Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 9
Skrúfudagurinn er skemmtilegur viðburður sem hentar ungum sem öldnum og hvetjum við
ekki síst foreldra, ömmur og afa og frænkur og frændur til að mæta með börn og unglinga.
Þá viljum við sérstaklega bjóða fyrrum nemendur við skólann velkomna
enda frábært tækifæri til að rifja upp gamla tíma.
Námið í skólanum
Námsleiðir skólans, nemendaþjónusta og
lesaðstaða nemenda til sýnis.
Fyrirtækjakynningar
Fyrirtæki í faginu kynna margvíslega
þjónustu sína.
Sjóvinna
Gestir fá að reyna sig við að bæta net
og hnýta hnúta.
Turninn
Eitt besta útsýni Reykjavíkur er úr turninum,
allir verða að prófa að fara upp.
Vélarúmshermir
Opið er í vélarúmshermi, hægt að fylgjast
með vinnu í vélarúmi.
Siglingahermir
Gestir fá að prófa stjórntökin í glæsilegum
siglingahermi.
Rafmagnsfræði
Eitt og annað til sýnis og alltaf eitthvað
í gangi.
Glóðarhausavél
Eins og venjulega þá verður hún gangsett,
enginn má missa af því.
Gamlar útskriftarmyndir
Hægt verður að fletta upp gömlum
útskriftarmyndum.
Skrúfudagurinn 2019
Opið hús í Tækniskólanum á Háteigsvegi þann 9. mars.
Fjölbreytt dagskrá frá kl. 13:00–16:00.
Nemendur taka á móti gestum og
leiðbeina um viðburði og skólann.
VEITINGASALA
NJÓTIÐ GÓÐRA VEITINGA Í
VEITINGASÖLUNNI Á 4. HÆÐ