Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 61
MENNING 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Félagarnir Pickle og BellyButton sitja neðarlega ífæðukeðju taívansks sam-félags. Pickle er nætur-
vörður hjá forstjóra fyrirtækis sem
framleiðir búddalíkneski. Belly But-
ton hefur sitt lifibrauð af að safna
rusli til endurvinnslu og heimsækir
Pickle iðulega að kvöldlagi til að
horfa með honum á sjónvarpið. Belly
Button þarf að þola háðsglósur og
einelti í sínu daglega lífi, en í sam-
skiptunum við Pickle snýr hann tafl-
inu við. Kvöld eitt kemur hann í
heimsókn og sjónvarpið er bilað.
Vaknar þá sú hugmynd að ná í mæla-
borðsmyndavélina úr bíl forstjórans
og sjá hvað hún hefur að geyma því
að „ríka fólkið lifir svo litríku lífi“.
Þeir rekast strax á funheita upp-
töku af forstjóranum í lostafengnum
samförum. Reyndar sést ekki neitt
nema undirgöng þar sem myndavél-
inni er beint út um framrúðu bílsins,
en stunur, búkhljóð og orðaskipti úr
bílsætunum segja það sem segja
þarf.
Forvitni þeirra er vakin og næstu
kvöld halda þeir áfram að horfa, en
brátt færist háski í leikinn og vin-
irnir tveir vita ekki hvað þeir eiga af
sér að gera. Þeir þora ekki að leita
til lögreglu vegna þess að þeir eru
vissir um að forstjórinn sé svo
valdamikill að það muni bara koma
þeim í koll. En er þeim óhætt ef þeir
þegja?
Ofur-Búdda er gráglettin mynd.
Hún er tekin í svarthvítu og kvik-
myndatakan oft falleg og draum-
kennd. Komu svarthvítar myndir
Akira Kurosawa upp í hugann. Að-
eins mælaborðsmyndavélaratriðin
(lengsta orð vikunnar) eru í lit. Sen-
ur er langar og rólegar og ekki alltaf
augljóst hvað þjónar framgangi sög-
unnar.
Við fylgjumst með átökum í lúðra-
sveit og ámátlegri tilraun Pickle til
að fá frænda sinn til að aðstoða með
aldraða móður sína sem endar með
því að frændinn platar hann til að
kaupa af sér sín eigin gleraugu.
Þingmaður einn kemur við sögu
og hann virðist einkum hafa áhuga á
að vera fjölþreifinn til kvenna.
Í einu atriði froðufellir lögreglu-
foringi af bræði yfir því að undir-
maður hans hafi dirfst að sýna for-
stjóranum þá smánarlegu framkomu
að yfirheyra hann.
Í bakgrunni er svo stóri Búdda,
sem verið er að smíða á verkstæði
forstjórans, foldgnár og gljáandi og
á óvænta innkomu í lokin.
Stóri Búdda er fyrsta mynd leik-
stjórans Huangs Hsin-yaos í fullri
lengd. Hún fékk helstu verðlaun
kvikmyndahátíðarinnar í Taípei og
var framlag Taívans til Óskarsverð-
launanna í ár, en hlaut ekki tilnefn-
ingu. Myndin er full af óvæntum
vinklum og útúrdúrum. Myndin kall-
ar ekki fram bakföll af hlátri og ugg-
laust fer margt framhjá áhorfanda
sem treysta verður á texta og þekkir
ekki til taívanskrar menningar. Það
er kannski ástæðan fyrir því að hún
verður á köflum langdregin og
stefnulaus, en hún er launfyndin og
seiðandi.
Auður, örbirgð og háskaleg hnýsni
Gægjugirnd Cres Chuang og Bamboo Chu-Sheng Chen í hlutverkum sínum í Taívönsku myndinni Ofur-Búdda.
Bíó Paradís
Ofur-Búdda bbbnn
Leikstjóri, handritshöfundur og þulur:
Huang Hsin-yao. Leikarar: Cres Chuang,
Bamboo Chu-Sheng Chen, Leon Dai,
Shao-Huai Chang, Yi-wen Chen, Na-Dou
Lin, Kuo-Lin Ting og J.C. Lei. Tungumál:
Min nan og enska. Framleiðsluland: Ta-
ívan. 102 mín. Sýnd á kvikmyndahátíð-
inni Stockfish og Taívönskum kvik-
myndadögum.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Sýnd 8. mars kl. 20 í Bíó Paradís.
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
TILBOÐSDAGAR
50%
AFSLÁTTU
R
ALLT AÐ
3.356
Áður: kr. 4.795
3.356
Áður: kr. 4.795
1.998
Áður: kr. 3.995
1.498
Áður: kr. 2.995
998
Áður: kr. 1.995
4.196
Áður: kr. 5.995
-30%
-30%
-30% -50%
-50%
-50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
Um liðna viku var opnuð í Van
Gogh-safninu í Amsterdam um-
fangsmikil sýning þar sem teflt er
saman landslagsverkum eftir Vin-
cent van Gogh (1853-1890) og Bret-
ann David Hockney sem er 81 árs
og einn dáðasti myndlistarmaður
samtímans. Sýningin nefnist Gleðin
í náttúrunni og má á henni sjá
firnastór og nýleg verk eftir Hock-
ney á veggjum og minni málverk
hollenska meistarans á einskonar
súlum í sölunum.
Gagnrýnendur segja það takast
vel að sýna áhrif verka Van Goghs
á Hockney, sem hefur iðulega tjáð
sig um þau áhrif í viðtölum. Þá
kemur mörgum á óvart hvað verk
Van Gogh, sem þykja æði litrík, eru
í raun jarðbundin við hlið hinna
nýju verka Bretans sem notar lítt
blandaða liti og ber þá á strigana
stóru og viðarplötur með breiðum
og áköfum pensildráttum, hvort
sem hann túlkar landslag heima-
héraðs síns, Jórvíkur-skíris, eða
náttúruna í Kaliforníu þar sem
hann hefur löngum verið búsettur.
AFP
Litagleði Gestur í Van Gogh-safninu skoðar málverk eftir David Hockney.
Stefnumót Van
Goghs og Hockneys