Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Undanfarna daga hefur verið unnið að því í
gróðurhúsi Skógræktarinnar að Mógilsá að
stinga í bakka græðlingum af úrvalsklónum
alaskaaspar með áherslu á ryðþol. Klónarnir
verða settir í beð á Tumastöðum í Fljótshlíð og
mögulega víðar um land og notaðir sem
móðurefni til ræktunar á ösp.
„Þetta starf er liður í því að fjölga hraustari
einstaklingum af ösp, sem hafa meðal annars
meiri mótstöðu gegn asparryðinu. Einnig má
horfa á þetta sem lið í því stóra verkefni að
auka skógrækt í landinu til kolefnisbindingar
því að auk sitkagrenis er alaskaösp sú trjáteg-
und sem bindur mest kolefni í íslenskum
skógum,“ segir á vef Skógræktarinnar.
Klónar sóttir í Hrosshaga
Alls var safnað efni af 27 klónum og var efnið
sótt í safn í Hrosshaga í Biskupstungum. Klón-
arnir hafa flestir aukið þol gagnvart asparryði
samanborið við marga af gömlu íslensku klón-
unum sem verið hafa í ræktun. Nýju klónarnir
vaxa einnig hraðar en flestir gömlu klónarnir.
Þessi efniviður er afrakstur kynbótastarfs sem
Halldór Sverrisson hefur stýrt um árabil.
Þegar efninu hafði verið safnað var það
klippt niður í græðlinga og því stungið í bakka í
gróðurhúsinu á Mógilsá. Það sem afgangs varð
verður sent norður að Vöglum í Fnjóskadal,
þar sem græðlingum verður einnig stungið í
bakka. Áætlað er að græðlingarnir verði í
gróðurhúsi í um tvo mánuði. Á meðan verður
fylgst með laufgun allra klóna og skráð hvern-
ig hverjum og einum klóni vegnar.
Mikilvægt að prófa víðar
Þegar dag fer að lengja og birtuskilyrði
verða orðin ákjósanleg verða plönturnar flutt-
ar í starfstöð Skógræktarinnar að Tuma-
stöðum í Fljótshlíð. Þar er stefnt að því að
teknir verði sumargræðlingar sem mögulega
verði tilbúnir til afhendingar í haust. Græð-
lingarnir verða svo settir niður í beð á Tuma-
stöðum og trén sem vaxa upp af þeim notuð í
móðurefni á komandi árum.
Vonast er til að eitthvað af þessum græð-
lingum verði sett niður á öðrum stöðum á land-
inu líka. Það er mikilvægt því að þessir klónar
hafa ekki verið prófaðir í öðrum landshlutum,
að því er fram kemur á skogur.is
Fjölga „ofuröspum“ með græðlingum
Efni af úrvalsklónum var safnað í Hrosshaga
Liður í því að fjölga hraustari einstaklingum
Ljósmynd/Skógræktin/Bjarki Þór Kjartansson
Ræktun Jóhanna Ólafsdóttir og Halldór Sverrisson, sérfræðingar á rannsóknasviði Skógrækt-
arinnar, við vinnu með stiklingana úr Hrosshaga í gróðurhúsinu á Mógilsá.
Hæstiréttur hefur sýknað íslenska
ríkið í skaðabótamáli Ástu Krist-
ínar Andrésdóttur hjúkrunarfræð-
ings, sem fór fram á fjórar millj-
ónir í skaðabætur eftir að hafa
verið sýknuð af ákæru um mann-
dráp af gáleysi.
Ásta Kristín var ákærð fyrir
manndráp af gáleysi í kjölfar þess
að sjúklingur á Landspítalanum
sem var í hennar umsjá lést í byrj-
un október 2012. Héraðsdómur
sýknaði Ástu Kristínu af ákærunni
í desember 2015. Höfðaði hún
skaðabótamálið gegn ríkinu í
framhaldinu og fór fram á fjórar
milljónir í bætur.
Tók á sig ábyrgð að ósekju
Skaðabótakrafan var byggð á
því að starfsmenn ríkisins, einkum
lögreglumenn sem komu að rann-
sókn málsins, hafi gert mistök við
upphaf málsins sem hafi leitt til
þess að Ásta Kristín tók á sig
ábyrgð á andláti sjúklingsins að
ósekju.
Héraðsdómur sýknaði ríkið af
skaðabótakröfunni 29. nóvember
2017. Ásta Kristín áfrýjaði málinu
til Landsdóms, sem staðfesti dóm
héraðsdóms og sýknaði ríkið. Þeim
dómi var svo skotið til Hæsta-
réttar, sem dæmdi í málinu í vik-
unni.
Í niðurstöðu Hæstaréttar kom
fram að ekki væri hægt að sanna
það að íslenska ríkið hefði brotið
gegn frelsi eða æru hennar í skiln-
ingi skaðabótalaga. Því skyldi hinn
áfrýjaði dómur Landsréttar vera
óraskaður og var ríkið því sýknað
af kröfum Ástu. Málskostnaður
greiðist úr ríkissjóði.
Fær ekki skaða-
bætur frá ríkinu
Höfðaði mál eftir að hafa verið sýkn-
uð af ákæru um manndráp af gáleysi
Morgunblaðið/Jón Pétur
Dómsmál Ásta Kristín Andrés-
dóttir hjúkrunarfræðingur.