Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Það var í glamp-
andi sól einn júní-
dag árið 1982 þar
sem ég sat að snæð-
ingi á Næstu grösum, að snagg-
araleg kona vatt sér hvatvíslega
að mér, leit fast í augu mér og
sagði stundarhátt: „Hvaðan hef-
ur þú eiginlega þessi augu?
Svona augu hefur enginn nema
hann sonur minn!“
Á þennan hátt hittumst við
fyrst, ég og þessi hvatvísa og
spontant kona sem átti eftir að
verða tengdamóðir mín.
Síðar rakti hún saman ættir
okkar og augun stóru voru hluti
af sameiginlegum Oddsstaða-
ættarsvipnum. Við vorum sumsé
frænkur í fjórða og fimmta og
það var sagt mér í hag.
Friðný var þungamiðja og
miðpunkturinn á heimili þeirra
Guðjóns Guðnasonar fæðingar-
Friðný Guðrún
Pétursdóttir
✝ Friðný GuðrúnPétursdóttir
fæddist 4. janúar
1922. Hún lést 7.
febrúar 2019.
Friðný var jarð-
sungin 19. febrúar
2019.
læknis í Sigtúni og
amma Ninna, eins
og við kölluðum
hana oftast, lék á als
oddi og veitti af ör-
læti þegar fjölskyld-
an kom þar saman.
Hún var
skemmtilega forvit-
in um alla skapaða
hluti og vel að sér,
var hrein og bein og
hafði ávallt skýrar
og afdráttarlausar skoðanir á öll-
um hlutum svo aldrei þurfti neinn
að velkjast í vafa um afstöðu
hennar gagnvart einu eða neinu.
Frú Friðný var glæsileg kona
og margbrotinn karakter, hand-
takið var þétt og hlýtt. Vænst
þótti mér um barnslega einlægn-
ina, óborganlegan húmorinn og
kímnina.
Ég verð ömmu Ninnu ævin-
lega þakklát fyrir að hafa eignast
soninn Pétur, sem varð faðir
þriggja gæfuríkra sona minna og
kveð hana með hjartans þökk.
Megi blessuð sál Friðnýjar
Pétursdóttur fljúga frjáls inn í
nýjar og spennandi víddir.
Helga Ragnheiður
Óskarsdóttir.
✝ GuðmundurJörundsson
fæddist á Elliða í
Staðarsveit 9. októ-
ber 1940. Hann lést
á spítalanum í
Stykkishólmi 10.
febrúar 2019.
Foreldrar hans
voru Jörundur
Þórðarson, f. á
Hömluholtum í
Eyjahreppi 10.8.
1901, d. 19.12. 1988, og María
Óladóttir, f. á Hofstöðum í
2017 Margréti Þorláksdóttur, f.
1.3. 1945. Foreldrar hennar
voru Ingibjörg Stefánsdóttir og
Þorlákur Sigurjónsson.
Börn hennar og Hilmars Har-
aldssonar eru 1) Haraldur Páll,
f. 25.11. 1962, maki hans er
Arna Sigrún Viðarsdóttir, þau
eiga tvö börn. 2) Þorlákur Ingi,
f. 23.5. 1964, maki hans er Helga
Björg Steingrímsdóttir. Þau
eiga þrjú börn. 3) Sigurbjörg
Kristín, f. 21.12. 1967, maki
hennar er Heiðar Axelsson, þau
eiga fjögur börn. 4) Ingibjörg
Guðrún, f. 22.10. 1974, d. 22.10.
1989. Gekk Guðmundur þeim í
föðurstað.
Sonur Guðmundar og Sigrún-
ar Dan er Þröstur, f. 12.5. 1963.
Útför Guðmundar fór fram 2.
mars 2019.
Miklaholtshreppi
18.8. 1902, d. 12.12.
1972.
Systkini hans
voru: 1) Kristján, f.
9.10. 1927, d. 17.2.
1962. 2) Jón Hildi-
berg, f. 21.3. 1929,
d. 17.2. 1962. 3)
Arndís, f. 3.2. 1931,
d. 30.5. 2012. 4) Óli
Guðmundur, f. 23.5.
1933. 5) Helga, f.
8.9. 1935. 6) Ester, f. 26.2. 1942.
Guðmundur kvæntist 27.5.
Elsku Mummi frændi, nú hef-
ur þú bæst í fallega englahópinn
á himnum. Ég veit að það hafa
verið miklir fagnaðarfundir og
vel hefur verið tekið á móti þér.
Það er svo margs að minnast
þegar ég hugsa til þín, elsku
frændi, en það sem stendur upp
úr er hlátur þinn, það var alltaf
gaman í kringum þig, þú sást
alltaf spaugilegu hliðina á hlut-
unum, alltaf varstu til í að grín-
ast og hlæja. Og svo auðvitað
fallegu brúnu augun þín, þau
sögðu svo mikla sögu. Það var
endalaust hægt að horfa í augun
þín, svo mikil hlýja og ástúð.
