Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty BH Stærðir: 36-42 DD-HH Verð 9.550 kr. Buxur Stærðir: M-4XL Verð 3.650 kr. Nýtt frá Elomi Mia Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég leik allrahanda djasstónlist á tónleikum en ég nýt þess hvað best að leika mínar eigin tónsmíðar, verk sem ég sem undir áhrifum af allra- handa tónlist og tónlistarmönnum,“ segir ítalski djasspíanóleikarinn Rita Marcotulli. Hún kemur fram á tónleikum í Salnum á föstudags- kvöldið kl. 20 og eru þeir á dagskrá tónleikaraðarinnar Jazz í Salnum. „Ég er ástríðufullur djassleikari,“ bætir hún við, „og sem slíkur legg ég mikið upp úr spunanum. En ég hef líka gert talsvert af því að semja tón- list fyrir kvikmyndir, auk þess að takast á við ýmiss konar aðrar pant- anir gegnum árin.“ Rita Marcotulli hefur verið í fremstu röð ítalskra djassleikara undanfarna þrjá áratugi og hefur leikið víða um lönd með mörgum öðrum þekktum. Meðal meðleikara hennar á ferlinum má nefna Pat Metheny, Dewey Redman, Chet Baker, Richard Galliano, Peter Erskine, Billy Cobham og Joe Henderson. Marcotulli hefur sent frá sér nokkrar plötur undir eigin nafni auk þess að hafa leikið á marg- ar með hinum ýmsu hljómsveitum. Hún er sögð fágaður píanisti með melódíska nálgun og sækja inn- blástur jafnt í djasshefðina sem og brasilíska og afríska tónlist. Auk þess að semja og flytja djass hefur Marcotulli hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir tónlist sem hún hefur samið fyrir kvikmyndir í heimaland- inu en hún fæddist í Róm árið 1959. Aðdáandi norrænnar tónlistar Marcotulli segist hafa eytt drjúg- um hluta starfsævinnar á vegum úti við tónleikahald með hinum ýmsum félögum í djassinum, til að mynda mikið með trommugoðsögninni Billy Cobham sem hún lék með frá 1989. „Ég hef leikið talsvert af fram- sækinni tónlist, eins og með Dewey Redman en með honum lék ég af og til í fimmtán ár, og einnig tónlist nær meginstraumum og standarda.“ Og hún nefnir fleiri meðleikara sem hún hefur unnið mikið með, til að mynda trommarann Peter Erskine, sem var í Weather Report, og sænska bassa- leikarann Palle Danielsson. „Ég hef spilað mikið með norrænum tón- listarmönnum, en á níunda áratugn- um var ég búsett í Gautaborg um tíma. Ég er mikill aðdáandi nor- rænnar tónlistar. Og ég hlakka mik- ið til að koma til Íslands! Þetta verð- ur fyrsta heimsókn mín til landsins og ég kem nokkrum dögum fyrir tónleikana með góðum vinum til að upplifa náttúruna.“ Innblástur víða að Marcotulli segir að þótt hún njóti þess að leika á sviði með skapandi og flinkum tónlistarmönnum njóti hún þess ekki síður að koma fram ein eins og hún gerir hér í Salnum. Því fylgi jafnframt mikið og skemmti- legt frelsi. „Mögulega mun ég leika mér eitt- hvað með gamla standarda og votta höfundum þeirra og fyrri flytjendum þannig virðingu mína, í bland við að ég leik einhverjar af mínum eigin tónsmíðum. Efnisskráin er mjög op- in í huga mér; ég hef einhverja hug- mynd nú þegar um hana en get síðan skipt um skoðun þegar ég verð byrj- uð að spila. Auðvitað mun ég leika mér með fallegar laglínur – enda ítölsk! Og blanda við þær ein- hverjum norrænum áhrifum,“ segir hún og hlær. „Þegar ég er ein á tónlistar- ferðalagi mínu á sviði tala ég oft um þann ósýnilega veg sem ég feta og byggi í senn á minningum og inn- blæstri til að finna mína leið.