Morgunblaðið - 09.03.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019
» Kvæðamanna-félagið Iðunn stóð
fyrir kvæðalagaæf-
ingu í Gerðubergi í
Breiðholti um
helgina og hún var
sérstaklega hugsuð
fyrir barnafjöl-
skyldur. Þar gafst
viðstöddum kostur á
að læra og flytja
saman ýmis kvæða-
lög úr fórum félags-
ins. Samantekt efnis
var í höndum Báru
Grímsdóttur, Rósu
Jóhannesdóttur og
Kristínar Lárus-
dóttur.
Kvæðalagaæfing í Gerðubergi fyrir barnafjölskyldur
Einbeitt Jón Svavar Jósefsson og Hugrún Jara Jónsdóttir á kvæðalagaæfingunni í Gerðubergi um helgina.
Lagvísar Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir og Árún Birna Eiríksdóttir.
Sæt saman Símon Reynir Sveinsson og Alexandra Kjeld í Gerðubergi.
Myndarleg Gísli Kolbeinn, Hilmar Ingi og Gyða Matthildur á æfingunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tilkynnt hefur verið að japanski
ljósmyndarinn Daido Moriyama
hlýtur hin virtu Hasselblad-verðlaun
í ár. Verðlaunaféð nemur einni millj-
ón sænskra króna sem samsvarar
tæplega þrettán milljónum ísl. kr.
Hasselblad-verðlaunin eru árlega
veitt af sænsku Hasselblad-
stofnuninni og þykja einhver þau
virtustu sem ljósmyndarar geta
hlotið en þau eru veitt fyrir fram-
úrskarandi ævistarf með miðilinn.
Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna
Richard Avedon, Robert Frank,
Sophie Calle, Wolfgang Tillmans,
Graciela Iturbide, Nan Goldin, Lee
Friedlander, Malick Sidibe, Cindy
Sherman, William Eggleston og
Josef Koudelka. Moriyama tekur við
verðlaununum við athöfn í Gauta-
borg í október og þá verður haldið
málþing um hann, opnuð sýning með
verkum hans og vegleg bók gefin út.
Moriyama, sem er áttræður að
aldri, er þekktastur fyrir að skrá-
setja borgarlífið í Japan í myndum
sínum. Á sjöunda áratug síðustu ald-
ar fluttist hann til Tókýó þar sem
hann vann sem aðstoðarmaður ljós-
myndara og öðlaðist frægð fyrir að
fanga á filmu eftirstríðstímann í
Japan. Með grófkorna myndum með
loðinni áferð þykir Moriyama hafa
fangað myrkustu hliðar stórborg-
arlífsins í Japan. Í rökstuðningi
dómnefndar verðlaunanna segir að
Moriyama sé einn nafntogaðasti
ljósmyndari Japans, sem lofsunginn
sé fyrir róttæka nálgun sína jafnt á
miðlinum og viðfangsefnum.
„Djarfur og óhagganlegur stíll
hans hefur komið japanskri ljós-
myndun á kortið á heimsvísu. Undir
áhrifum frá ljósmyndaranum Willi-
am Klein, textum Jacks Kerouac og
James Baldwin og tilraunaleikhúsi
Shûji Terayama hefur Moriyama
sjálfur veitt síðari kynslóðum ljós-
myndara innblástur, ekki aðeins í
Japan heldur á heimsvísu.“
Daido Moriyama
verðlaunaður
Hlýtur Hasselblad-verðlaunin í ár
Ljósmynd/Sebastian Mayer
Heiðraður Daido Moriyama.
Barnaumgjarðir
í miklu úrvali
Leyfðu barninu að njóta
frelsis í leik og starfi með
ÓBRJÓTANLEGUM
barnaumgjörðum
Göngugötunni Mjódd, Álfabakka 14a, s. 527 1515, gleraugnabudin.is, opið 10-18, laugardaga 11-16.
Persónu
leg
og fagle
g
þjónusta
Margir litir í boði
Hægt að breyta í íþrótta-
gleraugu með einu handtaki