Morgunblaðið - 09.03.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.03.2019, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Mjög eftirsóttur staður í Keflavík Reykjanesbæ. Heitur pottur, tvær verandir. Stærð 189,9 m2 Verð kr. 57.900.000 Baldursgarður 7, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is ÁÍslandsmóti skákfélagasem lauk um síðustu helgií Rimaskóla var staðfestursá mikli munur sem er á öflugustu liðum keppninnar í 1. deild og þeim sem verma botnsætin. Hið skemmtilega lið skákdeildar KR hef- ur innan sinna raða skákmenn af eldri kynslóðinni sem tefla reglulega í hinum ýmsu skákklúbbum á höfuð- borgarsvæðinu og hafa haldið sér uppi í efstu deild undanfarin ár en kveðja nú; þó má segja að í kjölsog- inu hafi þeir ráðið miklu um það hvernig málin æxluðust á toppnum. Víkingaklúbburinn hafði þetta aft- ur og er Íslandsmeistari skákfélaga 2019. Sveitin var með besta liðið á pappírunum, þar af fjóra erlenda stórmeistara. Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason voru á þriðja og sjötta borði og Jón Viktor Gunn- arsson á því áttunda. Í næstsíðustu umferð vann Vík- ingasveitin skákdeild KR 8:0 og hefðu helstu keppinautarnir, Hug- inn, kosið þau úrslit líka en á fimmtudagskvöldið rétt marði Hug- inn sigur yfir KR-ingum, 4 ½: 3 ½. Á þessum úrslitum er mikill munur og það kom fram í lokaniðurstöðunni: 1. Víkingaklúbburinn 53 v. 2. Huginn a-sveit 50 ½ v. 3. Fjölnir 50 v. 4. TR –a sveit 45 5. TG 45 ½ v. 6. Breiðablik , Bolungarvík og Reykja- nes 33 ½ v. 7. SA 29 v. 8. TR b-sveit 26 v. 9. Huginn b-sveit 22 v. 10. KR 12 ½ v. Í 2. deild vann Skákfélag Selfoss og nágrennis og flyst upp í 1. deild ásamt b-liði Víkingasveitarinnar. Í 3. deild vann b-lið Taflfélags Garða- bæjar Garðbæinga og flyst lið þeirra upp um deild ásamt Taflfélagi Vest- mannaeyja og í 4. deild sigraði b- sveit skákdeildar KR en í 2. sæti urðu Hrókar alls fagnaðar. Þessi lið fara bæði upp í 3. deild. Víkingasveitin og Huginn áttust við í 7. umferð og það var úrslita- rimman í efstu deild. Í fyrra vann Huginn með minnsta mun en nú snerist dæmið við og hefði sigurinn getað orðið stærri en Jón L. Árna- son missti unnið tafl niður í tap á 6. borði. Hannes Hlífar Stefánsson fékk 8 ½ v. af 9 mögulegum og skák hans við Jóhann Hjartarson var án efa há- punktur helgarinnar, frábær viður- eign, báðum til sóma: Íslandsmót skákfélaga 2019; 7. umferð: Jóhann Hjartarson – Hannes Hlífar Stefánsson Slavnesk vörn 1. Rf3 d5 2. c4 c6 3. e3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Dc2 Bd6 6. b3 O-O 7. Bb2 e5 8. d4 Annar möguleiki var 8. cxd5 cxd5 9. Rb5 Rc6 10. Rxd6 Dxd6 11. d4 e4 12. Re5 með flókinni stöðu. 8. ... e4 9. Rd2 Ra6 10. a3 Rc7 11. h3 Re6 12. Be2 Bd7 13. b4 He8 14. Db3 Rc7 15. a4 dxc4 16. Bxc4 Rcd5 17. b5 Hc8 18. O-O Bf5 19. Hfc1 Bb8 20. a5 Dd6 21. Rf1 Dd7 Svartur hefur í hyggju að fórna biskup á h3. Á drottningarvængnum hefur hvítur hinsvegar mikil gagn- færi. 22. Re2 Bxh3 23. gxh3 Dxh3 24. Reg3 h5 25. a6 h4! Það tekur „vélarnar“ smátíma að átta sig á því að þetta er jafnvel betra en 26. ... b6. 26. axb7 Hcd8 27. bxc6 27. ... Rh7! Jóhanni hafði sést yfir þennan bráðsnjalla leik. Hann hafði reiknað með 27. ... hxg3 en eftir 28. fxg3 er hvíta staðan betri. Riddarinn stefnir nú á f3. 28. Bxd5 Rg5 29. Bxe4 Hxe4 30. Dd1 hxg3 31. c7 Bxc7 32. fxg3 Ekki 32. Hxc7 g2! 33. Rg3 Hh4 og mátar. 32. ... Hxe3!? 33. Rxe3 Dxg3+ 34. Kf1 Rh3! 35. Ke2 Eða 35. Dc2 Df3+ 36. Ke1 He8 37. Ha3 Ba5+! og vinnur. 