Morgunblaðið - 09.03.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fundarboð í skipulags- og sam-
gönguráði Reykjavíkurborgar þann
15. ágúst 2018 var gallað og ekki í
samræmi við reglur borgarinnar,
samkvæmt bréfi samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytisins til
Dags B. Eggertssonar, borg-
arstjóra, 6. mars 2019.
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð-
isflokksins óskaði eftir áliti ráðu-
neytisins á því hvort undirbúningur
fundarins hefði verið í samræmi við
lög og reglur og boðun hans full-
nægjandi.
„Undanfarið höfum við séð úr-
skurði og dóma falla á borgina. Á
þessum fundi voru 75 mál undir
sem vörðuðu hagsmuni upp á millj-
arða. Ef ekki er hægt að treysta því
að fundir séu ályktunarhæfir þá er
ekki neinu að treysta. Tvennt þarf
að vera í lagi til að fundur sé álykt-
unarbær, annars vegar að fund-
arboð berist í tíma og hins vegar að
dagskrá og gögn berist í tæka tíð.
Hvort tveggja brást í þessu tilviki,“
sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn.
Fram kemur í bréfi ráðuneytisins
að fundarboð umrædds fundar
barst einum aðalfulltrúa og einum
áheyrnarfulltrúa of seint. Auk þess
urðu fundargögn ekki aðgengileg
fulltrúum fyrr en minna en sólar-
hringur var til fundar. Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og áheyrn-
arfulltrúi Miðflokksins viku af fund-
inum þegar ljóst var að ekki yrði
orðið við beiðni þeirra um að honum
yrði frestað og fundur boðaður með
réttum hætti.
Ráðuneytið beinir því til Reykja-
víkurborgar að framvegis verði
tryggt að undirbúningur og boðun
funda stjórnsýslunefnda borg-
arinnar „uppfylli ávallt kröfur laga
og reglna sem á þessu sviði gilda“.
Auk þess telur ráðuneytið að rétt
væri að lengja lágmarksfyrirvara á
útsendingu fundarboðs, dagskrár
og fundargagna fyrir fundi skipu-
lags- og samgönguráðs og eftir at-
vikum annarra fastanefnda borg-
arinnar úr einum sólarhring í tvo.
Að lokum óskar ráðuneytið eftir
því að verða upplýst um hver við-
brögð borgarinnar verði við til-
mælum þess.
Boðunarfrestur var lengdur
„Í þessu tilviki misritaðist net-
fang í fundarboði, hjá aðalmanni og
áheyrnarfulltrúa, á fyrsta fundi eft-
ir sumarleyfi í fyrra. Þar var um
innsláttarvillu að ræða sem beðist
var velvirðingar á,“ sagði Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri, í skrif-
legu svari. Hann benti á að allir
nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar
hefðu mætt á fundinn. Einhverjir
þeirra höfðu þó ekki fengið tæki-
færi til að kynna sér gögnin.
Dagur sagði að líkt og kæmi fram
í svari ráðuneytisins hefði verið
brugðist rétt við með því að taka
engar fullnaðarákvarðanir á fund-
inum heldur hafa einungis kynn-
ingar. Haldinn var aukafundur í
vikulok til að halda sama fund aftur
með sömu kynningum fyrir þau, að
sögn Dags.
Hann sagði að svör ráðuneytisins
væru í góðu samræmi við það sem
kjörnir fulltrúar hafa fengið á vett-
vangi borgarstjórnar. Gögn eigi að
berast tímanlega. Sé misbrestur á
því sé málum frestað sé þess óskað.
„Varðandi viðbrögð Reykjavíkur-
borgar þá ákvað forsætisnefnd í
vetur að lengja almennan boðunar-
frest nefnda og ráða eftir umræðu á
vettvangi nefndarinnar. Ný sam-
þykkt skipulags- og samgönguráðs
var samþykkt samhljóða í borg-
arstjórn 18. desember sl.,“ sagði
Dagur. Skipulags- og samgönguráð
heldur að jafnaði fjóra fundi í mán-
uði. Formaður getur boðað til auka-
funda eftir þörfum. „Reglulegir
fundir skulu boðaðir með a.m.k. 36
klukkustunda fyrirvara, dagskrá
skal fylgja fundarboði auk þess sem
birta skal hana á opnum vef
Reykjavíkurborgar ásamt fund-
argögnum. Rafræn boðun fundar og
útsending fundargagna telst fullgild
boðun.
Almennt hefur boðunarfrestur
verið lengdur í tvo sólarhringa í
öðrum ráðum en umhverfis- og
skipulagssvið óskaði eftir 36 tíma
fyrirvara vegna eðlis þeirra mála
sem þau sýsla með. Forsætisnefnd
féllst á það og borgarstjórn einnig.“
gudni@mbl.is
Boðun fundar-
ins var áfátt
Ráðuneyti finnur að vinnubrögðum
Eyþór
Arnalds
Dagur B.
