Fréttablaðið - 12.06.2019, Síða 6
peugeotisland.is
TVÆR LENGDIR: L1 OG L2
ÖFLUGAR VÉLAR 100 EÐA 130 HESTÖFL
BEINSKIPTUR EÐA 8 ÞREPA SJÁLFSKIPTUR
HLEÐSLURÝMI: 3,3 M³ TIL 3,9 M³
i-COCKPIT ÖKUMANNSRÝMI
2JA EÐA 3JA SÆTA
VERÐ FRÁ 2.532.000 KR. ÁN VSK.
*Forsendur framlengdrar verksmiðjuábyrgðar eru á peugeotisland.is
NÝR PEUGEOT PARTNER
NÚ MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ*
- LÁTTU GÆÐIN VINNA MEÐ ÞÉR!
BRIMBORG REYKJAVÍK | BÍLDSHÖFÐA 8 | S. 515 7040 | BRIMBORG AKUREYRI | TRYGGVABRAUT 5 | S. 515 7050
NÝTT: Fyrirtækjalausnir Brimborgar kynna
flotastjórnunarkerfið Brimborg Fleet Manager sem
er vistað í skýinu, auðvelt í notkun og getur lækkað
rekstrarkostnaðinn umtalsvert. Fáðu kynningu.
UTANRÍKISMÁL Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) er þakklátt fyrir fram-
lag Íslendinga til þess. Þetta sagði
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri NATO, á blaðamannafundi
með Katrínu Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra í Ráðherrabústaðnum í
gær. Stoltenberg var á Íslandi í gær í
boði Katrínar. Norðmaðurinn hitti
einnig Guðlaug Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra og ræddi til að mynda
við fulltrúa Landhelgisgæslunnar er
hann lenti á Keflavíkurflugvelli.
„Helstu skilaboð mín eru í dag að
þakka ykkur fyrir framlagið,“ sagði
Stoltenberg. Hann nefndi eftir-
lit á Norður-Atlantshafi og fram-
lag Íslands til ýmissa verkefna og
aðgerða bandalagsins, til að mynda
í Írak og Kósovó. Þá ræddi hann
einnig um mikilvægi staðsetningar
Íslands. Sagði hana hjálpa til við að
„að binda Evrópu og Norður-Amer-
íku saman“.
Að því er Katrín sagði frá á
blaðamannafundinum ræddu þau
Stolten berg um málefni norður-
slóða, loftslagsmál, kjarnorkuaf-
vopnun og svokallaðar blandaðar
ógnir. Það er að segja öryggisógnir
sem eru fjölþættar.
Forsætisráðherrann sagði þau
Stoltenberg sammála um að norð-
urslóðir væru orðnar pólitískari og
því fylgdi ýmislegt, bæði neikvætt
og jákvætt. „Okkar sýn á Íslandi
er að norðurslóðir skuli vera tog-
streitulaust svæði og við höfum
einbeitt okkur að því sem formenn
Norðurslóðaráðsins. Ekki einungis
í loftslagsmálum heldur einnig á
sviði friðsællar samvinnu,“ sagði
Katrín.
Undir þetta tók Stoltenberg.
„Boðskapurinn er að á norðurslóð-
um sé lítil togstreita. Við vinnum að
því að viðhalda þeirri stöðu þrátt
fyrir að hernaðarviðvera á svæðinu,
einkum Rússa, aukist þar.“
Norðmaðurinn lýsti áhyggjum
sínum af því að INF-kjarnorku-
samningurinn, er gerður var eftir
leiðtogafund þeirra Reagans og Gor-
basjevs í Höfða, væri í hættu „vegna
rússneskra samningsbrota“ og sagði
bandalagið ætla að halda áfram að
kalla eftir því að Rússar færu eftir
samningnum.
„Ég held að það hafi auðvitað
allir áhyggjur af aukinni togstreitu
í þessum málaflokki,“ sagði Katrín
og bætti því við að hún vonaði að
lausn fyndist á málinu.
