Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 ✝ RögnvaldurEgill Sigurðs- son fæddist á Hjalt- eyri 2. september 1938. Hann lést á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð Akureyri 18. febr- úar 2019. Foreldrar hans voru Sigurður Rögnvaldsson f. 5. desember 1913, d. 30. apríl 1989, og Jóhanna Jóns- dóttir f. 23. júní 1921, d. 5. ágúst 1999. Egill var elstur fjögurra systkina en þau eru Matthías, Sigríður Jóna og Guðný Klara. Egill ólst upp á Siglufirði og lauk þar barnaprófi 1951. Á unglingsárum flutti hann með foreldrum sínum að Strand- bergi á Húsavík og fljótlega fór hann að vinna hin ýmsu störf m.a. sem tengdust fiskvinnslu og sjómennsku. Egill lauk burt- fararprófi frá Iðnskólanum á Húsavík vorið 1962 og verk- námi í ketil- og plötusmíði sama ár. Hann tók námssamning sinn í ketil- og plötusmíði hjá Vél- smiðjunni Atla á Akureyri og Vélsmiðjunni Fossi á Húsavík. 1962. Maki: Elín Elísabet Magnúsdóttir. Þeirra börn eru Óðinn, f. 1988, Rakel, f. 1992, og Jóhanna, f. 1994. 3) Sigurlaug, f. 22. ágúst 1963. Maki: Sig- urður Pálsson. Þeirra börn eru Egill Örn, f. 1984. Maki: Katrín Mörk Melsen. Þeirra börn eru Erika Rakel f. 2008, Óliver Viktor f. 2010 og Baltasar Ka- sper f. 2013. Einar Helgi, f. 1988. Maki: Eyrún Gísladóttir. Þeirra barn Alexandra, f. 2018. Ingibjörg Sigurrós, f. 1992. Maki: Gunnar Þórarinsson. Þeirra barn Lea Margrét, f. 2018. Guðlaug Jana, f. 1993. 4) Agla, f. 7. júní 1968. Maki: Karl Emil Sveinsson. Þeirra börn Andri, f. 1989. Maki: Sandra Haraldsdóttir. Þeirra barn Thelma Líf, f. 2017. Eygló, f. 1992, og Sölvi, f. 1998. Egill og Rakel hófu búskap á Húsavík en fluttu í Mývatnssveit árið 1966. Þar bjuggu þau lengst af í húsi sem þau byggðu sér að Helluhrauni 12. Eftir að Egill hætti störfum í Kröflu- virkjun dvaldi hann um árabil að mestu í sumarhúsi sínu á Hjalteyri og síðar á Akureyri. Sambýliskona Egils síðustu árin var Guðlaug Jóhanna Jóns- dóttir, f. 26. maí 1934, d. 25. febrúar 2018. Útför Egils fer fram frá Reykjahlíðarkirkju í Mývatns- sveit í dag, 9. mars 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. Egill fékk sveins- bréf í iðngrein sinni árið 1965 og hóf upp frá því störf við Kísilgúr- verksmiðjuna í Mý- vatnssveit. Um miðjan áttunda áratuginn hóf Egill störf við Kröflu- virkjun og var lengst af gufuveitu- stjóri þar til hann lét af störfum haustið 2005. Eiginkona Egils var Rakel Guðlaugsdóttir, f. á Húsavík 12. júní 1939, d. 21. nóvember 2000. Foreldrar Rakelar voru hjónin Guðlaugur Jónsson frá Fossi á Húsavík, f. 3. júní 1906, d. 12. september 1982, og Gratíana Sigríður Jörundsdóttir f. 29. júní 1905 á Flateyri, d. 28. apríl 1972. Egill og Rakel eignuðust fjögur börn. Þau eru 1) Jó- hanna, f. 13. júní 1960. Maki: Gústaf Jóhannsson. Með fyrri manni sínum Garðari Jónssyni á Jóhanna soninn Svein, f. 1991. Börn Gústafs frá fyrra hjóna- bandi eru Jón Brynjar, f. 1988, og Karólína, f. 1990. 