Fréttablaðið - 20.06.2019, Síða 22
Á Norðurlöndum hafa miklar breytingar orðið í skilnaðar-löggjöf og í þjónustu við for-
eldra og börn í þeim sporum. Sam-
eiginlegt markmið þeirra er að
vernda börnin í skilnaðarferli for-
eldra með því að gæta sérstaklega að
sjálfstæðum rétti, tjáningu og velferð
barnanna. Í Danmörku heyrir skip-
an þessara mála nú undir barna- og
félagsmálaráðuneyti, Familiesrets-
huset, og svipuð skipan er í Svíþjóð
og Noregi. Familje rätten í Svíðþjóð
er staðsettur innan félagsþjónust-
unnar, m.a. með samvinnusamtöl-
um (samarbetssamtal) með fræðslu
og stuðningi fyrir foreldra, en þyngri
mál eru leyst við Tingsrätten. Í Nor-
egi er skilnaðarforeldrum sem eiga
börn undir 16 ára skylt að gera með
sér samning um foreldrasamvinnu,
foreldresamarbeidsavtale.
Í undanfara breytinganna, bæði í
Svíþjóð, Danmörku og Noregi hefur
verið litið til rannsókna og tölfræði-
legra gagna, innlendum sem alþjóð-
legum, og er skipan þeirra um margt
áþekk. Þótt Norðurlöndin hafi fylgst
að í þróun skilnaðarmála þá hefur
hlutur Íslands lengst af legið nokkuð
eftir. Á Íslandi hafa þó verið unnar
gildar rannsóknir, m.a. sem lágu til
grundvallar (síðbúinni) löggjöf um
sameiginlega forsjá (1992; 2006), og
aðrar m.a. um reynslu og viðhorf
skilnaðarforeldra um samskipti og
búsetu eftir skilnað (2013).
Nýlega, eða í apríl 2019 tóku ný
skilnaðarlög gildi í Danmörku.
Breytingar sem lögin fela í sér hafa
áhrif á þau um 15.000 pör sem þar
sækja um skilnað á ári hverju, og þá
einkum fyrir foreldra barna undir
18 ára aldri. Hér á eftir er stiklað á
stóru um mikilvægustu breyting-
arnar sem snúa að umgengni, forsjá
og jafnri búsetu. Breytingarnar voru
samþykktar með miklum meiri-
hluta atkvæða á alþingi Danmerkur.
Fjölskylduréttarhús
Fram að þessu hafa danskir for-
eldrar sem eru ósammála um for-
sjá, lögheimili og umgengni barna
sinna, sótt um úrlausn sinna mála
hjá „Statsforvaltningen“ í Dan-
mörku, þ.e. stjórnsýslueining sem
fór með skilnaðarmál, sambærileg
við embætti sýslumanna á Íslandi.
Með framkvæmd nýrra skilnaðar-
laga var Statsforvaltningen lögð af
og í stað þess opnað Fjölskyldurétt-
arhús sem heyrir undir barna- og
félagsmálaráðuneyti Danmerkur.
Í Fjölskylduréttarhúsinu fer fram
skimun á öllum pörum sem óska
eftir skilnaði og eiga börn undir
18 ára aldri. Markmiðið er að bæta
gæði meðferðar mála, auka máls-
hraða, vernda börnin og draga úr
hugsanlegum af leiðingum deilna
foreldra, á börnin. Séu foreldrar
ekki sammála um umgengni, lög-
heimili og forsjá barna sinna fá þeir
aðstoð í Fjölskylduréttarhúsinu við
að ná samkomulagi um þau atriði.
Áherslan er á börnin
Oft eru það börnin sem tapa mest í
f lóknum skilnaðarmálum og deil-
um á milli foreldra. Þess vegna er
skv. nýju lögunum sett á laggirnar
sérstök barnaeining sem er ætlað
að tryggja að sjónarmið barnanna
heyrist og sérstakt tillit tekið til
þeirra við vinnslu skilnaðarmála.
Málastjóri, sem heldur utan um
hvert einstakt mál, skal ræða reglu-
lega við barnið. Jafnframt fær hvert
barn skipaðan fastan tengilið, tals-
mann, sem það getur fengið stuðn-
ing og ráðgjöf hjá.
Grænn, gulur eða rauður?