“ Og hún segir innblásturinn við tón- smíðar geta komið víða að, frá nátt- úrunni, frá listaverkum eins og mál- verkum eða höggmyndum, eða frá leikurum þegar hún semur kvik- myndatónlist. „En það er alltaf einhver saga í hverju lagi eða tónverki, einhver sögulína sem ég leik mér með. Þegar ég er ein á sviðinu að spila, rétt eins og þegar ég sem tónlist, veit ég ekki alltaf hvert vegurinn ósýnilegi leiðir mig. Það er rétt eins og í vinnu list- málarans; Picasso lýsti þessu ferli svo vel þegar hann sagði að ef hann vissi frá byrjun nákvæmlega hvað hann ætlaði að mála í hverju verki, hvers vegna ætti hann þá að vera að því?!“ Rita Marcotulli leikur í Salnum á föstudagskvöldið, flýgur heim til Rómar daginn eftir og heldur á sunnudag upp á sextugsafmæli sitt með hópi góðra vina. Svo tekur enn eitt tónleikaferðalagið við. „Í síðustu viku var ég í Danmörku, vann þá þar í ellefu daga og spilaði með þarlend- um listamönnum. Eftir Íslandsferð- ina og afmælið á sunnudag fer ég aftur norður á bóginn, til Svíþjóðar og Noregs að spila á nokkrum tón- leikum. Ég verð því á Norður- löndum meira og minna í mars og hlakka mikið til!“ Djassistinn „Auðvitað mun ég leika mér með fallegar laglínur – enda ítölsk! Og blanda við þær einhverjum norrænum áhrifum,“ segir Rita Marcotulli. Veit ekki alltaf hvert vegurinn ósýnilegi leiðir mig  Ítalski djasspíanóleikarinn Rita Marcotulli kemur fram í Salnum annað kvöld Japanski arkitektinn, hugmynda- fræðingurinn og kennarinn Arata Isozaki hlýtur Pritzker-verðlaunin í ár, mikilvægustu verðlaun sem veitt eru fyrir ævistarf á sviði arki- tektúrs. Isozaki er orðinn 87 ára gamall og að sögn The New York Times hefur hann lengi verið orðaður við verðlaunin, enda kallaður af sam- herjum „keisarinn í japönskum arkitektúr“ og þykir oft framar- lega í þeim fámenna hópi sem vísar leiðina inn í framtíðina á sviði byggingarlistar. Isozaki hefur auk þess að hanna byggingar tekið þátt í umfangs- miklum skipulagsverkefnum og þykir hafa samþætt á snilldarlegan hátt hugmyndir í vestrænum sem austrænum arkitektúr, módern- isma og póstmódernisma í hönnun, og alþjóðlegar og svæðisbundnar hugmyndir í byggingum sem hafa fjölbreytilegt útlit en hafa verið mikilvægar í útrás japansks arki- tekúrs inn í aðra menningarheima. Isozaki hefur teiknað yfir eitt hundrað byggingar á löngum ferli, þar á meðal Samtímalistasafnið í Los Angeles, Palau Sant Jordi- bygginguna í Barselóna og Ráð- stefnumiðstöð Doha í Katar. Isozaki er 46. arkitektinn sem hlýtur Pritzker-verðlaunin og segir í tilkynningu að valnefndin hafi horft til hugmynda hans um „listina í rýminu“ en hann segir grunn- hugmynd sína um arkitektúr vera þá að hann eigi að vera ósýnilegur en fólk eigi að finna fyrir honum með öllum skilningarvitum. Hann segir vel lukkaðan arkitektúr eiga að vera blöndu sjónrænna lista, ljóðlistar, heimspeki, leiklistar, rit- listar og hönnunar. AFP Virtur Artitektinn Arata Isozaki fyrir framan háhýsi eftir hann í Mílanóborg. Arata Isozaki hreppti Pritzkerinn Atvinna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.