Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2019, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 27.06.2019, Qupperneq 11
Auk þess var tónninn í seðla- bankamönnum á þá leið að hagkerfið stæði ekki endi- lega verr en þeir álitu það gera í maí. Jón Bjarki Bentsson, aðal­ hagfræðingur Íslandsbanka Þetta er flott og allt það en við viljum sjá kerfisbreytingar. Við hefðum átt að vera þarna fyrir þremur árum en komumst ekki inn út af fjármagnshöftunum. Andrew Brudenell sjóðstjóri 64 milljónir er áætlað að EBITDA Emmessíss hafi verið á síðasta ári. Væntingar um að peningastefnu- nefnd Seðlabankans lækkaði vexti um 50 punkta í stað 25 varð til þess að úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði í kjölfar vaxtaákvörðun- arinnar. Tónninn í stjórnendum Seðlabankans kom markaðsaðilum á óvart að sögn aðalhagfræðings Íslandsbanka. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri kynnti í gær ákvörðun pen- ingastefnunefndar bankans um að lækka stýrivexti um 0,25 pró- sentustig niður í 3,7 prósent. Þetta var í síðasta sinn sem Már kynnir vaxtaákvarðanir nefndarinnar en hann mun láta af störfum sem seðlabankastjóri í sumar eftir 10 ár sem seðlabankastjóri. Úrvalsvísitalan hafði hins vegar lækkað um 0,85 prósent þegar markaðurinn lokaði í gær og ávöxt- unarkröfur á óverðtryggð ríkis- skuldabréf höfðu hækkað um allt að 9 punkta. Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir í samtali við Fréttablaðið að tvær meginástæður séu á bak við þessar hreyfingar á verðbréfamarkað- inum. „Það hafði breiðst út á meðal markaðsaðila sú skoðun að það yrði stigið stærra skref en 25 punkta lækkun. Þrátt fyrir að allar opin- berar spár bentu í átt að 25 punkta lækkun heyrði maður út undan sér að væntingar um 50 punkta lækk- un væru að aukast og það hafði til dæmis endurspeglast í hreyfingum á skuldabréfamarkaði,“ segir Jón Bjarki. „Auk þess var tónninn í seðla- bankamönnum á þá leið að hag- kerfið stæði ekki endilega verr en þeir álitu það gera í maí. Annars vegar var stigið smærra skref en margir bjuggust við og hins vegar var ekki eins eindreginn tónn um frekari lækkanir.“ Í fréttabréfi greiningardeildar Arion banka er bent á það að á kynningarfundinum í gær hafi komið fram í máli aðstoðarseðla- bankastjóra að kortaveltutölur og væntingar heimila og fyrirtækja bendi til meiri seiglu innlendrar eftirspurnar en áður var talið. Samtök atvinnulífsins gáfu út að æskilegt hefði verið að stýri- vextir lækkuðu meira en sem nam lækkun Seðlabankans í gær. Að mati samtakanna er mikilvægt að Seðlabankinn og stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að milda niður- sveifluna. – tfh Seðlabankinn tók smærra skref en markaðurinn bjóst við Vaxtaákvörðunin var kynnt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1912, móðurfélag heildsölunnar Nathan & Olsen og Ekrunnar, hefur keypt 56 prósent hlut í Emmessís. Ísgarðar, félag í eigu Pálma Jóns- sonar, framkvæmdastjóra ísgerðar- innar, seldi hlutinn en hann heldur eftir 35 prósenta hlut. Samkeppnis- eftirlitið á eftir að blessa kaupin. Þetta herma heimildir Fréttablaðs- ins. 1912 er í eigu Kristínar Fenger Vermundsdóttur og barna hennar, Ara Fenger forstjóra og Bjargar Fenger. Árið 2017 velti samstæðan sjö milljörðum króna og hagnaðist um 217 milljónir króna. Stjórnendur 1912 horfa til þess að Emmessís sé öflugt vörumerki með góðar vörur. Þeir sjá einnig mikil tækifæri í samlegð innan samst æðunnar. Tækifærin í samlegð fel- ast bæði í stoðþjónustu og dreifingu, að því er heimildir herma. Emmessís dreifir til að mynda frystivör- urm í verslanir en það gerir Nathan & Olsen einnig. Það bjóði upp á ýmsa möguleika í sam- starfi. Nat ha n & Ol sen flytur einungis inn ís frá Häagen-Dazs. Heildsalan er því ekki umsvifamikil í sölu á ís og því er talið ólíklegt að Samkeppniseftirlitið muni skerast í leikinn. Þeir sem þekkja vel til á heild- sölumarkaði vekja athygli á að Nathan & Olsen hafi umboð 1912 kaupir meirihluta í Emmessís Pálmi Jónsson keypti 89 prósent í Emmessís í lok apríl og selur nú meirihluta í fyrirtækinu. Kaupandinn á og rekur heildsöluna Nathan & Olsen og Ekruna. Stjórnendur 1912 sjá samlegðartækifæri í kaupunum. Tollalækkanir hafa aukið samkeppni í ís. Ari Fenger, forstjóri 1912. