Morgunblaðið - 09.03.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 09.03.2019, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2019 ✝ Lydía RósaSigurlaugs- dóttir fæddist 13. febrúar 1933 á Ísa- firði. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eyri á Ísafirði 28. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kar- itas Ingibjörg Rósinkarsdóttir, f. 17.9. 1909, d. 9.8. 1994, og Sigurlaugur Þorleifur Sigurlaugsson, f. 20.8. 1903, d. 28.7. 1965. Systkini Lydíu Rósu eru Baldur Breiðfjörð, f. 4.8. 1930, d. 6.10. 1976, Sigurlaugur Jóhann, f. 8.9. 1931, d. 18.5. 1991, Karl Trausti, f. 19.7.1934, d. 30.6. 1990, Erling, f. 4.4. 1936, d. 21.12. 2010, og Ingi- björg f. 9.2. 1947, d. 19.6. 2018. þeirra; Óskar Ágúst, sambýlis- kona Þórdís Reynisdóttir og Arna Sigríður. 4) Lydía Ósk, f. 23.8. 1965, gift Kristjáni M. Ólafssyni, börn þeirra; Lydía Hrönn og Iðunn Rún. Lydía Rósa bjó alla tíð á Ísa- firði. Hún gekk í Barnaskóla Ísafjarðar og fór snemma að vinna fyrir sér. Hún vann meðal annars við verslunarstörf hjá Kaupfélagi Ísfirðinga og í Skó- búð Leós. Einnig vann hún í Rækjustöðinni hf. sem Óskar stofnaði árið 1970 ásamt sex öðrum eigendum rækjubáta á Ísafirði. Lydía Rósa vann við umönn- un á Hlíf, íbúðum aldraðra, og eftir stutt námskeið í fótsnyrt- ingu vann hún þar einnig sem fótsnyrtir. Lydía Rósa starfaði alla tíð með Slysavarnadeild- inni Iðunni á Ísafirði auk þess sem hún starfaði með Félagi eldri borgara á Ísafirði í seinni tíð. Útför Lydíu Rósu verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag, 9. mars 2019, klukkan 14. Lydía Rósa gift- ist 31. maí 1957 Óskari Guðmundi Jóhannessyni frá Dynjanda, f. 1. nóv- ember 1927, d. 1. febrúar 1993. Þau eignuðust fimm börn; 1) Tvíburar andvana fæddir 1952. 2) Einar Rós- inkar, f. 23.2. 1955, d. 5.8. 2018. Börn hans með Jónínu Ólöfu Emils- dóttur (skilin); Hanna Rósa, dóttir hennar og Gunnars Steins Mánasonar er Gunnþóra Rós. Engilráð Ósk, gift Jónasi Þorkelssyni, börn þeirra Óskar Guðmundur og Eva Þórkatla. Eydís Eva. 3) Albert, f. 3.7. 1960, giftur Sigfríði Hallgrímsdóttur, börn Það er ótrúlegt að hún mamma skuli vera farin, ég taldi hana eilífa því í mínum augum er hún eilífðarunglingur. Alltaf smart, alltaf á háum hælum og fór ekki út án þess að setja á sig varalit. Mamma var hörkukona. Hún var dugleg, sjálfstæð og sterk, hún var sjómannskona og hún gat allt og gerði allt sem þurfti að gera. Ég man að hún tók af sér klossann þegar þurfti að negla nagla. Hún málaði alla íbúðina ef henni datt það í hug. Hún fór keyrandi til Reykja- víkur ef þurfti. Ekkert verkefni var henni ofviða. Sjálfstæða konan var einnig blíð og traust. Hún var einstak- lega gjafmild og var enn að spyrja mig fimmtuga konuna hvort mig vantaði ekki pening. Mamma gerði allt fyrir alla fyrst og hugsaði síðast um sjálfa sig. Hún bar hag barna sinna og barnabarna fyrir brjósti. Það var henni mikilvægt að þau væru dugleg og stæðu sig vel. En mamma gat líka verið mjög ákveðin og einörð. Þegar ég lít til baka skil ég þessa hörku. Það hefur mikið gengið á hjá mömmu. Hún var ein af þeim sem stukku út úr brennandi Felli árið 1946. Hún