Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
✝ Vigfúsína B.Pálsdóttir
fæddist á Seyðis-
firði 22. ágúst
1960. Hún lést á
Landspítalanum
Hringbraut 9. apríl
2019.
Foreldrar Vig-
fúsínu voru Páll
Dagbjartsson, f. 30.
júlí 1932, d. 18.
apríl 2017, og Guð-
rún Magnúsdóttir, f. 27. ágúst
1936.
Bræður Vigfúsínu voru Dag-
bjartur, f. 3. ágúst 1959, og
Magnús, f. 17. maí 1964.
Bessý Guðmundsdóttur. Sigrún
á börnin Margréti Líf Margeirs-
dóttur, Eið Inga Margeirsson,
Guðmund Leví Margeirsson og
Freyju Margeirsdóttur. 3) Dag-
björtu Ýr Kiesel, f. 27. júlí
1991, í sambúð með Kristni
Magnúsi Péturssyni. Sonur
þeirra er Birgir Páll Kiesel
Kristinsson, f. 25. nóvember
2018. Jóhann á fyrir börnin 1)
Kristján Freyr Jóhannsson, f.
26. desember 1970 2) Pétur Ás-
björns Jóhannsson, f. 2. október
1975 og 3) Elsu Ingibjargar-
dóttur, f. 5. júní 1983.
Vigfúsína og Jóhann voru
búsett á Höfn í Hornafirði þar
sem Vigfúsína starfaði sem
verkstjóri í fiskiðjuveri Skinn-
eyjar-Þinganess.
Útför Vigfúsínu fer fram frá
Hafnarkirkju á Höfn í Horna-
firði í dag, 27. apríl 2019,
klukkan 14.
Eftirlifandi eig-
inmaður Vigfúsínu
er Jóhann Kiesel, f.
27. maí 1951. For-
eldrar hans voru
Charles Arthur
Kiesel, f. 20.
nóvember 1929, d. í
mars 1972 og Elsa
Björnsdóttir, f. 23.
júlí 1933, d. 7. júlí
1974. Jóhann og
Vigfúsína eiga þrjú
börn: 1) Pál Heimisson, f. 26.
febrúar 1982, í sambúð með
Daniel Bagarean. 2) Jóhann
Berg Kiesel, f. 12. október
1989, í sambúð með Sigrúnu
Elsku hjartans mamma mín.
Þegar ég bauð þér góða nótt
mánudagskvöldið 8. apríl datt
mér síst af öllu í hug að orðin ég
elska þig yrðu mín síðustu orð til
þín.
Ó hve sárt það er að sjá á eftir
þér og mikið mun ég sakna þín en
umfram allt þakka ég þér fyrir
lífið og ástina sem þú barst til
mín.
Þegar Birgir Páll spyr í fram-
tíðinni um ömmu Viffu mun ég
segja honum frá hornsteini fjöl-
skyldunnar, duglega vinnuþjark-
inum sem lét aldrei deigan síga.
Mömmu minni, sem var alltaf til
staðar, með bros á vör á fagn-
aðarstundu og huggandi öxl þeg-
ar á reyndi. Ósérhlífin, jákvæð,
ljúf og góð. Ég veit að þið afi fylg-
ist með okkur í sameiningu þang-
að til við hittumst næst.
Til himnaríkis ég sendi,
þér kveðju mamma mín.
Á því virðist enginn endi,
hve sárt ég sakna þín.
Þú varst stoð mín og styrkur,
þinn kraftur efldi minn hag.
Þú fældir burtu allt myrkur,
með hvatningu sérhvern dag.
Nú tíminn liðið hefur,
en samt ég sakna þín.
Dag hvern þú kraft mér gefur,
ég veit þú gætir mín.
(Steinunn Valdimarsdóttir)
Takk fyrir að leyfa mér að
elska þig og elska mig skilyrðis-
laust til baka.
Dóttir þín,
Dagbjört Ýr Kiesel.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Elsku fallega systir mín var
tekin frá okkur á stuttum tíma.
Hún veiktist fyrir rúmu ári og
hófst þá mikil barátta við erfitt
krabbamein. Baráttan var vissu-
lega erfið, en aldrei kvartaði
Viffa, það var ekki hennar stíll.
Á þessari stundu streyma
margar minningar fram í hug-
ann, sérstaklega frá því þegar við
vorum krakkar að alast upp á
Seyðisfirði í barnmörgu hverfi.