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn er kominn á athugunarlista MSCI, sem er eitt stærsta vísitölufyrirtæki heims, en það markar upphafið að samráðsferli sem lýkur í október. Ef niðurstaðan verður jákvæð verða skráð íslensk félög gjaldgeng í vísi- tölur MSCI í maí 2020. Ísland verður fyrst um sinn í f lokki vaxtarmarkaða (e. front- ier markets) en þar á meðal eru Kasakstan, Litháen og Rúmenía. Flokkunin er endurskoðuð á hálfs árs fresti. „Það eru líkur á því að við förum upp um nokkra f lokka á komandi árum og það getur haft úrslitaáhrif fyrir markaðinn,“ segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphall- arinnar, í samtali við Fréttablaðið. „Þó nokkuð mikið af fjármagni í heiminum fylgir þessum vísitölum og að því leyti eru þetta gleðifréttir fyrir markaðinn.“ Eins og Markaðurinn greindi frá komu fulltrúar MSCI til landsins í vor til að funda með forsvarsmönn- um Fossa markaða. Þá hefur vísi- tölufyrirtækið rætt við þá erlendu hluthafa sem hafa gert sig gildandi á innlendum hlutabréfamarkaði á undanförnum misserum. Íslenski markaðurinn er nú þegar á leið inn í mengi vísitölufyrirtæk- isins FTSE Russel í september en niðurstaðan úr samráðsferli MSCI verður tilkynnt í nóvember. Í umfjöllun Financial Post er rætt við erlenda sjóðstjóra um málið. Andrew Brudenell hjá Ashmore Group segist ekki vera að f lýta sér að fjárfesta í íslenskum hluta- bréfum. Ávöxtunin hafi verið lág og fyrirtækin séu offjármögnuð. „Þetta er f lott og allt það en við viljum sjá kerfisbreytingar. Við hefðum átt að vera þarna fyrir þremur árum en komumst ekki inn út af fjármagnshöftunum.“ „Ef við skoðum vaxtarmarkaðs- lönd þá er oft búist við tækifærum sem felast í umbótaferli,“ segir Jul- ian Mayo hjá Fiera Capital. „Sjáum við fyrir okkur mikinn vöxt í hag- kerfinu? Svarið er að það sé ólík- legt.“ Sjóðstjórarnir segja seljanleika á íslenska markaðinum vera áskorun. Að Marel og Arion banka undan- skildum sé seljanleiki fæstra félaga nægur. – tfh Íslenski markaðurinn kominn á lista MSCI Páll Harðarson, forstjóri Kaup- hallarinnar. fyrir Unilever en keppi- nauturinn Kjörís f lytji inn ís fá fyrirtækinu, þar á meðal ísinn Magnum. Leiða megi líkur að því að stjórnendur 1912 muni reyna að fá umboð til að selja ísinn hér á landi. Uni- lever framleiðir til að mynda Dove, Knorr og Cif. Athygli vekur að Pálmi keypti 89 prósenta hlut í Emmessís í lok apríl af hópi fjárfesta sem leiddur var af Einari Erni Jónssyni. Um tveimur mánuðum síðar selur hann 56 prósenta hlut til 1912. Faðir Einars Arnar stofnaði Nóatún en afi Pálma stofnaði Hagkaup. Félag á vegum Gyðu Dan Johansen, sem fjárfesti í ísgerðinni á sama tíma og Einar Örn, mun áfram eiga níu pró- senta hlut í Emmessís. Rekstur Emmessíss gekk illa árið 2017 en ársreikningur síðasta árs liggur ekki fyrir. Fyrirtækið tapaði 51 milljón króna árið 2017 og eigið fé var neikvætt um 82 milljónir króna. Árið 2016 gekk mun betur en þá hagnaðist fyrirtækið um 48 milljónir króna. Veltan árið 2017 var 923 milljónir króna. Í fréttatilkynningu vegna kaupa Pálma á meirihluta í Emmessís kemur fram að náðst hafi umtals- verður rekstrarbati á síðastliðnu ári og 2019 hafi farið vel af stað. Áætluð EBITDA, það er hagnaður fyrir fjár- magnsliði og afskriftir, fyrir 2018 sé 64 milljónir króna. Til samanburðar var EBITDA ársins 2016 46 milljónir króna. Í tilkynningunni sagði að Ísgarðar muni leggja Emmessís til aukið hlutafé. Höfuðkeppinauturinn Kjörís glímdi einnig við áskoranir árið 2017 en þá tapaði félagið 13 millj- ónum króna. Árið áður hafði það hagnast um 56 milljónir króna. Veltan nam 1,3 milljörðum króna árið 2017. Kjörís stendur fjárhags- lega vel. Eigið fé var 405 milljónir króna við árslok 2017 og eiginfjár- hlutfallið var 58 prósent. Vert er að nefna í ljósi rekstrar- bata Emmessíss á síðastliðnu ári og í ár að samkeppnin í sölu á ís jókst síðastliðið vor þegar tollar á inn- f luttan ís og frostpinna lækkuðu úr 30 prósentum í 18 prósent. Sam- hliða lækkaði magntollur á ís úr 110 krónum á kíló í 66 krónur á kíló. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Rekstur Emmessíss hefur verið þungur. Forsvarsmenn segja að rekstrarbati hafi verið á síðasta ári og árið í ár fari vel af stað. MARKAÐURINN 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.