Morgunblaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is HVOLFARARKARA Handhægir ryðfríir karahvolfarar í ýmsum gerðum. Tjakkur vökvadrifinn með lyftigetu frá 900 kg. Halli að 110 gráðum. Vinsælt verkfæri í matvælavinnslum fiski – kjöti – grænmeti Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar tel- ur ekki nauðsynlegt að svo stöddu að taka upp fjárhagsáætlun ársins 2019 þrátt fyrir loðnubrest þar sem áætla megi að útsvarstekjur Vestmannaeyja- bæjar skerðist um rúmar 90 milljónir og eru þá ekki teknar með í reikninginn tapaðar útsvars- tekjur vegna launatekna í afleiddri starfsemi. Ákvörðun bæjarráðs kemur í kjölfar minnisblaðs sem Sigurberg- ur Ármannsson, fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar, lagði fram á fundi bæjarráðs í gær en bæjar- stjórn hafði á fundi sínum 28. febr- úar falið fjármálastjóra að fara yfir fjárhagsleg áhrif yfirvofandi loðnu- brests og meta hvort forsendubrest- ur væri fyrir tekjuáætlun fjárhags- áætlunar aðalsjóðs og hafnarsjóðs. Í minnisblaðinu kemur fram að reikna megi með að tekjuskerðing starfsmanna Vinnslustöðvarinnar og Ísfélagsins vegna loðnubrests gæti numið allt að 620 til 630 millj- ónum króna sem þýði að Vest- mannaeyjabær verði af 90 milljón- um í útsvarstekjum miðað við fyrri áætlanir. Reiknað er með að tekju- tap sjómanna verið rúmar 500 millj- ónir og starfsmanna í landi rúmar 100 milljónir. Ekki liggja fyrir for- sendur til útreikninga á því hversu mikið launatap hlotist getur af loðnubrestinum vegna afleiddrar starfsemi. En ef reiknað er með því að fimm til tíu ársverk iðnaðar- manna tapist gætu tapaðar útsvars- tekjur hlaupið á sjö til fjórtán millj- ónum. Höfnin tapar 41 milljón Í minnisblaði fjármálastjóra er gert ráð fyrir 33 til 41 milljónar króna tekjutapi hjá Hafnarsjóði. 20 til 25 milljóna vegna aflagjalda, sem er sambærilegt og höfnin hafði í tekjur af aflagjöldum 2018, og töpuð vörugjöld af loðnuafurðum gætu verið á bilinu 11 til 14 milljónir. Annað tekjutap er áætlað 2 millj- ónir. Í fjárhagsáætlun fyrir Vest- mannaeyjahöfn hafði verið gert ráð fyrir að tekjur minnkuðu um 11,3% frá fyrra ári. Fjármálastjóri Vestmannaeyja- bæjar segir í minnisblaðinu að tekjur hafi verið varlega áætlaðar fyrir árið 2019. Reiknað hafi verið með 3,9% lægri tekjum en árið 2018 og í raun hafi verið búið að gera ráð fyrir loðnubresti í útsvarsáætlun. Svigrúm sé hins vegar ekki mikið ef fleiri áföll dynji á bæjarsjóði. Treysta áliti fjármálastjóra Trausti Hjaltason, fulltrúi sjálf- stæðismanna, sem situr í minnihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja, sagði í bókun að sú ákvörðun meirihluta- fulltrúa E og H lista, að ekki væri þörf á að taka upp fjárhagsáætlun væri óábyrg. Trausti benti á að auk tekjutaps vegna loðnubrests, væru kjara- samningar lausir og yfirvofandi væri tugmilljóna skerðing framlaga úr jöfnunarsjóði. Það væri því full ástæða til þess að bregðast við sem fyrst af festu og yfirvegun með hag- ræðingu í rekstri bæjarfélagsins. „Við treystum því sem kemur fram í minnisblaði fjármálastjóra að loðnubrestur feli ekki í sér for- sendubrest fjárhagsáætlunar. En það er ljóst að bæjarsjóður þolir ekki fleiri áföll og við munum fylgj- ast