Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 ✝ Ásgeir Sigurð-ur Ingólfur Sigurðsson fæddist 21. nóvember 1937 á Ljótsstöðum í Laxárdal í Suður- Þingeyjarsýslu. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Eyri á Ísafirði 20. apríl 2019. Foreldrar hans voru Þórlaug Þur- íður Hjálmarsdóttir, f. 20. desember 1906, d. 18. septem- ber 1972, og Sigurður Aðal- steinn Helgason, f. 23. septem- ber 1896, d. 27. maí 1964. Yngri bróðir Ásgeirs er Hrafn- kell, f. 27. nóvember 1941. Synir hans eru Sigurður Aðal- steinn og Gunnlaugur Snorri. Þann 30. desember 1961 giftist Ásgeir Messíönu Mars- ellíusdóttur, f. 18. maí 1942. Þau eignuðust þrjár dætur: a) Þórlaug Þuríður, f. 3. október 1961. Börn hennar og Þrastar Kristjánssonar eru Helena Björk, f. 18. ágúst 1981, d. 21. smíðar hjá Skipasmíðastöðinni á Ísafirði. Síðustu starfsárin vann hann í Hafnarbúðinni á Ísafirði og síðan sem hús- vörður í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Ásgeir var mjög öflugur í félagsstörfum og var meðal annars mjög virkur félagi í Oddfellow-reglunni. Ásgeir var einn af stofnend- um Harmonikufélags Vest- fjarða og var formaður félags- ins í 20 ár og í þrjú ár var hann formaður Sambands ís- lenskra harmonikuunnenda. Ásgeir hafði alla tíð mikið yndi af harmonikunni og tók að sér að gera við hljóðfæri fyrir vini og kunningja. Hann byrjaði að safna harmonikum þegar hann fékk fyrstu harm- onikuna að gjöf árið 1990. Þeim fjölgaði ört og Harm- onikusafn Ásgeirs S. Sigurðs- sonar varð til. Árið 2008 voru hljóðfærin orðin 140 talsins og afhentu þau hjónin Ísafjarðar- bæ safnið að gjöf. Í dag eru ríflega 220 harmonikur í safn- inu. Útför hans fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 27. apríl 2019, klukkan 14. júlí 2017, og Ás- geir Helgi, f. 8. nóvember 1988. Unnusta hans er Blómey Ósk Karlsdóttir, f. 1. október 1994, son- ur þeirra er Máni Þór, f. 17. júlí 2017. Sambýlis- maður Þórlaugar er Finnbogi Karls- son, f. 12. mars 1956. b) Helga Alberta, f. 15. janúar 1963. c) Sigríður Guð- finna, f. 17. júlí 1966. Eigin- maður hennar er Gunnar Skagfjörð Sæmundsson, f. 14. október 1969. Dóttir hennar og Heimis Brynjarssonar er Andrea Messíana, f. 26. janúar 1995. Börn Gunnars eru Logi Leó, f. 25. júní 1990, og Dögg Patricia, f. 19. mars 1994. Ásgeir ólst upp í Hólum í Laxárdal. Árið 1961 flutti hann til Ísafjarðar og nam járnsmíði við Iðnskólann á Ísa- firði. Hann starfaði megin- hluta starfsævinnar við skipa- Elsku pabbi kvaddi okkur á laugardaginn. Ég hefði viljað hafa hann miklu lengur og á eftir að sakna hans óendanlega mikið. Pabbi var einstaklega hjartahlýr maður og mikill húmoristi. Það var svo gaman að hlusta á hann segja sögur, sérstaklega þegar hann var að segja sögur af sveit- ungum frá Laxárdal. Hann var ávallt hrókur alls fagnaðar og hafði bæði góða og skemmtilega nærveru. Pabbi kenndi mér margt sem ég mun búa að alla tíð og var góð fyrirmynd. Hann var eiginlega á undan sinni samtíð og þoldi illa sóun af öllu tagi. Hann vildi nýta hlutina og helst ekki henda einhverju sem hægt var að nota. Þegar ég var lítil voru ekki til miklir pen- ingar á heimilinu en samt fékk maður allt sem hugurinn girntist. Ef það vantaði hjól, þá var það útvegað, og gert upp eins og nýtt, málin voru bara leyst. Pabbi var afskaplega mikið snyrtimenni. Hann fór helst ekki út á morgn- ana án þess að fara í sturtu og raka sig. Bílana vildi hann hafa hreina og fína og hann átti það til að hringja í mig og segja mér að hann hefði komið og sótt bílinn minn og bónað hann eða þrifið