Málastjórar í Fjölskylduréttarhús-
inu flokka málin, og meta alvarleika
þeirra og þjónustuþörf eftir því
hvort málin greinast sem græn, gul
eða rauð. Gert er ráð fyrir að lang-
flest málin verði metin sem græn
mál, þ.e. að foreldrar séu sammála
um hvernig haga skuli málefnum
barna sinna við skilnað. Sú ályktun
byggist á niðurstöðum alþjóðlegra
rannsókna um að meiri hluti for-
eldra, um 80%, geti leyst sín mál
sjálfur með upplýsingum, almenn-
um leiðbeiningum og/eða ráðgjöf.
Foreldrar í þessum hópi sem eru
sammála um umgengni, forsjá og
lögheimili, fá þá leyfi til að ganga frá
skilnaðarmálinu. Í málum sem eru
metin gul, hafa foreldrar þörf fyrir
meiri ráðgjöf, stuðning og jafnvel
sáttameðferð sem liðkar fyrir sam-
eiginlegri niðurstöðu. Þau mál sem
eru metin rauð, eru þau mál þar sem
foreldrar eiga í verulegum ágreiningi
um börnin sín. Unnið er með þau
mál í Fjölskylduréttarhúsinu með
fræðslu, samtölum, leiðsögn og
sáttameðferð. Hægt verður að áfrýja
niðurstöðu Fjölskylduréttarins til
dómstóla.
Umhugsun og endurskoðun
í stað skyndiskilnaðar
Fram að þessu hefur par, sem er
sammála um að skilja, getað sótt
um slíkt á mjög skjótan og auð-
veldan máta, rafrænt á nokkrum
mínútum. Ein af nýmælunum er að
par sem á barn eða börn undir 18
ára aldri getur ekki lengur gert slíkt.
Samkvæmt nýju löggjöfinni er nú
krafist þriggja mánaða endurskoð-
unartíma. Þessi tími er jafnframt
hugsaður til þess að fá skilnaðar- og
fjölskylduráðgjöf í Fjölskylduréttar-
húsinu. Í þessu felst mikilvæg rétt-
arbót og vernd fyrir börn.
Allir foreldrar fara í
námskeið og taka próf
Það er jafnframt skylda fyrir for-
eldra sem vilja skilja og eiga börn
undir 18 ára að taka rafrænt nám-
skeið sem heitir „Samvinna eftir
skilnað“. Námskeiðið er kennsla
í þekkingu og verkfærum, sem
hjálpar foreldrum til að takast á við
breytingar og áskoranir í tengslum
við skilnaðinn. Námskeiðið skal
fara fram á þessum þriggja mánaða
endurskoðunartíma og í kjölfarið
skulu allir foreldrar taka rafrænt
próf. Prófið á að tryggja að foreldrar
fái leiðbeiningar um það hvernig
best er að standa að skilnaðinum
með hagsmuni barnanna að leiðar-
ljósi, auk fræðslu um hugsanleg við-
brögð barna við skilnaði foreldra
sinna. Þetta er forsenda þess að for-
eldrar fái leyfi til skilnaðar.
Jöfn staða foreldra
Mikilvægar breytingar, sem snúa
að því að jafna stöðu foreldra, tóku
jafnframt gildi með nýju lögunum.
Nú getur barn haft jafna búsetu
hjá báðum foreldrum sínum, en
verið er að útfæra framkvæmdina á
þessum breytingum með reglugerð.
Auk þessara breytinga liggur fyrir
frumvarp um að foreldrar með sam-
eiginlega forsjá geti framvegis deilt
greiðslum á borð við barnabætur og
öðrum greiðslum/bótum tengdum
börnum jafnt á milli beggja heimila.
Lokaorð
Eins og nefnt var hér í upphafi er
þekkingargrunnur í skilnaðarmál-
um nægilegur hér á landi til þess að
huga megi fara að allsherjar endur-
skoðun á skipan skilnaðarmála,
þjónustu og vernd barna á Íslandi
sem reyna skilnað foreldra sinna.
Í rannsókninni Eftir skilnað (2013)
er að finna hugmynd að líkani sem
er byggt á íslenskum rannsóknar-
niðurstöðum. Því líkani að skipan
og þjónustu svipar mjög til dönsku
nýbreytninnar sem hér hefur verið
greint frá.
