Fréttablaðið - 27.06.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * — F I M M T U D A G U R 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9
LÆGSTA VERÐIÐ Í ÖLLUM
LANDSHLUTUM
Orkan býður lítrann á lægsta verðinu í öllum landshlutum — án allra skilyrða.
Flestir eiga orðið snjallsíma eða önnur
svipuð tæki þar sem líkamsbeitingin
býður oft upp á álag á háls, herðar og
höfuð. Fullorðnir og börn sækja sjúkra-
þjálfun í auknum mæli og vangaveltur
um aukinn beinvöxt í hnakka hafa
verið utan landsteinanna. ➛12
Hafa snjalltækin
bein áhrif
á líkamann?
Vandamálið er
ekki einungis
óæskileg líkams-
staða ein og sér
heldur er það
einnig það hreyf-
ingarleysi sem
fylgir samhliða.
Haraldur Magnússon
osteópati
1 4 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R
DÓMSMÁL Maður var í gær dæmdur
til sex ára fangelsisvistar fyrir til-
raun til manndráps. Dómurinn var
kveðinn upp í Héraðsdómi Norður-
lands eystra. Maðurinn var fundinn
sekur um að hafa veitt manni fjölda
lífshættulegra stungusára í bæði
andlit og líkama í miðbæ Akureyrar
í nóvember í fyrra.
Auk fangelsisrefsingar var maður-
inn dæmdur til að greiða brotaþola
1.200.000 krónur í miskabætur og
allan sakarkostnað málsins, alls
5.352.048 krónur.
Í forsendum dómsins segir meðal
annars: „Brot ákærða sem hann er
nú sakfelldur fyrir eru hrottaleg
og bera vott um skeytingarleysi
gagnvart lífi og heilbrigði annars
manns.“
Ákærði krafðist sýknu á þeim
grundvelli að um nauðvörn hefði
verið að ræða en við ákvörðun um
bótafjárhæð til brotaþola segir í
dóminum að þrátt fyrir að brotaþoli
hafi ráðist að fyrra bragði á ákærða
sé ekki unnt að fallast á með ákærða
eins og hér standi að sú staðreynd
eigi að hafa áhrif á bótafjárhæð-
ina. Árásin hafi verið lífshættuleg
og valdið brotaþola varanlegum
andlitsskaða. Fjallað er nánar um
dóminn og aðdraganda málsins á
frettabladid.is – aá
Dæmdur fyrir
tilraun til
manndráps
ÍSLANDSPÓSTUR „Það hefur lengi
verið mín skoðun að þegar búið
er að koma lagaumgjörð um þessa
starfsemi í betra horf, eins og við
höfum verið að gera núna, og gera
nauðsynlegar breytingar á rekstr-
inum þá sé ekkert því til fyrirstöðu
að ríkið selji þennan rekstur,“ segir
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, spurður um
framtíð og framtíðareignarhald
Íslandspósts. Ríkisendurskoðun
birti svarta úttekt á Íslandspósti á
þriðjudag. Aðspurður hvaða þýð-
ingu skýrslan hafi fyrir næstu skref
með tilliti til reksturs Íslandspósts
og eignarhalds ríkisins segir Bjarni
að hans vilji sé að einkavæðing eigi
sér stað.
Bjarni telur að rekstur Íslands-
pósts hafi verið það slæmur að und-
anförnu að ekki hafi verið hægt að
hefja undirbúning að sölu. Nú séu
umbætur á veg komnar og einka-
væðing ákjósanleg. – smj / sjá síðu 4
Vill að ríkið
selji Póstinn
Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og
efnhagsráðherra.