Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 VELKOMIN Í URÐARAPÓTEK TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Tónlistarhátíðin Heima eða HEIMA fór nú fram í sjötta sinn í Hafnarfirðinum. Hátíðin er haldin að færeyskri fyrirmynd og gengur út á að tónleikar eru haldnir í heimahúsum. Listamenn og hljóm- sveitir af alls kyns toga komu fram víða um Hafnarfjörð, einkum miðsvæðis þó, og eins og nærri má geta var nándin mikil. Gestgjafar buðu gjarnan upp á léttar veit- ingar, bjórdósir og snakk uppi á teikniborðum barnaherbergja og krukkur þar sem hægt var að setja fráls framlög. Fríkirkjan í Hafnarfirði og Bæjarbíó luku einnig upp dyrum sínum. Rás 2 var þá á staðnum og útvarpaði hluta dagskrárinnar. Það er eitt- hvað svo – mannlegt – að gera þetta svona og áhrifin af þessu fyrirkomulagi eru lúmskt mögnuð. Ég renndi í hlaðið hjá þeim Gunnþóru og Michael á Vesturgöt- unni um áttaleytið, nákvæmlega eins og ég gerði í fyrra. Það er tvíbýli, nánast, á Vesturgötunni, og í hinu húsinu var það sjálfur Svavar Knútur sem sló sína fögru tóna, og renndi hátíðinni úr hlaði. Hvað mig áhrærir a.m.k. Svavar fékk að nudda eyru landsmanna fyrir tilstilli Rásar 2 en eftir að hafa hlýtt á hann skellti ég mér til Gunnþóru og Michaels aftur, en Svala (Björgvinsdóttir) var þar komin með hljómsveit. Flutti hún ylhýrar og strípaðar útgáfur af lögum sínum, hvar sterk og falleg rödd hennar fékk heldur betur að njóta sín. Ég brá mér þvínæst á röltið, og ákvað að leita uppi hina heil- ögu þrenningu. Prins Póló, Mugi- son og Jónas Sig. Þessir menn eru allir listrænt tengdir í mínum huga, og eiga það sameiginlegt að hafa heillað heila þjóð – „venju- legt“ fólk sem „óvenjulegt“ – án Heimalningur í Hafnarfirði þess að gefa tommu eftir í listræn- um heilindum. Nei, í alvöru, tón- list þeirra er ekki beint aðgengi- leg, þannig séð, en samt er Íslendingurinn að dýrka þetta. En, þessar pælingar þurfa að leita annað en hingað. Ég náði Jónasi heima hjá Ingimari, pabba Matt- híasar Árna vinar og kollega, og það var eins gott að ég var snemma í því þar sem húsið fyllt- ist fljótt af fólki og það var ekki hægt að skipta um skoðun þarna inni. Prins Póló, í honum heyrði ég en sá ekki, sökum húsfyllis. Dásamlegt! Mugison, eins var með hann, en ég læddi mér í bakgarð- inn og gat numið hvernig snilldin lak út á flöt. Ég gekk síðan sem leið lá aft- ur til vina minna á Vesturgötunni. Þar var og kona mín og börn. Og þar voru langbestu tónleikar dags- ins. Ragna, Cell7, kom og einfald- lega rústaði þessu. Tók þetta í nefið. Hún er SVÖL, það er bara þannig. Stóð þarna ein uppi við gulan vegg og sló í gegn. Með henni var trymbill, Lóa, sem stýrði tölvu og lék listavel á settið. Hildur kom þá sterk inn í nokkur lög og setti dásemdar klúbba- stemningu á dæmið. Ungir sem aldnir voru farnir að ólmast, hoppa og skríkja og það var meira eins og við værum inni á Wembley undir blálokin. Þetta með að opna hús sín fyrir ókunnugum bjó til mjög „mennska“ stemningu sem var gefandi, það er ekki hægt að orða það öðruvísi. Tónlistin sefar, styrkir og sameinar, því að henn- ar er mátturinn og dýrðin. Ég ók sæll og sáttur til