Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 15

Morgunblaðið - 20.03.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 GLÆNÝ LÚÐUFLÖK 1990 KR/KG Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er baráttuhugur í hópnum hjá okkur þó að menn hefðu viljað ganga frá samningi án þess að til þessa kæmi,“ segir Kristján Þórður Snæ- bjarnarson, formaður Rafiðnaðar- sambands Íslands. Iðnaðarmenn slitu viðræðum við Samtök atvinnulífsins í gær og segir Kristján að nú þurfi að leita annarra leiða til að knýja fram kröfur iðnað- armanna. „Það verður ekki lengra komist í einhverju samtali. Þolin- mæði okkar er á þrotum. Nú munum við funda í baklöndum okkar, samn- inganefndir allra sem eru í samfloti iðnaðarmanna munu sækja heimild til að fara í verkföll. Svo munum við taka okkur tíma í að skipuleggja þær aðgerðir sem við ætlum að fara í.“ Fjölmargir samningafundir hafa verið í deilunni en Kristján vill ekki meina að samningur hafi verið í sjón- máli. „Það er ekki hægt að segja að við höfum verið komin rosalega langt í öllum málum. Við vorum komin áfram með ákveðin málefni en það fór í ákveðinn baklás fyrir rúmri viku sem gerir það að verkum að því fór sem fór. Ég veit ekki hvert fram- haldið verður, hvort áfram verði unnið með það sem þegar lá fyrir.“ Voru farin að ræða launaliðinn Í fyrradag slitnaði upp úr viðræð- um Starfsgreinasambandsins og SA. Aðgerðanefnd SGS var boðuð til fundar eftir hádegið í gær og mun skila tillögum um aðgerðir eftir helgi. Allt að 20 þúsund félagsmenn gætu farið í verkföll í apríl eða maí fari sem horfir. „Við vorum auðvitað búin að sitja yfir þessu síðustu vikur og vinna heilmikla vinnu. Hún er enn til stað- ar, það vantar bara upp á að hægt að sé að klára,“ segir Hjördís Þ. Sig- urþórsdóttir, varaformaður Starfs- greinasambandsins Hjördís segir að steytt hafi á deil- um um breytingar á vinnutíma enda hafi alla tíð verið ágreiningur um þær. Hún játar því hins vegar að við- ræður hafi verið komnar vel á veg í flestum málum, til að mynda er varð- ar launalið samninga. „Já, við höfum rætt launaliðinn. Við vorum komin á rekspöl í flestum málum,“ segir Hjördís. Nýti tímann fram að verkfalli Þar með er ljóst að flest stærstu verkalýðsfélögin undirbúa nú eða eru að hefja verkfallsaðgerðir. Á föstudag hefst fyrirhugað sólar- hringsverkfall starfsfólks í gistiþjón- ustu og hjá hópbifreiðafyrirtækjum. „Það er alveg ljóst að Samtök at- vinnulífsins hafa nánast lýst yfir stríði við verkalýðshreyfinguna. Þau hafa ekki viljað fá okkur að borðinu en hafa í þrjár vikur reynt að fá Starfsgreinasambandið og fleiri til að semja frá sér réttindi. SA hafa neitað að hækka tilboðið sem er á borðinu en það felur í sér kaupmátt- arrýrnun. Það hefur ekki einu sinni verið vilji til að hækka sig upp í verð- bólgumarkmið Seðlabankans. Mað- ur spyr sig því hverjum það sé að kenna að það sé allt að stefna í átaka- ferli hér, á ábyrgð hvers er þessi staða?“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, talar á svipuðum nótum. Hann segir að forsendur og markmið SA hafi allan tímann snúist um þessar vinnutímabreytingar. „Mér finnst það hafa tekið marga ansi langan tíma að átta sig á því hvað þarna var um að vera. Ég tel samt að það sé hægt að leysa þessa deilu og tel að það eigi að nýta þessa fáu klukkutíma sem eru eftir fram að verkfalli til að forða íslenskum vinnumarkaði frá hörðum átökum.“ Um tvö þúsund manns leggja að óbreyttu niður störf á föstudag, þar af um 970 manns hjá VR. Ragnar segir að undirbúningur verkfalla gangi mjög vel. „Hópurinn er mjög þéttur og það er mikill hugur í fólki.“ Ragnar segir að minnst ein fyrir- spurn um undanþágu í verkfallinu hafi borist og fari slík mál í farveg verkfallsnefndar. Telja sig tapa réttindum Morgunblaðinu hafa borist ábend- ingar um óánægju launþega sem fara í verkfall þó að þeir hafi ekki kosið í þá veru. „VR segist greiða okkur styrk sem miðast við full laun. Ég get ekki séð að þeir greiði okkur tapaðar lífeyrissjóðsgreiðslur frá vinnuveitanda, séreign og skyldu (mótframlagið) og þeir greiða okkur ekki tapaða áunna orlofsdaga,“ segir í orðsendingu til blaðsins. Ragnar segir að þessi mál séu til skoðunar. „Við bætum fólki tekju- tapið og erum að reyna að finna leiðir til að bæta fólki kjörin að fullu. Það er ekki búið að taka neina ákvörðun enn. En þetta eru ekki mikil réttindi sem tapast.“ „Þolinmæði okkar er á þrotum“  Iðnaðarmenn slitu viðræðum við SA í gær  Stefnir í verkföll hjá flestum verkalýðsfélögum  Tvö þúsund leggja niður störf á föstudag  Félagsmenn í VR hafa áhyggjur af töpuðum réttindum Morgunblaðið/Árni Sæberg Sáttafundur Slitnað hefur upp úr viðræðum Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.