Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNAERNA
ERNA 1924-2019
Hreinsum til á lager
Fögnum 95ára afmæli
25–75% afsláttur
Opið í dag laugardag 12–17,
virka daga 10–18
Silfurmunir, skartgripir, armbandsúr og gjafavara
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Viðurkenningin kom skemmtilega á óvart og mér hlýn-
aði svolítið um hjartarætur að það sé tekið eftir því sem
ég er að gera,“ segir Aldís Kristín Árnadóttir Firman
sem valin var á lista yfir 100 helstu frumkvöðlakonur í
litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Bretlandi, Írlandi,
Skotlandi og Wales. Listinn var birtur í tengslum við al-
þjóðlegan baráttudag kvenna undir nafni herferðarinnar
#ialso sem samtök frumkvöðlakvenna rekur.
„F:Entrepreneur er eins konar Félag kvenna í at-
vinnurekstri og #ialso herferðin leggur áherslu á að
vekja athygli á konum sem eru frumkvöðlar og fyrir-
myndir í fyrirtækjarekstri,“ segir Aldís sem fór með öðr-
um konum á listanum í teboð í breska þinghúsið í tilefni
af verðlaununum.
Í fréttatikynningu frá samtökum frumkvöðlakvenna
segir að fyrirtæki Aldísar, Lilou et Loïc, sem hún stofn-
aði ásamt sænskri vinkonu sinni, Malin Wright, hafi vax-
ið úr því að vera lítið fyrirtæki í London yfir í að vera
verðlaunað alþjóðavörumerki með skrifstofur í London
og New York.
Aldís sem er lögfræðingur að mennt er búsett í Lond-
on ásamt breskum eiginmanni sínum og tveimur börn-
um. Hún segir verðlaunin sérstaklega ánægjuleg í ljósi
þess hve mikið stökk út í óvissuna það hafi verið að
breyta um starfsvettvang.
Kerti í konunglegt brúðkaup
Lilou et Loïc framleiðir hágæða ilmvörur fyrir heimili
og fyrirtæki. Hjá fyrirtækinu starfa 26 manns. Í fyrra
var Aldís einnig verðlaunuð af samtökum lögfræðinga og
fyrirtækja í hágæðaframleiðslu fyrir hvatningu til ungra
kvenna í viðskiptum og lögfræði en Aldís hefur komið
víða við með fyrirlestra og lögfræðilega ráðgjöf í rekstri
lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Lilou et Loïc sá um lyktarþemað á Óskarsverð-
launahátíðinni í fyrra og kerti og skraut frá fyrirtækinu
voru í brúðkaupi hjá bresku konungsfjölskyldunni þegar
Eugenie prinsessa, dóttir Andrésar prins og sonardóttir
Elísabetar Englandsdrottningar giftist Jack Brookbank
í október síðastliðnum.
„Ég hef búið lengi erlendis en er alltaf Íslendingur inn
við beinið,“ segir Aldís sem trúir því að íslenska þraut-
seigjan hafi komið henni þangað sem hún er í dag.
Aldís ein af 100 helstu frum-
kvöðlakonum í Bretlandi
Framleiðir hágæða ilmvörur Konungleg ilmkerti
Frumkvöðull Bretar taka eftir frumkvöðlastarfsemi
Aldísar Kristínar Árnadóttur Firman og verðlauna hana.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég er gríðarlega þakklát fyrir áhug-
ann og aðsóknina á fundinn en ekki
síður fyrir þátttöku rúmlega 30.000
kvenna í rannsókninni,“ sagði Arna
Hauksdóttir, prófessor við lækna-
deild Háskóla Íslands og annar að-
standenda rannsóknarinnar Áfalla-
saga kvenna, sem stýrði fundi um
fyrstu niðurstöður hennar sem hald-
inn var í gær á alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna. Fullt var út úr dyr-
um í fundarsal Íslenskrar erfða-
greiningar og hliðarsal þar sem hægt
var að fylgjast með fundinum á skjá
auk þess sem honum var streymt á
netinu.
„Það kom okkur á óvart hversu
hátt hlutfall kvenna hefur orðið fyrir
nauðgun eða nauðgunartilraunum.
Hlutfallið er hærra hjá yngri konum
og það fyrsta sem ég myndi skoða er
hvort einhverskonar endurmat á
nauðgun og nauðgunartilraun hafi átt
sér stað í gegnum #MeToo-
byltinguna,“ sagði Arna.
Unnur Anna Valdimarsdóttir, pró-
fessor við læknadeild Háskóla Ísland
og hinn aðstandandi rannsóknarinnar
sagði að til stæði að fara í eftirfylgd-
arrannsóknir og rannsókn á áfalla-
sögu karla árið 2020.
Unnur fór yfir það á fundinum að
103.807 af þeim 113.814 konum á
aldrinum 18 til 69 ára sem eru í Þjóð-
skrá hefðu fengið boð um þátttöku í
rannsókn um tengsl áfalla og ofbeldis
við heilsu, algengi áfalla og ofbeldis
og hvaða erfða- og/eða umhverf-
isþættir tengjast heilsufari í kjölfar
áfalla. 30.151 kona hefði svarað könn-
uninni en markmiðið væri að 40.000
hefðu svarað fyrir 1. maí. Í upphafi
hafi verið farið af stað með aldurs-
hópinn 18 til 69 ára en vegna áhuga
eldri kvenna var ákveðið að allar kon-
ur 18 ára og eldri gætu tekið þátt.