Straumhvörf í meðferð skilnaðarmála
Gyða
Hjartardóttir
félagsráðgjafi
MA, aðjúnkt
við HÍ og sér-
fræðingur í mál-
efnum barna og
sáttameðferð
hjá Sýslumann-
inum á höfuð-
borgarsvæðinu
Sigrún
Júlíusdóttir
prófessor,
félagsráðgjafar-
deild Háskóla
Íslands og fjöl-
skylduþerapisti
hjá Meðferðar-
þjónustunni
Tengsl
n Grænn
Aðilar eru sammála.
Geta gengið frá sínum
málum á netinu eftir
rafrænt námskeið /
próf.
Ekki þörf á aðkomu
sérfræðinga fjöl-
skylduréttarhússins
n Gulur
Ágreiningur – aðilar
ekki sammála. Viðtal
og stuðningur við
barn / börn, ráð-
gjöf og stuðningur /
sáttameðferð fyrir
foreldra.
Þörf á aðkomu sér-
fræðinga fjölskyldu-
réttarhússins
n Rauður
Mikill ágreiningur,
þörf á mikilli aðkomu
sérfræðinga með
ráðgjöf og jafnvel
sáttameðferð fyrir
alla fjölskylduna.
Aðkoma fjölskyldu-
réttarhússins í formi
ráðgjafar og undir-
búnings fyrir fjöl-
skylduréttinn
✿ Mismunandi alvarleiki skilnaðarmála
Í rannsókninni Eftir skilnað
(2013) er að finna hugmynd
að líkani sem er byggt á
íslenskum rannsóknaniður-
stöðum. Því líkani að skipan
og þjónustu svipar mjög til
dönsku nýbreytninnar sem
hér hefur verið greint frá.
Alfred Bosch, consejero í hér-aðsstjórn Katalóníu, birti nýverið grein þar sem hann
fullyrti að á Spáni væru „kjörnir
þingmenn [katalónskir] og kjós-
endur þeirra sviptir lýðræðislegum
og stjórnmálalegum réttindum
sínum af pólitískum ástæðum og
engu öðru“.
Það er alls ekki rétt. Málavextir
eru þeir að báðar deildir spænska
þjóðþingsins samþykktu að leysa
fjóra katalónska stjórnmálamenn
frá þingstörfum, en þeir hafa verið
ákærðir fyrir alvarleg brot og sitja nú
í gæsluvarðhaldi og bíða dóms eftir
að réttað var yfir þeim í hæstarétti.
Rétturinn gerði ýmsar ráðstafanir til
að tryggja sanngjarna málsmeðferð
og gagnsæi réttarhaldanna, svo sem
að sjónvarpað væri beint frá þeim.
Þessir fjórir stjórnmálamenn
fengu heimild dómara til að vera
viðstaddir setningu þingsins og taka
við kjörbréfum sínum. Sú ákvörðun
að leysa þá síðan frá þingstörfum
var tekin að ábendingu þessara
sömu dómara en ekki af pólitísk-
um ástæðum, eins og Bosch heldur
fram, því verið var að framfylgja
spænskum lögum í samræmi við
rökstudda greinargerð frá lagaskrif-
stofu þingsins.
Bosch nefnir í framhaldi af þessu
þrjá spænska frambjóðendur til
Evrópuþingsins, þá Oriol Junqueras
(í gæsluvarðhaldi) og Carles Puigde-
mont og Toni Comín (í útlegð á flótta
undan spænskri réttvísi). Öllum
aðildarríkjum Evrópusambandsins
ber að afhenda Evrópuþinginu lista
yfir frambjóðendur sem uppfylla
öll skilyrði sem þarf til að unnt sé að
tilkynna framboð þeirra formlega.
Spænsk kosningalög kveða á um að
áður en það sé gert þurfi frambjóð-
endur að sverja spænsku stjórnar-
skránni hollustueið í eigin persónu
og í Madríd, en það vilja Puidgemont
og Comín ekki gera, vafalaust til að
komast hjá því að standa fyrir máli
sínu frammi fyrir spænskum dóm-
stólum. Junqueras gæti aftur á móti
fengið lausn úr varðhaldi svo að
hann geti uppfyllt fyrrnefnt skilyrði
en ákvörðun um það getur enginn
tekið nema til þess bær spænskur
dómstóll, þ.e.a.s. hæstiréttur.
