Skagablaðið


Skagablaðið - 19.12.1989, Síða 12

Skagablaðið - 19.12.1989, Síða 12
]l____________________________________________________________________________________________Skaqablaðið „Ég vildi ekki verða neitt flokksþý og tel mig ekki hafa verið það. Ég var reyndar ávallt ósmeykur við að segja forystumönnum flokksins til synd- anna ef mér þótti ástæða til. “ Eysteinn þeirra mestur — Jónas var minn aðalhús- bóndi og ég fór oft á fund hans. Eins bauð hann mér stundum í útreiðartúra og talaði þá látlaust og sagði mér sögur af samherjum jafnt sem andstæðingum. — Hann var ör. Hann gat ver- ið blíður og nærgætinn, en rauk svo upp eins og norðanstormur á svipstundu ef tilefni gafst. Ef ég var nálægt honum á slíkum stundum lét ég lætin í honum sem vind um eyru þjóta. Árið 1944 varð Jónas undir í valdabaráttu innan Framsóknar- flokksins og eftir það hafði Dan- íel ekki mikið samband við hann. Enda studdi hann Hermann Jón- asson og Eystein Jónsson gegn Jónasi. — Ég laðaðist miklu meira að Eysteini og Hermanni. Þeir voru forystumenn framtíðarinnar. Ég mat Eystein reyndar mest allra. Hann er að mínu mati grandvar- asti og drengilegasti stjórnmála- maður sem uppi hefur verið á þessari öld. Hann var svo grandvar að þegar forstjóri ÁTVR sendi honum brennivín við sérstök tækifæri, endursendi Eysteinn það. Hann var stórvel gefinn maður og fróður, kunni til dæmis Sturlungu nær utan að. Af honum Iærði ég margt. — Það jók viðsýni mína að vera í tengslum við menn eins og Eystein, Jónas og Hermann. Þessi átta ár sem erindreki flokksins voru góður skóli. Ég ferðaðist til dæmis í nær öll hér- uð landsins og kynntist aragrúa fólks á þessum árum, segir Daníel. Flokkurinn kallar á ný Daníel gerðist kennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar þegar hann hætti hjá flokknum 1947. Hann kenndi þar til 1954 og hugsar til þess tíma með mikilli ánægju. En flokkurinn kallaði að nýju og skolaði Daníel að landi á Akranesi. Það átti ekki fyrir honum að liggja að gera kennslu að ævistarfi. Framsóknarflokkur, Alþýðu- flokkur og Sósíalistar buðu fram sameiginlega í bæjarstjórnar- kosningum á Akranesi árið 1954 og náðu meirihluta, sem Sjálf- stæðismenn kölluðu þrífótinn. Framsóknarmenn fengu að ráða bæjarstjóra og fengu Daníel til starfsins. Framundan voru ár mikillar vinnu og pólitískra deilna. Daníel fer ekki í felur með skoðanir sínar á þeim at- burðum sem urðu á næstu árum. — Ég var tregur til þess að koma hingað upp eftir. Ég undi mér mjög vel við kennsluna og yfirgaf skólann með söknuði. Fjölskyldan tók þessu svona rétt þolanlega. — Þótt ég hafi alltaf verið mik- ill flokksmaður, lagði ég áherslu á sjálfstæði mitt gagnvart flokknum. Ég leitaði aldrei til flokksins um nokkurn skapaðan hlut, hvorki sem snerti störf mín né mína persónulegu hagi. Ég vildi ekki verða neitt flokksþý og tel mig ekki hafa verið það. Ég var reyndar ávallt ósmeykur við að segja forystumönnum Fram- sóknarflokksins til syndanna ef mér þótti ástæða til. — En Eysteinn þrýsti á mig að taka þetta að mér og mér hefur eflaust þótt upphefð f að vera boðið starfið. Ég hafði aldrei áður starfað að bæjarmálum. Slæm aðkoma á Akranesi — Þegar ég kom til Akraness var mörgu áfátt í bæjarmálunum. Reikningar bæjarins höfðu ekki verið lagðir fram í tvö ár, skuld- irnar voru miklar og innheimtan var í ólestri. En ég fékk til mín löggiltan