Það var yndislegt að vera lítil
stelpa og eiga einn Mumma
frænda, sem sigldi á milli heims-
álfa. Tilhlökkunin var alltaf jafn
mikil að fara með mömmu og
pabba niður á höfn að taka á
móti þér. Þú varst svo mikill
heimsmaður í mínum huga, og
ekki skemmdu allir fallegu hlut-
irnir sem þú færðir okkur frá út-
landinu.
Ég geymi í minningu minni
síðasta samtal okkar, elsku
Mummi minn, það var yndislegt
að heyra í þér og við gátum
spjallað góða stund þó svo að þú
værir mjög veikur en þú lést það
auðvitað ekkert aftra þér.
Ég bið þig að faðma elsku
engilinn minn og skila kveðju til
hennar, ég veit að hún hefur
verið í fremstu línu að taka á
móti þér.
Góða nótt, elsku Mummi
frændi minn, og sofðu rótt.
Þín
Rósella.
Elsku yndislegi Mummi
frændi minn. Mikið er ég glöð að
hafa átt þig sem frænda, móður-
bróðir minn. Alltaf var svo gam-
an þegar þú komst heim til okk-
ar eftir að hafa verið á sjónum
og alltaf færðir þú einhverju
okkar eitthvað fínt frá útlöndum.
Þú keyptir dúkkuvagn handa
mér og komst með eftir eina sjó-
ferðina og mikið sem mér fannst
hann fallegur, dökkblár og fínn
og ég átti hann og fékk hann
nýjan og var ég þá um fjögurra
ára gömul og á þeim tíma var
ekki sjálfsagt að eiga glænýjan
dúkkuvagn beint frá útlöndum.
Það var alltaf mikill samgang-
ur og mikil samvera þegar þú
varst í landi. Takk fyrir að lofa
okkur systrum að koma vestur
með börnin okkar og lofa þeim
að fara á hestbak á hestunum
þínum. Þú sýndir okkur hest-
húsið þitt og varst svo stoltur og
svo mikill dýravinur, áttir meira
að segja hænur úti í garði og
gafst mömmu nýorpin egg. Þú
og ég vorum svo innilega sam-
mála í stjórnmálum og gátum
við hlegið saman og deildum
sömu virðingu fyrir „okkar
manni“ og við vorum alveg sam-
mála um hvern við myndum vilja
sjá sem forseta sem var enginn
annar en hann Davíð okkar eins
og við sögðum alltaf.
Spjallið sem við áttum saman
í síma rétt áður en þú kvaddir
þennan heim var alveg eins og
áður og við hlógum og gönt-
uðumst með þetta áfram. Ég er
rík af minningum um þig og trúi
því að þú sért kominn í faðm
Guðs.
Elsku Magga og fjölskylda,
megi góður Guð veita ykkur
styrk og hlýju.
Helga María Mosty.
Guðmundur
Jörundsson
Fáein orð til að
minnast Guð-
mundar H. Er-
lendssonar. Við kynntumst er
við vorum níu ára á Álfhóls-
veginum, á þeim tíma var
blakið vinsælt í Kópavoginum
og lágu leiðir okkar saman í
HK, þar urðum við Íslands-
meistarar í 4. flokki, Gummi
Guðmundur
Heiðar Erlendsson
✝ GuðmundurHeiðar Er-
lendsson fæddist
30. janúar 1968.
Hann lést 13. febr-
úar 2019.
Útför Guð-
mundar fór fram
22. febrúar 2019.
hætti síðar í blak-
inu, en við vorum
alltaf góðir vinir,
við gerðum oft
grín að því að við
vorum fæddir
sama dag og ár.
Ég kynntist for-
eldrum þínum,
honum Erlendi
pabba þínum bíl-
stjóra hjá
Mjólkursamsöl-
unni og móður þinni Elísabetu,
maður fann alltaf til hlýleika
og velvildar er ég kom í heim-
sókn til ykkar. Það kom ekki á
óvart að Gummi skyldi velja
að keyra Strætó og síðar ger-
ast rútubílstjóri, feta í fótspor
pabba síns. Þú kynntist sorg-
inni líka er foreldrar þínir lét-
ust með stuttu millibili, það
tók mikið á. Leitaði Gummi þá
í trúna sem var honum ávallt
mikilvæg, áttum við mörg
samtölin um sorgina og lífið
almennt, og einnig um bíla-
áhuga okkar beggja. Þegar
Gummi kom í heimsókn þá
spurði hann alltaf hvort hann
væri að trufla mig, hvort við
gætum spjallað saman, þetta
lýsir honum best að hann vildi
aldrei vera uppáþrengjandi, en
Gummi er einn besti vinur
minn og ein besta mannvera
sem ég hef hitt á lífsleiðinni,
já alger gullmoli, hógvær og
góður drengur eins og hann á
kyn til. Ég veit að Guð tekur
vel á móti þér. Ég vil senda
samúðarkveðjur mínar til að-
standenda þinna, vinkonu
þinnar, og systur, Sólveigar,
og fjölskyldu hennar.
