Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 56
laugardaga frá kl. 11 til 17 sunnudaga frá 13 til 17
Sími 568 9512
Opið virka daga frá kl. 11 til 18
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen)
40-70%
afsláttur
af öllum
vörum
Troðfull
verslun af
merkjavöru
Árlegt Stórsveitamaraþon hefst
klukkan tólf á morgun í Flóa í
Hörpu. Stórsveit Reykjavíkur býður
til sín yngri og eldri stórsveitum
landsins og mun hver hljómsveit
spila í hálftíma. Þá munu flytjendur
verða um 180 á öllum aldri, frá
börnum til eldri borgara. Segja
skipuleggjendur dagskrána vera
fjölbreytta og skemmtilega.
Stórsveitamaraþon
í Hörpu á morgun
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 117. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Staðan í einvígi Reykjavíkurliðanna
KR og ÍR um Íslandsmeistaratitil
karla í körfubolta er orðin jöfn, 1:1,
eftir nokkuð öruggan sigur KR-inga
í Breiðholti í gærkvöld, 86:73. Liðin
mætast næst í Vesturbænum á
mánudagskvöld en vinna þarf þrjá
leiki til að landa titlinum. Jón Arn-
ór Stefánsson gat ekki leikið
með KR í seinni hálfleik. »48
Meistararnir jöfnuðu
metin í Breiðholti
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt
sem Diddú, verður gestur Gunnars
Guðbjörnssonar í viðtalstónleika-
röðinni DaCapo á morgun. Verða
þeir haldnir klukkan fjögur í Salnum
í Kópavogi.
Þá verður farið yfir óperusöngferil
Diddúar, sem hófst 1988 þegar hún
fór með hlutverk Olympiu í Ævin-
týrum Hoffmanns í Þjóðleikhúsinu.
Síðasta vetur
túlkaði hún
hlutverk
Prímadonn-
unnar Car-
lottu í Phan-
tom of the
Opera í
Eldborg-
arsal
Hörpu.
Diddú gestur á viðtals-
tónleikunum Da Capo
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sérstakir tónleikar, Northern Brass-
Works, sem eru verkefni Vestur-
Íslendingsins Richards Gillis, verða
haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 30. apríl næstkomandi
og hefjast þeir klukkan 20. Aðeins
verður um þessa einu tónleika að
ræða.
Tónlistarmennirnir Jón Rafnsson,
bassaleikari og kennari við Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar, og Björn Thor-
oddsen gítarleikari hafa unnið að
skipulagningu tónleikanna með Rich-
ard Gillis, sem er prófessor við tón-
listardeild Manitoba-háskóla í Winni-
peg í Kanada. „Við Bjössi kynntumst
honum þegar við spiluðum í Manitoba
á landafundaafmælisárinu 2000, og
höfum haldið góðu sambandi síðan,“
segir Jón. Hann bætir við að Kanada-
maðurinn hafi oft komið til Íslands
frá aldamótum, sé ákaflega stoltur af
íslenska upprunanum og hafi lagt
rækt við að kynnast skyldfólki á Ís-
landi. Að þessu sinni hafi hann langað
til þess að vekja athygli á umræddu
verkefni, þar sem lögð er áhersla á
flutning nýrra tónverka fyrir málm-
blásturshljóðfæri.
Háskólakennarar í tónlist
Auk Richard Gillis (áður Gíslason),
sem leikur á trompet, koma
fram Glen Gillis, bróðir
hans og saxófónleikari,
sem jafnframt er prófess-
or í tónlist við Háskólann í
Saskatchewan, bás-
únuleikarinn Jonathan
Gillis, sonur Richards,
Bandaríkjamaðurinn
James Cunningham,
sem spilar á ástralska
hljóðfærið didgeridoo og
starfar sem dósent við
Florida Atlantic-háskólann, og Helga
Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við Bjössi
spilum ekki með Richard á tónleikum
á Íslandi heldur sitjum úti í sal og
hlustum,“ segir Jón. „Þessi tónlist
þeirra, sem er samin og útsett af
Richard, Glen og James og er ekki
beint djass þrátt fyrir spuna,
hefur vakið athygli í Kanada
og ég hlakka mikið til tón-
leikanna.“
Richard hefur útsett lög og
spilað þau með Birni, Jóni, Guit-
ar Islancio og Stórsveit
Reykjavíkur inn á plötur,
auk þess sem hann og
Björn hafa gefið út
nokkrar plötur undir
nafni Cold Front. „Við bíð-
um spenntir eftir þessu
nýja útspili,“ segir Jón en
miðasala er á tix.is og við
innganginn.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Trompetleikarinn Vestur-Íslendingurinn Richard Gillis kemur með hljómsveit og heldur tónleika á þriðjudag.
Vestur-Íslendingurinn
Gillis blæs nýja tóna
Kemur með tónlistarmenn að vestan og heldur tónleika
Jón
Rafnsson