endurskoðanda og lög- fræðing og tók til við að fá hlut- ina á hreint. — Það var eins og Sjálfstæðis- flokknum fyndist hann bera ábyrgð á allri þessari óreiðu því Sjálfstæðismenn tóku mér strax illa og Framtak byrjaði fljótt að hamast á mér með miklum sví- virðingum. — Hins vegar var góð sam- staða í meirihlutanum um að gera breytingar. Þar stóðu allir saman sem einn maður. Við byrjuðum á því að gera upp reikninga og auka tekjur bæjar- ins, hækkuðum útsvörin veru- lega. Daníel stóð á fertugu þegar hann kom hingað og var baráttu- glaður. Hann segist aldrei hafa ætlað að leggjast í pólitík, en tók starfið mjög alvarlega eins og lík- lega flest annað sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Hann varð umdeildur þegar í upphafi, vann eins og þjarkur og segist hafa lést um 20 kíló fyrsta sumarið sitt á Akranesi. Framkvæmdaár Heilbrigðisyfirvöld dæmdu bæjarskrifstofurnar óhæfan vinnustað og Daníel lagði metn- að sinn í að bæta úr því. Kunnug- ir segja að hann hafi sjálfur tekið þátt í að hreinsa þar til og skrúbba skápa. Þegar hann var búinn að koma eikarskrifborði sínu fyrir á skrif- stofu bæjarstjóra var mikið verk að vinna. Stærsta verkefnið var að sögn Daníels að byggja höfn- ina upp og sjá bæjarbúum fyrir sæmilegri vatnsveitu. — Við lukum við gerð vatns- veitu árið 1955 og hún hefur reynst afar vel síðan. Hún er lík- lega sú framkvæmd sem ég er einna hrifnastur af. Höfnin var hins vegar stærsta og dýrasta verkefnið. En það þurfti að gera meira. Ráðist var í byggingu gagnfræða- skóla, nýjar götur voru lagðar og holræsi, íþróttaaðstaða var bætt. Það leynir sér ekki að hann er Bæjarstjórn ráði en þrjózka Daníels ólög SETUDÓMARI í Akra- nesmálinu, Kristján Krist jánsson, kvað upp þann dóm síðdeis í gær, að Ðaníel Ágústínusson skuli sviptur umráðum yf- I ir öllum eignum Akranes kaupstaíðar, sem hann hefur undir höndum, og þau afhent Hálfdáni Sveinssyni forseta bæjar- stjómar. Þar meS hefur verið úrskurð- að, að brottvikning Daníels úr bæjarstjórastarfí var fullkom- lega lögleg, en þrjózka hans að neita í rúma viku að víkja úr Starfinu, var lögleysa. Segir j xetaíógeti, að aetla rnfi, a> 1 samkvæmt almennum réttar- reglum um slíkt réttarsamband, sem er milli bæjarsjóra og bæj- arstjórnar, geti bæjarstjórnin hafnað starfi hans án tillits til saka af hans hendi, en um bóta- rétt vegna uppsagnarinnar fja.ll aði fógeti ekki. DANÍEL ÞRJÓZAST ENN VIÐ Þegar setufógeti hiafði kveðið upp úrskurð sinn á Akranesi FramhaU á ?. aiSu. Magnús Kjartansson, rítstjórí Þjóðviljans, um brottvikningu Damels: Meirihluti kjósenda ráði Akranes hefur víst sjaldan verið eins mikið í fréttunum og þegar Daníel var rekinn í ágúst 1960. Þessi grein er úr Alþýðublaðinu 1. sept- ember, en það tók strax afstöðu gegn Daníel en með bæjarfulltrúum flokksins. Morgunblaðið tók í svipaðan streng og Alþýðublaðið, en Tíminn lét ekki sitt eftir liggja í stuðningi við Daníel. Þjóðviljinn fordæmdi einnig vinnubrögð meiri- hluta bæjarstjórnar og taldi það lýðræðislega skyldu bæjarstjórnar að láta fara fram nýjar kosningar. Magnús Kjartansson skrifaði í leiðara 4. októ- ber 1960: „Ékkert getur verið sjálfsagðari lýð- ræðisskylda en að meirihluti kjósenda ráði því sjálfur hverjir fara með stjórn í bænum. Sé geng- ið gegn þeim frumrétti er verið að fremja valda- rán og ofbeldi sem getur haft hinar alvarlegustu afleiðingar.