var tvítug þegar hún missti fyrstu börnin sín, andvana fædda tvíbura og pabbi úti á sjó. Faðir hennar og bræður fóru allt of snemma, ættar hjartavesenið hjá þeim öllum. Pabbi var jarðaður á 60 ára afmælisdegi hennar. Hjartað í henni var úr gulli en hjartavesenið var einnig í henni sem og í hjarta Einars Rósa, elsta sonar hennar, sem dó síð- asta sumar. Svona áföll hljóta að hafa áhrif. Hvernig má annað vera en að svona högg herði litla og netta konu? Hjá hennar kyn- slóð var hvorki kvartað né kveinað og allra síst var rætt um líðan sína eða tilfinningar. Sagt er að á okkur sé aðeins lagt það sem við getum borið. Mamma bar þessa lífsreynslu bein í baki, var sjálfstæð og sjálfri sér næg. Eftir að pabbi dó höfðum við börnin hennar ekki áhyggjur af henni. Hún var dugleg, annað var ekki í boði, og hún kenndi okkur að vera dug- leg. Þessi dugnaður hennar, metnaður og hvatning hefur fylgt mér alla tíð. Hún fékk ekki tækifæri til að mennta sig og hvatti mig endalaust áfram. Ég hafði ekki trú á mér en hún vissi betur. Aðeins voru liðnir fimm dagar frá útskrift minni þegar hún kvaddi. Tillitssemi, segi ég, og takk mamma mín! Án ykkar pabba hefði ekkert orðið úr mér. Mamma var með bíladellu sem hún sagðist ekkert geta að gert, hún hafði einfaldlega feng- ið hana í arf eins og bræður sín- ir. Það er stutt síðan hún hætti að keyra, of stutt að mati barna hennar, en bíllinn veitti henni frelsi og henni fannst gott að vita af honum fyrir utan. Hún skildi ekki hræðsluna í okkur sem sátum í farþegasætinu þeg- ar hún fór öfugum megin í hringtorgið eða keyrði upp aðal- götuna á móti einstefnu, „hvaða stress er þetta í þér, við erum nú bara á Ísafirði,“ sagði hún og glotti. Ég kveð þig nú frú mín góð, með ástarþökk. Ég veit að fólkið þitt tekur vel á móti þér, elsku mamma; pabbi, Einar Rósi og tvíburarnir. Ég veit líka að nú getur þú kveikt þér í. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Þess óskar þín Lydía Ósk. Elsku amma á Ísó. Minning- arnar um þig eru dýrmætar en við vitum að það tekur enginn betur á móti þér en pabbi okk- ar, sonur þinn. Þú veittir okkur styrk þegar pabbi dó og það lýs- ir persónuleika þínum vel. Ákveðin og umhyggjusöm, jarð- bundin og fjölskyldan alltaf númer eitt. Fjölskylduhefðir voru mikilvægar fyrir bæði þig og pabba; matarboð, áramóta- partí, sviðamessa og fleira. Þegar við minnumst ykkar sjáum við hvernig þið standið bæði í eldhúsinu í Fjarðarstræt- inu með kíkinn á lofti. Pabbi að maula eitthvað sem þú hafðir bakað og þið ræðið báta- umferðina inn og út Skutuls- fjörðinn. Það eru forréttindi að hafa fengið að alast upp á Ísafirði og átt ömmu og afa sem áttu heima hinum megin við götuna. Það var alltaf opið hús í Fjarðar- strætinu og hægt að treysta á hlýtt faðmlag frá þér og yfirleitt verið að brasa eitthvað í eldhús- inu. Grjónagrauturinn í pottin- um, bakkelsi og kóngabrjóst- sykur í skálinni inn í stofu. Við fengum alltaf að taka þátt í stússinu í eldhúsinu m.a. að snúa kleinum fyrir kleinu- baksturinn. Krummarnir fengu svo afgangana en oft fór amma í fjöruna og gaf þeim. Það var alltaf nóg um að vera hjá þér elsku amma og ýmislegt gert. Þegar