Allir þessir stjórnmálamenn
geta litið svo á að pólitískum rétt-
indum þeirra séu settar skorður, en
það er ekki vegna stjórnmálaskoð-
ana þeirra, eins og Bosch fullyrðir,
heldur vegna þess að gjörðir þeirra
eru taldar brjóta gegn spænskum
lögum. Aðrir þingmenn eiga eftir
setjast á spænska þjóðþingið og Evr-
ópuþingið og lýsa yfir stuðningi við
sjálfstæði Katalóníu hindrunarlaust,
vegna þess að ekki er verið að rétta
yfir þeim og þeir hafa ekki verið sak-
aðir um neina glæpi.
Loks nefnir Bosch nýlega álitsgerð
– sem felur ekki í sér skuldbindandi
niðurstöðu – vinnuhóps um órétt-
mætar fangelsanir á vegum Mann-
réttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Spánn styður staðfastlega starf-
semi Sameinuðu þjóðanna en getur
þó ekki annað en látið í ljós djúp-
stæða undrun yfir þeirri miklu óná-
kvæmni sem fram kemur í mörgum
af niðurstöðum framangreindrar
álitsgerðar. Sem dæmi má nefna að
horft er fram hjá þrískiptingu ríkis-
valds á Spáni, sem er eigi að síður
einkenni sérhvers réttarríkis, þegar
þess er krafist að ríkisstjórnin láti
lausa fanga sem sitja í varðhaldi og
bíða dóms, en ákvörðun um slíkt er
einungis á valdi dómsvaldsins eins
og venjan er í öllum lýðræðisríkjum.
Ofangreindur vinnuhópur setur
sig í dómarasæti og er ekki hlut-
laus þegar hann gengur út frá því að
niðurstaða sé þegar fengin í máli sem
hæstiréttur Spánar er að fjalla um
núna og dregur með því í efa sjálf-
stæði réttarins, auk þess sem hann
fer út fyrir valdsvið sitt þegar hann
heldur því fram að ekki sé grund-
völlur fyrir varðhaldinu, hvað þá
sjálfum réttarhöldunum. Bosch
lætur hins vegar hjá líða að nefna
nýlegan úrskurð Mannréttindadóm-
stóls Evrópu (MDE) sem var kveðinn
upp 28. maí í Strassborg og er laga-
lega bindandi öfugt við niðurstöður
ofangreinds vinnuhóps.
Í þeim úrskurði er því haldið fram
að í réttarríki séu lögin sjálf trygg-
ing fyrir lýðræði og að ákvörðun
stjórnlagadómstóls Spánar um að
katalónska þingið skyldi leyst upp
9. október 2017 eftir að það lýsti
yfir sjálfstæði Katalóníu, hafi verið
í samræmi við lög og „nauðsynleg í
lýðræðislegu samfélagi“, enda hafi
hún haft það lögmæta markmið að
tryggja öryggi almennings og standa
vörð um stjórnarskrána.
Ég er sammála Bosch um að Kata-
lóníumenn – rétt eins og aðrir Spán-
verjar – vilji vera í Evrópusamband-
inu. Ástæða þess er öðru fremur
virðing allra fyrir lögum réttarríkis-
ins, sem leyfa ekki að stjórnskipulagi
sé breytt eftir öðrum leiðum en þeim
sem samræmast lögum og lýðræði.
Í stjórnarskrá Spánar er kveðið á
um meiri valddreifingu en í flestum
öðrum stjórnarskrám heims, víðtæk
völd eru færð til sjálfsstjórnarhéraða
ríkisins og mælt er fyrir um löglegar
leiðir til breytinga. Eftir þeim leiðum
ber að fara.
Til stuðnings evrópsku réttarríki
Dolores
Delgado
dómsmálaráð-
herra Spánar
Allir þessir stjórnmálamenn
geta litið svo á að pólitískum
réttindum þeirra séu settar
skorður, en það er ekki
vegna stjórnmálaskoðana
þeirra, eins og Bosch full-
yrðir, heldur vegna þess að
gjörðir þeirra eru taldar
brjóta gegn spænskum
lögum.
2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
0
-D
5
7
8
2
3
4
0
-D
4
3
C
2
3
4
0
-D
3
0
0
2
3
4
0
-D
1
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K