“ Skagablaðið 13 hreykinn af verkum sínum á þessum árum. Hann telur sig hafa unnið mikið þarfaverk fyrir bæjarbúa. Pólitískur metnaður — Það var mér mikið metnað- armál að þessi meirihluti stæði sig vel. Ég var pólitískur for- svarsmaður flokkanna þriggja og reyndi að gera þeim til sóma. Mér finnst raunar nauðsynlegt að bæjarstjórar hafi pólitískan metnað. Ópólitískir embættis- menn geta verið ágætis menn, en eru ekki alltaf til stórræðanna. Vinstri meirihlutanum farnað- ist vel og fékk endurnýjað um- boð í kosningunum 1958, sem taldar eru þær hatrömmustu sem um getur í bænum. En veður skipast skjótt í lofti í pólitík. Al- þýðuflokkur og Framsóknar- flokkur áttu þá í samstarfi í landsmálum og Framsóknar- menn höfðu Iagt atkvæði sín m.a. á Benedikt Gröndal í kosn- ingunum árið 1956. Árið 1958 tóku kratar hins vegar upp sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn og að sögn Daníels varð sá atburður undirrótin að þeim sviptingum sem framundan voru í bæjarmál- unum á Akranesi. — Mér þótti það algjört sið- leysi hjá Benedikt að fara með okkar atkvæði til íhaldsins og uppfrá því fór fólk að nefna það við mig að bjóða mig fram í Borgarfjarðarsýslu. Ég hafði aldrei ætlað mér út í pólitík á þennan hátt, en lét undan þrýst- ingi og fór fram gegn Benedikt og fleirum í kosningunum vorið 1959. Persónulegur sigur Daníels Ekki komst Daníel á þing, en úrslitiri voru engu að síður stór- kostlegur persónulegur sigur fyr- ir hann. Jón Árnason Sjálfstæðis- flokki varð þingmaður kjör- dæmisins með 880 atkvæði, en Daníel fylgdi honum fast á hæla með 846 atkvæði, meira en helm- ingi fleiri atkvæði en Framsókn- arflokkurinn hafði fengið í kjör- dæminu árið 1953. Daníel fékk reyndar fleiri persónuleg atkvæði en Jón, en Jón fékk fleiri lands- listaatkvæði og komst þannig á þing. Benedikt Gröndal fékk hins vegar hrikalega útkomu, tapaði 114 atkvæðum og varð aðeins rúmlega hálfdrættingur á við þá Daníel og Jón. Þetta segir Dan- íel að Alþýðuflokksmenn á Akranesi hafi ekki getað fyrir- gefið sér. — Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta varð til þess að þeim fannst þeir verða að losa sig við mig á einhvern hátt. Þeir tóku al- gjörlega nýjan pól í hæðina eftir þessi kosningaúrslit og viðhorfið gagnvart mér gjörbreyttist. Ég er sannfærður um að Benedikt Gröndal var höfundur að því sem síðar gerðist. Það dró til stórtíðinda. Bæjar- stjórinn var rekinn og athygli landsmanna allra beindist að Akranesi um hríð. Erfiðir tímar fóru í hönd fyrir Daníel, þótt svo sé ekki að sjá á honum þegar hann rifjar þetta upp. Aftakan Alþýðuflokksmenn létu til skarar skríða gegn bæjarstjóran- um á bæjarstjórnarfundi í ágúst árið 1960. Bæjarráð hafði þá Borgarinn Akurncsingar spyrja: 'ttvtnœr segir bœjarsijórnin a( sér? Akranesi, þriSjudaginn 27. september 1960. OCraia kjósenda er: BÆJARSTJORNIN SEGI AF SÉR 1020 KJÓSENDUR Á AKRANESI HAFA UNDIRRITAÐ SAMÞYKKT BORGARAFUNDARINS OG ÞANNIG LYST VANTRAUSTI A GERÐUM BÆJARSTJÓRNARINNAR, ÞVÍ HÉR ER UM AÐ RÆÐA MEIR EN HELMING ALLRA KJÓSENDA I BÆNUM, OG 61% AF ÞATTTÖKUNNI í SÍÐUSTU BÆJARSTJÓRNARKOSNINGUM. Krafa borgarafundarins er: Að bæjarstjórnin falli frá samþykkt sinni um að víkja Daníel Ágústínussyni bæjarstjóra úr starfi. Að öðrum kosti verði bæjarstjórnarkosningar látnar fara fram nú þegar. Eftir að hinir óvenjulegu at- burðir gerðust í Bæjarstjórn