Morgunblaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019
www.fi.is
Myndakvöld
Ferðafélags Íslands
Sigurjón Pétursson verður með sýningu af slóðum Árbókar 2019
sem nefnist Mosfellsheiði, landslag, leiðir og saga.
Eftir hlé verður Gísli Óskarsson með frásögn af dagsferð sem lengdist
í annan endann. Myndasýning í minningu Jóhannesar Jónssonar,
rafvirkja.
Verð kr. 600
Innifalið kaffi og kleinur í hléi.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Sími 568 2533 | www.fi.is
Allir velkomnir
Myndakvöld verður í sal FÍ í Mörkinni 6
miðvikudaginn 20. mars kl. 20.00
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meðalaldur frumbyrja í löndum í
Evrópusambandinu (ESB), það er
kvenna sem fæða sitt fyrsta barn,
hefur hækkað stöðugt undanfarin
ár. Árið 2013 var hann 28,7 ár en var
orðinn 29,1 ár árið 2017. Meðalaldur
frumbyrjanna hafði hækkað í öllum
aðildarlöndum ESB en mismikið í
hverju landi um sig. Þetta kemur
fram í tölum frá Eurostat, hagstofu
ESB.
Mesta breytingin á meðalaldri
frumbyrja í ESB varð í Eistlandi þar
sem hann hækkaði um 1,2 ár eða úr
26,5 árum árið 2013 og í 27,7 ár 2017.
Lítil breyting varð á sama tímabili í
Tékklandi (hækkun um 0,1 ár), Sló-
vakíu og Svíþjóð (hækkun um 0,2 ár
í báðum löndunum).
Meðalaldur frumbyrja í aðildar-
löndum ESB árið 2017 var hæstur á
Ítalíu (31,1 ár), Spáni (30,9 ára) og í
Lúxemborg (30,8 ár). Aftur á móti
var meðalaldur frumbyrja undir 27
árum í þremur aðildarríkjanna, það
er í Búlgaríu (26,1 ár), Rúmeníu
(26,5 ár) og í Lettlandi (26,9 ár).
Þróunin hefur verið svipuð í
EFTA-ríkjunum. Á Íslandi var með-
alaldur frumbyrja 27,4 ár árið 2013
en var kominn í 27,9 ár árið 2017. Í
Noregi var meðalaldur frumbyrja
29,3 ár 2017 og hafði hækkað um 0,7
ár frá 2013. Í Sviss var meðalald-
urinn 30,7 ár 2017 og hafði hækkað
um 0,3 ár. Tölur um aldur frumbyrja
í Liechtenstein voru ekki birtar.
Aldur kvenna sem
fæða sitt fyrsta
barn fer hækkandi
Fremur ungar mæður á Íslandi
Meðalaldur evrópskra frumbyrja 2017
Ítalía
Spánn
Lúxemborg
Sviss
Grikkland
Írland
Holland
Kýpur
Portúgal
Þýskaland
Danmörk
Austurríki
Noregur
Svíþjóð
ESB meðaltal
Finnland
Belgía
Malta
Stóra Bretland
Slóvenía
Frakkland
Króatía
Tékkland
Ungverjaland
Ísland
Eistland
Litháen
Pólland
Slóvakía
Lettland
Rúmenía
Búlgaría
31,1
30,9
30,8
30,7
30,4
30,3
29,9
29,7
29,6
29,6
29,4
29,3
29,3
29,3
29,1
29,1
29,0
29,0
28,9
28,8
28,7
28,6
28,2
28,0
27,9
27,7
27,5
27,3
27,1
26,9
26,5
26,1
árs
Heimild: Eurostat
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nærri 400 manns frá Íslandi – að
stærstum hluta konur – eru nú kom-
in til Skotlands á prjónahátíðina
Edinburgh Yarn Festival. Um 3.000
manns taka þátt í hátíðinni sem
haldin er árlega. Formleg dagskrá
stendur yfir frá morgundeginum, 21.
mars, fram á laugardag og í boði
verður kynning á nýjum stefnum og
straumum í prjónaskap og hekli;
mynstrum, uppskriftum og öðru
slíku. Verða margir framleiðendur á
garni með sölubása á svæðinu. Einn-
ig verður efnt til fyrirlestra og pall-
borðsumræðna um prjónaskap al-
mennt.
Menningin sé sýnilegri
„Í prjónamenningu veraldarinnar
er fjölbreytileikinn ráðandi hvað
varðar efni, aðferðir og annað,“ segir
Linda Björk Eiríksdóttir í Reykja-
vík sem er einn íslensku gestanna á
Edinborgarhátíðinni.
