Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landssamband veiðifélaga gerir al- varlegar athugasemdir við fiskeldis- frumvarp sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra. Telur sambandið að með stofnun samráðshóps sé verið að setja pólitískt álag á vinnu við áhættumat vegna erfðablöndunar. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, gerðu margháttaðar athuga- semdir við drög að frumvarpinu, sérstaklega varðandi fyrirkomulag áhættumats. Fyrri athugasemdir standa Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS segir að samtökin séu að fara yfir frumvarpið og ræða í sínum hópi og bíði með að tjá sig efnislega um það. Telur hún að fyrri athugasemdir samtakanna standi að mestu. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Hafrannsóknastofnun leggi tillögur sínar um magn frjórra laxa sem megi ala á tilteknum svæðum með tilliti til hættunnar á erfðablöndun eldislax við nytjastofna nærliggjandi áa fyrir samráðsnefnd, áður en stofnunin leggur tillögu sína fyrir ráðherra. Tekið er fram að tillagan sé bindandi fyrir ráðherra. Í samráðsnefndinni verða fulltrú- ar Hafró, veiðiréttarhafa, fiskeld- ismanna og sveitarfélaga, auk full- trúa ráðherra. Vilja ekki samráðsnefnd Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir að með stofnun samráðsnefndar sem eigi að rýna áhættumatið sé verið að setja pólitískt álag á þá vinnu. Hon- um virðist að aðilar sem hafi mikinn áhuga á að auka eldi verði í meiri- hluta í nefndinni. Staðfesting ráðherra á áhættu- matinu sé af sama meiði. Með því sé honum falið ákveðið áhrifavald þótt tillagan sé bindandi. Jón Helgi segir að sambandið sé algerlega á móti því enda sé það andstætt því sem sam- þykkt var í stefnumótunarnefndinni sem náði samkomulagi um áhættu- mat Hafrannsóknastofnunar. „Ef menn vilja rýna áhættumatið væri eðlilegast að fá til þess erlenda sér- fræðinga þannig að nauðsynlegt traust fáist á niðurstöðunni,“ segir Jón Helgi. Landssamband veiðifélaga leggst einnig eindregið gegn því að veita Hafró víðtækar heimildir til að stunda tímabundnar tilraunir með eldi í sjó. Jón Helgi segir að þessi af- staða sé tekin í ljósi vitneskju um fyrirætlanir Hafró um að vera með 3.000 tonna eldistilraun í Ísafjarð- ardjúpi. „Við teljum ekki ástæðu til að fara fram hjá áhættumati og eðli- legum umhverfisreglum,“ segir Jón Helgi. Hann tekur jafnframt fram að ýmislegt í fiskeldisfrumvarpinu sé til bóta. Nefnir sérstaklega kröfur um aukna upplýsingagjöf um starfsemi fiskeldisfyrirtækjanna. Vísindalegur ráðgjafi Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýna einnig fyrirkomulag ákvörðunar um áhættumat en nálg- ast málið úr þveröfugri átt við veiði- réttarhafa. Samtökin lögðu á það áherslu í umsögn um frumvarps- drögin fyrr á árinu að Hafrann- sóknastofnun væri vísindaleg rann- sóknastofnun og mjög mikilvægt að álit hennar sé ráðgefandi, bæði vegna stefnumótunar stjórnvalda og ákvarðanatöku leyfisveitenda og eft- irlitsaðila. Mikilvægt sé að forðast að hinn vísindalegi ráðgjafi hafi hlut- verk stjórnvalds því að slíkt fyr- irkomulag væri vond stjórnsýsla og græfi undan trúverðugleika hins vís- indalega ráðgjafa. Pólitískt álag sett á áhættumat Hafró  Landssamband veiðifélaga gagnrýnir fiskeldisfrumvarp Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókvíar Margir eiga mikið undir því að vel takist til með laxeldið. Ferill » Hafró leitar ráðgefandi álits samráðsnefndar á tillögu um magn frjórra laxa á tilteknu hafsvæði með tilliti til áhættu- mats vegna erfðablöndunar. » Hafró tekur rökstudda af- stöðu til álitsins og breytir til- lögu sinni ef þörf krefur. » Tillaga Hafró til ráðherra er bindandi og verður ekki breytt. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is af vetrarskóm og leðurtöskum 20%afsl. Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kjólar & Túnikur Kr. 8.990.- Fleiri litir Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 JUNGE heilsársjakkar Flottir í borgarferðina frá 19.900,- Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.