Skagablaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 23
23
Skagablaðið
Hátónsbarkakeppnin haldin á sal Brekubæjarskóla á föstudagskvöld að viðstöddu Pmenni:
Valgerður Jónsdóttir sigraði
Það var engu líkara en þakið af sal Brekkubæjarskóla ætlaði að
fjúka af þegar úrslitin í Hátónsbarkakeppninni 1989 voru tilkynnt þar
rétt fyrir miðnættið á föstudag. Eftir að sex stúlkur höfðu keppt til
úrslita komust dómnefnd og áhorfendur að sameiginlegri niðurstöðu:
Sigurvegarinn skyldi vera Valgerður Jónsdóttir!
Valgerður ætlaði vart að trúa
sínum eigin augum er úrslit-
in voru tilkynnt. Á meðan til-
kynnt var hverjar hefðu hlotið 2.
og 3. sætið í keppninni stóð Val-
gerður hnípin álengdar, hnjálið-
irnir að kikna og hnúturinn í
maganum var augljóslega meiri
en hún óskaði.
Angistarsvipurinn á andliti
Valgerður Jónsdóttir með blómin og kristalsvasann (að baki blómun-
um) sem hún hlaut að launum fyrir sigurinn í Hátónsbarkakeppninni.
hennar varð svo að einu stóru
brosi þegar Einar Skúlason,
rekstrarstjóri Arnardals, til-
kynnti úrslitin. Undrunarsvipur-
inn var þó ekki langt undan þótt
enginn vafi hefði leikið á því í
hugum dómnefndar og gesta, að
hún hefði skarað fram úr.
Valgerður á ekki langt að
sækja tónlistarhæfileikana. For-
eldra hennar eru Júlía Bjarn-
adóttir og Jón Trausti Hervars-
son, einn meðlima Dúmbó og
Steina sálugu. Bróðir Valgerðar,
Bjarni, hefur einnig vakið athygli
á söngsviðinu, var um tíma
söngvari Skagasveitarinnar Tic
Tac.
Gífurlegt fjölmenni var saman
komið á sal Brekkubæjarskóla á
föstudagskvöld og mikil
stemning. Hátíðin hófst á því að
Hátónsbarkakórinn söng jólalag
en síðan tók við úrslitaleikur
spurningakeppni grunnskólanna.
Þar áttust við lið úr einum 7.
bekkjanna í Grundaskóla og
einn 9. bekkjanna íBrekkubæjar
skóla.
Lagðar voru 20 spurningar fyr-
ir hvort lið og framan af var
spennan mikil. Þegar á leið tók
að draga í sundur með liðunum
og þegar upp var staðið hafði
Grundaskóli nælt sér í 16 stig en
Brekkubæjarskóli ekki nema 6.
Grundaskólaliðið svaraði sjö
spurningum réttum, fékk 1 stig
fyrir eina og nældi sér í 16. stigið
með því að svara eínni spurn-
ingu, sem Brekkubæjarskóli gat-
aði á. Brekkubæjarskóli svaraði
þremur spurninga sinna rétt.
Grundaskóli sigraði því í þess-
ari keppni annað árið í röð en
fyrra var fyrirkomulagið þannig,
að úrvalslið beggja skóla kepptu.
Þá var munurinn ekki ekki nema
eitt stig.
Að spurningakeppninni lok-
inni tóku við skemmtiatriði og
vaki sérstaklega mikla lukku
sveit nokkurra kennara sem tók
„trash“ útgáfu af laginu Inn og út
um gluggann við gífurlegan fögn-
uð viðstaddra. Að endingu var
það svo blúsrokksveitin Kentár
sem hélti uppi fjörinu með leik
fyrir dansi.
Ski og Glefi ár m árini GLEÐILEG JÓL
pverjar á Bjarna Ólafssyni fjölskyldur þeirra: lileg jól og farsælt komandi eð þakklæti fyrir samstarfið á jsem er aðlíða. RUNÓLFUR HALLFREÐSSON
^ „Tvíefíd trygging" VÁTRYQQINGAFÉLAQ ÍSLANDS Kirkjubraut 28 0 13388 & 13389
Eftirtalin fyrirtækí óska starfsfólki og viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla með þökk fyrir árið sem er að líða:
Raftækjavinnustofa Ármanns Ármannssonar Axel 5veinbjörns5on hf. — veiðafæraverslun Bíla- og vélaverk- stæði Björgvins
Bílver fasteignasalan Verslun haraldar
Pípulagnir Karvels Brauða- og kökugerðin El. Rúnar Elíasson — málarameistari
Trésmiðjan Akur 5tuðlastál Ferðaskrifstofan 5aga