Morgunblaðið - 20.03.2019, Side 1
þess að hún fékk lungnabólgu fyrir
tveimur árum. Hún hafði verið með
háþrýsting í lungum og fjölskyldu-
sögu um hjartatengda sjúkdóma.
Rósa varð að hætta að vinna enda
með talsvert mikið skert andrými.
Hún var send í hjartaþræðingu og
þá sást að það var opið á milli hjarta-
hólfa.
„Það var einstök heppni að þetta
fannst. Það þarf að loka gatinu og
vegna þess hvað það er stórt er ekki
hægt að gera það í gegnum æð. Svo
þarf að hnika til lungnaæð. Ég er því
að bíða eftir opinni hjartaaðgerð,“
sagði Rósa. »4
Bíður Rósa hefur þrisvar búið sig
undir aðgerð en ekki enn farið.
Hjartaaðgerð sem Rósa Poulsen,
bóndi í Biskupstungum, þarf að
gangast undir á Landspítalanum
hefur verið frestað þrisvar á rúmum
mánuði. Fyrst var skurðlæknirinn
veikur, í annað skipti þurfti hann að
gera stóra aðgerð til að bjarga sjúk-
lingi sem var í lífsháska og í þriðja
skiptið var ekkert pláss á gjörgæslu-
deildinni og aðgerðir felldar niður.
Rósa segir að þetta hafi tekið á sig
ekki síður en starfsfólk spítalans
sem hefur ítrekað þurft að snúa
henni við eða senda hana heim.
Hún er með meðfæddan hjarta-
galla. Hann uppgötvaðist í kjölfar
Bíður eftir hjartaaðgerð
Landspítalinn hefur frestað aðgerðinni þrisvar sinnum
Biðin tekur á og kvíðinn hefur sótt á Rósu Poulsen
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 67. tölublað 107. árgangur
ÍSLENSKT PRJÓNA-
FÓLK FER TIL
SKOTLANDS
MATTHILDUR ER ÞREKVIRKI
NÚ MÁ FÓLK
VERSLA Í GEGN-
UM INSTAGRAM
33 VIÐSKIPTAMOGGINNLINDA BJÖRK 6
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
segir umboðsmann Alþingis hafa
borið bankann þungum sökum í
tengslum við starfsemi gjaldeyris-
eftirlits bankans en að þeim verði
svarað ítarlega frammi fyrir stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd.
„Hann er að hluta til með þungar
ásakanir í garð bankans og þið hafið
aðeins heyrt ásakanirnar en ekki
skýringar þess sem ásakaður er. Ég
mun fyrir nefndinni gera grein fyrir
þeim.“ Þetta kemur fram í ítarlegu
viðtali við Má í ViðskiptaMogganum
í dag.
Þar fullyrðir hann einnig að
skýrsla bankans um neyðarlánið sem
veitt var til Kaupþings í október
2008, og margboðuð hefur verið,
verði birt almenningi hinn 30. apríl
næstkomandi. Þar verður að hans
sögn einnig ljósi varpað á söluna á
FIH-bankanum í Danmörku sem
tekinn var að allsherjarveði vegna
lánveitingarinnar.
Í viðtalinu ræð-
ir Már einnig
spurður ítarlega
um þau gögn sem
lágu til grundvall-
ar þeirri ákvörð-
un bankans að
ráðast í umfangs-
mikla húsleit á
skrifstofum Sam-
herja árið 2012.
Í viðtalinu ræðir Már um fyrirhug-
aða sameiningu Seðlabankans og
Fjármálaeftirlitsins. Segir Már að til
skoðunar sé að byggja tvær hæðir
ofan á byggingu Seðlabankans við
Kalkofnsveg með það fyrir augum að
koma sameinaðri starfsemi stofnan-
anna fyrir á einum stað.
