Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 32
Ný fundaröð um leik-
hús til heiðurs Vig-
dísi Finnbogadóttur
hefur göngu sína í
Veröld á morgun kl.
17. Þar hyggjast leik-
húsfólk og fræði-
menn koma saman
og ræða uppsetningar á leikverkum
sem eru í sýningu hjá leikhúsunum.
Fyrsti viðburðurinn er tileinkaður
Ríkharði III. eftir Shakespeare sem
er nú á fjölum Borgarleikhússins.
Spurt er hvaða erindi verkið eigi við
okkur í dag, hvernig leikstjórinn
nálgist uppsetningarvinnuna og
hvernig þýðandinn vinni úr text-
anum. Í pallborði sitja Brynhildur
Guðjónsdóttir leikstjóri, Hjörtur Jó-
hann Jónsson leikari, Kristján Þórð-
ur Hrafnsson þýðandi og Hrafnhild-
ur Hagalín, listrænn ráðunautur.
Samtal um Ríkharð III.
MÁNUDAGUR 11. MARS 70. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Halldór Jóhann Sigfússon varð á
laugardaginn fyrsti þjálfari karlaliðs
FH í aldarfjórðung til að stýra liði fé-
lagsins til sigurs í bikarkeppni HSÍ,
Coca Cola-bikarnum. FH lagði Val
með þriggja marka mun, 27:24, í úr-
slitaleik þar sem Halldór Jóhann og
félagar höfðu tögl og hagldir frá
upphafi til enda. Valur vann hins
vegar í kvennaflokki. »4-5
Aldarfjórðungsbið FH-
inga í bikarnum á enda
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Það var smá fiðringur í maganum
þegar ég stóð á hliðarlínunni og
spjaldið fór á loft,“ sagði Patrik
Sigurður Gunnarsson, 18 ára knatt-
spyrnumarkvörður enska B-
deildarliðsins Brentford, við Morg-
unblaðið. Patrik kom inn á í sögu-
legum sigri gegn Middlesbrough,
2:1, á laugardag.
Patrik gekk í
raðir Brentford
síðastliðið sumar
frá Breiðabliki.
Hann hefur verið
hluti af varaliði
félagsins í vetur
en vegna
meiðsla var
hann vara-
markvörður að-
alliðsins. »1
Átján ára markvörður
með aðalliði Brentford
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Undir lok febrúar hófst nám fyrir
fíkniefnaleitarhunda og umsjónar-
menn þeirra. Námið er haldið á
vegum Lögreglustjórans á Norður-
landi vestra og Menntaseturs lög-
reglunnar. Slíkt nám hefur ekki
verið á vegum lögreglunnar í rúm
fimm ár. Sjö hundateymi, sem hvert
og eitt samanstendur af einum
manni og einum hundi, taka þátt í
náminu í ár og koma þau frá lög-
reglunni, Fangelsismálastofnun og
tollgæslunni.
„Þetta eru fjórar lotur og svo
heimaverkefni á milli lotna og þjálf-
araáætlanir undir handleiðslu.
Þessu lýkur síðan í maí með bæði
verklegum og skriflegum prófum,“
segir Steinar Gunnarsson, lögreglu-
fulltrúi á Sauðárkróki og yfir-
leiðbeinandi námskeiðsins. Auk
verklegrar þjálfunar spannar náms-
efnið vítt svið eða allt frá atferlis-
og líffræði hunda til meðferðar
sakamála. Námið er mjög krefjandi
fyrir teymin og eru gerðar miklar
kröfur til nemenda bæði tví- og fer-
fættra.
Að sögn Steinars eru allir hund-
arnir, sem taka þátt í náminu,
labradorhundar að undanskildum
einum springer spaniel. Spurður
hvort einhverjar hundategundir
henti betur en aðrar í fíkniefnaleit
segir hann svo ekki vera. „Nei, í
rauninni ekki. Okkur hefur reynst
afskaplega vel að nota þessa fugla-
hunda. Þessa veiðihunda, sem eru
notaðir í veiði, kallaðir fuglahundar.
Þeir hafa reynst mjög vel sem leit-
arhundar í svona vinnu en annars
geta allir hundar lært að leita,“ seg-
ir Steinar og bætir við að hundarnir
séu allir svokallaðir vinnuhundar.
„Við erum að nota hunda úr vinnu-
línum. Hunda sem eru ræktaðir
sem vinnuhundar. Við höfum bæði
ræktað þá sjálfir og svo höfum við
tekið hunda að utan líka.“
Hundaskóli Metropolitan
Í þessari viku kemur sérfræðing-
ur frá hundaskóla Metropolitan-
lögreglunnar í London og verður
leiðbeinandi í eina viku en sérfræð-
ingar frá breska hundaskólanum sjá
einnig um gæðaúttektina á náminu.
„Við viljum endilega fá óháðan aðila
til að taka út hundana og við höfum
samið við hundaskólann í Bretlandi
um það. Við eigum mjög gott sam-
starf við þá,“ segir Steinar.
Spurður hvort hundarnir eigi erf-
iðara með að finna einhver fíkniefni
fremur en önnur segir Steinar að
svo sé ekki að námi loknu. „Eins og
gefur að skilja getur manneskja
fundið kannabisefnin nánast sjálf,
það er svo sterk lykt. Þeir eiga
mjög auðvelt með að finna þau. En
þegar þeir eru komnir með þetta,
þá eru hvítu efnin auðveld líka.“
Ljósmynd/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fíkniefnaleit Teymin sjö, frá lögreglunni, Fangelsismálastofnun og tollgæslunni, sem sækja námið í ár.
Tví- og ferfættir setj-
ast saman á skólabekk
Sjö teymi taka þátt í fíkniefnaleitarnámi lögreglunnar
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16