2) Sig- urður Rögnvaldsson, f. 2. ágúst Fyrstu kynni okkar Egils standa mér ljóslifandi fyrir sjónum, eins og skýr mynd. Ég datt alsnjóug með gassagangi inn um útidyrnar á Stóru- völlum, næstum í fangið á mér ókunnugum manni sem stóð þarna með blik í augum og brosti við þessari snjókerlingu sem hann vissi alls ekki að yrði tengdadóttirin. Ekki ég heldur. Ágætis byrjun samt á okkar kynnum og mér eftirminnileg. Ég komst fljótlega að því að í kringum Egil og Rakel var fjörið, mikið gantast og ef eitt- hvað var leiðinlegt þá var það bara gert skemmtilegt með ein- hverjum ráðum. Egill var alltaf að dunda eitt- hvað, stundum vissi maður ekki af honum í nálægðinni en svo lét hann gamminn geisa og ekki síst þegar börn voru ann- ars vegar. Ætli mér hafi stund- um þótt um of því eitt sinn man ég eftir að eitt minna barna bað sérstaklega um að fá að vera án mín í Mývatnssveit. Sennilega til að hafa engan gleðispilli sem skakkaði leika með afa þegar þeir stóðu sem hæst. Egill var einstaklega hjálp- samur og óbeðinn kom hann gjarnan að hjálpa þegar við stóðum í einu eða öðru. Það var líka gott að biðja hann um hjálp og eftir einni bón minni man ég sérstaklega. Siggi var ekki heima og ég þurfti að teppaleggja til að geta flutt inn í nýja húsið okkar. Eftir mik- inn vandræðagang hringdi ég neyðarhringingu í Mývatns- sveit þar sem ég var hreinlega að kafna í öllu þessu teppi. Ég vona að Egill hafi klárað vinnu- daginn sinn en hann var kom- inn skömmu síðar og á mettíma kom hann teppinu haganlega fyrir á gólfinu. Auðvitað var álag að eiga tengdadóttur með marga þumalputta en hann glotti bara og hafði gaman að. Egill naut sín á ferðalögum bæði innan lands sem utan. Það var gaman að ferðast með Agli því hann hafði einlægan áhuga á svo mörgu í umhverfi og sam- félagi. Hann horfði bæði á hið smáa og stóra í tilverunni. Hann eignaðist myndbands- upptökuvél á blómaskeiði slíkra tækja og á tímabili tók hann mikið upp á þennan eðalgrip, efni sem er ómetanlegt að skoða í dag og verður í raun- inni dýrmætara með ári hverju. Á þessum myndum má svo greinilega sjá hve athugull hann var á umhverfi sitt. Blik augna hans var farið að leita í aðrar víddir þegar ég læddist út úr herberginu hans í Bandagerði í Lögmannshlíð kvöldið áður en hann fór yfir þröskuldinn mikla. Upp er runnin kveðjustund. Blessuð sé minning tengdapabba. Elín Elísabet. Rögnvaldur Egill Sigurðsson Við Berglind vor- um vinnufélagar í Landsbankanum frá því að ég hóf störf þar 2007. Ég er alltaf með á hreinu hvað Elsa Edda er gömul því að hún var nýfædd þegar ég hóf störf í bankanum, ég fékk stólinn og borðið hennar Berglindar meðan hún var í barneignarleyfi. Samstarf okkar var mjög náið þegar við unnum saman að endurskipulagningar- Berglind Hallgrímsdóttir ✝ Berglind Hall-grímsdóttir fæddist 23. septem- ber 1976. Hún lést 15. febrúar 2019. Útför Berglindar fór fram 1. mars 2019. verkefnum í bank- anum á árunum 2010-2017 með hópi öflugra vinnufélaga. Berglind var frá- bær samstarfsfélagi eldklár og réttsýn eins og hún var, ekki skemmdi hlát- urmildin fyrir. Berglind var einn mesti töffari sem ég hef kynnst á lífs- leiðinni, var að berjast við krabbamein í um 10 ár með góð- um hléum á milli, mislöngum. Lengst af lét hún veikindin ekk- ert stoppa sig, ferðaðist töluvert, fór í skíðaferðir, í Aðalvíkina, tók þátt í hlaupum o.fl., stundum á milli lyfjagjafa. Á ágætt safn mynda sem þær Berglind og Jó- hanna, vinnufélagi okkar, sendu