Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Helga Ingólfsdóttir semb-alleikari (1942-2009)var meðal eftir-minnilegustu frum- kvöðla síðari áratuga í íslenzku tónlistarlífi. Ekki aðeins fyrir giftudrjúg kennslustörf og glæsi- lega spilamennsku, heldur einnig fyrir að auka veg jafnt fornrar sem nýrrar tónlistar – ekki sízt með stofnun Sumartónleika í Skál- holtskirkju 1975. Um þessa merku arfleifð kom í fyrra út veglegt rit eftir Kolbein Bjarnason flautuleikara er átti varla langt að sækja vitneskju og hvatningu til verkefnisins, verandi kvæntur fyrrum nemanda Helgu, þótt kunnari sé fyrir nútíma- tónlist; ýmist sem túlkandi (þ. á m. í CA- PUT hópnum) eða sem tón- skáld. Óhætt má segja að viðfangsefnið verðskuldi vandaða umfjöllun, enda er Helgu- leikur gizka vel þegin búbót meðan fullnægjandi rit um íslenzka tón- listarsögu lætur enn á sér standa. En kannski fyrir sömu sök líka nokkuð ,út og suður‘ í því hvernig höfundur lætur stundum hugann flakka frjálslega á milli sjónar- horna. Það er að vísu fráleitt ein- hlítur ókostur, því bókin verður fyrir vikið oft skemmtilegri til ígripalesturs – en rýrir á móti svo- lítið gildi tónsögulegs uppflettirits í markvissu samhengi efnis og tíma. Það er samt engin spurning, að fyrir utan listaferil Helgu leggur bókin drjúgan skerf til íslenzkrar tónlistarsögu, og engin vanþörf á að ofangetinni ástæðu. Fjölmargt ber á góma sem mér vitandi hefur sjaldan verið fært í letur, þó ekki væri nema um ýmis vandamál við ,upprunalegan‘ flutning á barokk- músík sem Helga gerði sér snemma grein fyrir – þ. á m. styrkrænt jafnvægi sembals við nútímahljóðfæri. Það tók líka tíma sinn að koma barokkhljóðfærum að í samleik, ýmist stroknum eða blásnum. Og fer þar þó aðeins ein hlið af mörgum hvað ,sagnréttan‘ barokkflutning varðar, er mætti í fyrstu litlum skilningi hlustenda. Um þetta, og fjölmargt fleira svo sem nýsköpun staðartónskálda í Skálholti og annarra, má finna mýgrút til fróðleiks og skemmt- unar í hugvekjandi og á köflum kíminni úttekt Kolbeins, fyrir utan áhugaverðar lýsingar á leiftrandi færu hljómlistarfólki í Skálholti, innlendu sem erlendu, á ríflega 30 ára skeiði hátíðarinnar. Ennfremur alls konar ítarefni eins og skrár yf- ir viðeigandi heimildir, útgáfur, menn og staði er auka notagildi verksins, og veitir raunar ekki af í riti af þessari stærðargráðu. Virðast þær allar unnar af ná- kvæmri natni, og saknar maður fás til viðbótar – nema ef vera skyldi eilítils tónlistarorðasafns handa óbreyttum lesendum. (Jafnvel þótt íslenzkan kappkosti öðrum tungum fremur að þýða eða smíða alþjóð- leg fagheiti, þá er útkoman ekki alltaf jafn auðskilin!) Bókinni fylgja sex geisladiskar með einleik Helgu á sembal (ásamt samleik hennar og Manuelu Wies- ler flautuleikara í Sumarmálum og Aube et Serena eftir Leif Þór- arinsson og Jónas Tómasson á nr. 3). Upptökurnar eru flestar úr fór- um RÚV og nokkurn veginn í tímaröð: 1. „Píanóleikur í Reykja- vík 1963“, 2. „1969-1975“, 3. „Ís- lenzk tónlist“, 4. „Rauða Bach- platan 1984“, 5. „Bach-tónleikar í Skálholti 1985 og ricercare-þættir úr Tónafórninni“ og loks 6. „Vina- minni 1986 og Tíbrá 2003“. Tón- verkin eru flest frá barokktíma (1600-1750), en einnig ber talsvert á yngri afurðum 20. aldar, enda sömdu mörg íslenzk tónskáld sér- staklega verk fyrir Helgu, er túlk- aði þau ávallt af alúð og snilld. Er ekki annað að sjá en að hér sé vel að verki staðið, við hæfi minningar um frábæra listakonu sem er sárt saknað og markaði tímamót á sínu sviði. Þó stenzt ég í lokin ekki þá freistingu að viðra agnarlítið andvarp í garð íslenzkr- ar bókaútgáfu almennt, í ljósi yfir- vofandi viðsjár af völdum tækni- byltingar og breyttra neyzluvenja: Er ekki löngu kominn tími til að endurskoða þyngd og fyrirferð uppflettirita? Eða hvernig eiga sófaborðsdoðrantar að geta keppt við fisléttar spjaldtölvur og rekkju- tækar hljóðbækur í nánustu fram- tíð? Morgunblaðið/Árni Torfason Frumkvöðull „Fyrir utan listaferil Helgu leggur bókin drjúgan skerf til íslenzkrar tónlistarsögu,“ segir um Helgu- leik sem fjallar um Helgu Ingólfsdóttur semballeikara sem stofnaði Sumartónleika í Skálholtskirkju 1975. Tónlistarbók [með 6 hljómdiskum] Helguleikur. Saga Helgu Ingólfs- dóttur og Sumartónleika í Skálholts- kirkjubbbbn Eftir Kolbein Bjarnason. Bókaforlagið Sæmundur, Selfossi 2018. Innbundin, 448 bls. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Morgunblaðið/Valli Höfundur „Um þetta, og fjölmargt fleira svo sem nýsköpun staðartónskálda í Skálholti og annarra, má finna mýgrút til fróðleiks og skemmtunar í hug- vekjandi og á köflum kíminni úttekt Kolbeins [Bjarnasonar].“ Veglegur minnisvarði Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 Auka Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 Auka Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fim 7/3 kl. 18:00 Auka Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00 Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 7/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 19:30 Fös 15/3 kl. 19:30 Fös 8/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 22:00 Fös 15/3 kl. 22:00 Fös 8/3 kl. 22:00 Fim 14/3 kl. 21:00 Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 17/3 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Frumsýning 15. mars. Elly (Stóra sviðið) Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Ríkharður III (Stóra sviðið) Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas. Síðustu sýningar komnar í sölu. Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Sun 10/3 kl. 20:00 49. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas. Síðustu sýningar komnar í sölu. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Lau 23/3 kl. 20:00 44. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Fim 7/3 kl. 20:00 3. s Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Sun 10/3 kl. 20:00 4. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s Hvað varð um konuna? Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.