Fréttablaðið - 06.07.2019, Síða 35

Fréttablaðið - 06.07.2019, Síða 35
Tálknafjarðarskóli Tvær stöður umsjónarkennara á yngsta stigi og unglingastigi (50-100% starf). Fjölbreytt og skemmtileg störf sem fela m.a. mögulega í sér list- og verkgreinakennslu. Stöður stundakennara (10–40% starfshlutfall). List- og verkgreinar og kennsla/umsjón í upplýsingatækni. Áhersla lögð á samþætt verkefni þvert á námsgreinar. Nánar um menntunar- og hæfniskröfur á talknafjardarskoli.is. Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið skolastjori@talknafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2019. Tálknafjarðarhreppur Hlutastarf við heimaþjónustu, 6–8 tímar á viku. Í starfinu felast þrif og aðstoð á heimilum eldri borgara. Starfsmaður til að sinna félagsmiðstöð unglinga u.þ.b. tvö kvöld í viku. Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Jónsdóttir félagsmálastjóri í síma 450 2300. Umsóknum er hægt að skila í netfangið arnheidur@vesturbyggd.is eða á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps. Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2019. Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar Starfsfólk í sundlaugarvörslu á dag-, kvöld- og helgarvöktum frá og með 20. ágúst nk. Starfið felst í almennri afgreiðslu og þrifum auk eftirlits með sundlaug og íþróttahúsi. Æskilegt er að viðkomandi tali a.m.k eitt erlent tungumál, sé þjónustulundaður og ekki er verra að hafa dálítið frumkvæði. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 846 4713 eða í sundlaug@talknafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2019. Arctic Fish Við leitum að vélstjóra til starfa við sjóeldið okkar í Patreksfirði og Tálknafirði. Aðalverkefni eru viðhald og umsjón véla í bátum okkar og fóðurprömmum ásamt daglegum störfum og tilfallandi verkefnum þegar þess gerist þörf. Vinnudagurinn er að jafnaði kl. 7–16 en umsækjendur þurfa að vera sveigjanlegir varðandi fyrirkomulagið. Menntunar- og hæfniskröfur - Vélstjórnarréttindi að lágmarki 750kW og <24m - Stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður - Hæfni í mannlegum samskiptum Við leitum líka að starfsmönnum til að starfa við sjóeldi. Starfið felur í sér ýmis verkefni, s.s. fóðrun, daglegt eftirlit og önnur verkefni við kvíahringi og fóðurpramma. Umsækjendur þurfa að geta verið sveigjanlegir varðandi skipulag vakta og vinnutíma, en miðað er við að vinna á sjö daga vöktum og frí í sjö daga. Menntunar- og hæfniskröfur - Stundvísi, frumkvæði og metnaður í starfi - Hæfni í mannlegum samskiptum - Skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi eru æskileg - Reynsla úr fiskeldi er kostur - Þekking eða reynsla á uppsetningu verkferla og vinnuferla í sjókvíaeldi er kostur - Góð tölvukunnátta og þekking á eldishugbúnaði er æskileg - Áhugi á líffræði, búskap og dýravelferð og skilningur á mikilvægi heilbrigðs umhverfis í fiskeldi Við hvetjum konur jafnt sem karla að sækja um! Umsóknir sendist til Kristínar Hálfdánsdóttur, skrifstofustjóra Arctic Fish á kh@afish.is. Umsókn skal innihalda stutta starfsferilskrá auk kynningarbréfs. Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2019. – fjölbreytt mannlíf og blómstrandi atvinnulíf Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar Tálknafjarðarhreppur - sími: 450 2500 - talknafjordur@talknafjordur.is Tálknafjörður Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþrótta- álfar og þorpið státar af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og ótal skipulögðum íþrótta- tímum. Atvinnulífið er í miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri. Næg leikskólapláss og sérlega hagstæð leikskólagjöld. Tálknafjörður 0 6 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 0 -B 9 A 0 2 3 6 0 -B 8 6 4 2 3 6 0 -B 7 2 8 2 3 6 0 -B 5 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.