mér að hlaupum loknum. Sendi heils hugar samúðar- kveðjur til Evva, Elsu Eddu, for- eldra Berglindar, bræðra sem og tengdamóður, missir þeirra er mikill. Far þú í friði, elsku Berg- lind. Hermann Hermannsson. Í dag kveðjum við Berglindi sem við vorum svo lánsöm að starfa með í Flögu. Hún var frá- bær félagi, skemmtileg, sam- viskusöm, eldklár og hláturmild. Flöguárin voru skemmtilegur og einstakur tími. Berglind, með gleði sinni, hlýju og jákvæðni, átti stóran þátt í að skapa þann einstaka anda sem ríkti í Flögu. Við eigum góðar minningar það- an sem munu lifa með okkur. Í Flögu var stofnaður bóka- klúbburinn LesMed og þar var Berglind öflugur meðlimur, enda mikill lestrarhestur. LesMed hélt ávallt hópinn og ræddi bæk- ur í þaula þó svo að Flaga væri ekki lengur til staðar. Berg- lindar verður sárt saknað á bókafundunum. Við sendum innilegar sam- úðarkveðjur til Elsu Eddu, Eð- varðs, foreldra Berglindar, bræðra og fjölskyldna og ann- arra ástvina. Hafið, bláa hafið, hugann dregur. Hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þanngað liggur beinn og breiður veg- ur. Bíða mín þar æskudrauma lönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr. Bruna þú nú, bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himinninn. (Örn Arnarson) Við kveðjum elsku Berglindi með þakklæti. Starfsmenn Flögu og fjöl- skyldur, Berglind Reynisdóttir, Helga Kristjánsdóttir, Jóhann Fr. Haraldsson og Sigríður H. Jóhannesdóttir. Mér er ljúft og skylt að minnast Helgu föðursystur minnar þegar hún hefur lokið sinni lífsgöngu. Það hefur alltaf verið kært á milli okkar enda ekki nema átta ár á milli okkar. Ég fæddist á loftinu í Miðbæ, húsi afa og ömmu og hef alltaf lit- ið á það sem mitt annað heimili. Söknuðurinn er mikill og sár er Sigurhelga Stefánsdóttir ✝ Sigurhelga(Helga) Stefánsdóttir fædd- ist 4. nóvember 1936. Hún lést 31. janúar 2019. Útför Helgu fór fram 15. febrúar 2019. ég kveð þig, Helga mín, en gleðst samt yfir því að þú skulir vera komin til Boga þíns aftur. Þú sakn- aðir hans svo sárt og varðst aldrei sama manneskjan eftir að hann fór. Ég á margar góð- ar minningar frá æskudögum okkar í Miðbæ en alltaf var gleði í litla húsinu. Systkinin tíu sem þar ólust upp voru alltaf mjög samhent og náin. Aldrei heyrðust þar ljót orð um munn fara. Ég man líka þegar þú og Bogi voruð í Vestmannaeyjum á vertíð og þú sendir mér pakka. Í pakk- anum var seðlaveski með 200 krónum í og það þótti ekki lítill peningur í þá daga. Einnig var í pakkanum eitt karton af Wrig- ley’s tyggigúmmíi. Í einu kartoni voru 20 pakkar og innihélt hver pakki tíu tyggjóplötur og þá tuggði maður nú vel og útbýtti plötunum vítt og breitt. Þegar þið Bogi fluttuð til Siglufjarðar og settust þar að var alltaf opið hús fyrir vini og ætt- ingja. Allir minnast kökuhlað- borðanna þinna sem gjarnan minntu á fermingarveislur. Já, þú kunnir svo vel, frænka, að veita og ekki var húsbóndinn Bogi síðri. Alltaf var mjög vel tekið á móti fólkinu ykkar sem rataði heim að dyrum. Glaðværð- in var alltaf í fyrirrúmi hjá ykk- ur. Þú hafðir yndi af því að fara í berjamó en Bogi sá um að borða berin sem þú tíndir. Þegar þú varst orðin léleg við tínsluna sá ég um að