eða farið með hann í smurningu. Hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa til, hvort sem það vor- um við dætur hans eða bara ein- hverjir vinir eða fólk úti í bæ. Hann stóð alltaf við allt sem hann var búinn að tala um að gera og var alltaf fyrstur á staðinn ef eitt- hvað þurfti að aðstoða og vildi aldrei skulda neinum neitt. Ef einhver gerði honum greiða fékk viðkomandi það margfalt til baka. Pabbi var einstaklega skemmtilegur maður og góður sögumaður. Hann hafði svo lúmskan og skemmtilegan húmor og við hlógum mikið saman. Hann hugsaði alla tíð vel um heilsuna, stundaði skíði, sund, hjólaði mikið og síðustu árin áður en hann fór á hjúkrunarheimili kom hann á hverjum morgni hingað til mín að sækja Ragn- heiði (hundinn minn) til að taka hana með í göngutúr. Þau voru einstakir félagar. Pabbi var sveitastrákur úr Laxárdal í Þingeyjarsýslu og hef- ur alla tíð átt sterkar rætur norð- ur þó að hann hafi flutt vestur á Ísafjörð liðlega tvítugur. Á hverju sumri var farið norður í Hóla þar sem hann átti sitt skyld- fólk, góða vini og sveitunga. Pabbi og mamma kynntust þegar mamma fór í húsmæðraskólann á Laugum. Hann kom með henni vestur þar sem hann fór að vinna hjá afa í skipasmíðastöðinni og lærði járnsmíði í Iðnskólanum á Ísafirði. Pabbi var einstakur hag- leiksmaður og það lék allt í hönd- unum á honum. Hann gat eigin- lega gert við allt. Fyrir um 30 árum fór hann að taka að sér að gera við harmonikur fyrir vini og kunningja og einhvern veginn æxlaðist það þannig að harmon- ikunum fjölgaði stöðugt og úr varð heilmikið safn sem hann gaf Ísafjarðarbæ og hefur fengið inni á Byggðasafni Vestfjarða. Fyrstu árin var hann mikið niðri á safni að gera við harmonikur og spjalla við safngesti og sýna þeim gripina. Hann var mjög vinmarg- ur og virkur í félagslífi hér á Ísa- firði. Pabbi kenndi mér góð lífs- gildi sem ég vona að ég hafi tekið upp eftir honum. Ég kveð hann með þakklæti, virðingu, söknuði og ást. Þín dóttir Sigga. Sigríður Guðfinna Ásgeirsdóttir. Elsku pabbi. Föðurminning Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar, pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Takk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Þínar Þórlaug Þuríður og Helga Alberta. Ég er svo þakklát fyrir elsku afa minn, sem kenndi mér svo ótal margt. Það dýrmætasta sem ég lærði af honum var góð- mennskan sem fylgdi honum allt- af, sama hvað. Besti maður sem ég hef kynnst. Góð fyrirmynd og svo hjálpsamur. Ég mun geyma allar okkar minningar á góðum stað. Elsku afi minn, blessuð sé minning þín. Andrea Messíana. Ég hef þekkt Ásgeir frænda frá því að ég man eftir mér. Upp koma minningar um heimsóknir hans, Messíönu og stelpnanna frá Ísafirði á heimili okkar í kaupfélagsstjórabústaðn- um að Ásum í Saurbæ (Salt- hólmavík) í Dölum á 7. og 8. ára- tug síðustu aldar. Á þeim tíma vann Ásgeir sem skipasmiður hjá tengdaföður sínum í skipasmíða- stöð Marsellíusar. Þá var mikið hlegið, spjallað og brallað enda leitun að skemmtilegri sögu- manni en Ásgeiri. Ekki var óal- gengt að fólk bókstaflega gréti af hlátri undir lýsingum hans á mönnum og málefnum. Grunnurinn að þessum góða manni var lagður í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu, hvar hann og Hrafnkell bróðir hans, annar öðlingur, ólust upp í gamla, reisu- lega steinhúsinu að Hólum. Föð- ur þeirra, Sigurði, náði ég ekki að kynnast en móðir þeirra, Þórlaug Hjálmarsdóttir frá Ljótsstöðum, var einstök og hjartahlý kona og þau faðir minn og bróðir hennar, Guðmundur V. Hjálmarsson, voru mestu