Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 fransi_skoverslun fransiskoverslunKLAPPASTÍGUR 44 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „[M]iðað við umfang skemmda þá er umfangsmikilla viðgerða og endurnýjunar þörf í skólanum. Sem bráðalausnir þarf að horfa sér- staklega á helstu orsakir skemmda í rýmunum þar sem nemendur og starfsmenn eru. Ljóst er að fram- kvæmdir þessar eru aðeins til þess fallnar að gera rýmin betri m.t.t. íveru en ekki er hægt að ráðast í fullnaðarframkvæmdir á meðan nemendur og starfsmenn eru í skólanum.“ Á þessum orðum hefst minnis- blað Verkís um Fossvogsskóla í Reykjavík þar sem grípa þarf til róttækra aðgerða vegna raka og myglu í skólahúsnæðinu. Munu framkvæmdir hefjast fljótlega og má því búast við mikilli röskun á hefðbundnu skólastarfi næstu vik- urnar. Strax við lok skólaárs verður svo ráðist í enn umfangsmeiri framkvæmdir, en Verkís mun sam- kvæmt minnisblaði reglulega fylgj- ast með ástandinu í skólanum það sem eftir er skólaárs. Langvarandi leki í skólanum Í minnisblaði Verkís, dagsettu 6. mars sl., segir að skipta megi vand- anum í fernt. Er í fyrsta lagi bent á að í þaki megi finna lélegt raka- varnarlag sem minnkar loftgæði í íverurýmum með óhreinu lofti, í öðru lagi eru loftræstikerfi skólans að hluta til gömul og í þriðja lagi þarf að bæta úr reglubundnum þrifum með áherslu á íverurými nemenda og starfsmanna. Þá bend- ir Verkís einnig á að í skólanum megi finna skemmdir vegna lang- varandi leka. „Lekar hafa fundist víða í bygg- ingunum. Hvergi ætti að láta slíkt viðgangast og réttast og hagkvæm- ast er í öllum tilfellum að ráðast strax í viðgerðir,“ segir í fyrr- greindu minnisblaði. Morgunblaðið hefur undir hönd- um bréf sem tveir foreldrar barna í Fossvogsskóla sendu umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar 9. desember sl. Þar lýsa þeir yfir „þungum áhyggjum“ af aðbúnaði barna í Fossvogsskóla. Segjast þeir óttast að í skólanum búi börnin við óheilnæmar aðstæður „sem séu í raun skaðlegar heilsu þeirra“. Íþróttasal skólans lýsa foreldr- arnir þannig að „í loftum hans má sjá verulegar rakaskemmdir sem líklegt er að finna megi myglu- skemmdir og/eða örveruvöxt í“. Uppfyllti kröfur í desember Átján dögum áður en bréf for- eldranna var sent borginni, eða 21. nóvember sl., kom fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur í reglubundið eftirlit í Fossvogs- skóla. „Húsnæðið var skoðað með tilliti til umgengni, viðhalds, þrifa og innivistar,“ segir í eftirlits- skýrslu heilbrigðiseftirlitsins, en skoðaðar voru „sérgreinastofur, nokkrar kennslustofur, íþróttasalur og fleiri rými“. Engar athugasemdir voru gerðar við íþróttahúsið. Í eftirlitsskýrsl- unni er þó minnst á múrskemmdir í vegg í ræstigeymslu við íþróttasal og er tekið fram að geymslan sé ekki í notkun. Þá voru engar athugasemdir gerðar við almennar kennslustofur, námsver, tónment, hjúkrunar- aðstöðu, myndment, smíðastofu, textílstofu, bókasafn og þrif og um- gengni. Fékk Fossvogsskóli heild- areinkunn 4 af 5 mögulegum, sem þýðir að hann hafi uppfyllt kröfur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur með „einhverjum ábendingum“. Eftirlitið stendur við úttektina Árný Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, segir fulltrúa eftirlits- ins framkvæma sjón- og skynmat í úttektum sínum. „Á þeim tíma sem þessi skýrsla er gerð er miðað við þáverandi ástand. Í þessu eftirliti var íþrótta- salurinn skoðaður og engar at- hugasemdir gerðar. Það var ástandið á þeim tíma þegar hús- næðið var skoðað,“ segir Árný í samtali við Morgunblaðið og bætir við að fulltrúar heilbrigðiseftirlits- ins leggi mikla áherslu á að leita uppi raka- og lekavandamál í eftir- litsferðum sínum, s.s. með því að spyrja forráðamenn hvort vitað sé um slík vandamál þar sem þau eru ekki alltaf sýnileg. Í þeirri ferð sem hér um ræðir fundust samkvæmt eftirlitsskýrslunni engar vísbend- ingar um leka í skólanum, hvað þá langvarandi lekavandamál líkt og Verkís bendir á í minnisblaði sínu. Spurð hvort Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur standi við skýrslu sína um ástand Fossvogsskóla kveður Árný já við. „Já, þetta var staðan eins og hún var þegar við skoð- uðum húsnæðið,“ segir hún. Víða merki um langvarandi leka  Fossvogsskóli er illa farinn eftir langvarandi lekavandamál  Foreldrar sendu borginni bréf og lýstu yfir „þungum áhyggjum“ af börnum sínum  Stóðst úttekt heilbrigðiseftirlitsins í nóvember Morgunblaðið/Eggert Mygluhús Víða eru merki um langvarandi leka í skólanum og hafa foreldrar áhyggjur af heilsu barna sinna. Morgunblaðið/Eggert Lokað Íverurými barna og starfsmanna eru heilsuspillandi vegna vandans. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur nú til rannsóknar atvik sem kom upp á Reykjavíkurflugvelli 9. febrúar í fyrra. Þennan dag var bú- ið að vera mikið að gera við snjó- hreinsun og bremsumælingar á Reykjavíkurflugvelli en klukkan tvær mínútur yfir níu að morgni fékk flugmaður flugvélarinnar TF- ORD heimild til flugtaks. Átti hann að taka á loft á flugbraut 19. Á sama tíma og flugvélin var í svo- kölluðu flugtaksbruni sínu var snjó- ruðningstæki ekið inn á flugbraut- ina. Segir í stöðuskýrslu rannsókn- arnefndar samgönguslysa að stjórnandi snjóruðningstækisins hafi ekki haft heimild til aksturs þar og rannsóknin beinist að um- ferðarstjórnun. Keyrði inn á flugbraut  Umferðarstjórnun er til rannsóknar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reykjavíkurflugvöllur Atvik í febr- úar í fyrra er nú til rannsóknar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.