Það er rétt um ár á milli okkar
Viffu og vorum við mjög sam-
rýnd, en eins og er alltaf með tvö
elstu börn þá vorum við að eðlis-
fari ólík, Viffa kröftug, ákveðin
og hvatvís, en ég …
Ég man eftir því þegar við vor-
um lítil, svona þriggja og fjög-
urra ára, að leika okkur heima á
Seyðisfirði, þegar ég missti
kubbakassann ofan á aðra stóru
tána þína og brákaði hana. Þú
tókst þessu með æðruleysi,
kvartaðir ekki og borðaðir síðan
helminginn af mínu lakkrísröri.
Ég man líka eftir því þegar við
keyptum okkur okkar fyrstu LP-
plötu í fríi á Akureyri, í búðinni
með rúllustiganum. Ég keypti
mér plötuna Harvest með Neil
Young og þú keyptir þér plötuna
Now & Then með Carpenters og
spilaðir hana stöðugt það sem
eftir var sumars og allan næsta
vetur og allt næsta ár og þá sér-
staklega lagið „Yesterday Once
More“. Fljótlega eftir þetta skildi
leiðir, þú fórst í Reykholt í
Borgarfirði og síðan í Verslunar-
skólann og settist síðan að á Höfn
þar sem foreldrar okkar bjuggu.
Við fórum oft saman í frábær-
ar útilegur, við systkinin með alla
krakkana okkar, ásamt mömmu
og pabba. Þá var oftast farið
austur á Hérað eða á Laugar-
vatn.
Alltaf var gleði og yfirvegun í
fyrirrúmi og stutt í húmorinn hjá
þér. Þá kom bersýnilega í ljós
hvað þú og pabbi höfðuð líka
lund, bæði rökföst og fylgin
ykkur.
Á þessum tímamótum verður
manni hugsað til Karenar Car-
penter syngja lagið „Yesterday
Once More“, mikið vildi ég að ég
gæti fengið þó ekki væri nema
einn „gærdag“ aftur með þér,
elsku systir.
Elsku Jói, Palli, Jóhann
Bergur, Dagbjört, makar og
barnabörn, mamma og Maggi
bróðir, megi drottinn almáttugur
veita ykkur styrk á þessari erfiðu
stundu og hjálpa ykkur í gegnum
þessa miklu sorg og við ykkur
segi ég:
Íklæðist því eins og Guðs útvalin, heil-
ög og elskuð börn hjartagróinni með-
aumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð
og langlyndi.
Umberið hvort annað og fyrirgefið
hvort öðru ef einhver hefur sök á hend-
ur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyr-
irgefið ykkur, svo skuluð þið og gera.
En íklæðist yfir allt þetta elskunni sem
bindur allt saman og fullkomnar allt.
Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar
því að Guð kallaði ykkur til að lifa sam-
an í friði sem limi í einum líkama.
Verið þakklát.
(Úr Kólossubréfinu 3. kafli, 12.-15.)
Þinn bróðir,
Dagbjartur (Daddi).
Elsku besta vinkona mín hún
Viffa er dáin, langt fyrir aldur
fram. Það er með sorg í hjarta að
ég kveð mína bestu vinkonu með
þessum fátæklegu orðum.
Við Viffa vorum bekkjarsystur
og kynntumst í Heppuskóla. Hún
var nýflutt frá Seyðisfirði, þessi
glæsilega rauðhærða stúlka, eld-
klár, gekk vel að læra, hafði allt
til að bera, góðar gáfur og glæsi-
leika.
Við brölluðum margt saman á
unglingsárunum, aldrei slitnaði
vinkonusamband okkar, þótt hún
flytti til Reykjavíkur, hún fór í
Versló og vann í Skífunni, átti
alltaf fallegustu fötin og flottustu
skóna, man það eins og gerst hafi
í gær þegar hún lánaði mér svo
undurfallega vínrauða skó fyrir
eitthvert ballið, skórnir voru allt
of stórir en í skóna skyldi ég fara,
því var reddað með ullarsokkum
og brúnu útvíðu flauelsbuxurnar
huldu sokkana, við vorum oft
búnar að hlæja að þessu uppá-
tæki.