Eggertsson
Nokkuð svalt var í veðri á höfuðborgarsvæðinu í gær,
en ekki var að sjá að það kæmi í veg fyrir að þessi veg-
farandi á Laugaveginum færi ferða sinna á hjólabretti.
Í dag er spáð 0-3 stiga hita sunnan- og vestantil, en
annars frosti allt að 10 stigum. Spáð er austlægri eða
breytilegri átt, víða éljum en þurru norðvestanlands.
Farartækin eru margvísleg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Gangur er í viðræðum og hreyfing á málum á
sáttafundum samflots iðnaðarmanna, Starfs-
greinasambands Íslands (SGS) og Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna (LÍV) með
Samtökum atvinnulífsins (SA) undir stjórn Rík-
issáttasemjara. Gengið er út frá að fundahöld
verði hjá sáttasemjara yfir alla helgina, bæði á
laugardag og sunnudag frá kl. 9 til 17.30.
Viðsemjendur í Karphúsinu eru bundnir
trúnaði um það sem þar fer fram á sáttafundum
og mega ekki greina frá stöðu einstakra mála
við fjölmiðla. Í pistli á heimasíðu Samiðnar í gær
segir að þó að ekki sé hægt að segja að mönnum
hafi skilað mikið áfram í samningamálum í vik-
unni hafi samt verið hreyfing á málum. „Törnin
hefst kl. 11.30 í dag og verður alla helgina. Vonir
standa til að okkur takist að ljúka umræðunni
um vinnutímastyttinguna um helgina. Takist að
ljúka þeirri umræðu gætu önnur atriði farið að
rúlla áfram,“ segir í pistlinum.
Næsta vika talin geta ráðið
úrslitum um framhaldið
Samninganefnd SGS samþykkti í gær að
halda viðræðum áfram við Samtök atvinnulífs-
ins um nýjan kjarasamning og verður viðræðum
haldið áfram eftir helgi.
„Aðilar hafa fundað nánast daglega undan-
farnar vikur, auk þess sem vinna starfshópa um
einstök málefni hefur verið í fullum gangi. Við-
ræðurnar hafa gengið þokkalega en staðan er
viðkvæm og margt er enn óleyst,“ segir í til-
kynningu sem send var út eftir hádegi í gær eft-
ir fundahöld fulltrúa þeirra 16 aðildarfélaga sem
SGS hefur samningsumboð fyrir.
„Þolinmæði Starfsgreinasambandsins í þess-
um kjaraviðræðum er ekki endalaus og það er
ljóst að næsta vika getur ráðið úrslitum upp á
framhaldið,“ segir þar ennfremur.
Um fimm mánuðir eru nú liðnir frá því að
stærstu verkalýðsfélögin lögðu sínar kröfugerð-
ir fyrir samninganefnd atvinnurekenda og við-
ræður fóru í gang.
Vel á annað hundrað fundir hafa
farið fram á umliðnum mánuðum
Mikill fjöldi samningafunda hefur farið fram á
þessum tíma í viðræðum SGS, samflots iðnaðar-
mannafélaganna og LÍV við SA, og eru þeir eftir
því sem næst verður komist orðnir vel á annað
hundrað talsins.
Þegar SGS ákvað að vísa kjaradeilunni til
Ríkissáttasemjara í seinasta mánuði höfðu
samninganefndir SGS og SA og vinnuhópar átt
tæplega 80 fundi um sértæk mál frá því í októ-
ber, sem og hátt í 30 fundi viðræðunefnda SGS
og SA, um forsendur og innihald nýs kjara-
samnings. Iðnaðarmenn lögðu fram sínar kröfur
30. nóvember. Í forystu þeirra höfðu menn ekki
tiltæka tölu á því í gær hversu margir samn-
ingafundir hafa farið fram síðan viðræður hófust
en þeir eru orðnir fjölmargir.
Frá morgni til kvölds í Karphúsinu
samfleytt í tólf daga
Frá því að þessi verkalýðsfélög og sambönd
sem nú eru í viðræðum við SA í Karphúsinu vís-
uðu kjaradeilunni í sáttameðferð í seinasta mán-
uði hefur Ríkissáttasemjari haldið fundi dag
hvern frá morgni til kvölds í tíu daga samfleytt
auk þess sem nú er búið að skipuleggja funda-
höld yfir alla helgina eins og fyrr segir eða í tvo
daga til viðbótar.
Hreyfing á málum en viðkvæm staða
Vonir standa til að takist að ljúka umræðunni um vinnutímastyttinguna um helgina SGS sam-
þykkir að halda viðræðum áfram Um fimm mánuðir eru liðnir frá því að kröfur voru lagðar fram