Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Óli Björn Kárason alþingismaðurbendir á það hér í blaðinu í gær að það skipti launafólk meira máli „hvaða hugmyndafræði sveitar- stjórnir vinna eftir við álagningu skatta og gjalda en hvaða stefnu ríkissjóður hefur á hverjum tíma. Útsvarsprósentan skiptir láglaunafólk a.m.k. meira máli en hvað ríkið ákveður að innheimta í tekju- skatt.“    Hann bætir þvívið að launa- fólk greiði meira í útsvar til sveitarfé- laga en í tekjuskatt til ríkisins, eða 193 milljarða á móti 139 milljörðum, að teknu tilliti til barna- og vaxtabóta.    Óli Björn skrifar: „Launamaðurmeð 300 þúsund krónur í mán- aðarlaun greiðir helmingi meira í útsvar en í tekjuskatt til ríkisins ef hann greiðir þá nokkuð, að teknu til- liti til bóta. Þannig hefur skatta- stefna sveitarfélaga meiri áhrif á ráðstöfunartekjur launafólks en stefna ríkisins í álagningu tekju- skatts. Lagfæringar á tekjuskatts- kerfi ríkisins bera takmarkaðan ár- angur gagnvart þeim sem hafa lág laun.“    Það kemur þess vegna ekki áóvart að formaður VR skuli fagna kjarapakkanum sem sjálf- stæðismenn í borgarstjórn gerðu til- lögu um og fól í sér lækkun útsvars og ýmissa gjalda.    Því miður kemur ekki heldur áóvart að borgarstjóri skuli kalla tillögurnar „lýðskrum“ og „bull“. Hann má ekki til þess hugsa að þurfa að draga úr óráðsíu og sóun hjá borginni. Ragnar Þór Ingólfsson 193 milljarðar, 139 milljarðar STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Saltkjöt og baunir njóta mikilla vin- sælda ef marka má sölu réttarins á veitingastað IKEA. Um 5.500 mál- tíðir voru seldar á sprengidag, þar af voru um 3.400 skammtar af saltkjöti og baunum. IKEA hafði auglýst að hægt yrði að fá þessa forláta máltíð fyrir 492 krónur eða túkall og mættu 302 með gamla túkalla til þess að greiða fyrir matinn. Þá mætti „einn með tvær eldgamlar krónur,“ að sögn Þórarins Ævarssonar, fram- kvæmdastjóra IKEA. „Þetta gekk bara brjálæðislega vel, þetta var vonum framar. Veðrið spil- ar eitthvað inn í þetta, stundum hefur þetta verið á óveðursdögum og þá dettur allt niður. Það var blíða í gær [þriðjudag] þannig að veðrið truflaði engan og það var bara ga-ga að gera frá opnun og sturlað um kvöldið. Það var biðröð [frá matsölustaðnum] inn í barnadeild,“ segir Þórarinn. Framkvæmdastjórinn segir mál- tíðina selda á kostnaðarverði. „Þessi dagur er nú bara einu sinni á ári og um að gera að halda í hann. Það kom skemmtilega á óvart hversu mörg ungmenni mættu og fengu sér að borða, það er gaman að getað haldið hefðinni við.“ Spurður hvort það hvetji ungt fólk til þess að tileinka sér hefðbundnar matarvenjur að bjóða lágt verð svarar Þórarinn játandi. „Ég held það sé alveg borðleggjandi.“ Hann segir marga skólakrakka mæta til þess að snæða á veitingastað IKEA, en ekki síður erlenda gesti og aðflutta. „Við erum með um hundrað erlenda starfsmenn og mér sýndist flestir hafa borðað þetta með bestu lyst.“ Saltkjöt og baunir, túkall  3.400 skammtar seldir í IKEA Morgunblaðið/RAX Sprengidagur 302 greiddu fyrir saltkjöt og baunir með túkalli. Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 VOR 2019 Guðni Einarsson Andri Yrkill Valsson Þröskuldi upp á 20% þátttöku hefur þegar verið náð í einhverjum hópum í atkvæðagreiðslum um verkfalls- boðanir Eflingar hjá 40 hótelum og öllum fyrirtækjum í hópbifreiða- akstri á félagssvæði stéttarfélagsins. „Þetta er að vinnast mjög vel,“ sagði Viðar Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Eflingar. Atkvæðagreiðslan er rafræn en einnig er hægt að kjósa utan kjör- fundar. Kosningabíll Eflingar ekur á milli vinnustaða þar sem fólk getur kosið, að sögn Viðars. Á kjörskrá eru 1.133 hótelstarfsmenn, 404 bílstjórar hjá hópferðafyrirtækjum og 91 hjá Almenningsvögnum Kynnisferða. Kosið er um sjö tillögur um vinnu- stöðvanir, tvær á hótelum, þrjár hjá Almenningsvögnum Kynnisferða og tvær í hópbifreiðaakstri. Kosningin hófst á á mánudaginn var og lýkur klukkan 23.59 laugardaginn 9. mars. Framar vonum hjá VR Þátttaka í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá félagsmönnum VR sem hófst í fyrradag hefur verið framar vonum, að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR. Atkvæðagreiðsla snýst um að- gerðir sem beinast að 20 hótel- og hópbifreiðafyrirtækjum og munu ná til um 1.000 félagsmanna. Krafist er 20% þátttöku svo atkvæðagreiðslan sé gild og fyrsta sólarhringinn náði þátttakan þegar 15%, að sögn Ragn- ars. Atkvæðagreiðslan stendur yfir til 12. mars. „Þetta er mun betri útkoma en við þorðum að vona, sérstaklega í ljósi þess að við eigum eftir að halda fleiri fundi með starfsfólki á þeim stöðum sem aðgerðirnar ná til. Miðað við þá stemningu sem við skynjum í okkar baklandi þá finnst mér það gefa til kynna að líkurnar á því að aðgerð- irnar verði samþykktar séu miklar,“ sagði Ragnar. Efling og VR kjósa um verkföll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.