mátar og sömuleiðis móðir mín, Margrét Lára Rögn- valdsdóttir. Ég varð síðar þeirrar gæfu að- njótandi að gista hjá Ásgeiri og Messý í nokkur skipti á ferðum mínum um landið vegna vinnu á árunum 2010-2014. Var það ávallt tilhlökkunarefni. Kynntist ég þar enn betur Ásgeiri harmonikku- safnara og handverksmanni. Eins dreif hann mig m.a. í gufu- bað úti í garði nágrannanna þar sem fjölmörg landsmál voru krufin og leyst að mestu. Ásgeir bar mikla virðingu fyrir forfeðrum sínum og -mæðrum. Þannig var hann t.d. hrókur alls fagnaðar á ættarmóti afkomenda Áslaugar Torfadóttur (frá Ólafs- dal) og Hjálmars Jónssonar frá Ljótsstöðum í Laxárdal árið 2006. Hann var einnig meðal stofn- félaga í Ólafsdalsfélaginu árið 2007 sem hafði það að markmiði að hefja Ólafsdal í Gilsfirði til vegs og virðingar á ný, staðinn þar sem langafi okkar og langamma, Torfi Bjarnason og Guðlaug Zakaríasdóttir, stofnuðu fyrsta bændaskóla á Íslandi árið 1880. Mætti hann eftir það marg- oft á árvissar Ólafsdalshátíðir og sýndi starfinu mikinn áhuga og ræktarsemi. Kom þá gjarnan með Messíönu á húsbíl þeirra hjóna, oftar en ekki með nikkuna meðferðis og stundum orf og ljá. Árið 2016 var Ásgeir aftur mættur á ættarmót í Laxárdaln- um þó að illvígur parkinsons- sjúkdómurinn hefði þá sett nokk- uð mark sitt á hann. Hugurinn og frásagnargáfan voru þó áfram á sínum stað. Ásgeir átti heillaríkt líf á Ísa- firði í faðmi konu, dætra, afkom- enda og fjölda góðra vina. Hann og fjölskyldan fengu þó sinn skammt af áföllum en stóðu þétt saman. Fyrir hönd Helgu Bjargar konu minnar og barna okkar sendi ég Messíönu, dætrunum og fjölskyldum þeirra og Hrafnkeli innilegustu samúðarkveðjur. Mikill er missir þeirra. Nú er ástkær frændi laus úr viðjum sjúkdómsins sem átti svo illa við hinn lífsglaða og kvika mann. Smitandi hlátur og hlýja er mér efst í huga á kveðjustundu. Í anda Ásgeirs segi ég því; burt með sorg og sút en upp með húm- orinn! Rögnvaldur Guðmundsson frá Ásum. Hjá mér var það hluti af dag- legum störfum mínum að koma við í sölubúð Marselíusar Bern- harðssonar í Neðsta þar sem tengdasonurinn Ásgeir S. Sig- urðsson var við stjórnvölinn. Í daglegri umgengni var hann kenndur við konu sína Messíönu Marsellíusardóttur og kallaður Geiri Mess. Í minningunni var verslunin næst því að vera isenkræmmer upp á dönsku. Ekki aðeins var verslunin í betra lagi heldur hélt kaupmaðurinn uppi stemningu sem maður sótti í. Allt á sinn tíma og versluninni var lokað og Geiri Mess. hvarf til annarra starfa en á sameiginlegri leið okkar um lífsins veg áttum við svo eftir að mætast margoft í ár- anna rás og var það alltaf auðg- andi og maður kvaddi hann ævin- lega ríkari. Árið 2008 ákváðu þau hjón að gefa Byggðasafni Vestfjarða harmonikusafn sitt í heild sinni sem þá voru um 140. Árið 1990 hóf Ásgeir markvisst að safna harmonikum af ýmsum stærðum og gerðum. Frá upphafi var markmið þeirra að gefa góða inn- sýn í sögu og þróun harmonik- unnar og fjölbreytileika hennar ásamt því að miðla til fólks sögu hljóðfærisins á Íslandi. Í dag er þessi höfðinglega gjöf eitt af djásnum safnsins og er þar sér- safn sem ber hans nafn. Margir gullmolar harmonik- unnar leynast í safninu, fornar og nýjar. Í anda sagnamannsins var kappkostað að segja sögu hvers hljóðfæris þar sem því varð kom- ið við. „Oft er sagan ekki síðri en hljóðfærið,“ hafði hann á orði. Ásgeir var einstakur hagleiks- maður og margar harmonikur fékk hann í frumeindum sínum og gerði þær upp og smíðaði það sem upp á vantaði. