Morgunblaðið - 20.03.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 20.03.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Rafræn undirskriftasöfnun hefur staðið yfir á netinu meðal Fljóta- manna til að mótmæla áformum Orkusölunnar, dótturfélags RARIK, um Tungudalsvirkjun í Fljótum. Til stendur að ljúka söfnuninni á mið- nætti í kvöld og afhenda undirskrift- irnar í næstu viku. Síðdegis í gær voru komnar um 550 undirskriftir en slóð á söfn- unina hefur verið inn á Face- book-hópnum „Við erum ættuð úr Fljótunum.“ Sjálf söfnunin fer fram er á vefnum change.org. Orkusalan hélt íbúafund í Fljót- unum á dögun- um, þar sem áformin voru kynnt. Boðað var til fundarins með skömm- um fyrirvara og fór það illa í marga heimamenn, samkvæmt upplýsing- um blaðsins og fór fundurinn fram á miðjum virkum degi. Vatnið hækkar um 8 metra Meðal þess sem kom fram í kynn- ingu Orkusölunnar var að yfirborð Tungudalsvatns mundi hækka um allt að 8 metra. Flatarmál vatnsins myndi fara úr 19 í 32,5 hektara. Ekki voru settar fram kostnaðartöl- ur um framkvæmdina en tekið fram að árlegar tekjur af virkjuninni gætu orðið 50-70 milljónir króna. Uppsett afl virkjunarinnar yrði 1,6- 2,2MW en vatnsréttindin tilheyra jörðinni Tungu, sem er í eigu rík- isins. Þar eru nú sumarbústaðir í leigulandi. Rennslismælingar eru hafnar við útrennsli Tungudalsvatns og munu þær standa yfir í minnst tvö ár. Verða þær mælingar bornar saman við rennsli til Skeiðsfossvirkjunar í Fljótum, sem Orkusalan rekur í dag. Einnig kom fram í kynningunni að byggja þyrfti upp vegslóða við Stíflu og brúa Stífluá. Með þessum fram- kvæmdum myndi aðgengi upp Tungudal batna fyrir bændur og ferðamenn. Birgir Gunnarsson, landeigandi Gautastaða í Stíflu og forstjóri Reykjalundar, hefur í grein í Morg- unblaðinu vakið athygli á virkjunar- áformum Orkusölunnar og gagnrýnt þær. Hann sagði í samtali við blaðið í gær að undirskriftirnar hefðu geng- ið vonum framar og kominn tími á að afhenda þær, til að undirstrika hver hugur Fljótamanna væri. Hann segist eiga erfitt með að sjá hvaða hag Orkusalan hafi af fram- kvæmdinni. Um sé að ræða gríðar- mikla fjárfestingu og 50-70 milljóna króna tekjur geti vart talist miklar í stóra samhenginu. „Þessi virkjun getur aldrei borgað sig og þá spyr maður sig hvað búi að baki,“ segir Birgir og veltir fyrir sér hvort einhver stór kaupandi að orkunni sé ekki búinn að stíga fram. Á vef undirskriftasöfnunarinnar segir: „Við núverandi og fyrrverandi íbúar og landeigendur í Fljótum, og aðrir velunnarar, mótmælum harð- lega hverskonar áformum um virkj- un Tungudalsár í Fljótum með til- heyrandi vegaframkvæmdum og óafturkræfu jarðraski. Tungudalur- inn sem er hliðardalur úr Stíflu er með fallegustu dölum Skagafjarðar, ósnortinn að mestu, og vinsælt úti- vistarsvæði. Áformuð virkjun mun ekki aðeins eyðileggja fallegan dal heldur á hún aðeins að skila 1-2 MW sem er varla ómaksins vert og mun ekki leiða til nokkurrar atvinnu- sköpunar í Fljótum. Við undirrituð teljum það með öllu óásættanlegt að Tungudal sé raskað. Við krefjumst þess að Orkusalan dragi strax til baka hvers konar áform um Tungudalsvirkjun í Fljót- um.“ Fulltrúar Orkusölunnar komu ný- verið á fund byggðaráðs Skagafjarð- ar til að kynna fyrirhuguð áform í Fljótum. Í bókun um málið segir byggðaráð ljóst að meta þurfi áhrif slíkrar framkvæmdar fyrir Fljótin og Skagafjörð. „Ljóst er að afla þarf frekari gagna og fara í meiri rann- sóknarvinnu á svæðinu ætli for- svarsmenn þessa verkefnis að halda áfram með það,“ segir byggðaráð ennfremur. Ljósmynd/Sóley Ólafsdóttir Tungudalsvatn Tungudalur gengur inn af Stíflu í Fljótum. Yfirborð vatnsins í dalnum mun hækka um 8 metra gangi virkjunaráformin eftir. Mótmæla virkjun í Tungudal  Fljótamenn safna undirskriftum til að mótmæla áformum Orkusölunnar um Tungudalsvirkjun  Telja virkjunina ekki borga sig  Rennslismælingar hafnar  Söfnun undirskrifta lýkur í kvöld Birgir Gunnarsson SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FYRIR BÍLINN ENDURHEIMTIR UPPRUNALEGT ÚTLIT OG LIT VERNDAR FYRIR UMHVERFISÁHRIFUM AUÐVELT AÐ BERA Á FLÖTINN ENDIST LENGI GÚMÍ NÆRING FYRIR DEKK Brasilísk kona á þrítugsaldri sætir nú gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla 37 pakkningum af kóka- íni til landsins í síðasta mánuði. Konan var að koma frá Madrid á Spáni þegar Tollgæslan stöðvaði hana í Leifs- stöð. Lögreglan á Suðurnesjum handtók hana og færði á lögreglustöð. Þar skilaði hún af sér efnunum sem hún hafði komið fyrir í leggöngum, maga og meltingarvegi. Samtals var um að ræða 400 grömm af kókaíni. Við skýrslutöku kvaðst hún hafa átt að fá 7.000 evrur eða tæplega eina milljón króna fyrir flutninginn. Með 37 kókaínpakkningar innvortis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.