voraði var farið inn í Dagverðardal og eytt miklum tíma í sumarbústaðnum á sumrin. Við gleymum ekki þeg- ar við bjuggum til litla kofann en þá fengum við frjálsar hend- ur að mála og útbúa lítið kaup- félag. Svona varst þú, alltaf tilbúin að aðstoðað okkur og gafst þér tíma í að gera hlutina vel. Amma, allar minningarnar sem við eigum í bíltúrunum með þér. Oftast var nú rúntað um höfnina en stundum var farið lengra eins og í berjamó inn í Djúp, keyrt í Bæi á Snæfjalla- strönd eða jafnvel alla leið til Reykjavíkur. Það sem við hlóg- um líka þegar hringtorgið var sett upp á Ísafirði en þér tókst oftar en einu sinni að fara hringinn öfugan. Að lokum látum við fylgja hér lagið Lítill fugl sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng. Lítill fugl á laufgum teigi losar blund á mosasæng, heilsar glaður heiðum degi, hristir silfurdögg af væng. Flýgur upp í himinheiðið, hefir geislastraum í fang, siglir morgunsvala leiðið, sezt á háan klettadrang. Þykist öðrum þröstum meiri, þenur brjóst og sperrir stél, vill, að allur heimur heyri, hvað hann syngur listavel. Skín úr augum skáldsins gleði, skelfur rödd við ljóðin ný, þó að allir þrestir kveði þetta sama dírri-dí. Litli fuglinn ljóða vildi listabrag um vor og ást. Undarlegt, að enginn skyldi að því snilldarverki dást (Örn Arnarson) Með söknuði kveðjum við þig amma okkar. Við munum aldrei gleyma þér. Hanna Rósa, Engilráð Ósk og Eydís Eva Einarsdætur. „Nei ert þetta þú Arna mín?“ sagði amma Ludý, eins og við barnabörnin kölluðum hana, alltaf þegar hún svaraði í símann. Það var gaman að tala við ömmu og við vorum góðar vin- konur. Ég umgekkst hana mikið þegar ég var að alast upp á Ísa- firði og það var alltaf notalegt að koma til hennar í Fjarðar- strætið, þar stóð hún oft við eld- húsgluggann og fylgdist með veðrinu, bátunum og fólkinu við Ísafjarðardjúp. Amma var dugleg að elda og baka fyrir börnin og barnabörn- in, best þótti mér að fá kjötboll- urnar hennar og ís með ávöxt- um í dós. Oft fékk ég að fara með henni á rúntinn, þá var alltaf komið við á höfninni og ég á margar góðar minningar úr sumarbú- staðnum hennar í Dagverðardal. Amma var mikill Ísfirðingur, sjálfstæð, ákveðin og lífsglöð. Hún var dugleg að fara í göngu- túra, sund og í alls konar fé- lagsstarf. Átti margar vinkonur og hélt góðu sambandi við þær. Hún var alltaf glæsileg til fara, á háum hælum og í fal- legum fötum og þegar hún kom til Reykjavíkur eyddum við löngum stundum í búðum að skoða föt og sjá hvað væri móð- ins. Á milli búða settumst við alltaf niður til að fá okkur kaffi og „eitthvað sætt“. Amma tók hlutunum ekki of alvarlega. Oftar en einu sinni stoppaði hún bílinn sinn á miðri Skutulsfjarðarbrautinni þegar hún sá mig hjólandi á göngu- stígnum fyrir neðan veginn. Þá var hún bara að heilsa og spjalla og ekki skipti hana máli hvort myndaðist löng bílaröð, þetta var nú bara Ísafjörður! Í útvarpsviðtali fyrir nokkr- um árum voru amma og vinkon- ur hennar spurðar um minning- ar tengdar veðrinu. Þá talaði amma um að sjómannskonur, líkt og hún sjálf, tengdu óveður oft við erfiðar minningar. Það voru skin og skúrir í lífi ömmu, en ekki