Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 54
54 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Canada Goose Chilliwack Bomber er framúrskarandi vörn
gegn kuldanum og glæsileg hönnun fyrir borgarlífið. Okkar
verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum.
CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU
www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
C
an
ad
a
G
o
o
se
C
hi
lli
w
ac
k
B
o
m
b
er
p
b
i1
14
.9
9
0
kr
.
Kuldaþol: -20°C
Ég hélt svo vel upp á 50 ára afmælið með 200 manna veislu,hljómsveit og skemmtiatriðum að það dugar enn,“ segir Auð-unn Ásberg Gunnarsson bifvélavirkjameistari sem fagnar 60
ára afmæli í dag. Auðunn segir að eiginkona hans, Sólbjörg Linda
Reynisdóttir, hafi orðið 55 ára 18. febrúar sl. og þau hafi fagnað báð-
um afmælunum með kaffiboði um síðustu helgi.
„Það verður auðvitað kaka í boði á bílaverkstæðinu í dag. Það kæmi
mér verulega á óvart ef enginn kíkti í kaffi en fyrsta koníaksflaskan
datt í hús í fyrradag,“ segir Auðunn en töluvert er um að menn kíki í
kaffi á bílaverkstæðið. Auðunn segir að í eitt skipti hafi fimm beðið á
biðstofunni þegar hann kom til vinnu og allir hafi þeir verið utan af
landi.
„Tveir voru frá Reyðarfirði þaðan sem ég er, einn frá Eskifirði og
einn frá Norðfirði,“ segir Auðunn sem byrjaði 8 ára að laga hjólið sitt,
13 ára fór hann í skellinöðruviðgerðir og hefur gert við bíla frá því að
hann fékk bílpróf 17 ára.
„Ég ætlaði alltaf að verða skipstjóri en var svo sjóveikur að það
gekk ekki upp. Ég keyrði vörubíla í sex ár á Reyðarfirði en bíla-
áhugann fékk ég mjög ungur frá pabba. Hann var vörubílstjóri sem
gerði við bílana sína sjálfur. Frá Reyðarfirði flutti ég til Reykjavíkur
fyrir 31 ári og hóf störf hjá Toyota. Ég opnaði síðar Bifreiðaverkstæði
Kópavogs sem fagnaði 24 ára afmæli í gær.“
Auðunn segir að áhugamál hans tengist bílum og hann reyni að
komast eins oft og hann geti akandi á hálendið bæði sumar og vetur á
25 ára gamalli Toyota Land Cruiser. „Ég var ekki nema tvítugur þeg-
ar ég átti fyrsta barnið, Auði Evu, sem verður fertug 13. mars. Hún á
fjögur börn. Ég á líka tvo stráka, Jóhann Dag, 27 ára, og Bjart Hrafn,
25 ára,“ segir Auðunn og bætir við að Arnþór Birkir Sigurðsson, son-
ur Sólbjargar, hafi verið í hans lífi í 10 ár.
Hjón Auðunn og Sólbjörg vinna saman og ferðast líka á fjöll saman.
Lagar bíla en vildi
verða skipstjóri
Auðunn Ásberg Gunnarsson 60 ára
K
ristrún Halla Helga-
dóttir fæddist 7. mars
1969 í Reykjavík og
ólst upp í Fossvog-
inum.
Halla, eins og hún er ávallt kölluð,
gekk í Fossvogsskóla og Réttar-
holtsskóla og útskrifaðist úr
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1989. Hún fór síðan til Frakklands
og nam við Université de Caen,
Normandie. Halla lauk BA-prófi í
sagnfræði frá HÍ 1997 og MA-prófi í
sagnfræði frá sama skóla 2016. Hún
fékk styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna tvö sumur til þess að
vinna verkefnið „Rannsókn og flokk-
un Reykjavíkurbréfa frá 19. öld“ í
handritadeild Landsbókasafns – Há-
skólabókasafns. Verkefnið hlaut 3.
verðlaun í Nýsköpunarverðlaunum
forseta Íslands árið 1997.
Kristrún Halla Helgadóttir sagnfræðingur – 50 ára
Fjölskyldan Þorfinnur, Kristín, Halla, Embla og Magnea stödd í Hvestu í Arnarfirði.
Hefur unnið við Ís-
lendingabók frá byrjun
Í Svíþjóð Halla ásamt tveimur yngri dætrunum, Kristínu og Magneu.
Vík í Mýrdal
Sveinn Andrés Ax-
elsson fæddist 12.
júní 2018 kl. 20.23.
Hann vó 4.355 g og
var 55 cm langur.
Foreldrar hans eru
Elsa Líf Bjarna-
dóttir og Axel Bóas
Andrésson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is