Aðeins önnur hliðin birst
Seðlabankastjóri hyggst svara ásökunum umboðsmanns Alþingis fyrir þingnefnd
Skoðar möguleika á að byggja tvær hæðir ofan á hús Seðlabankans við Kalkofnsveg
MViðskiptaMogginn
Már
Guðmundsson
Stærsta þyrlufyrirtæki
Austurríkis, Heli
Austria, eykur nú um-
svif sín hér á landi, bæði
í þyrluskíðamennsku á
Tröllaskaganum og í al-
mennu útsýnis- og
leiguflugi um land allt.
Á móti missa íslensk þyrlufyrirtæki
spón úr sínum aski, en Heli Austria
verður með a.m.k. fimm glænýjar
þyrlur í rekstri hér á landi í vor og
sumar.
Þrír ferðaþjónustuaðilar bjóða
þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum;
íslensku fyrirtækin Arctic Heliskiing
Iceland og Viking Hel-
iskiing, og bandaríska
fyrirtækið Deplar
Farm, sem er í eigu
bandaríska lúxusferða-
fyrirtækisins Eleven
Experience.
Nú nýverið tók Heli
Austria við að þjónusta Arctic Heli-
skiing Iceland auk þess sem
Austurríkismennirnir þjónusta Depl-
ar Farm í þeirra ferðum. Reykjavik
Helicopters er nú eini íslenski aðilinn
með þyrluþjónustu á Tröllaskaga, og
flýgur fyrir Viking Heliskiing á
tveimur þyrlum. »ViðskiptaMogginn
Heli Austria umsvifa-
mikið í þyrlufluginu
Innlend fyrirtæki missa verkefni
Icelandair þarf að fara í góða og
hraða endurnýjun á flota sínum að
mati Sveins Þórarinssonar, sérfræð-
ings hjá Landsbankanum. Gríðarleg
óvissa er um flotamál Icelandair um
þessar mundir í ljósi þess að ekki er
vitað hversu lengi kyrrsetning Bo-
eing 737 Max-þota mun vara en Ice-
landair hafði gert ráð fyrir að vera
með 9 slíkar þotur í notkun á þessu
ári og 16 þotur árið 2021. „Icelandair
er komið á þann stað að það þarf að
fara í góða og hraða endurnýjun. Ef
þetta Boeing-mál vex, og framleiðsla
á þessum vélum breytist eða tefst
um einhver ár þá hef ég miklar
áhyggjur af Icelandair. Þá þarf að
hugsa stöðuna algjörlega upp á nýtt.
En þrír til fjórir mánuðir sleppa,“
segir Sveinn Þórarinsson við Við-
skiptaMoggann.
Óvissa um
flotamál
Icelandair
Kyrrsetning
má ekki vara lengi
Skúli Mogensen, stofnandi og for-
stjóri WOW air, leitaðist eftir því
fyrr í þessari viku að ríkissjóður
veitti ríkisábyrgð fyrir láni sem
fyrirtækið hyggst slá vegna úti-
standandi skulda samkvæmt heim-
ildum ViðskiptaMoggans. Var
beiðni Skúla beint að fjármála- og
efnahagsráðuneytinu en ekkert
mun hafa orðið af þreifingum í
þessa veru þar sem ekki er talinn
flötur á því innan stjórnkerfisins að
hlaupa með þeim hætti undir bagga
með félaginu í rekstrarerfiðleikum
þess. »ViðskiptaMogginn
Skúli leitaði eftir
ríkisábyrgð á láni
Morgunblaðið/Eggert
Veitingamenn eru farnir að setja út borð og
stóla á meðan iðnaðarmenn saga timbur úti við.
nóttin jafnlöng hvar sem er á jörðinni. Dagurinn
verður lengri hér en nóttin næstu 6 mánuði.
Jafndægur að vori eru í kvöld kl. 21.58 en þá er
sólin beint yfir miðbaugi jarðar og dagurinn og
Vorjafndægur í kvöld og sólin beint fyrir ofan miðbaug
ViðskiptaMogginn kemur nú út
á miðvikudegi í stað fimmtu-
dags eins og verið hefur fram til
þessa. Er miðvikudagur nú nýr
útgáfudagur blaðsins.