Fréttablaðið - 04.06.2019, Page 40
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
4. JÚNÍ 2019
Orðsins list
Hvað? Mikilvægi straumvatna fyrir
fiska og menn
Hvenær? 12.30
Hvar? Askja, HÍ salur 130
Kurt Fausch prófessor heldur
fyrirlestur með titlinum: What is
essential about rivers for fish, and
humans? Hann er baráttumaður
fyrir skynsamlegri umgengni og
nýtingu straumvatna og bendir á
að árnar eru lífæð mannkyns sem
ber að varðveita og umgangast af
virðingu.
Garðyrkja
Hvað? Hollráð í matjurtagarðinum
Hvenær? 17.30-19
Hvar? Grasagarður Reykjavíkur
Garðyrkjufræðingar Grasagarðs-
ins verða með hollráð um sáningu,
útplöntun og umhirðu krydd- og
matjurta. Einnig ráðleggingar
varðandi smádýrin í matjurta-
garðinum. Hægt verður að fræðast
um jarðvegsgerð: safnhaugagerð,
moltugerð í eldhúsinu og sýringu
matarleifa með Bokashi-tunnu.
Þátttaka er ókeypis og allir vel-
komnir!
Barnaefni
Hvað? Frumsýning Brúðubílsins
2019
Hvenær? 15.00
Hvar? Hallargarðurinn, Fríkirkju-
vegi 11
Litabók Brúðubílsins nefnist sýn-
ingin sem boðið verður upp á.
Tónlist
Hvað? Sumar og fjáröfl-
unartónleikar Ungmennakórsins
Graduale Futuri
Hvenær? 20
Hvar? Langholtskirkja R.
Kórinn syngur nokkrar laga-
perlur íslenskrar tungu,
kveðnar verða rímur og hljóð-
færaleikarar úr röðum kór-
félaga spila á f lautur, fiðlur og
saxafón. Meðleikari verður
Magnús Ragnarsson, organisti
Langholtskirkju. Stjórnandi er
Rósa Jóhannesdóttir.
Hvað? Jazzkvöld
Hvenær? 20.30
Hvar? KEX Hostel
Söngkonan Silva Þórðardóttir
og píanóleikarinn Steingrímur
Teague flytja þekkta djassstand-
arda. Með þeim í för
verða gítarleikarinn Rögnvaldur
Borgþórsson, bassaleikarinn
Andri Ólafsson og trommuleikar-
inn Svanhildur Lóa Bergsveins-
dóttir.
Hvað? Ævagömul hljóðfæri og
karlasönghópur
Hvenær? 21.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Tónlistarhópurinn Umbra,
hin katalónska Marina
Albero sem leikur á „saltara“,
Eggert Pálsson slagverks-
leikari, Þórdís Gerður Jóns-
dóttir sellóleikari, Kristófer
Rodrigues Svönuson slag-
verksleikari og karlasönghóp-
ur Cantores Islandiae flytja
í heild sinni „Rauðu bókina“
eða Llibre Vermell handritið
frá Katalóníu. tónleikarnir eru
liður í Kirkjulistahátíð.
Myndlist
Hvað? Beauty and the Beast eða
Fríða og dýrið
Hvenær? 10 - 19
Hvar? Borgarbókasafnið
Spönginni 41
Franski listamaðurinn Michel
Santacroce sýnir klippimyndir og
stafrænar ljósmyndir. Sýningin
stendur til 30. júlí á opnunartíma
bókasafnsins
Bobby er fyrsta sóló-plata djassgítarleikar-ans Mik aels Mána Ásmundssonar en á plötunni spila auk hans Skúli Sverrisson sem
spilar á bassa og Magnús Trygva-
son Elíassen sem spilar á trommur.
Kveikjan að plötunni er ævi skáld-
snillingsins Bobby Fischer.
Mikael Máni lærði kornungur
að tefla og segir að þegar hann var
yngri hafi hann ætlað sér að verða
skákmaður eða stærðfræðingur.
Spurður af hverju hann hafi samið
lög og gert sérstaka plötu um
Fischer segir hann: „Ég las ævisögu
Fischers, Endatafl eftir Frank Brady,
og heillaðist gjörsamlega. Ég las
bókina á nokkrum dögum og sér-
staklega minnisstæður varð kaflinn
þegar Fischer var handtekinn á flug-
vellinum í Japan og fór að óttast um
líf sitt. Titillag plötunnar, Bobby,
fjallar einmitt um þetta atvik í lífi
Fischers. Það kom til mín fullmótað
og ég samdi það á um 20 mínútum.
Þetta er dramatískt lag og það er
mjög mikil angist í því. Ég syng í
laginu, það er dálítið eins og hróp
eða kall,“ segir Mikael Máni. Hann
bætir við: „Ég trúi því að tónlist
mín komi frá undirmeðvitundinni.