Í máli Unnar kom fram að þær
konur sem tekið hefðu þátt í rann-
sókninni endurspegluðu kvenþjóðina
vel hvað varðaði aldur, búsetu,
menntun og tekjur. Meðalaldur þátt-
takenda í rannsókninni var 44 ár en
erfiðast var að fá konur undir 25 ára
aldri til að taka þátt. 60% þátttak-
enda voru með tekjur undir 500.000.
32% hafa upplifað
áreitni á vinnustað
Nærri 40% kvenna hafa orðið fyrir
ofbeldi á ævinni en ofbeldi er það
áfall sem felur í sér mestar líkur á
áfallastreituröskun. 32% hafa orðið
fyrir áreitni á vinnustöðum og verða
konur í heilbrigðisþjónustu, ferða-
þjónustu, réttarkerfinu, og konur í
sviðljósinu, þ.e.a.s. lista- og fjölmiðla-
konur og konur í pólitískum störfum,
fyrir mestri áreitni. Einnig kom fram
að þær konur sem líklega eru haldn-
ar áfallastreituröskun séu eingöngu
með grunnskólapróf og lágar tekjur.
Hugsanlega sé áfallastreituröskun
ástæðan fyrir stöðu þessara kvenna.
Yfir 40% kvennanna höfðu upplifað
framhjáhald eða höfnun og rúmlega
25% náttúruhamfarir. 10% kvenna
höfðu upplifað neteinelti og var sú
upplifun bundin við yngri kynslóðina.
Fram kom í máli Unnar að lykil-
einkenni áfallastreituröskunar væru
endurupplifun áfalls, flótti frá hugs-
unum eða aðstæðum áfallsins, ofur-
árvekni, breytingar á skapi og/eða
vitsmunum og svefnvandamál.
Finna ráð við óþverraskap
Alma D. Möller landlæknir segir
að Áfallasaga kvenna sé mjög mikil-
væg rannsókn. Vitað sé að áföll hafi
mikil áhrif bæði andlega og líkam-
lega og hún vonist til þess að rann-
sóknin hjálpi til við að finna betri
leiðir til að meðhöndla slík áföll.
Einnig hvatti hún til þess að áfalla-
saga karla yrði rannsökuð og hvatti
allar konur til að taka þátt í Áfalla-
sögu kvenna.
„Það er því miður eingöngu hægt
að svara könnuninni á rafrænan
máta. Við aðstoðum konur við að ná í
rafræn skilríki en verðum að treysta
á að þær konur sem erfitt eiga með
að svara rafrænt fái hjálp hjá vinum
og fjölskyldu,“ sagði Arna og benti á
nauðsyn þess að konur á öllum aldri
tækju þátt í könnuninni
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sagði að
Áfallasaga kvenna gæti reynst mjög
mikilvæg bæði hérlendis og erlendis.
Hann sagði karlmenn oftar gerendur
í ofbeldismálum og ofbeldi væri alltaf
óásættanlegt. Það væri ekki síður
mikilvægt að skilja hvaðan óþverra-
skapurinn kæmi og finna ráð til þess
að takast á við hann.
40% kvenna orðið fyrir ofbeldi
Fyrstu niðurstöður Áfallasögu kvenna birtar 32% áreittar á vinnustað Áföll karla rannsökuð
2020 30.151 kona hefur tekið þátt í Áfallasögu Hugsanlegt að #MeToo hafi endurskilgreint ofbeldi
Morgunblaðið/Eggert
Áföll Húsfyllir var þegar fyrstu niðurstöður í Áfallasögu kvenna voru kynntar á alþljóðlegum baráttudegi kvenna.
Stefanía Sig-
urðardóttir,
fyrrverandi
markaðsstjóri,
sagði frá
reynslu sinni
af áföllum og
kulnun á fund-
inum. And-
rúmsloftið á
meðan Stefanía talaði var til-
finningaþrungið, margir vikn-
uðu og fundargestir stóðu upp
fyrir Stefaníu í lok ræðu hennar.
Stefanía lýsti því á mjög ein-
lægan hátt hvernig áföll í æsku,
sem aldrei mátti ræða, leiddu til
fleiri áfalla á unglingsárum.
Ekkert annað var í boði en að
bíta á jaxlinn, setja upp grímuna
og vera hin sterka íslenska kona
sem getur allt. Þegar fleiri áföll
bætust við á fullorðinsárum
hrundi Stefanía og berst í dag
við áfallastreituröskun og kuln-
un.
ÁFALLAREYNSLUSAGA
Stefanía
Sigurðardóttir
Tár á hvarmi
Upphafstími grásleppuveiða verður
20. mars á öllum svæðum nema í
innanverðum Breiðafirði, sam-
kvæmt reglugerð sem birt hefur
verið í Stjórnartíðindum. Þetta er
breyting frá því sem verið hefur því
upphaf veiða hringinn í kringum
landið hefur verið breytilegt.
Grásleppuveiðileyfi hvers báts
skal gefið út til 25 samfelldra daga
og skal bundið við ákveðið veiði-
svæði og veiðitímabil. Áður hefur
verið miðað við 20 daga í upphafi
vertíðar. Dagafjöldinn verður end-
urskoðaður að fengnum niðurstöð-
um úr marsralli í lok þessa mán-
aðar eða byrjun þess næsta.
Aflaverðmæti 942 milljónir
Í ágúst í fyrra kom fram á heima-
síðu Landssambands smábátaeig-
enda að aflaverðmæti á síðustu grá-
sleppuvertíð hefði numið 942
milljónum króna. Á undanförnum
árum hefur sala á grásleppu þróast
úr því að vera eingöngu markaður
fyrir hrogn í að fiskurinn er nú
seldur heill og óskorinn. aij@mbl.is
Styttist í upphaf grásleppuvertíðar