höfuðborgar- innar, með fjölskylduna meðferðis, og sama var uppi á teningnum hjá þeim. Til mikillar fyrirmyndar. Heima er best! »Ég brá mér því-næst á röltið, og ákvað að leita uppi hina heilögu þrenningu. Prins Póló, Mugison og Jónas Sig. Tónlistarhátíðin Heima fór fram í ýmsum heimahúsum í Hafnar- firði nú á miðvikudag- inn, síðasta vetrardag. Pistilritari rölti um göt- ur bæjarins og þáði góðgjörðir úr höndum tónlistargyðjunnar. Morgunblaðið/Eggert Gleði Söngvaskáldið Svavar Knútur gladdi tónleikagesti með einlægni. Gull Prins Póló syngur fyrir gesti í heimahúsi með gyllta kórónu sína. Forseti Íslands afhenti heiðurs- verðlaun Orðstírs í þriðja sinn við hátíðlega athöfn á á Bessastöðum í gær. Verðlaunahafarnir þetta árið eru Silvia Cosimini frá Ítalíu og John Swedenmark frá Svíþjóð. „Silvia og John eru bæði mikils- virkir þýðendur með brennandi áhuga á íslenskum bókmenntum og tungu. Silvia hefur þýtt samtals um 70 verk úr íslensku á ítölsku og er jafnvíg á ólíkar bókmenntateg- undir. Meðal íslenskra höfunda sem hún hefur þýtt verk eftir má nefna Halldór Laxness, Hallgrím Péturs- son, Guðberg Bergsson, Sjón, Svövu Jakobsdóttur og Arnald Indriðason. John hefur þýtt tæp- lega 50 verk úr íslensku á sænsku, meðal annars eftir rithöfundana Gerði Kristnýju, Jón Kalman, Þór- arin Eldjárn, Lindu Vilhjálms- dóttur, Steinunni Sigurðardóttur og Gyrði Elíasson. Samanlagt hafa farið frá þeim einar 120 vandaðar þýðingar. Fjölhæfni þeirra og fag- mennska er einstök og starf þeirra fyrir íslenskar bókmenntir ómetan- legt,“ segir í tilkynningu. Verðlaunahafarnir taka þátt í umræðum um þýðingar í Veröld – húsi Vigdísar á morgun kl. 15. Hlutu Orðstír 2019  Verðlaunahafarnir tveir hafa samanlagt þýtt 120 verk úr íslensku Farsæl Silvia Cosimini og John Swedenmark voru heiðruð á Bessastöðum. Morgunblaðið/Eggert Verðlauna- danssýningin Crescendo eftir Katrínu Gunn- arsdóttur snýr aftur á svið í Tjarnarbíói í eina kvöld- stund, en verk- ið er sýnt í kvöld kl. 20.30. „Crescendo var hluti af síðasta leikári Tjarnarbíós og hlaut Grímuverðlaun fyrir bæði dans- höfund ársins 2018 og hljóðmynd ársins 2018. Að sýn- ingu lokinni halda Katrín og aðstandendur verksins í sýningarferðalag til Sviss en Crescendo verður meðal annars sýnt á hinni virtu danshátíð Tanzfest Basel,“ segir í tilkynningu. Dansarar eru Heba Eir Kjeld, Snædís Lilja Ingadótt- ir og Védís Kjartansdóttir. Sviðsmynd og búninga hannaði Eva Signý Berger. Hljóðmynd gerði Baldvin Magnússon og um lýsingu sá Jóhann Friðrik Ágústs- son. Crescendo sýnd í kvöld Kammerkór Mosfellsbæjar efnir til vortónleika í Há- teigskirkju á morgun, sunnudag, kl. 17 undir stjórn Símons H. Ívarssonar. Flutt verður Flamenco-messa eftir spænsku tón- skáldin Paco Peña og José Torregrosa. Einnig syngur kórinn verk eftir Báru Grímsdóttur, Þorkel Sigur- björnsson, Pál Ísólfsson, Leonard Cohen, Ludwig van Beethoven og fleiri, þar á meðal nokkur lög ættuð frá Suður-Afríku. Einsöngvarar með kórnum eru Ástrún Friðbjörns- dóttir, Björn Traustason og Kristín R. Sigurðardóttir. Ívar Símonarson leikur á gítar. Flamenco í Háteigskirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.