Þegar ég er að semja lag þá ákveð ég
aldrei fyrir fram hvernig það eigi að
vera. Það er ekki fyrr en stuttu eftir
að ég er búinn að semja það eða þá
löngu á eftir sem ég átta mig á því
um hvað lagið er.“
Gefandi samvinna
Skúli Sverrisson og Magnús Trygva-
son Elíassen f lytja tónlist Mikaels
Mána ásamt honum sjálfum. „Ég
hef þekkt þá báða mjög lengi og það
hefur alltaf verið í kortunum að við
þrír myndum gera eitthvað saman,“
segir Mikael Máni. Hann segir að
Skúli og Magnús hafi haft sín áhrif
á útsetningu laganna. „Ég kom með
lögin og þeir komu með sínar hug-
myndir. Þetta er djasstónlist og hún
hljómar best þegar hljóðfæraleikar-
arnir koma með eitthvað persónu-
legt frá sjálfum sér. Það getur verið
erfitt að gefa meðspilurum lausan
tauminn til að túlka frjálslega tón-
smíð sem manni finnst mjög per-
sónuleg. Það verður hins vegar
mjög gefandi þegar maður vinnur
með jafn músíkölsku fólki og Skúla
og Magga. Seinasta lagið á plötunni
hefði til dæmis aldrei orðið eins og
það varð nema vegna þess að við
töluðum ekkert um útsetningu á því
áður en við spiluðum það í fyrsta
sinn. Það tók mig smá tíma að venj-
ast þessu en ég treysti innsæi þeirra.
Ég hef ekki enn sagt þeim að lagið
átti upphaf lega að vera helmingi
hraðara en það varð á plötunni.”
Skemmtilegt plötuumslag
Plötuumslagið er sérlega skemmti-
legt en það er hannað af Ámunda
Sigurðssyni og myndirnar eru eftir
S p e s s a . Þ æ r
eru teknar í og
við Fornbóka-
verslun Braga
Kristjónssonar.
K ápu my nd in
er tekin inn um
glugga búðar-
innar og þar
sést í taflborð.
Bobby Fischer
h a f ð i f y r i r
sið að koma
í búðina nær
d a g l e g a . Á
annarri mynd
sjást Mikael
Máni, Sk úli
og M ag nú s
fyrir framan
b ók abúði na
ásamt tveimur starfsmönnum,
Ara Gísla og Eiríki. „Spessi er alveg
f rábær. Hann
hefur verið að
taka myndir af
h ljóm s veit u m
og hefur þá með
á my ndu nu m
fólk sem er ekki
meðlimir í við-
komandi hljóm-
sveit . My nd in
af okkur f yrir
framan búðina er
tilvísun í mynd
s e m S i g u r ð u r
G u ð m u n d s s o n
ljósmyndari tók.
Sú mynd var tekin
fyrir framan bóka-
búð Braga sem var
þá á öðrum stað,“
segir Mikael Máni.
Tríó Mikaels Mána heldur útgáfu-
tónleika sunnudaginn 9. júní í
Kaldalóni í Hörpu. Systir Mikaels
Mána, Lilja María, hitar upp fyrir
tónleikana og leikur verkið Chess
Pieces eftir John Cage.
Tónleikaferð systkina
Mikael Máni og Lilja María vinna
nú saman að verkefni og fara í tón-
leikaferð hringinn í kringum landið
í júlí næstkomandi. „Við erum mjög
góðir vinir og ólumst upp við sömu
tónlistina en fórum í ólíkar áttir,
hún spilar samtímaklassík og ég
spila djass,“ segir Mikael Máni.
„Við erum með fjórtán laga pró-
gramm, ég samdi sjö lög og hún sjö,
en við vinnum tónlistina líka mikið
saman. Ég mun spila á gítar og spila-
dós og syngja en Lilja María spilar á
píanó og sérstakt hljóðfæri sem hún
hefur sjálf hannað. Í þessu verkefni
okkar blandast saman sjónlist,
myndlist og tónlist.“
Tónlist frá undirmeðvitundinni
„Ég las ævisögu Fischers, Endatafl eftir Frank Brady, og heillaðist gjörsamlega,“ segir Mikael Máni. Fréttablaðið/Anton Brink
Hin skemmtilega kápumyndin geisla-
disksins er eftir Spessa og tekin inn
um glugga fornbókaverslunar Braga
Kristjónssonar.
Mikael Máni sendir
frá sér fyrstu sóló-
plötu sína. Lögin
eru túlkanir á ævi
skáksnillingsins
Bobby Fischer.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
4 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
4
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
7
-E
4
0
C
2
3
2
7
-E
2
D
0
2
3
2
7
-E
1
9
4
2
3
2
7
-E
0
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K