Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 28
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Félagarnir Haraldur Egilsson og Ásmundur Páll Hjaltason lögðu af stað í heldur óvenju-
lega hringferð kringum landið
í vikunni. Þeir eru á litlum 50 cc
kínverskum vespum sem ná ekki
meiri hraða en 45-50 kílómetrum
á klukkustund. Með í för er steinn
frá Suður-Afríku handmálaður af
systur manns sem lést úr krabba-
meini langt fyrir aldur fram. Hans
helsti draumur var að ferðast um
heiminn.
„Við ákváðum að fara þessa
hringferð til að sýna fólk að það
væri alveg hægt að hafa gaman af
lífinu og leika sér og fíflast aðeins.
Þrátt fyrir að eiga að heita full-
orðnir menn þá er allt í lagi að vera
smá vitleysingur annað slagið.
Nokkrum dögum áður en við
leggjum af stað þá fæ ég þennan
stein í hendurnar,“ segir Haraldur.
Steinninn gengur undir nafninu
Robrocks. Saga hans er sú að ungur
maður í Suður-Afríku sem hét
Robert McEwan lést úr hvítblæði
Fara hringinn á vespum
með stein frá Suður-Afríku
Haraldur og Ásmundur ferðbúnir með vespurnar og Robrock Robrocks í Reynisfjöru.
Robrocks við fossinn Gljúfrabúa.
Systir ungs
manns sem lést
úr krabbameini
málaði á steina
sem ferðast nú
um allan heim
aðeins 26 ára gamall eftir nokk-
urra ára baráttu. „Hann var mikill
húmoristi og góður strákur,“ segir
Haraldur. „Til að heiðra minningu
hans og leyfa honum að flakka um
heiminn, sem hann fékk aldrei
tækifæri til, þá ákvað systir hans að
mála nokkra steina. Ég held að það
séu svona 15-20 steinar í umferð
en hún gerði 10 steina til að byrja
með.“
Steinninn er alltaf á ferðalagi
Steinarnir eru lakkaðir og aftan á
þeim eru skilaboð sem eru eitthvað
á þá leið að ef steinninn finnst skal
finnandi taka mynd af sér með
honum og setja á Instagram með
myllumerkinu #robrocks. „Þú getur
svo ferðast með steininn og tekið
nokkrar myndir og skilið hann eftir
og sá næsti sem finnur hann gerir
það sama. Þannig er steinninn alltaf
á ferðalagi,“ útskýrir Haraldur.
Haraldur fékk steininn sendan til
sín frá Suður-Afríku. Konan hans
er þaðan og frænka hennar fann
steininn og vildi senda hann til
Íslands. „Þannig endaði hann hjá
mér. Ég póstaði mynd af mér með
steininum og fjölskylda Roberts var
mjög ánægð með það. Þetta er fyrsti
steinninn sem ratar til Íslands.“
Haraldur og Ásmundur ákváðu
að nýta hringferðina og vekja
athygli á krabbameini. „Við komum
þess vegna við á öllum helstu ferða-
mannastöðum landsins og tökum
mynd af Robrocks,“ segir Haraldur.
Haraldur segir það alls ekki auð-
velt að keyra hringinn á vespunum.
Hugmyndin kom fyrst upp í gríni
og fólki fannst hún algjör vitleysa.
„En svo fórum við að hugsa hvort
við gætum gert þetta í alvöru. Við
erum sem betur fer með dygga
stuðningsmenn heima sem hvöttu
okkur áfram. Jón Björn Hákonar-
son, forseti bæjarstjórnar Fjarða-
byggðar, sagði að ef einhver gæti
farið hringinn á 50 cc vespum þá
værum það við. Þannig að við bara
létum vaða og lögðum af stað,“ segir
Haraldur hlæjandi og bætir við
að þeir félagar séu Jóni Birni mjög
þakklátir fyrir stuðninginn.
Fara upp brekkur
á 30 kílómetra hraða
Haraldur og Ásmundur reikna
með að klára hringinn á einni
viku. „Við reynum að keyra ekki
nema svona 4-5 tíma á sólarhring.
Þá helst á nóttunni þegar umferð
er lítil. Vespurnar fara hægt áfram.
Í sumum brekkum ná þær varla
upp í 30 kílómetra hraða. Ef það
er mótvindur þá liggur við að við
þurfum að labba,“ segir Haraldur.
Þeir útbjuggu vespurnar með
hliðartöskum og verkfærakistum
með ýmsum varahlutum. Þeir
ferðast bara með það allra nauð-
synlegasta. Lítið tjald. Litla svefn-
poka og lítinn prímus. Planið er að
vera komin aftur til Neskaupstað-
ar fyrir rokkhátíðina Eistnaflug.
„Við erum með Eistnaflugs-
fánana á hjólunum. Við erum
svona að minna fólk á eina stærstu
og bestu rokkhátíð á Íslandi. Þeir
létu okkur hafa gul vesti svo við
myndum sjást almennilega og það
er alveg að skila sér. Þannig að við
erum að þykjast vera rokkarar
líka, ekki bara vitleysingar,“ segir
Haraldur hlæjandi.
Þegar heim er komið mun leiðir
þeirra Haraldar, Ásmundar og
Robrocks skilja. „Hann fær að vera
með okkur á Eistnaflugi en þar
ætla ég að finna einhvern sem vill
taka við honum og halda ferða-
laginu áfram. En hver veit, kannski
hittir maður hann seinna á flakki
og tekur hann með sér. Mér finnst
þetta alveg æðisleg hugmynd. Við
þekkjum öll einhvern sem hefur
glímt við krabbamein. Það er
mjög mikilvægt að vekja athygli á
þessum sjúkdómi,“ segir Haraldur
að lokum.
Hægt er að fylgjast með ferð
þeirra félaga í Facebook-hópnum
Hringurinn.
Opið virka daga
kl. 11:00 - 22:00
Helgar
kl. 16:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
4 réttir + súpa dagsins
aðeins 1.790 kr.*
KJÚKLINGUR Í ANANASSÓSU
SVÍNAKJÖT Í KUNG PAOSÓSU
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU
NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI
*tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum.
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
0
-A
F
C
0
2
3
6
0
-A
E
8
4
2
3
6
0
-A
D
4
8
2
3
6
0
-A
C
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K