sérhæfðri
ungbarnadeild. Þær hugmyndir
vöktu miklar áhyggjur meðal
starfsfólks sem sagðist kvíða mjög
breytingunum. Þá var einnig uppi
sá ótti að starfsfólk, einkum
menntað, myndi segja upp vegna
áformanna með tilheyrandi óþæg-
indum fyrir bæði börn og foreldra
þeirra.
Þrátt fyrir að nýsamþykkt til-
laga skóla- og frístundasviðs kveði
ekki á um sameiningu leikskólanna
tveggja í eina stóra einingu segir
Friðbjörg starfsfólk enn uggandi
og hafa margir þegar sagt upp
starfi sínu. Þá eru enn fleiri starfs-
menn sem nú íhuga að feta í sömu
spor.
Alls hafa tíu starfsmenn Suður-
borgar og Hólaborgar sagt upp eða
íhuga að segja upp. Af þeim sem
sagt hafa upp í Suðurborg eru þrír
leikskólakennarar, þar af einn með
deildarstjórn og annar sem sinnir
starfi sérkennslustjóra. Einnig eru
fjórir starfsmenn til viðbótar með
uppeldismenntun sem hafa sagt
upp störfum eða íhuga að segja
upp.
Í Hólaborg eru þrír starfsmenn
búnir að segja upp og sinna tveir
þeirra deildarstjórn á leikskólan-
um.
„Það er ljóst að leikskólarnir
verða óstarfhæfir ef allar þessar
uppsagnir taka gildi og þá er ekk-
ert annað í stöðunni en að senda
börnin heim,“ segir Friðbjörg, en
uppsagnirnar munu að óbreyttu
taka gildi á næstu mánuðum.
Fyrsta skref sameiningar?
Í tillögu skóla- og frístundasviðs,
sem lögð verður fyrir borgarráð til
samþykktar í dag, segir að innra
starf leikskólanna verði óbreytt
þrátt fyrir sameiningu yfirstjórnar.
„[E]kki er gerð krafa um breyt-
ingar á rekstri mötuneyta, stöðu-
gildi aðstoðarleikskólastjóra
standa óbreytt […] stöðugildi sér-
kennslustjóra standa óbreytt, ekki
verður farið í að aldursskipta börn-
um á milli húsa og ekki verður til-
færsla á starfsfólki,“ segir í tillögu
ráðsins.
Hanna Rún Ingólfsdóttir, leik-
skólakennari í Suðurborg, segir
fyrirhugaðar breytingar í raun
fyrsta skref í átt að fullri samein-
ingu Hólaborgar og Suðurborgar.
„Það er sagt að ekkert muni
breytast nema yfirstjórnin. En ef
ráðinn er nýr leikskólastjóri yfir
báðum skólum þá hefur hann auð-
vitað fullt vald til þess að gera það
sem hann vill. Þannig gæti sá hinn
sami lagt af stefnu annars skólans,
innleitt eina stefnu í báðum skólum
eða fært til starfsfólk og börn á
milli húsa svo eitthvað sé nefnt. Að
boða engar breytingar á innra
starfi samhliða þessu eru því að
okkar mati loforð án nokkurrar
innistæðu. Maður veit í raun ekki
hvað þessi breyting mun hafa í för
með sér.“ segir hún.
Þá segja þær Friðbjörg og
Hanna Rún það vera „mikið
áhyggjuefni“ að hugsa til þess að
einungis einn einstaklingur muni
fara með stjórn á tveimur ólíkum
leikskólum, en innan þeirra er rek-
in ólík uppeldisstefna.
„Stjórnunarhlutfallið sem á að
bæta við er svo lítið að það skiptir
í raun engu máli. Þetta er engan
veginn nóg til þess að hægt sé að
halda utan um öll nauðsynleg verk-
efni,“ segir Hanna Rún.
Spurð hvort foreldrar hafi sett
sig í samband við starfsfólk leik-
skólanna vegna boðaðra breytinga
kveður Hanna Rún já við. „Nokkr-
ir hafa þegar gert það og sumir
eru talsvert áhyggjufullir vegna
breytinganna,“ segir hún og bætir
við að starfsfólk Suðurborgar og
Hólaborgar í Breiðholti hvetji nú
borgarfulltrúa til að hafna tillögu
skóla- og frístundasviðs á fundi
borgarráðs í dag.
„Á sama tíma og verið er að
reyna að fá fólk til starfa á leik-
skólum og inn í námið þá er verið
að boða aðgerðir sem þessar – eitt-
hvað sem hrekur starfsfólkið í
burtu,“ segir Hanna Rún og bætir
við að eini augljósi ávinningur að-
gerðanna sé sparnaður sem sam-
svarar einum leikskólastjóralaun-
um, um 6 milljónir króna á ári
samkvæmt gildandi kjarasamning-
um. „Það er í raun óskiljanlegt að
valda svona mikilli óánægju fyrir
svo litla fjárhæð.“
Borgin sýnir af sér ókurteisi
Sæunn Hrund Björnsdóttir er
foreldri barns á Suðurborg. Hún
óttast mjög að fagleg þekking þar
muni glatast taki boðaðar uppsagn-
ir starfsfólks leikskólans gildi.
„Flestallir foreldrar barna á
Suðurborg hafa verið mjög ánægð-
ir með það starf sem þar er unnið
sem og alla aðstöðu fyrir börnin
okkar. Við teljum það vera algjöra
ókurteisi af hálfu Reykjavíkur-
borgar að vera að raska þessu
góða starfi með breytingum þegar
allir eru ánægðir með núverandi
fyrirkomulag. Þess utan er fjár-
hagslegur ávinningur lítill sem
enginn,“ segir Sæunn Hrund og
bætir við að Reykjavíkurborg sé í
raun að „lauma inn“ fyrsta skrefi
að fullri sameiningu leikskólanna
með því að kynna ekki ákvörðun
skóla- og frístundasviðs um sam-
einaða yfirstjórn fyrir foreldrum
og starfsfólki leikskólanna. „Við
erum ekki alveg fædd í gær – þetta
er greinilega bara upphafið og í
anda fyrri hugmynda um fulla
sameiningu,“ segir hún.
Þá segist Sæunn Hrund hafa
miklar áhyggjur af framhaldinu
sem og líðan starfsmanna og barna
á leikskólanum.
„Þetta er fólkið sem sér um
börnin okkar, átta til níu tíma á
dag á meðan við erum að vinna.
Þetta er fólkið sem maður treystir
fyrir því dýrmætasta sem maður á.
Og ef þetta fólk er óöruggt þá
smitast það yfir í börnin okkar og
inn á heimilin,“ segir hún og bætir
við: „Ef þessar uppsagnir taka all-
ar gildi þá er búið að grafa undan
öllu því faglega starfi sem þarna er
unnið.“
Fundur borgarráðs hefst í dag
klukkan 9 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Hvetja borgarfulltrúa til að hafna
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar vill sameina yfirstjórn Suðurborgar og Hólaborgar
Starfsfólk leikskólanna segir vinnubrögð borgarinnar óásættanleg Tíu starfsmenn gætu sagt upp
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hólaborg Leikskóli þessi er fremur lítill, með þrjár deildir og um 50 börn, en á skólunum er rekin ólík stefna.
Suðurborg Á leikskólanum eru sjö deildir og eru þar alls um 113 börn.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
er
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ FRÁ:
6.290.000 KR.
D150, fjórhjóladrifinn,
sjálfskiptur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
8
1
5
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
JAGUAR E-PACE