Morgunblaðið - 09.03.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Litlir kettlingar þurfa
gott fóður sem hentar
þörfum þeirra
Í fyrradag sagði Sólveig AnnaJónsdóttir formaður Eflingar
um það verkfall sem þá var yfir-
vofandi: „Ég hlakka mikið til.“
Undir þessi sérkennilegu orð tók
sem betur fer enginn, enda verk-
fall ekkert tilhlökkunarefni.
Verkfall ertæki sem
launamenn
geta gripið til
ef þeir telja
útilokað að
kjarasamn-
ingaviðræður
geti skilað ár-
angri.
Verkfall er að sjálfsögðu ekkitalið markmið í sjálfu sér og
viðræður samningamanna geta
tæpast talist tæmdar þegar einn
helsti þátttakandinn hefur samtals
opnað munninn tvisvar á samn-
ingafundum og örstutt í bæði
skiptin.
Vegna framgöngunnar í aðdrag-anda verkfallsboðunar voru
uppi raddir um að samningsviljinn
væri ekki fyrir hendi hjá Eflingu.
Fögnuðurinn með verkfallið
renndi stoðum undir það.
Kátínan í gær með verkfallið ogkröfugönguna staðfestu svo
hið sama. Og helsta kröfuspjaldið
(á ensku eins og flest spjaldanna),
„WE’RE HERE! WE’RE STRIK-
ING! GET USED TO IT!“, var ekki
beinlínis vísbending um að forysta
Eflingar óskaði þess að verkfallið
tæki fljótt af.
Sem betur fer eru ekki allir for-ystumenn verkalýðshreyfing-
arinnar á sömu villigötum. Enda er
ekki líklegt að almennir félags-
menn sætti sig við slíka fram-
göngu.
Sólveig Anna Jónsdóttir
Efling:
Venjist verkfallinu!
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stéttarfélög iðnaðarmanna hafa á
undanförnum dögum verið að flytja
starfsemi sína og höfuðstöðvar í
sameiginlegt húsnæði á Stórhöfða 31
í Reykjavík þar sem þau verða með
skrifstofur sínar og samstarf um
ýmsa þjónustu s.s. þjónustuskrif-
stofu iðnfélaga o.fl.
Landssambandið Samiðn og iðn-
félögin Byggiðn og Félag iðn- og
tæknigreina FIT eru að koma sér
fyrir í húsinu en fyrir eru þar í hús-
inu Rafiðnaðarsamband Íslands,
MATVÍS og Grafía. Nú þegar flutn-
ingarnir eru um garð gengnir eru öll
iðnaðarmannafélögin nema VM, Fé-
lag vélstjóra og málmtæknimanna
undir sama þaki.
Iðnaðarmannafélögin höfðu með
sér náið samstarf við kjarasamn-
ingsgerðina árið 2015 og í yfirstand-
andi kjaraviðræðum eru félögin öll í
nánu samfloti. Pálmi Finnbogason,
skrifstofustjóri á þjónustuskrifstofu
iðnfélaga, segir að félögin séu að
koma sér fyrir en framkvæmdir
standi enn yfir í húsinu. Þetta hafi
lengi verið draumur margra, meg-
intilgangurinn sé að bæta þjón-
ustuna við félagsmennina og sé vísir
að auknu samstarfi iðnfélaganna.
Ríflega 15 þúsund félagsmenn eru í
þeim félögum iðnaðarmanna sem
eru nú með skrifstofur undir sama
þaki á Stórhöfðanum skv. tölum
ASÍ. omfr@mbl.is
Iðnfélögin komin undir sama þak
Samiðn, FIT og Byggðin flytja inn með RSÍ, MATVÍS og Grafíu á Stórhöfða
Ljósmynd/FIT
Stórhöfði 31 Iðnaðarmannafélögin
hafa komið sér fyrir í húsinu.
Hvalfjarðargöng hafa verið þrifin
mun oftar en áður var eftir að
Vegagerðin tók við rekstri þeirra,
að því er segir í frétt á vefsíðu
Vegagerðarinnar. Vel er fylgst með
mengun og mistri í göngunum og
unnið er að því að minnka slysa-
hættu með því að minnka umferð-
arhraða.
„Talið er að meðalhraðamynda-
vélar séu sá búnaður sem bestur sé
til að halda hraðanum stöðugum,“
segir á vef Vegagerðarinnar og vís-
að til þess að unnið sé að því að
setja upp meðalhraðamyndavélar í
Norðfjarðargöng og kafla á
Grindavíkurvegi. „Vélarnar eru
ekki orðnar virkar og þetta verk-
efni gengur mjög hægt af ýmsum
ástæðum en það mjakast. Þegar
fengin verður einhver reynsla af
rekstri vélanna á þessum köflum og
hún verði eftir vonum mun Vega-
gerðin panta vélar til uppsetningar
í Hvalfjarðargöngum en það verður
ekki fyrr en á næsta vetri héðan af.
Kostnaður er ekki undir 50 millj-
ónum króna,“ segir þar ennfremur.
50 milljónir í meðal-
hraðamyndavélar
Morgunblaðið/Sverrir
Hvalfjarðargöng Stefnt er að uppsetningu nýrra meðalhraðamyndavéla.