vel með,“ segir Íris Róberts- dóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyj- um, í samtali við Morgunblaðið. Hún bendir á að það séu engin tíma- mörk á því hvenær hægt sé að taka upp fjárhagsáætlun vegna forsendu- brests. Bæjaryfirvöld geti hvenær sem er tekið upp fjárhagsáætlun. Íris segir að boðað hafi verið til fundar um loðnubrestinn og fram- tíðarhorfur í Þekkingarsetrinu þriðjudaginn 26. mars. Til fundarins hafi meðal annars verið boðaðir þingmenn Suðurkjördæmis. Hátt í 800 milljónir tapast í Eyjum Morgunblaðið/RAX Brestur Loðnuskip munu ekki sjást við Vestmannaeyjar á næstunni.  Gert var ráð fyrir loðnubresti í fjárhagsáætlun  Minnihlutinn vill taka upp fjárhagsáætlun  Sjómenn tapa rúmum 600 milljónum og starfsmenn í landi rúmum 100  Bærinn þolir ekki fleiri áföll Íris Róbertsdóttir Gunnlaugur Snær Ólafsson Ómar Friðriksson Samþykkt var einróma á fundi í stéttarfélaginu Framsýn síðdegis í gær að félagið drægi samningsum- boð félagsins frá Starfsgreinasam- bandi Íslands. Var mikill hugur í mönnum á fundinum, að því er Að- alsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Framsýn ætlar að slást í för með Eflingu og verkalýðsfélögum Akra- ness og Grindavíkur auk VR í kjara- viðræðunum. Aðalsteinn segir að þessi fjögur félög, en þau afturköll- uðu samningsumboð sitt frá SGS í desember, hafi verið í sambandi við Framsýn og boðið félagið velkomið; að slást í för með þeim. „Það munum við gera,“ sagði hann. Þessi félög eiga mikla samleið að sögn Aðalsteins þar sem VR, Efling, VLFA og VLFG séu þau einu sem hafi alfarið hafnað vinnutímabreyt- ingum sem Samtök atvinnulífsins (SA) hafa lagt til. Slíta og undirbúa aðgerðir Samflot iðnaðarmanna sleit í gær kjaraviðræðunum við SA á fundi hjá Ríkissáttasemjara og hefst undir- búningur verkfallsaðgerða iðnaðar- manna strax. Þannig hefur t.d. samninganefnd VM, Félags vél- stjóra og málmtæknimanna, verið boðuð til fundar í dag þar sem ræða á um hvaða mögulegu aðgerðir fé- lagsmenn fara í á næstu vikum og mánuðum og hver næstu skref eiga að vera í samningaviðræðum iðnað- armanna við SA að því er segir í frétt á vef félagsins. Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Landssambands íslenskra verslunarmanna og SA til sáttafundar í dag og á morgun verð- ur haldinn sáttafundur í deilu SA og verkalýðsfélaganna fjögurra, Efling- ar, VR, VLFA og VLFG, sem eru þessa dagana að ýmist að undirbúa eða hafa þegar boðað verkfallsað- gerðir. Framsýn slæst í för með Eflingu, VR, VLFA og VLFG  Samþykkt einróma að afturkalla samningsumboð SGS Framkvæmdir á lóð Landspítala Háskólasjúkrahúss halda áfram. Stórvirkar vinnuvélar grafa fyrir nýbyggingum dög- um og vikum saman. Ekki sér fyrir endann á framkvæmdum sem standa munu yfir í mörg ár til viðbótar. Sjúklingar, að- standendur og starfsmenn hafa orðið fyrir röskunum og óþægindum sem stafa m.a. af hávaða, ryki og skorti á bíla- stæðum. Stjórnendur Landspítala reyna að eigin sögn að lág- marka ónæði og röskun sem kostur er og leggja áherslu á gott upplýsingaflæði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir á fullu við nýjan Landspítala Gamalt og nýtt á Landspítalalóðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.