Einar Þór Ásgeirsson.
Elsku afi minn.
Einhvern veginn
er maður ekki
tilbúinn til þess að
vera að skrifa minningargrein
um þig og rosalega er það sárt,
en mikið varstu frábær fyrir-
mynd og varst miklu meira en
bara afi, þú varst besti vinur
sem hægt er að hugsa sér.
Kenndir mér svo margt, þegar
við lágum í grasinu í sveitinni
og hlustuðum á hrossagaukinn,
það var eitt sem þú kenndir
mér, á meðan horfðum við upp
til stjarnanna sagðir þú mér allt
um þær og við leituðum alltaf
saman að karlsvagninum. Þú
vildir alltaf hafa okkur barna-
börnin sem næst þér og helst
allar helgar í gistingu. Fara
með okkur niður í flóa og sýna
okkur hrossin, fara í berjamó á
haustin. Náttúran og sveitin
Gunnar Kristinn
Þórðarson
✝ Gunnar Krist-inn Þórðarson
fæddist 4. desem-
ber 1948. Hann lést
12. febrúar 2019.
Útför Gunnars
Kristins fór fram
22. febrúar 2019.
skipti þig svo miklu
máli.
Eftir langa bar-
áttu, þá heldur
maður alltaf að það
sé ein heimsókn í
viðbót, ein kveðja í
viðbót, og þar til
næst. Í þetta skipti
var það ekki svo-
leiðis, það var ekki
önnur heimsókn, og
verður aldrei þar
til næst.
Ég er þakklát fyrir allt sem
við áttum, allan fíflaganginn
sem þú varst tilbúinn í að gera
fyrir okkur barnabörnin, ég er
þakklátust fyrir það að hafa
þekkt þig hraustan og heil-
brigðan áður en MND skall á
þér, þú ætlaðir að sigrast á
þessu, og fyrir mér gerðirðu
það. Þú ert hetjan mín. Ég get
sagt fyrir okkur öll afabörnin að
við erum öll stolt af þér og þú
varst okkur öllum mjög kær. Þú
verður alltaf elskaður, og minn-
ing þín mun ávallt lifa í hjörtum
okkar. hvíldu í friði, elsku afi.
Hjartans saknaðarkveðja,
Þín
Sandra Sif.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum.
Einnig er hægt að slá inn slóð-
ina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Heittelskaður og elskandi eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR PÁLSSON,
dr. og fyrrverandi sóknarprestur í
Hallgrímskirkju,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund 2. mars.
Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 12. mars klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparstarf kirkjunnar og
Unicef.
Jóhanna G. Möller
Margrét Kristín Sigurðardóttir, Børge Johannes Wigum
Embla Gabríela Wigum og Ágúst Örn Wigum
Haukur Þór Búason Kolbrún Mist Pálsdóttir
Birgir Hrafn Búason Sæunn Ýr Marinósdóttir
Daníel Leó og Atli Hrafn
Arnar Már Búason og Viktor Örn
Elskuleg móðir mín, systir, mágkona og
frænka,
ANNA JÓHANNSDÓTTIR
frá Steinum,
Kleppsvegi 58, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
miðvikudaginn 6. mars.
Útför auglýst síðar
Jóhann Elí
Guðmunda Jóhannsdóttir Sigurður Gunnsteinsson
Jóna M.R. Jóhannsdóttir Ólafur Haraldsson
og systrabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN EDDA HRINGSDÓTTIR,
Dalsbrún 16,
Hveragerði,
sem lést á sjúkrahúsi á Spáni 23. febrúar,
verður jarðsungin frá Guðríðarkirkju,
Grafarholti, þriðjudaginn 12. mars klukkan 13.
Hafsteinn Jónsson
Sigrún Hafsteinsdóttir Guðmundur Andri Bergmann
María Hafsteinsdóttir Björn Ingimundarson
Hermann Hafsteinsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
GUÐRÚN MARTA SIGURÐARDÓTTIR,
Skúlagötu 42,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 27. febrúar á
Landspítalanum. Útför fer fram föstudaginn 15. mars klukkan
13 frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
Ragnheiður A. Þorsteinsd. Embla Líf Ragnheiðardóttir
Óskar Ísfeld Sigurðsson Sólveig Björk Ágústsdóttir
Helga Sigurðardóttir Ágúst Óskarsson
Erlendur Ísfeld Berglind Bjarnadóttir