Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 17

Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 Verið velkomin í glæsilega sýningaríbúð Guðbjörg Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali gudbjorg@manalind.is sími: 899 5533 Thelma Víglundsdóttir, löggiltur fasteignasali thelma@manalind.is sími: 860 4700 Sölusýning Breiðakur 2-4 Garðabæ Nýjar þriggja og fjögurra herbergja íbúðir Glæsilegt nýtt, átta íbúða, fjölbýli með lyftu í vinsælu hverfi í Garðabæ. Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna. Stærðir frá 122- 138 fm verð frá 63.9 millj. Öllum íbúðum fylgja rúmgóð stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar. www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020 Laugardaginn 9. mars frá 14:00-15:00 Sunnudaginn 10. mars frá 14:00-15:00 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Erlendar sjónvarpsstöðvar og kvik- myndagerðarfólk sem vinna að gerð náttúrulífsefnis, sækja talsvert í að fá að mynda refinn í hans náttúrulegu heimkynnum á Hornströndum. Al- gengt hefur verið að tvö til fjögur teymi hafi fengið leyfi Umhverfis- stofnunar árlega síðustu ár, en ekki er sjálfgefið að leyfi sé veitt til að kvikmynda í friðlandinu. Fyrsti hóp- ur ársins er væntanlegur í næstu viku, en það er hópur frá Maramedia í Skotlandi, sem vinnur að þáttaröð undir heitinu Stormborn. Tilhugalífið í fullum gangi Ester Rut Unnsteinsdóttir, spen- dýravistfræðingur á Náttúrufræði- stofnun og formaður stjórnar Mel- rakkasetursins í Súðavík, segir að í þessum mánuði verði myndað þegar fer að birta til eftir langan vetur. Þá sé fuglinn að koma í björgin og fæðu- öflun refsins verði auðveldari, pörin farin að færa sig að grenjum og til- hugalífið í fullum gangi. Í júní kemur hópurinn á ný og fylgst verður með hvernig til hefur tekist og vonandi fyrstu skrefum yrðlinganna. Þessu verður síðan fylgt eftir þegar kemur fram í ágúst og farið að hausta. Ester Rut hefur gjarnan verið í för með hópunum sem komið hafa síð- ustu ár, auk þess að aðstoða við úr- vinnslu og texta. Hún segir að það sé nánast undantekningalaust að miklir fagmenn séu á ferð, sem beri virðingu fyrir dýrunum og náttúrunni. Margt af þessu fólki hafi myndað víða um heim við alls konar aðstæður og lent í ótrúlegum ævintýrum. Hún nefnir að hópur sem vann á Hornströndum fyr- ir BBC, fyrir nokkrum árum lenti í stormi og slyddu í júlí og þurfti að sækja mannskapinn á þyrlu því ekki var hægt að sigla vegna slæmra veðurskilyrða og sjólags. Af öðru eftirminnilegu verkefni nefnir hún þáttaröð á vegum Mara- media sem nefnist Wild Way of the Vikings. Nýir þættir voru nýlega frumsýndir og þar er tófan meðal dýra sem lifa við erfiðar aðstæður á jaðrinum. Einnig hafi kostulegt myndskeið verið tekið um músina sem sýni hvernig mýsnar leyndust í farangri landnámsmanna. Ester Rut bendir á að heimskautarefurinn hafi verið kominn hingað á undan mann- inum, en músin hafi trúlega slegist í för með þeim sem hér námu land. Í fyrra hafi fjögur teymi frá BBC komið til að kvikmynda á Horn- ströndum. Verkefnið hafi m.a. verið að fjalla um fyrsta árið í lífi yrðlinga í þáttaröð sem kallast First Year on Earth. Stemmi við staðreyndir Ester Rut hefur iðulega veitt um- sögn og ráðgjöf um verkefnin, fylgt hópum eftir á Hornstrandir til eftir- lits og aðstoðar. Þegar unnið er að frágangi segir hún að áfram sé hún spurð um dýrin og aðstæður til þess að texti og saga stemmi við stað- reyndir. Sérfræðingar Náttúrufræði- stofnunar hafi líka það hlutverk að staðfesta og tryggja að unnið hafi verið með villt dýr í náttúrulegu um- hverfi. Hún segir að drónar séu töluvert notaðir við kvikmyndatökur, en áhersla sé lögð á að takmarka flug þeirra og fara ekki nálægt fugla- björgum eða refagrenjum. Hins veg- ar gefi drónamyndir frá sjó yfirsýn yfir mikilfenglegt landslagið. Kvikmyndagerðarfólk frá Mara- media, sem kemur hingað á næstu dögum, hyggst einkum mynda í Hornvík og Hornbjargi. Myndað verður daglega meðan á tökum stendur, en gætt að hvíldartíma yfir nóttina. Ekki er talið að verkefnið hafi áhrif á refina til lengri tíma verði farið eftir settum skilyrðum fyrir leyfi Umhverfisstofnunar, m.a. frá Náttúrufræðistofnun. Fyrir leyfið á að greiða stofnuninni 52.600 krónur. Refurinn á Hornströndum heillar  Fyrsta teymi árs- ins á Hornstrandir í næstu viku  Vin- sælt náttúrulífsefni Ljósmynd/Dominic Weston Á vettvangi Ester Rut Unnsteinsdóttir og Írinn Colin Stafford-Johnson ræða kvikmyndagerð og refina í Miðdal við Hornbjarg. Hann hefur unnið við náttúrulífsmyndir í um 40 ár og er m.a. þekktur fyrir efni um tígrisdýr í Indlandi. Ljósmynd/David Gibbon Í lukkupottinn Mórauður refur með nýdauða langvíu í Jökulfjörðum í febr- úar 2017, en yfirleitt heldur fuglinn sig á sjónum á þeim árstíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.