fara í berjamó og tína fyrir ykkur. Það var ekki við það komandi að borga til baka með nýjum laxi og reyktum silungi. Svo var það einu sinni að ég sagðist ætla að gefa þér nöfnu og stóð við það. Þú varst mjög glöð með nöfnuna og sýndir henni mikla art. Helga mín, ég veit ekki hvern- ig ég á að haga dögunum eftir að þú fórst. Það var alltaf gaman að koma til þín á sjúkrahúsið þó ekki væri annað en að fá sér konfekt- mola og kaffi. Alltaf fékk ég þakklæti fyrir að líta inn til þín. En Helga mín, þú varst fyrst og fremst Ólafsfirðingur í þér og þótti þér vænt um gamla bæinn þinn. En nú situr þú í blómabrekk- unni með honum Boga þínum, þið haldist í hendur og brosið hvort til annars. Eflaust streyma ætt- ingjar og vinir til að taka á móti þér og fagna komu þinni. Vertu guði falin, elsku Helga frænka, ég bið að heilsa öllum hinum sem farnir eru. Þinn frændi, Stebbi Villi. Stefán Víglundur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BORGHILDUR THORS þroskaþjálfi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 1. mars. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. mars klukkan 13. Hilmar Oddsson Guðlaug M. Jakobsdóttir Elísabet Á. Oddsdóttir Ómar Jóhannsson Hera Hilmarsdóttir Sam Keeley Oddur Sigþór Hilmarsson Oddur Ómarsson Arnar Ómarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐFINNA FRIÐBJÖRNSDÓTTIR, lést á heimili sínu 27. febrúar. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 14. mars klukkan 15. Friðbjörn R. Ægisson Anja Kokschka Guðrún Inga Ægisdóttir Margrét Björk Ómarsdóttir Bjarki Ólafsson Birkir Steinn Ómarsson Katrín Stella Jónínudóttir Hallfríður Friðbjörnsdóttir barnabörn og fjölskylda Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILBORG BENEDIKTSDÓTTIR geislafræðingur, Akraseli 15, lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 22. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju á 88. afmælisdegi hennar, þriðjudaginn 12. mars klukkan 15. Anna Jóna Halldórsdóttir Daníel Daníelsson Guðlaug Halldórsdóttir Ingimar Ólafsson Jón Sigurður Halldórsson Magnea Skjalddal Halldórsd. Stefán Ari Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, tengadóttir og systir, ARNDÍS JÓNASDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi, 4. mars. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 13. mars klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans. Brynjar Þór Gestsson Jónas Bjarki Brynjarsson Jónas Sigurðsson Hrefna Guðmundsdóttir Gunnar Eyjólfsson og systkini Elskuleg systir okkar, ÁSA EIRÍKSDÓTTIR, Sigurhæð 12, Garðabæ, lést 24. febrúar Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Stína, Guðný, Hanna, Gylfi og Leifur Eiríksbörn og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát okkar elsku móður, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur og mágkonu, GUÐRÚNAR EGILSDÓTTUR, áður til heimilis á Grenimel 49, sem lést 5. febrúar. Sérstakar þakkir til starfsfólks á V-2 á dvalarheimilinu Grund fyrir yndislega og kærleiksríka umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Ágústa Björnsdóttir Viðar Welding Friðriksson Estiva Birna Björnsdóttir Baldur Þ. Harðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.