kvartaði hún heldur stóð með sér og sínu fólki. Í sama viðtali sagði amma að góðviðr- isdagarnir léttu henni lundina, hún naut svo sannarlega sólar- innar. Elsku amma, ég vona að núna sé Ísafjarðarlogn hjá þér, takk fyrir allar góðu minningarnar. Þín, Arna. Elsku amma mín, það er svo sárt að kveðja þig og hugsa til þess að ég eigi aldrei aftur eftir að heyra þig segja „nei, nei, nei ert þetta þú nafna mín“ eða sjá þig í klossunum þínum með kaffibolla í hendinni við eldhús- gluggann í Fjarðarstrætinu. Takk fyrir allar góðu minn- ingarnar á Ísafirði og í bústaðn- um þínum í Dagverðardal. Þar gátum við Iðunn verið heilu dagana að búa til hús í lúpínunni eða sulla í læknum og gamla baðkarinu alveg þangað til þú kallaði okkur inn í kringlur og brúna. Í minningunni er alltaf sól og gott veður, þú útitekin með sólgleraugu og fallega hvíta hárið þitt. Ég er svo þakklát fyrir að hafa haft þig sem ömmu og fyrir það hversu frábæra fjölskyldu þú gafst mér. Ég veit að þú varst og verður alltaf ánægð með þitt fólk, Amma Rót væri ekkert ef ekki væri fyrir þig. Þú ert svo stór partur af mér og hver ég er í dag, elsku besta amma. Takk fyrir að vera alltaf jafn stolt af þessu fallega nafni okkar og öllu sem hún nafna þín gerði, sama hvort ég væri í snyrtifræði, að vinna á sjúkra- húsinu eða í Listaháskólanum. Ég vona að einn daginn verði ég jafn góð amma Lydía og þú varst mér. Þín nafna Lydía Hrönn. Lydía Rósa Sigurlaugsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku besta amma mín, það sem ég á eftir að sakna þín. Að hringja í þig og spá í veðrið, bæði hvernig það er hjá þér og mér. Ég á eftir að sakna þess að banka hjá þér, opna og heyra strax innan úr eldhúsi, „nei nei nei, ert þetta þú? Ertu nú komin til ömmu“. Að sitja við eldhúsborðið að spila við þig eða leggja kapal og hlusta á útvarpið. Takk fyrir allt það sem þú kenndir mér, elsku amma. Takk fyrir að vera amma mín. Þín Iðunn. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 ✝ Margeir Sig-urður Vern- harðsson fæddist 24. mars 1961 á Hofsósi. Hann lést á heimili sínu Grundartúni 10 á Hvammstanga 28. febrúar 2019. Foreldrar hans voru Elín Þórleif Ólafsdóttir, f. 24 júní 1921, d. 29. október 1993, og Vernharð Helgi Sigmundsson, f. 15. júlí 1921, d. 04. nóvember 2007. Margeir ólst upp í Brautar- holti á Hofsósi og síðar á Akur- eyri þegar foreldrar hans hófu búskap þar. Frá Akureyri flutti hann ásamt föður sínum til Sauðárkróks. Árið 2007 flutti Margeir á sambýlið að Grundartúni 10 á Hvammstanga, þar sem hann bjó síð- ustu 12 ár ævi sinnar. Margeir vann í Pakkhúsinu hjá Kaup- félagi Vestur-Húnvetninga. Útför Margeirs fer fram frá Hofsósskirkju í dag, 9. mars 2019, klukkan 15. Einn af okkar minnstu bræðrum er óvænt látinn, Við hittum Margeir nær alltaf ef far- ið var til Hvammstanga, en hann hafði dvalið þar í nokkur ár og var talsvert á ferli í búðum og pakkhúsi kaupfélagsins og til taks við að hjálpa fólki með kerrur, körfur og fleira Hann var alltaf brosandi og í góðu skapi. Margeir vann hluta dags í Kaupfélaginu sem útvegaði honum ljósgrænan galla með merki félagsins framan á, en nafni hans að aftan. Var Margeir mjög