Minningarnar eru ótalmargar
og fallegar. Við eignuðumst
frumburðina okkar með tveggja
ára millibili, móðurhlutverkið átti
vel við okkur, við hittumst yfir-
leitt eftir hádegi, bjuggum báðar
í sama hverfinu, skoðuðum
Búrdablöð og drukkum kaffi með
nýbakaðri skúffuköku, kíktum
síðan í kaupfélagið, keyptum efni
í ný barnaföt eða nýjar flíkur, og
stóra herðapúða, því engin var
skyrtan á þeim árum nema
herðapúðarnir næðu vel út fyrir
axlirnar.
Ég gleymi ekki þeirri stund
þegar þú baðst mig að vera við-
stödd fæðingu Jóhanns Bergs.
Jói var úti á sjó og myndi jafnvel
ekki ná því að vera heima hjá þér
þegar barnið fæddist. Það var nú
meira en sjálfsagt, ég var í miðri
sláturgerð þegar þú hringdir, það
breytti engu. Fæðingin gekk vel,
heilbrigður fallegur drengur,
rauðhærður með blá augu, fædd-
ist í þennan heim. Stórkostleg
stund sem aldrei gleymist.
Ég hélt í hönd þína þá eins og
nú í veikindum þínum.
Þú varst fagurkeri, heimili
ykkar Jóa var einstaklega fallegt,
listmunir og merkjavara var eitt
af þínum áhugamálum. Fallegar
myndir og málverk prýddu veggi
heimilisins og Gucci-belti og
-skór var alger draumaeign,
veski frá Louis Vuitton hékk í
forstofunni.
Í fyrrasumar sagðir þú mér að
þú ætlaðir að gifta þig, það var
mikil gleði í augum þínum. Þú
sýndir mér fallegt efni í brúðar-
kjól, kjóllinn var saumaður eftir
þínum óskum, það var allt fallegt
við þennan undirbúning. Þú
geislaðir og áttir gott sumar,
fórst með fjölskylduna þína til
Búdapest, sannkölluð fjölskyldu-
ferð.
Þú prjónaðir svo fallega á
fyrsta barnabarnið þitt, það var
allt fallegt sem þú gerðir. Þú
varst með ýmislegt á prjónunum
núna líka handa litlum dreng.
Ömmuhlutverkið átti vel við þig.
Það átti að skíra barnabarnið
þitt í janúar. Þú hringdir í mig til
að fá skírnarkjólinn lánaðan og
við settum bláa borða og slaufur
á kjólinn alveg eins og við gerð-
um forðum daga þegar þín börn
voru skírð.
Elsku fallega vinkona mín, nú
ertu komin í Sumarlandið þar
sem haustlitirnir skarta sínu feg-
ursta, það voru þínir uppáhalds-
litir.
Þú varst svo sterk og dugleg,
sýndir mikið æðruleysi í veikind-
um þínum, en tilkynntir mér í
janúar að þú værir komin aftur á
byrjunarreit eins og þú orðaðir
það, áfallið var mikið.
En fyrst og fremst varstu fjöl-
skyldumanneskja sem vildir
börnum þínum allt það besta og
þið hjónin voruð samstiga í því.
Mikið á ég eftir að sakna þín
og okkar skemmtilegu samveru-
stunda, og orða þinna eins og
„droppaðu í kaffi“ eða „ókeijó“
sjáumst seinna.
Elsku Jói, Palli, Jóhann, Dag-
björt, Gulla og fjölskyldur.
Við Pétur vottum ykkur inni-
lega samúð. Megi góður guð
styrkja ykkur á erfiðum tímum.
Þín vinkona
Jóna Kristín Freysteins-
dóttir.
Eins og djúpan ilm, sem fer
aldrei burt, en heldur sér,
minning um þig innst ég geymi,
ímynd þinni úr huga mér
aldrei gleymi – öðru ég gleymi –
ekki þér.
(Y.J.)
Hún kemur þjótandi úr kaffi-
stofunni í Skinney fyrir rúmu ári,
heldur á könnu, eins og oftast
hefur hún fyllt hana svo hressi-
lega af kaffi, að sletturnar gusast
út um allt. Hún horfir snöggt á
slóðina, við tuldrum báðar nokk-
ur vel valin orð, svo er hún rokin.
Við höfum átt langa samleið á
þessum vinnustað og skiljum
hvor aðra án mikilla málaleng-
inga.
Þetta er Viffa.
