Fréttablaðið - 27.06.2019, Síða 25

Fréttablaðið - 27.06.2019, Síða 25
Ég hef verið upptekin af tísku og hverju ég klæðist frá því ég man eftir mér. Fyrsta minn- ingin er ljóslifandi frá Birgittu Haukdal-tímabilinu árið 2003 þegar bolur með einni ermi og hliðartagl var málið ef maður vildi vera hvað flottastur,“ segir Gréta Karen Jónsdóttir sem fer nú í pels þegar hún vill bera af. „Mamma segir stundum í gríni „Beauty is pain“ eða „fegurðin er kvöl“, hennar helsta tískuheilræði. Ég reyni alltaf að klæðast því sem mér líður vel í og reyni að pæla ekki í því hvað öðrum finnst,“ segir Gréta, sem klæðist oftast þægilegum íþróttafötum. „Ég hef í raun ekki afgerandi stíl; ég reyni bara að klæðast því sem mér finnst f lott, en ég vil að fata- stíllinn endurspegli sjálfsöryggi og þá staðreynd að mér líður vel í eigin skinni.“ Í búðir með Monicu Rose Þegar kemur að fatakaupum fellur Gréta Karen oftast fyrir pelsum, drögtum og skóm. „Ég er veik fyrir pelsum og elska að kaupa mér nýjan pels eða loð- jakka,“ segir Gréta sem á sjö pelsa í fataskápnum. „Svo get ég síst verið án þess að eiga flotta skó þegar kemur að tísku og keypti mér síðast æðis- lega Nike Air Force-skó. Þá finnst mér svarti liturinn fara mér einna best en rauður kemur líka sterkur inn og rauður varalitur er það sem setur punktinn yfir i-ið þegar ég hef mig til,“ segir Gréta. Upp á síðkastið hefur hlébarða- munstur verið í uppáhaldi hjá Grétu Karen og á hún bæði kjól, buxur og peysu með því dýrslega munstri. „En ef það ætti að banna eitt- hvað að eilífu innan tískubransans væru það Crocs-skór og húðlitaðar sokkabuxur. Sjálf hef ég gerst sek um voðalegt tískuslys en það var þegar ég gekk um í æpandi diskó- buxum. Þær urðu að einhverju æði þegar ég var unglingur og mér fannst algjörlega málið á þeim tíma að eignast slíkar buxur en þegar ég hugsa til baka skil ég ekki af hverju ég var að missa mig yfir þeim,“ segir hún hlæjandi. Tískufyrirmyndir Grétu eru margar og úr ólíkum áttum. „Ég fylgist mikið með Fanneyju Ingvars, Svölu Björgvins, Elísabetu Gunnars, Monicu Rose, Valentinu Steinhart og fleiri góðum, og ef ég gæti valið mér fræga tískudrós til að fara með í tuskubúðir væri ég til í að fara með Monicu Rose. Mér finnst hún afar f lottur stílisti.“ Mamma segir alltaf satt Gréta Karen notar ilminn Bright Crystal frá Versace og segir að sér líði best þegar hún er ánægð með það sem hún klæðir sig í. „Í gegnum tíðina hef ég lítið gengið með skartgripi en ég fékk nýlega tvö hálsmen í afmælisgjöf frá vinkonum mínum og held mikið upp á þau. Annað þeirra er með stjörnumerkinu mínu og hitt með stafnum mínum,“ segir Gréta sem á líka í fórum sínum hjart- fólgið skart frá ömmu sinni. „Ég held mikið upp á hring og hálsmen úr silfri sem amma gaf mér. Hringurinn er afar fágaður með litlum demanti í miðjunni og hálsmenið er silfurhjarta. Mér þykir undurvænt um þetta sett og finnst gott að bera og klæðast hlutum sem ég tengi við ástvini mína. Þannig fer ég stundum í gamalt, svart leðurpils af mömmu sem hún átti og skartaði þegar hún var um tvítugt,“ segir Gréta. Hún veit upp á á hár til hvers hún leitar þegar hún þarf að leita álits eða spyrja hvort hún sé fín. „Þá leita ég oftast til hennar mömmu. Hún veit hvað hún syngur og segir mér alltaf satt.“ Framtíðarmarkmiðin eru skýr hjá Grétu Karen. „Ég ætla að vera dugleg að vinna, klára háskólanámið í lögreglu- fræðum og kaupa mér íbúð. Ég stefni á að vinna sem lögregla í framtíðinni en líka að mennta mig meira og er mikið að pæla í sálfræði.“ Kjóll úr 17, jakki úr Lindex og skór úr Air. Svartur blazerjakki úr Mango, Levi’s-buxur og taska frá Michael Kors. Pelsinn keypti Gréta skósíðan í Gyllta kettinum en lét stytta hann. Bux- urnar eru frá 66°N, skórnir frá Dr. Martens og svarta hettupeysan úr H&M. Framhald af forsíðu ➛ Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.