stoltur af þessu. Hann heilsaði öllum sem hann mætti brosandi með handabandi. Kom hann oft í kaffihornið í búðinni, heilsaði öllum sem að voru þar og benti á merkin sín. Hans er nú sárt saknað af þeim sem hittu hann og kynnstust honum. Vinnufélagar hans fylgja hon- um til grafar á Hofsósi og verða kistuberar. Við hjónin þökkum Margeiri fyrir að hafa skreytt mannlífið meðal okkar. Öllum aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Auð né heilsu ræður engi maður, þótt honum gangi greitt; margan það sækir, er minnst um varir, engi ræður sættum sjálfur. (Úr Sólarljóðum) Hlíf og Agnar, Hrísakoti. Stórt skarð er höggvið í hóp okkar í Grundartúni 10. Margeir er fallinn frá, góður vinur okkar og félagi. Margeir fluttist í Grundartún 10 í janúar árið 2006. Hann hóf fljótlega störf í Pakkhúsi Kaup- félags Vestur-Húnvetninga, þar sem hann vann allt fram til síð- asta dags. Þetta starf var honum afskaplega mikilvægt og sinnti hann því af mikilli samvisku- semi. Hann gekk í vinnuna á hverjum degi og svo heim aftur að vinnudegi loknum, það þurfti að vera mikið að veðri til þess að hann fengist til að fara með bíl í eða úr vinnu. Líklega hafa flestir íbúar Húnaþings hitt Margeir og spjallað við hann í Kaupfélag- inu, en Margeir var mikil félags- vera og naut þess að hitta og vera í kringum fólk. Afmælisdagurinn hans var alltaf mikill hátíðisdagur og til- hlökkunarefni, þá gafst honum tilefni til að bjóða til veislu og gleðjast með vinum, en hann hefði orðið 58 ára hinn 24. mars nk. Margeir var mikill áhugamað- ur um tónlist og átti hann stórt safn geisladiska sem hann var sérstaklega stoltur af. Karlakór- inn Heimir var í miklum metum hjá honum, á heimili hans mátti finna fjölmargar myndir af hon- um með kórfélögum og voru þessar myndir honum mjög dýr- mætar. Í fótboltanum var Margeir gallharður stuðningsmaður Liverpool og íslenska handbolta- landsliðið var besta lið í heimi! Það má með sanni segja að allt og alla sem Margeir studdi hafi hann stutt af lífi og sál. Margeir var einstakur maður og mikill gleðigjafi og við erum svo sannarlega þakklát fyrir að hafa kynnst honum, já hann auðgaði líf okkar allra. Minning- ar um góðan dreng munu ylja okkur um ókomin ár. Undir bláhimni blíðsumars nætur barstu’ í arma mér rósfagra mey. Þar sem döggin í grasinu grætur, gárast tjörnin í suðrænum þey. Ég var snortinn af yndisleik þínum, ástarþráin er vonunum felld. Þú ert ljósblik á lífshimni mínum, þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld. Ég vil dansa við þig meðan dunar þetta draumblíða lag sem ég ann. Meðan fjörið í æðunum funar, og af fögnuði hjartans sem brann. Og svo dönsum við dátt, þá er gaman meðan dagur í austrinu rís. Og svo leiðumst við syngjandi saman út í sumarsins paradís. (Magnús K. Gíslason) Við viljum þakka starfsfólki KVH fyrir alla velvild í garð Mar- geirs og þá sérstaklega starfs- mönnum Pakkhússins, sem Mar- geir var svo stoltur af að tilheyra. Aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd starfsfólks heimil- isins í Grundartúni 10, Maríanna Eva Ragnarsdóttir. Margeir S. Vernharðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.