Akraness nóttina 25. ágúst s.l. að bæjarstjóranum, Daníel Ágústinussyni var sagt upp starfi fyrirvaralaust með 7 atkv. gegn 2 hafa borgarar Akranesi almennt látið málið til sín taka með ýmsum hætti. & það að vonum, þar sem hér hefur verið unnið mjög óvenju- legt verk. Munu allir heiðarleg- ir menn sammála um það, að slík mál eigi að gera upp í kosn- ingum en ekki með þeim hætti, sem hér hefur átt sér slað. BORGARAFUNDURINN Fyrstu viðbrögð fólksins í bænum voru þau, að haldinn var almennur borgarafundur Bíóhöllinni 26. ágúst. Þar var hvert sæti skipað og langt > fram það. Munu 500—600 manna hafa sótt fundinn, fór vel og myndarlega fram og var öllurn til sóma, er að hon- um stóðu. B.æjarfulltrúum og bæjarstjóra var öllum boðið á fundinn með sérstöku fundar- boði og á fundinum boðinn ótakmarkaður ræðutimi. Hinir sjö létu ckki sjá sig. Þeir ósk- uðu ekki eftir að gera kjósend- um grein fyrir vinnubrögðum sinum. Mun slíkt lengi i minn- um haft. Halldór Þorsteinsson vélvirki sctti fundinn og skýrði frá til- efni hans. Fundarstjórar voru kjörnir: Guðjón Hallgrimsson kennari og Adam Þ. Þorgeirs- son múrarameistari. Ræðu- menn á fundinum voru: Þór- leifur Bjarnason námsstjóri. Ól- afur H. Arnason skólastjóri. Sigurður Guðmundsson bæjar- fulltrúi. Daniel Ágúslinusson bæjarstjóri. Björgvin Sæmunds- son verkfræðingur, Bjarni Th. Guðmundsson ba'jarfulltrúi. Þórhallur Sa*nutndsson baijar- fógeti og sr. Jón M. Guðjóns- son sóknarprestur. Samjiykkt var með öllum greiddum atkv. gegn 2. svofelld ályktun: ,,Almennur borgarafund- ur á Akranesi — haldinn i Bíóhöllinni 26. ágúst 1960, samþykkir aÖ skora á Bœji stjórn Akraness aÖ falla frá samþykktri tillögu, er flutt var af fulltrúum AlþýÖu- flokksins á siÖasta bœjar- stjórnarfundi um aÖ vikja Daniel Ágústinussyni bœjar- stjóra úr starfi. Að öÖrum kosti verÖi bœj- arstjórnarkosningar látnar Tillaga þessi var síðan send bæjarstjóminni daginn eftir. 1020 KJÓSENDUR UNDIR- RITA SAMÞYKKTINA. Á borgarafundinum kom það í ljós, að fundarmenn almennt vildu gjaman undirrita sam- þykktina til frekari áréttingar. Nú hefur hún verið staðfest með undirskrift 1020 kjósendá á Akranesi og er það nokkuð meira en helmingur þeirra, en s.l. haust voru 1934 á kjþrskrá. Þetta er ennfremur 61% af þátttökunni i siðustu bæj< stjórnarkosningum. Jafnframt hefur það komið greinilega í ljós, að hundmð kjósenda til viðbótar hafa fordæmt aðfarir þessar, enda þótt þeir hafi af ýmsum ástæðum ekki óskað eftir að undirrita samþykkt borgarafundarins. Hafa marg- ir þeirra ekki farið dult með þá skoðun sína. Þannig hafa meir en helmingur allra kjósenda á Akranesi mótmælt uppsögn- inni. Krafizt þess, að hún verði afturkölluð eða nýjar kosning- ar látnar fara fram nú þegar. ENGINN BÆJARSTJÓRI KJÖRINN. Bæjarstjórnin er siðferðilega skuldbundin til að fara eftir kröfu meiri hluta kjósenda. Hún er komin i minnihluta i bænum í máli þessu og bezti kostur, sem hún á völ á, er að efna til kosninga strax. Þvi verður ekki trúað að óreyndu, að bæjarstjórnin sitji áfram., eftir að kjósendur hafa jafn greinilega lýst vantrausti á hana. Hún hefur þegið umboð sitt af kjósendum og er skyldug til að hlýta úrskurði þeirra. Kjósendurnir er sá dómstóll, sem bæjarstjórninni ber að hlíta. Þá er ennfremur vert aÖ benda á þaÖ, aÖ bœjarstjórn- in hefur engan bœjarstjóra kjöriÖ ennþá, heldur aÖeins faliÖ forseta áÖ gegr.a störf- um bæjarstjóra „fyrst um sinn“. Mun slikt mjög i vanalegt. ÞÖRLEIFUR BJARNASON, námsstjóri: Kjósendur viljo nýjar hosningor Mér er tjáð, að meiri hluti kjóscnda hér á Akiancsi hafi eindregið óskað þess, að efnt verði nú þegar til bæjarstjóm- arkosninga hér í bæ. Ég er einn þeirra mörgu, sem styðja þess- ar óskir. Á borgarafundinum í Bió- höllinni þann 26. f.m., þar sem rætt var um byltinguna í bæj- arstjórn Akraness, minntist ég lítillega á, að ég teldi að lýð- ræðislegur grundvöllur væri ekki lengur til fyrir meiri hluta í bæjarstjóminni, eftir að s, starf þríflokkanna, sem farið höfðu með meiri hluta, væri rofið, og væri því eðlilegast að efnt yrði til nýrra bæjarstjórn- arkosninga. Hins vegar þóttist ég vita, að þau máttarvöld, sem úrslita ákvörðun hafa um þessi mál, mundu ekki fús til þess að samþykkja nýjar kosningai Það virðist nú orðið alltitt fyr- irbrigði i vom landi, að kjörnir fulltrúar láti vilja kjósenda sinna lönd og leið, þegar hann á einhvern hátt gengur á móti þeirra eigin óskadraumum um r , 11 * á ••; :« h . 'f'í * þ L . 4*r > . Frá borgarafundinum í Bíóhöllinni 26. ágúst 1960. völd og einræðislegar ákvarð- anir. En slíkt er vitaskuld hinn mesti dólgsháttur gagnvart öllu lýðræði. En hvaða rök em til þess, að frómir kjósendur óska efdr nýj- um bæjarstjómarkosningum? I bæjarstjómarkosningunum 1958 var kosið um tvo lista hér á Akranesi. Annars vegar var listi Sjálfstæðisflokksins, en hins vegar listi, sem þrír flokk- ar stóðu að, Alþýðuflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Fram f sóknarflokkurinn. Þríflokkam- " ir lögðu fram sameiginlega kosningastefnuskrá og buðu fram ákveðinn mann til bæjar- stjórastöðunnar, næðu þeir meiri hluta. Svo fór, að listi þessarar samfylkingar fékk ríf- t legan meiri hluta greiddra at-' kvæða og þar með valdaaðstöðu í bæjarstjóminni. Kjósendur höfðu kosið samstarfið, aðhyllzt áætlim flokkanna og bæjar- stjóraefnið. Meiri hlutinn var þar með bundinn af kosning- unn^ og skyldur til þess að vinna eftir þeirri stefnuskrá, sem kosið hafði verið um, und- ir framkvæmd þess bæjarstjóra, sem einnig hafði verið kosið um. Eftir slika uppbyggingu að kosningu var ákaflega erfitt að rjúfa samstarfið, og færi svo, að ágreiningur risi af þeirri al- vöru að til samstarfsslita kæmi, virtist lang eðlilegast að efnt væri til nýrra bæjarstjómakosn inga. Þeir fulltrúar, sem töldu ekki annað fært en rjúfa sam- starfið, gátu vitaskuld leitað ná- innar samstöðu flokks sins um Framhald á 3. sí8u. Brottvikning Daníels úr em- bætti bœjarstjóra kallaði á hörð viðbrögð bœjarbúa. Efnt var til borgarafundar í Bíóhöllinni og varð húsfyllir. Meira en helming- ur allra kjósenda í bænum skrif- aði undir yfirlýsingu þar sem þess var krafist að brottvikningin yrði dregin til baka en látnarfara fram kosningar ella. Af því varð þó ekki. Borgarinn kom út af þessu til- efni einu, en fleiri urðu tölublöð- in ekki. Daníel situr lengst til vinstri á fremsta bekk á mynd- inni. VINNINGASI • n ákl 75-000’ 13797 ______ . n ákr 250.000, ^raSs-000’000' _ . n.áKr.2.000.00°, 0207sa^s 135.00° V'no-ak. .„ 5000.000, 108',234 aokavinn. ákr- gvinn.ákr. & u“ 12.000, 234 a kbaFVRIRÁB'Ð199°' 8.575 v'nn. vinn. á kr á kr. 25 000 • HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings

x

Skagablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.