Ekki hefði mörgum dottið í
hug að þessi kona væri nýlega
komin úr liðskiptaaðgerð, né
heldur að sá sjúkdómur sem nú
hefur lagt hana að velli væri tek-
inn að herja á hana.
Viffa var algjört hörkutól og
þegar hún var spurð um veikindi
sín, sagðist hún bara ekkert vera
að velta sér upp úr þessu dags-
daglega. Þeir sem kvarta og
kveina út af smámunum gætu
lært margt af hennar sögu.
Starfsferill hennar var að
mestu leyti hjá Skinney/Þinga-
nesi. Hún var fæddur leiðtogi,
sem stjórnaði af festu og sann-
girni. Viffa var mjög vinsæll
verkstjóri, óumdeild og aldrei
heyrði ég henni hallmælt. Að um-
gangast hana gerði alla daga
betri.
Það er sagt að maður komi í
manns stað, en fráfall Viffu sýnir
okkur hversu mikið öfugmæli
þetta er, því aldrei mun neinn
koma í hennar stað.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldu hennar.
Sigrún Benediktsdóttir.
Vigfúsína B.
Pálsdóttir
Elskulega Anna,
í þessari síðustu
kveðju minni til þín
verða orð mín fá-
tæk, lundin er sár
og andinn beygður.
Eins og svo oft áður, þegar ég sit
við að skrifa þér línu, hef ég
fundið mér athvarf í andartaks-
stund við eldhúsborðið mitt,
stund sem ég helga því að pára
til þín um hugsanir mínar og
hagi. Efst í mínum huga á þess-
ari stundu er þakklæti fyrir að
hafa fengið að kynnast örlæti
Anna Árnadóttir
✝ Anna Árna-dóttir fæddist
28. júlí 1927. Hún
lést 11. apríl 2019.
Útför Önnu var
gerð 20. apríl 2019.
þínu og gæsku,
hispursleysi, seiglu
og jákvæðni sem
hefur markað spor í
mína ókomnu fram-
tíð. Elskulega
Anna, góða ferð yfir
til Nangijala.
Við ferðalok þú hvílist,
í hvelfdum kyrrðar-
boga,
og veist að eilífð alla
mun ævisól þín loga.
Þú lítur farna vegu
í lífi yndislegu
við lygna himinsvoga.
(Jóhann Guðni Reynisson)
Þín tengdadóttir,
Hrund Apríl
Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og
útfarar hjartans elsku eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og bróður,
SVEINS JÓNSSONAR,
blikksmiðs, tamningamanns
og verktaka,
Arnarhrauni 25, Hafnarfirði.
Þökkum öllum sem önnuðust hann á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Sérstakar þakkir til Karlakórs Grafarvogs.
Íris Högnadóttir
og fjölskylda hins látna
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HREINN SUMARLIÐASON,
kaupmaður og fv. formaður
Félags matvörukaupmanna,
Erluhólum 5,
lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð,
Borgarnesi, 16. apríl.
Útför hans fer fram í Áskirkju föstudaginn 3. maí klukkan 13.
Sigurlína Hreinsdóttir
Ágústa Hreinsdóttir Sigurður Ómar Sigurðsson
Jóna Magga Hreinsdóttir Elvar Ólafsson
barnabörn og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR JÓNSSON,
Smyrlahrauni 48,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu 17. apríl.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
30. apríl klukkan 11.
Drífa Ingimundardóttir
Þóra Birna Ásgeirsdóttir Númi Arnarson
Ingi Björn Ásgeirsson Kristín Bridde
og barnabörn
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför foreldra okkar, tengdaforeldra, afa og ömmu,
JÓNS RUNÓLFSSONAR
og
ÁGÚSTU BJÖRNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á hjúkrunarheimilinu
Mörk í Reykjavík fyrir góða umönnun, alúð og umhyggju.
Bragi Jónsson
Unnur Jónsdóttir
Inga Jónsdóttir Friðfinnur Finnbogason
Jón Ágúst Jónsson Margrét Jónsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HÓLMFRÍÐUR BERGEY GESTSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
í Kópavogi 18. apríl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 2. maí klukkan 13.
Margrét Kristín Finnbogad. Björn Benediktsson
Einar Finnbogason Þórhildur Magnúsdóttir
Hafdís Finnbogadóttir Jón Karl Kristjánsson
Hörður Finnbogason Unnur Rut Rósinkransdóttir
Trausti Finnbogason Cheiryl Cadete
barnabörn og langömmubörn