35. ... Dh2+ 36. Kd3 Rf2+ 37. Kc3 Rxd1+ 38. Hxd1 Bb6 39. Rc4 Dc7 40. d5 Dxb7 41. d6 Dc6 - og hvítur gafst upp. Víkingaklúbburinn Íslandsmeistari skákfélaga 2019 Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/SÍ Hótelstjórinn Davíð Kjartansson hafði ástæðu til að fagna í lokahófi Ís- landsmóts skákfélaga. Hann náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli og verður útnefndur á næsta þingi FIDE. Þú hefur örugglega fengið tölvu- póst með stafsetningarvillum sem segir þér að reikningurinn þinn á samfélagsmiðli sé í hættu staddur. Það eina sem gæti bjargað honum er að þú farir á síðuna og sláir inn notandanafn og lykilorð til þess að tryggja að þú sért eini notandinn. Þetta er auðvitað svindl til að kom- ast yfir lykilorðið þitt. Svona tilraunir eru kallaðar vef- veiðar (e. phishing). Vefveiðar eru til á ýmiss konar formi, t.d. virðast þetta oft við fyrstu sýn vera skila- boð frá bönkum, kortafyrirtækjum eða netþjónustuaðilum. Sumir tölvuþrjótar beita svonefndum spjótvefveiðum en munurinn liggur í því að þeim er vísvitandi beint að einstaklingum. Þessari aðferð var beitt árið 2014 þegar myndum sem voru geymdar í skýi iCloud- þjónustu Apple var stolið. Tölvu- þrjótarnir beindu spjótum sínum að frægu fólki, einkum konum, og sendu þeim tölvupóst sem sagði að brotist hefði verið inn á reikning þeirra og með var tengill á svikaútgáfu af iCloud- síðunni. Þannig fengu þrjótarnir lykilorð fórnarlambanna í hendur og fullan að- gang að öllum þeim ljósmyndum sem geymdar voru í iCloud-skýi þeirra. Skv. upplýsingum frá netfyrirtækinu Symantec eru um 55% af öllum tölvupósti ruslpóstur og að með- altali fær fólk 16 svikapósta í mán- uði. Stórar póstþjónustur eins og Gmail frá Google hafa komið upp þróuðum síum sem passa að svona póstar hreinlega berist ekki not- endum þeirra. Minni póstþjónustur búa ekki yfir sömu tækni og Gmail og því líklegra að þar komist svika- póstar í gegnum síuna. Besta leiðin til að forðast árás af þessu tagi er að skoða tölvupóstinn vel. Oft er pósturinn sendur frá netfangi sem líkist alvörusend- anda, t.d. support@gnail.com í stað support- @gmail.com. Fljótt á litið sér viðtakandi ekkert misjafnt en gott er að lesa tölvu- póstinn vel og skoða hvort ítrekaðar staf- setningarvillur eru í honum. Mörg minna þróuð ríki hafa ekki framkvæmdavald eða löggjöf til að eltast við tölvuþrjóta og því þrífst þannig starf- semi þar. Oft er enska ekki fyrsta mál og því slæðast inn stafsetningar- og mál- villur hjá þrjótunum. Sérstaklega skal varast tölvupóst þar sem les- andanum er skipað að bregðast strax við, annars fari allt á versta veg. Ef málið væri virkilega alvar- legt væri best að sjá um það í eigin persónu, ekki á vefsíðu. Önnur góð regla er að opna ekki tengla úr grunsamlegum tölvu- pósti. Ef fólk er áskrifendur að til- tekinni þjónustu á netinu og fær tölvupóst um að skrá sig inn á til- tekna vefsíðu er góð regla að slá inn rétta vefslóð fremur en að elta tengil í tölvupósti. Öruggar vefsíður hafa https: í upphafi vefslóðarinnar í stað http:. S-ið stendur fyrir „secure“ og þýð- ir að allt sem slegið er inn á síðuna er dulkóðað. Öruggar vefsíður hafa fengið vottun frá þriðja aðila um að þessi síða sé virkilega í eigu þess sem segist eiga hana. Miklu skiptir að fara varlega. Fáir þú tölvupóst sem segir að nú sé þitt síðasta tækifæri til að bjarga bankareikningi skaltu ekki hafa áhyggjur og ekkert gera. Í raunverulegu tilviki myndi bank- inn örugglega hringja og biðja þig að mæta í næsta útibú. Vefveiðar Eftir Aron Friðrik Georgsson » Tölvuþrjótar stunda vefveiðar með því að senda fólki tölvupóst á fölskum forsendum. Aron Friðrik Georgsson Höfundur er viðskiptafræðingur og ráðgjafi í upplýsingaörygg- ismálum hjá Stika ehf. aron@stiki.eu Upplýsingaöryggi Ljósmynd/smallbiztrends.com/2018/ Blekking Vefveiðar til að blekkja fólk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.