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt og var Geiri vakinn og sof- inn yfir velferð þess. Eftir að veikindi Ásgeirs ágerðust varð viðvera hans stopulli á safninu til að segja sögur og sinna viðgerð- um, sem vakti óskipta athygli gesta. Nærvera hans var einstök og fór hver maður, ég tala nú ekki um konur, ríkari frá honum. Ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð og þakka fyr- ir allar þær ógleymanlegu stund- ir sem ég hef átt í leik og starfi með einlægum vini. Jón Sigurpálsson. Fallinn er frá kær vinur og samstarfsmaður, Ásgeir S. Sig- urðsson. Þegar við lítum til baka og hugsum um þau ár sem við höfum þekkt Ásgeir þá er þar engan skugga að finna, bara gleði og þakklæti fyrir að hafa fengið að vera samferðamenn hans. Ásgeir var einn af þessum góðu mönnum sem aldrei segja nei, var alltaf tilbúinn til að rétta hjálparhönd eins og Ísfirðingar fengu að kynnast með margvíslegum hætti. Í kaupbæti fylgdi hlýtt viðmót og oftar en ekki spaugileg saga. Við hjónin áttum því láni að fagna að ferðast með Ásgeiri og Messý til útlanda nokkrum sinn- um og betri ferðafélaga er ekki hægt að hugsa sér. Eigum við skemmtilegar minningar frá þessum ferðum, bæði til Danmerkur og Skot- lands. Eitt sinn bjargaði Ásgeir mér frá stórum og illvígum hundum sem réðust að mér þar sem við vorum að trimma á ströndinni. Hann kunni á þá. Oft höfum við velt því fyrir okkur af hverju þeir stukku á mig fremur en Ásgeir. Líklegasta skýringin er sú að þeir hafi fundið upprunann. Í byrjun júní árið 1989 var haldinn aðalfundur Slysavarna- félags Íslands á Ísafirði og var Lára á þeim fundi. Það var logn og sól en samt snjór á pallinum á Urðarvegi. Ég tók mig til og mokaði af pallinum og hringdi svo í Ásgeir og bauð honum í heimsókn. Það var ógleymanleg stund sem við áttum á pallinum, með snjóinn allt um kring, vökva í glasi og Ás- geir sögumaður í essinu sínu. Þegar hann fór að minnast á við mig að koma í Oddfellowstúk- una spurði ég hvort leiðinlegir menn eins og ég ættu nokkuð heima þar. Hann svaraði að bragði: „Þeir þurfa að vera líka.“ Svo voru tek- in bakföll af hlátri. Nú er komið að leiðarlokum og sendum við Messíönu og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðj- ur. Minningin um góðan dreng mun lifa. Vignir Örn og Lára. Kveðja frá Harmonikufélagi Vestfjarða. Látinn er heiðursfélagi Harmonikufélags Vestfjarða, Ásgeir S. Sigurðsson. Hann var einn af stofnendum og kosinn fyrsti formaður þess á stofn- fundi 16. nóvember 1986 og gegndi því starfi til janúar 2009 að undanskildum þremur árum er hann var formaður Sambands íslenskra harmonikuunnenda 1993 til 1996. Ásgeir var einstakt ljúfmenni sem kom öllu til leiðar í sátt og samlyndi með sinni einstöku prúðmennsku og húmor, hann hallmælti aldrei nokkrum manni, honum lánaðist að líta alltaf lífið björtum augum og deildi þeirri sýn. Ásgeir hlýtur að teljast helsti boðberi og unnandi harmonik- unnar, mikill tónlistaráhugamað- ur og ötull í öllu félagsstarfi tengdu harmonikunni. Eitt er það sem mun halda minningu hans á lofti; söfnun hans á eldri og lúnum nikkum, sem hann gerði við og kom til betra horfs. Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar telur nú liðlega 200 eintök. Safnið er einstakt á Ís- landi og jafnvel þótt víðar væri leitað. Það var afhent Ísafjarðarbæ til varðveislu og er nú til húsa á Byggðasafni Vestfjarða. Vonandi næst fljótlega að bæta þá aðstöðu svo almenningur getið notið þessara gersema. Eitt er það sem Ásgeir kom á í sínu formannsstarfi; að halda at- burðabók. Þar var allt skráð, fundir, samkomur og annað starf í félaginu. Þarna er hryggjar- stykkið í sögu félagsins í þau 33 ár sem það hefur starfað. Ásgeir var sannur Ísfirðingur en mjög stoltur af sínum þing- eyska uppruna sem hann hamp- aði oft bæði í gamni og alvöru. Ásgeir kom víðar við í fé- lagsmálum, hann var bróðir í Oddfellowstúkunni nr. 6 Gesti og gaf mikið af sér í því starfi og má segja að einkunnarorð hennar, vinátta – kærleikur – sannleikur, lýsi Ásgeiri S. Sigurðssyni vel. Vertu sæll, kæri vinur. Minning þín lifir. Við sendum Messíönu og fjöl- skyldu innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd stjórnar Harmon- ikufélags Vestfjarða, Hafsteinn Vilhjálmsson formaður. Hann Ásgeir, maðurinn henn- ar móðursystur minnar, kom til Ísafjarðar með Messý þegar ég var lítil. Þau kynntust fyrir norðan, þegar hún dvaldi á hús- mæðraskóla í námunda við heim- ili hans. Fyrstu minningar mínar af Ás- geiri tengjast húsi ömmu og afa þar sem ég ólst upp. Messý og Ásgeir komu sér fyrir á efri hæð- inni, fyrst fæddist þeim dóttirin Þórlaug sem er rúmlega þremur árum eldri en ég, hún fékk nafn föðurömmu sinnar frá Hólum í Laxárdal, síðan kom Helga Al- berta, sem var skírð heima. Ég var á fimmta ári, var treyst fyrir því hvað barnið ætti að heita og hélt þeim trúnaði. Nöfnin hennar eru frá móðurömmu okkar og móður minni. Yngst er svo Sig- ríður Guðfinna, sem fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísa- firði, þegar haldið var upp á 100 ára afmæli Ísafjarðarkaupstaðar. Hún hlaut nafn langömmu okkar og afabróður okkar sem lést sama ár og hún fæddist. Ásgeir spilaði á harmonikku. Ein minningin er frá því að Ás- geir var einn heima með dæturn- ar, sennilega þegar Helga eða Sigga var í vöggu(minni), þá var hann að rugga barninu í eldhús- inu uppi, hefur sennilega ýtt vöggunni með fætinum á meðan hann æfði sig á harmonikkuna. Hljóðin frá hjólum vöggunnar og harmonikkutónarnir heyrðust á milli hæða. Þau fluttu síðar niður í Smiðju- götu 9 þar sem þau bjuggu næstu árin. Þangað fór ég oft, stundum til að passa stelpurnar. Síðar byggðu þau sér raðhús á Urðar- veginum og bjuggu þar þangað til fyrir nokkrum árum. Við kom- um oft á heimili þeirra. Ásgeir hóf að safna harmonikkum og lagfæra þær. Það var gaman að kíkja í herbergið hjá þeim hjón- unum þar sem þau höfðu komið harmonikkusafninu fyrir. Þar mátti líka sjá ýmislegt fleira tengt tónlist og hljóðfærum. Safnið stækkaði óðum og tóku þau hjónin ákvörðun um að af- henda það Ísafjarðarbæ til varð- veislu. Hluti af safninu hefur ver- ið sýndur í Turnhúsinu í Neðsta- kaupstað og í Safnahúsinu á Eyrartúni. Ásgeir vann í skipasmíðastöð- inni hjá tengdaföður sínum, fyrst sem járnsmiður en síðar á lag- ernum. Um tíma áttu þau hjónin skipasmíðastöðina í félagi við móður mína og stjúpföður, ásamt þriðju systurinni Kristínu og Guðmundi Páli manni hennar. Messý og Ásgeir voru dugleg að mæta á viðburði hjá okkur fjölskyldunni. Í minningunni var Ásgeir allt- af hrókur alls fagnaðar í veislum og viðburðum hjá vinum og vandamönnum. Hann var veislu- stjóri, hafði mjög gaman af því að segja sögur og sé ég hann fyrir mér þar sem hann slær sér á lær og skellihlær. Ásgeir átti það til að smíða úr timbri, ég á m.a. myndaramma sem hann smíðaði utan um út- saumaða mynd sem ég saumaði þegar ég var barn. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson) Elsku Messý, Þórlaug, Helga, Sigga, Andrea, Ásgeir og fjöl- skyldur, innilegar samúðarkveðj- ur til ykkar allra af Austurveg- inum. Áslaug J.J. og fjölskylda. Ásgeir S. Sigurðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.