Forsætisráðherra sagði einn-
ig auknar áhyggjur af blönduðum
ógnum og stafrænu öryggi. Stolten-
berg sagði þann málaflokk hluta af
þeirri aðlögun Atlantshafsbanda-
lagsins sem nú ætti sér stað. „Við
munum halda þeim umræðum
áfram þegar við hittumst á ný á
leiðtogafundi NATO í Lundúnum í
byrjun desember.“
Aðspurður um hvort andstaða
Katrínar og f lokks hennar við
Atlantshafsbandalagsaðild Íslands
hefði áhrif á samstarf ið sagði
Stolten berg það af og frá. NATO
væri bandalag 29 lýðræðisríkja og
innan slíkra þrifust mismunandi
sjónarmið og skoðanir.
Framkvæmdastjórinn tók fram
að hann hefði áður verið forsætis-
ráðherra Noregs í ríkisstjórn þar
sem einn f lokkanna var andvígur
aðild. Samið hefði verið um stefnu
ríkisstjórnarinnar og hún hefði
verið fylgjandi aðild í heild. „Svarið
er nei, þetta hefur ekki valdið nein-
um vandamálum.“
Helst mátti greina ágreining á
fundi Katrínar og Stoltenbergs er
þau ræddu um þjóðerni Leifs Eiríks-
sonar, að því er Katrín sagði sjálf frá
á blaðamannafundinum. „Ég held
það hafi verið erfiðasta umræðu-
efnið á fundi okkar.“
thorgnyr@frettabladid.is
Þátttaka Íslands mikilvæg
fyrir Atlantshafsbandalagið
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, heimsótti Ísland í gær og átti fund með
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Ræddu um kjarnorkumál, norðurslóðir og stafræn öryggismál.
Helsta deiluefni Katrínar og hins norska Stoltenbergs var hins vegar þjóðerni Leifs Eiríkssonar.
Katrín ræddi við Stoltenberg um norðurslóðir, kjarnorku og stafrænt öryggi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Helstu skilaboð
mín eru í dag að
þakka ykkur fyrir fram-
lagið.
Jens Stoltenberg,
framkvæmdastjóri NATO
BOTSVANA Lög um allt að sjö ára
fangelsisdóm við samkynja sam-
böndum stangast á við stjórnarskrá
Botsvana og hafa því verið felld úr
gildi. Að þessari niðurstöðu komst
hæstiréttur Afríkuríkisins í gær.
„Með því að vega að minnihluta-
hópum er vegið að sjálfsvirðingu
mannkyns,“ hafði breska ríkisút-
varpið eftir Michael Elburu, einum
af þremur dómurum í málinu.
Niðurstaðan var samhljóða.
Lögin hafa verið í gildi í Botsv-
ana frá árinu 1965 þegar breska
nýlendustjórnin kom þeim á. Botsv-
anskur nemi ákvað hins vegar að
láta reyna á lögin fyrir dómstólum
og stóð að lokum uppi sem sigur-
vegari. – þea
Samkynja pör
verða lögleg
BRETLAND Evrópusambandið mun
ekki gera nýjan útgöngusamning
við Breta jafnvel þótt Bretar skipti
um forsætisráðherra. Þetta sagði
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB í gær.
Íhaldsflokkurinn velur nú nýjan
formann eftir afsögn Theresu May.
Hún situr áfram sem forsætisráð-
herra þar til leiðtogakjöri lýkur.
Breska þingið hefur í þrígang hafn-
að samningnum sem stjórn May
gerði við ESB. Íhaldsflokkurinn er
klofinn í afstöðu sinni til samnings-
ins og vilja margir fá honum breytt.
„Þetta er ekki samningur á milli
Theresu May og Juncker. Þetta er
samningur á milli Evrópusam-
bandsins og Bretlands. Það þarf
næsti forsætisráðherra að virða. Það
verður ekki samið upp á nýtt.“ – þea
Ekki samningur
Juncker og May
May og Juncker. NORDICPHOTOS/AFP
1 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
2
-F
1
3
C
2
3
3
2
-F
0
0
0
2
3
3
2
-E
E
C
4
2
3
3
2
-E
D
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K