„Halda ber því til haga að sum
okkar sem leggja stund á þetta
handverk upplifa sig afskipt. Prjóna-
skapur á að vera fyrir alla, konur
jafnt sem karla, hverjar svo sem að-
stæður eru. Síðan í janúar hafa verið
miklar umræður í prjónaheiminum
um rasisma og mismunun, hvernig
hvítum hönnuðum er gert hærra
undir höfði en öðrum. Einnig hefur
verið komið inn á annars konar mis-
munun, með tilliti til vaxtarlags, fötl-
unar, bæði líkamlegar og andlegar.
Hvernig þessi menning og iðja má
verða sýnilegri, fjölbreyttari og opn-
ari fyrir alla verður rætt á hátíðinni
ytra í pallborðsumræðum á sunnu-
deginum. Hér innanlands má svo
minna á prjónahópa víða um land
þar sem áhugaverðir hlutir eru að
gerast.“
Prjónaði sokka í fluginu
Strax um liðna helgi voru fyrstu
Íslendingarnir mættir á hátíðina
ytra, en hafa svo verið að tínast á
svæðið eftir því sem liðið hefur á vik-
una. Linda Björk og fleiri héldu utan
síðdegis í gær og fóru með beinu
flugi Easy Jet frá Keflavíkurflug-
velli til Edinborgar.
„Ég hlakka mikið til þessa við-
burðar og auðvitað tek ég prjónana
með mér í flug. Á ferðalögum finnst
mér frábært að fitja upp á sokkum
og næ jafnvel einum ef ekki parinu
öllu í einni flugferð,“ segir Linda
sem stendur vaktina í Edinborg á
sýningarbási verslunar bandarísks
prjónahönnuðar, Stephen West, sem
búsettur er í Amsterdam, og rekur
þar verslun.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Prjónaskapur „Ég hlakka mikið til þessa viðburðar,“ segir Linda Björk sem
er með margt á prjónunum, bókstaflega sagt. Hún prjónar á ferðalögum.
Íslenskt prjónafólk fjöl-
mennir til Edinborgar
Handverk í hávegum Prjónahátíð heimsins í Skotlandi
Ljósmynd/Úr einkasafni
Gleði Íslenskt prjónafólk heldur betur skrautlega búið í prjónuðum flíkum, hvað annað, á hátíðinni á síðasta ári.
Vegfarendur um Hellisheiði ættu að
varast holur sem hafa myndast í
vegum þar að undanförnu. Holur
koma gjarnan í ljós í malbiki á þess-
um árstíma, bæði í þéttbýli og á
þjóðvegum landsins. Þetta gerist
jafnan þegar þíða kemur í kjölfar
frosts og kulda. Holur sem þessar
geta haft mikla hættu í för með sér.
„Holur hafa myndast uppá Hellis-
heiði undir línunni á einbreiða kafl-
anum í átt til Reykjavíkur. Vega-
gerðin veit af þessu. Endilega látið
fólk vita sem á leið í bæinn svo það
verði engin tjón á fólki né bílum,“
segir í orðsendingu Páls Bárðarson-
ar til íbúa á Selfossi á Facebook.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir
að ástand vega sé betra í vetur en í
fyrra enda hafi þá aukið fé fengist
til viðhalds. „En við erum alltaf að
setja í holur, fleiri, fleiri tonn. Við
fylgjumst vel með á Hellisheiðinni
og tökum á móti ábendingum um
holur.“
Varað við holum í
malbiki á Hellisheiði
Vegagerðin fylgist með stöðu mála
Viðgerð Malbikað í holur á vegi.
Alls eru 66 einstaklingar í heima-
sóttkví á landinu en ekki hafa greinst
fleiri tilfelli mislinga en þau fimm
sem áður hefur verið greint frá.
Þetta kemur fram í frétt á vef Land-
læknisembættisins en haldinn var
fundur sóttvarnalæknis með um-
dæmis- og svæðislæknum í gær-
morgun.
Fram kemur á vefsíðu landlæknis
að nokkrir einstaklingar hafa að lok-
inni bólusetningu greinst með væg
einkenni mislinga sem orsakast af
verkun bólusetningarinnar. ,,Ef ekki
greinist nýtt tilfelli mislinga á land-
inu fyrir 26. mars eru yfirgnæfandi
líkur á að mislingafaraldurinn hafi
stöðvast,“ segir í fréttinni.
Dreifingu bóluefnis er að ljúka um
allt land. Í heimasóttkví felst að þeir
einstaklingar sem hafa komist í tæri
við sýktan einstakling skulu halda
sig heima frá degi 6 eftir að þeir
komust í tæri við hann og fram að 21.
degi.
Á sjöunda
tug í heima-
sóttkví